Stúdentspróf frá Kvennaskólanum 1986. Nám í ensku HÍ 1989–1990. BEd-próf frá Kennaraháskóla Íslands 1994. Diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Nordica Consulting Group við Endurmenntun HÍ 2016. D-stig IPMA-vottunar verkefnastjóra hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands.
Starfsferill
Kennari við Árbæjarskóla 1994–1995 og Ölduselsskóla 1995–1996. Starfsmaður hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni 1999–2001. Kennari við Selásskóla 2003–2005. Starfsmaður hjá Apex 2005–2006. Sölufulltrúi hjá H. Jacobsen 2005–2008. Kennari við Barnaskóla Hjallastefnunnar 2008–2009 og Flataskóla 2010–2011. Starfsmaður hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni 2009–2010. Kennari við Árbæjarskóla 2011–2017, Öldutúnsskóla 2017–2019 og Árbæjarskóla 2019–2021. Mennta- og barnamálaráðherra 21. desember 2024 - 22. mars 2025.
Próf frá East Aurora High School í New York-ríki 1988. Stúdentspróf MS 1989. Embættispróf í lögfræði HÍ 1998. Nám í Evrópurétti við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu 1998. Hdl. 1999. Próf í verðbréfamiðlun 2000. LLM-próf í lögfræði frá Pennsylvaníuháskóla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum.
Starfsferill
Fulltrúi hjá sýslumanninum í Hafnarfirði 1998–2000. Fulltrúi og héraðsdómslögmaður á Lögfræðistofu Sóleyjargötu 17 2000–2001. Aðalfulltrúi hjá sýslumanninum á Sauðárkróki 2001. Lögfræðingur á starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis 2002–2004. Lögfræðingur, sviðsstjóri þjónustusviðs og fjármálastjóri hjá Skipulagsstofnun 2004–2006. Lögfræðingur á lánasviði hjá Fjármálaeftirlitinu 2006–2007. Aðstoðarsaksóknari í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra 2007–2011. Í barnaverndarnefnd Reykjavíkur árið 2008. Lögfræðingur hjá DNB-banka í Ósló 2011–2013. Lögmaður, stofnandi og meðeigandi hjá VestNord Legal í Reykjavík 2013–2015. Lögfræðingur hjá Nordea-banka í Ósló 2015–2019. Lögfræðingur hjá Isavia 2019–2020. Sjálfstætt starfandi lögfræðingur 2020–. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra síðan 21. desember 2024.
Gagnfræðapróf frá Ármúlaskóla trésmíðadeild 1972. Nám við trésmíðadeild Iðnskólans í Reykjavík 1974. Skrifstofunám, vefsíðugerð og myndvinnsla í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum (NTV) 1997.
Starfsferill
Lögreglumaður í Grindavík og Keflavík 1974-1980. Afgreiðslumaður í versluninni Brynju 1981-1993. Í endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar 2014-2016 fyrir Pírata. Mennta- og barnamálaráðherra 2025-2026.
Stúdentspróf VÍ 1980. BA-próf í uppeldisfræði HÍ 1986. MA-próf í námssálarfræði og ráðgjöf frá Rhode Island College í Rhode Island fylki í Bandaríkjunum 1989. MA-próf í félags- og persónuleikasálfræði, einnig frá Rhode Island College 1991. Gráða í uppeldis- og kennslufræðum HÍ 1994.

Löggilding sem sálfræðingur 1992. Sérfræðileyfi Landlæknisembættisins í klínískri sálfræði 2008.
Starfsferill
Kennsla við Grunnskólann á Stokkseyri 1980-1983. Sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins 1991-1993. Námsráðgjafi við MH 1991-1992 og kennari við MH 1993-1994. Stundakennari við Fangavarðaskóla ríkisins 1992. Kennari í sálfræði við Fósturskóla Íslands 1993-1994. Stundakennari við HÍ 1992-2002. Rekstur sálfræðistofu 1992-2025. Yfirsálfræðingur og deildarstjóri á Meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga (sem síðar varð Stuðlar) 1994-1998. Sálfræðingur barnaverndarmála í Kópavogi 1998-2005 og verktaki hjá Kópavogsbæ, sálfræðingur barnaverndarmála 2005-2007. Skólasálfræðingur í Áslandsskóla 2006-2016, í Hraunvallaskóla 2011 og í Stóru-Vogaskóla 2012-2013. Stundakennari í umferðarsálfræði í Ökuskólanum Mjódd 2010-2025. Stjórnandi þáttanna Í nærveru sálar á sjónvarpsstöðinni ÍNN 2008-2010. Heilsugæslusálfræðingur 2013-2018. Sálfræðingur hælisleitenda á Göngudeild sóttvarna 2017-2022.

Oddviti Flokks fólksins og borgarfulltrúi síðan 2018.
Gagnfræðapróf Reykjum í Hrútafirði 1973 og hefur síðan sótt ýmis námskeið.
Starfsferill
Oddviti Suðureyrarhrepps 1990-1994. Starfsmaður Sundlaugar og íþróttamiðstöðvar Suðureyrar. Starfaði hjá Íslenskri miðlun við tölvuskráningu og símasölu og hefur auk þess starfað við verslun og fiskvinnslu.
Sölustjóri o.fl. hjá Erninum 1992-2016. Formaður VR 2017-2024. Formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 2019-2024. Varaforseti ASÍ 2020-2024. Félags- og húsnæðismálaráðherra síðan 11. janúar 2026.
Flugþjónn hjá Air Atlanta 1995-2001. Bílstjóri og vakstjóri hjá Íslandspósti 2003-2005. Þjónustufulltrúi hjá TNT hraðflutningum 2005-2011. Safnvörður hjá Seðlabanka Íslands 2015-2021 og hjá Byggðasafni Reykjanesbæjar 2024. Hefur unnið að gerð sjónvarpsþáttanna Fyrir alla muni frá 2019 og tónlistarsmíð fyrir ýmsa sjónvarpsþætti frá 2019.
Stúdentspróf MR 1985. BS-próf í líffræði HÍ 1990. Framhaldsnám í fráveitu- og vatnshreinsifræðum (Water Pollution Control Technology) í Cranfield á Englandi. Diploma í opinberri stjórnsýslu HÍ. Vélstjórnarnám við FNV 2023, A-réttindi.
Starfsferill
Forfallakennari í Hólabrekkuskóla 1985-1986. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra frá 1992. Störf við fiskvinnslu og sjómennsku með hléum til ársins 2024.
Stundakennari við HÍ 1992-1994. Kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 1993-1994 og af og til frá árinu 2008.
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 2001. BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 2005. Meistaragráða í alþjóðasamvinnu (MALD) með áherslu á hagfræði og orkumál frá The Fletcher School við Tufts háskóla í Bandaríkjunum 2011. Meistaragráða í opinberri stjórnsýslu með áherslu á umhverfis- og orkumál frá Harvard Kennedy School of Government 2017.
Starfsferill
Starfaði við sendiráð Íslands í Brussel í Evrópu-, menningar- og markaðsmálum 2005-2009. Störf á sviði milliríkjaviðskipta, þróunarsamvinnu og kennslu í Lomé í Tógó í Vestur-Afríku og við Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) um nokkurra mánaða skeið á árunum 2009-2010. Forstöðumaður alþjóðaþróunar HR 2011-2013. Framkvæmdastjóri Iceland School of Energy við HR 2013-2016 og stundakennari við sama skóla til ársins 2020. Aðjúnkt við Harvard Kennedy School og kennsla á meistarastigi á sviði Norðurslóða, orku- og loftslagsmála 2019 til dagsins í dag. Meðstofnandi og stjórnandi við miðstöð Norðurslóða; Arctic Initiative, við Harvard Kennedy School of Government 2017-2021. Stofnandi Arctic Innovation Lab í samvinnu við fjölda háskóla. Leiðbeinandi í orkutengdum nýsköpunarhröðlum 2015-2021. Orkumálastjóri 2021-2024.
Stúdentspróf ML 1982. Embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn (KVL). Almennt dýralæknaleyfi í Danmörku 1989 og á Íslandi 1990.
Starfsferill
Landbúnaðarstörf samhliða námi 1970-1984. Afgreiðslu- og verkamannastörf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík 1982-1983. Bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi 1987-1994. Sjálfstætt starfandi dýralæknir í uppsveitum Árnessýslu 1990-1995. Settur héraðsdýralæknir í Hreppa- og Laugarásumdæmi 1992-1994 og um skeið í Vestur-Barðastrandarumdæmi. Dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1996-2009. Oddviti Hrunamannahrepps 2002-2009. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Umhverfis- og auðlindaráðherra 23. maí 2013 til 31. desember 2014. Forsætisráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021, innviðaráðherra 28. nóvember 2021 til 9. apríl 2024. Fjármála- og efnahagsráðherra 9. apríl 2024 til 21. desember 2024.
Stúdentspróf FNV 1995. Próf frá Lögregluskóla ríkisins 2000.
Starfsferill
Almennur lögreglumaður í lögreglunni í Reykjavík 1997–2000. Í sérsveit ríkislögreglustjóra 2000–2007. Í friðargæslu NATO í Afganistan 2006–2007. Í greiningardeild ríkislögreglustjóra 2007–2008. Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Sauðárkróki 2008–2015. Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra 2015–2021.
Nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1995–1998. Undirbúningsnám við Midlands Technical College í Columbia í Suður-Karólínu 2009. BA-próf í heilbrigðisvísindum frá Arnold School of Public Health við Suður-Karólínuháskóla 2011. Meistarapróf í lýðheilsuvísindum frá sama skóla 2013.
Starfsferill
Rannsóknastörf við taugalækningadeild Prisma Health Richland-sjúkrahússins í Columbia í Suður-Karólínu 2014–2015. Fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu 2016–2019. Framkvæmdastjóri Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs 2019–2021.
Stúdentspróf FVA 1996. BS-próf í viðskiptafræði frá HÍ 2011. Stundaði framhaldsnám í stjórnun við Manchester Business School 2011-2014.
Starfsferill
Aðstoðarmaður samgönguráðherra 2003–2006. Ýmis ráðgjafarstörf 2006–2009 ásamt því að sitja í stjórnum fyrirtækja og stofnana á árunum 2003–2017. Starfsmaður Kaupþings 2007–2008. Framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi og þar á undan fjármálastjóri félagsins 2009–2016.
Stúdentspróf ML 1990. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1993. MA-próf í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Kent, Kantaraborg (UKC) 1997.
Starfsferill
Sendiherra Íslands í Noregi 2019-2022. Sendiherra Íslands í Grikklandi frá sama tíma, með aðsetur í Noregi. Samþykktur sendiherra Íslands gagnvart Egyptalandi, Íran og Pakistan, með aðsetur í Noregi frá sama tíma (ekki hægt að ferðast til að afhenda trúnaðarbréf vegna kórónuveirufaraldursins). Kosningastjóri framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn UNESCO 2018-2019. Ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum 2015-2018. Skipuð sendiherra 1. janúar 2016. Sendifulltrúi og staðgengill sendiherra, sendiráði Íslands í London 2014-2015. Sendifulltrúi og staðgengill sendiherra, sendiráði og fastanefnd Íslands í Vínarborg 2010-2014. Deildarstjóri mannréttinda og jafnréttismála í utanríkisráðuneytinu 2009-2010. Sendiráðunautur á sviði pólitískra og öryggismála í utanríkisráðuneytinu 2005-2009. Sendiráðsritari, fastanefnd Íslands í Genf 2000-2005. Sendiráðsritari í utanríkisráðuneytinu 1999-2000.
Í leyfi frá störfum í utanríkisþjónustu frá 2023.
Verslunarpróf VÍ og stúdentspróf FB 1981. Cand. juris HÍ 1989. Hdl. 1996. Próf í stjórnun I frá EHÍ og Lögregluskóla ríkisins 2007.
Starfsferill
Fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslumannsins í Gullbringusýslu 1989-1990 og starfaði um skeið hjá ríkisskattanefnd. Fulltrúi sýslumannsins í Árnessýslu og bæjarfógetans á Selfossi, síðar sýslumannsins á Selfossi, 1990-1998. Settur sýslumaður á Hólmavík um skeið sumarið 1996, auk þess að vera settur í einstaka málum sem rannsóknarlögreglustjóri ríkisins, lögreglustjóri í Reykjavík o.fl. á árunum 1995-1998. Sýslumaður í Vestmannaeyjum 1998-2014. Skólastjóri Lögregluskóla ríkisins 2014-2016. Lögmaður á eigin stofu 2022-2023. Lögreglustjóri í Vestmannaeyjum 2023-2024.
Stúdentspróf VÍ 1998. Viðskiptafræðingur MBA frá HR 2016.
Starfsferill
Starfaði hjá Eimskipafélagi Íslands 1998-2008. Sjálfstætt starfandi 2008-2025, m.a. í rekstri verslana, heildsölu og fjárfestingafélags.

Í stjórn Isavia 2018-2025, í stjórn Fríhafnarinnar 2020-2025, í stjórn Náttúrulækningabúðarinnar 2008-2025, í stjórn Ilta Inv. 2003-2025 og í endurskoðunarnefnd Isavia 2018-2025.
Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.
Starfsferill
Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007. Forsætisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Dómsmálaráðherra 26. ágúst til 4. desember 2014.
Lögfræðingur hjá Verslunarráði Íslands 1999-2005. Í dómstólaráði 2004-2009. Héraðsdómslögmaður hjá LEX 2007-2015. Í nefnd um heildarendurskoðun laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, 2013-2014. Dómsmálaráðherra frá 11. janúar 2017 til 14. mars 2019. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 2022-2024. Sjálfstætt starfandi lögmaður frá 2022.
Stúdentspróf MR 2017. BA-próf í íslenskum fræðum HÍ 2021.
Starfsferill
Blaðamaður á Morgunblaðinu 2018-2021. Fréttamaður á Vísi og Stöð 2 2021-2023, ásamt dagskrárgerð. Stofnandi margmiðlunarfyrirtækis og hlaðvarps undir merkjum Snorra Mássonar ritstjóra frá hausti 2023. Hlaðvarpið Skoðanabræður 2019-2024.
Verslunarpróf VÍ 1971. Próf í opinberri stjórnsýslu og stjórnun EHÍ 2000. Próf í rekstrarfræði EHÍ 2004.
Starfsferill
Sölufulltrúi hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1971-1977. Kaupfélagsstjóri 1977-1988. Ýmis viðskiptastörf 1988-1997. Skrifstofustjóri sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli 1997-2007. Sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar í umhverfis- og auðlindaráðuneyti 2007-2013.
Stúdentspróf MA 1981. Cand. med. (læknisfræði) HÍ 1988. Sérfræðiviðurkenning í svæfinga- og gjörgæslulækningum 1995. Dokorspróf í svæfinga- og gjörgæslulækningum frá Háskólanum í Lundi 1999. Meistaranám í stjórnun og lýðheilsu HR 2010. Sérfræðiviðurkenning í heilbrigðisstjórnun 2010. Diplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2018.

Starfsferill
Kandídat og læknir í sérnámi, Borgarspítala og Landspítala 1988-1993. Læknir á þyrlu Landhelgisgæslunnar 1990-1992. Sérnám og sérfræðistörf við Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð 1993-2003. Yfirlæknir svæfingadeildar á Landspítala Fossvogi 2003-2006. Yfirlæknir gjörgæsludeildar á Landspítala Hringbraut 2006-2014. Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítala 2014-2018. Landlæknir 2018-2024. Heilbrigðisráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf frá Framhaldsskóla Vestfjarða, nú Menntaskóla Ísafjarðar, 1996. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 2000. MS-próf í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði HÍ 2024.
Starfsferill
Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða 2004-2007. Verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands 2007-2020. Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum 2020-2022.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar 2022-2024.
Burtfararpróf í trompetleik frá Tónlistarskóla Árnesinga 2004. BA-próf í mennt og miðlun frá LHÍ 2007. Stundaði meistaranám í listkennslu í LHÍ 2009-2012. Meistarapróf í menningarstjórnun með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf frá Háskólanum á Bifröst 2021.
Starfsferill
Tónlistarkennari í Tónlistarskóla Árnesinga 2004-2014 og 2020-2022. Tónmenntakennari í Grunnskóla Þorlákshafnar 2010-2014 og 2020-2022. Tónleikahaldari og umboðsmaður tónlistarfólks 2013-2022. Markaðs- og verkefnastjóri í Gamla bíói 2014-2016. Stjórnandi Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts í afleysingum 2016-2017. Markaðs- og verkefnastjóri í Stúdíó Sýrlandi 2018-2019. Verkefnastjóri á menningarsviði Ölfuss 2019-2022. Stofnandi og framkvæmdastjóri Skjálftans, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi, 2021-2024. Verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu 2022-2024.

Í bæjarstjórn Ölfuss 2022-2025.
Stúdent MH 2004. BA lögfræði HÍ 2008. Mag. juris HÍ 2010.
Starfsferill
Laganemi hjá samgönguráðuneyti 2008–2010. Starfsnemi hjá utanríkisráðuneyti 2010. Lögfræðingur hjá umboðsmanni skuldara 2010–2014. Lögfræðingur hjá umboðsmanni borgarbúa 2015–2018. Lögfræðingur hjá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara 2017–2018. Persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar 2018–2023.
Stúdentspróf MR 1992. Embættispróf í læknisfræði HÍ 1999. Meistarapróf í mannréttindum og alþjóðalögum frá Háskólanum í Lundi 2005.
Starfsferill
Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1994-1995. Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna 1995-1996. Dagskrárgerðarmaður og vísindafréttamaður á Ríkisútvarpinu, Rás 1, 1995-1998.

Aðstoðarlæknir á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi 2000-2001. Heilsugæslulæknir á Ísafirði 2001. Læknir á slysa- og bráðasviði og læknir á sýkladeild Landspítalans 2002-2004.

Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002. Formaður skipulagsráðs 2004-2006. Oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar 2006-2025. Borgarstjóri október 2007 - janúar 2008. Formaður borgarráðs 2010-2014. Borgarstjóri júní 2014 - 16. janúar 2024. Formaður borgarráðs 16. janúar 2024 - janúar 2025.
Útskrifuð úr hárgreiðsluiðn frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 1996. Sveinsbréf í hársnyrtiiðn 1997. Meistararéttindi í hársnyrtiiðn frá Verkmenntaskóla Austurlands 1999. Kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri 2006.
Starfsferill
Eigandi og rekstraraðili Hársnyrtistofu Eydísar á Eskifirði 1997-2007. Kennari við Verkmenntaskóla Austurlands 1999-2022. Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands 2022-2024.
Verkamannastörf 2005-2008. Félagsmiðstöðvarstarfsmaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2008-2017. Forstöðumaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2017-2020. Stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ 2014 og 2021. Framkvæmdastjóri LifeQuest ehf. 2020-2022. Verkefnastjórnun fyrir Knattspyrnusamband Íslands 2022. Sérfræðingur í Evrópuáætlunum fyrir ungt fólk hjá Rannís 2022-2024.
Stúdentspróf MR 2012. BA-próf í heimspeki með lögfræði sem aukagrein HÍ 2015. MS-próf í sagnfræði frá Edinborgarháskóla 2017. MS-próf í evrópskri stjórnmálahagfræði frá London School of Economics and Political Science 2020.
Starfsferill
Blaðamaður á DV 2012–2015. Blaðamaður á Stundinni 2015–2019. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra síðan 21. desember 2024.
Rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 2001, sveinsbréf í rafeindavirkjun 2002. Rafiðnfræðingur frá HR 2008. Rafeindavirkjameistari 2009. Rekstrariðnfræðingur frá HR 2010. Rafvirkjun frá Tækniskólanum 2021, sveinsbréf í rafvirkjun 2022. Lauk námi í sáttamiðlun hjá Consensus Mediation, samþykkt af Mediatiors' Institute of Ireland, 2022.
Starfsferill
Verkamaður hjá Friðþjófi hf. (síðar Samherji hf.) 1998. Rafeindavirki hjá Hátækni 2001-2002. Rafeindavirki hjá ISAL, Rio Tinto í Straumsvík, 2000-2001 og 2002-2011. Framkvæmdastjóri Rafiðnaðarsambands Íslands 2011-2024.
Stúdentspróf MR 2008. BS-próf í hagfræði HÍ 2011. MA-próf í hagfræði frá Boston-háskóla 2014. MA-próf í alþjóðafræði með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál frá Yale-háskóla 2016.
Starfsferill
Starf meðfram hagfræðinámi á skrifstofu seðlabankastjóra 2009–2010. Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011–2012. Blaðamaður á Viðskiptablaðinu 2013–2014. Hagfræðingur í vinnuhópi á vegum forsætisráðuneytis 2014. Sérfræðingur í greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum 2015–2017. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2017. Formaður verðlagsnefndar búvara í atvinnumálaráðuneyti 2017–2018. Aðjúnkt við hagfræðideild HÍ 2018–2020. Aðalhagfræðingur Kviku banka hf. 2018–2021. Forsætisráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf MA 1985. Próf í arkitektúr frá Arkitekthøgskolen í Ósló 1992.
Starfsferill
Arkitekt hjá H.J. teiknistofu 1992-1994, skipulagsdeild Akureyrarbæjar 1994-1996, Teiknistofunni Form 1996-1997, Úti og inni arkitektastofu 1997-2003, Arkitektúr.is arkitektastofu 2003-2004 og Kollgátu arkitektastofu 2003-2016. Stundakennari við HR 2010-2012. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra síðan 21. desember 2024. Samstarfsráðherra Norðurlanda síðan 23. desember 2024.
Stúdentspróf MH 2012. BS-próf í læknisfræði HÍ 2017. Kandídatspróf í læknisfræði HÍ 2022.
Starfsferill
Störf við rannsóknir í lyflækningum 2015-2018. Sumarstarf sem læknanemi á geðsviði Landspítala 2019, skurðsviði 2020 og lyflækningasviði 2021. Vaktir samhliða námi á Landspítala. Læknir í sérnámsgrunni á Landspítala, HSN Húsavík, Heilsugæslunni Garðabæ og HVE Akranesi 2022-2023. Læknir í sérnámi í skurðlækningum á Landspítala 2023-2024. Umsjónardeildarlæknir sérnámslækna maí - nóvember 2024.

Varaborgarfulltrúi 2018-2020 og borgarfulltrúi 2020-2022 (Samfylkingin). Varaborgarfulltrúi maí 2022 - janúar 2025.
Stúdentspróf MA 1981. Ýmis fjölmiðlanámskeið í Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum 1981-1986.
Starfsferill
Blaðamaður á Vísi 1981 og DV 1981-1983. Ritstjórnarfulltrúi á Helgarpóstinum 1983-1985. Þáttastjórnandi hjá Ríkissjónvarpinu 1985-1986. Fréttamaður og síðar varafréttastjóri á Stöð 2 1987-2001. Ritstjóri DV 2001-2003. Þáttastjórnandi á Skjá 1 2003-2004. Fréttaritstjóri á Fréttablaðinu 2004-2005. Fréttastjóri á Stöð 2 2005-2007 og forstöðumaður fréttasviðs á sömu stöð 2007-2009. Hugmyndasmiður á Pipar, auglýsingastofu 2013-2014. Stofnandi og sjónvarpsstjóri Hringbrautar 2015-2021. Aðalritstjóri allra miðla Torgs; Fréttablaðsins, DV, Markaðarins og Hringbrautar 2021-2023. Rithöfundur og sjónvarpsmaður hjá SERES hugverkasmiðju 2023-2024.
Húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1991. Lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins 2006.
Starfsferill
Húsasmiður 1991-2000. Verkefnastjóri hjá Almannavörnum ríkisins 2000-2003. Verkefnastjóri í almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra 2003-2006. Deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra 2006-2015. Verkefnastjóri almannavarna hjá Lögreglustjóranum á Suðurlandi 2015-2019. Öryggisstjóri Knattspyrnusambands Íslands, í hlutastarfi 1997-2018 og fullu starfi 2018-2019. Sviðsstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra 2020-2024.
Stúdentspróf MR 1984. BA-próf í stjórnmála- og fjölmiðlafræði HÍ 1989. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins háskóla, Bandaríkjunum, 1991. MA-próf í hagnýtri siðfræði HÍ 2014.
Starfsferill
Starfsmaður við móttöku víetnamskra flóttamanna til Íslands hjá Rauða krossi Íslands 1991-1992. Í starfsþjálfun á upplýsingaskrifstofu EFTA í Genf 1992. Framkvæmdastýra Samtaka um kvennalista 1992-1995. Upplýsingafulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins í Tansaníu 1995-1996. Verkefnastörf fyrir Rauða kross Íslands 1996. Upplýsingafulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Aserbaísjan 1996-1997. Annar tveggja kosningastjóra Reykjavíkurlistans fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1998. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1998-1999. Umhverfisráðherra 24. maí 2007 til 1. febr. 2009. Aðstoðarkona formanns Samfylkingarinnar 2013. Framkvæmdastýra Samfylkingarinnar 2013–2015. Formaður BHM 2015–2021.
Stúdentspróf VÍ 2010. BA-próf í lögfræði HÍ 2015. MA-próf í lögfræði HÍ 2017.
Starfsferill
Starfsmaður jafningjafræðslu Hins hússins 2010. Blaðamaður á Morgunblaðinu 2011-2013. Lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurlandi 2014-2015. Varaformaður Æskulýðsráðs 2014-2016. Laganemi á lögmannsstofunni Juris 2016. Dómsmálaráðherra 6. september 2019 til 27. nóvember 2021. Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 1. febrúar 2022 til 21. desember 2024.
Stúdentspróf VÍ 1997. Diplóma í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands 2000. B.Sc.-próf í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands 2001. Hefur stundað framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Starfsferill
Verkefnisstjóri stuðningsverkefna fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hjá Impru nýsköpunarmiðstöð 2001-2003. Verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar Impru nýsköpunarmiðstöðvar með ábyrgð á norrænum og evrópskum nýsköpunar- og tækniyfirfærsluverkefnum 2003-2007. Fjármálastjóri hjá Góðum mönnum — rafverktökum ehf. 2007-2012. Stofnaði og rak útgáfufyrirtækið Góðan dag ehf. 2008-2010. Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og formaður skipulagsnefndar 2010-2018. Forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 2012–2014. Formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar 2014–2017. Í stjórn Strætó bs. 2012–2018, stjórnarformaður 2014–2016.
Stúdentspróf VÍ 2006. BA-próf í lögfræði frá HÍ 2009. MA-próf í lögfræði frá HÍ 2011. Hdl. 2012. LLM-próf í alþjóðlegum umhverfis- og auðlindarétti frá HÍ 2017. Hrl. 2018.
Starfsferill
Fulltrúi hjá Lögmáli ehf. 2011–2018. Stundakennari í lögfræði við VÍ 2018. Aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2018–2021.
Stúdentspróf MA 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1996.
Starfsferill
Umboðsmaður Brunabótafélags Íslands 1988-1989. Sölumaður hjá Vátryggingafélagi Íslands 1989-1993. Kynningarstjóri hjá Fjárvangi 1996-1997. Framkvæmdastjóri Fíns miðils 1997-1998. Forstöðumaður hjá Fjárvangi/Frjálsa fjárfestingarbankanum 1998-2001. Forstöðumaður hjá tryggingadeild Búnaðarbanka Íslands 2001-2003. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 24. maí 2007 til 31. desember 2007. Heilbrigðisráðherra 1. janúar 2008 til 1. febrúar 2009. Utanríkisráðherra 11. janúar 2017 til 31. desember 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 1. janúar 2020 til 27. nóvember 2021. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 28. nóvember 2021 til 21. desember 2024.
Stúdentspróf MA 1996. Stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ 1997-2000. Diplóma í stjórnun og leiðtogafærni í sjávarútvegi HR 2014. Executive MBA frá Norwegian School of Economics 2020.
Próf frá málmiðnaðardeild Iðnskólans í Reykjavík 1975. Próf í rekstrar- og viðskiptafræðum EHÍ 1996.
Starfsferill
Bóndi að Barkarstöðum í Miðfirði 1981-1985. Yfirmaður auglýsinga- og áskriftadeildar Stöðvar 2 1986-1990. Markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda 1991-1993. Rak ásamt eiginkonu sinni innflutningsfyrirtækið Rún ehf. 1994-2004. Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2005-2007. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Innanríkisráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Dómsmálaráðherra 1. febrúar 2022 til 19. júní 2023.
Grunnskólapróf frá Grunnskóla Ólafsvíkur 1983. Stúdentspróf MA 1987. Cand.pharm. HÍ 1993.
Starfsferill
Kennari við búvísindadeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri 1993-1994. Yfirlyfjafræðingur í Akranesapóteki 1995-1997. Yfirlyfjafræðingur í Sauðárkróksapóteki 1997-1998. Lyfsali í Apótekinu Iðufelli 1999-2001. Markaðsfulltrúi og síðar sölustjóri hjá lyfjafyrirtækinu Eli Lilly 2001-2006. Eigin rekstur í lyfsölu síðan 2006.
Stúdentspróf FNV 2004. Lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins 2006. Ökukennararéttindi frá símenntunardeild HÍ 2009. BA-próf í lögfræði HR 2013, ML-próf í lögfræði HR 2015.
Starfsferill
Almenn sveita-, verslunar- og skrifstofustörf með námi. Rekstur Hofsprents ehf. 2002-2007. Lögreglustörf hjá sýslumanninum á Sauðárkróki 2004-2005. Lögreglumaður hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2006-2008 og hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum 2008-2013.
Skiptinám á vegum AFS í Vínarborg 2005-2006. Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 2007. BA-próf í lögfræði HR 2010. Erasmus-skiptinám við Universität Salzburg vorönn 2011. ML-próf í lögfræði HR 2012.
Starfsferill
Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011-2012. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013–2014. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2013–2015. Aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014–2016. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 11. janúar 2017 til 27. nóvember 2021 og dómsmálaráðherra 14. mars til 6. september 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Utanríkisráðherra 1. febrúar 2022 til 14. október 2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Utanríkisráðherra 9. apríl 2024 til 21. desember 2024. Sérstakur erindreki (e. Special Envoy) framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum síðan febrúar 2025.
Verzlunarpróf VÍ 1984. Stúdentspróf FÁ 1987. B.ed.-próf frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1990. Diplóma í íþróttafræðum frá Íþróttaháskólanum í Köln, Þýskalandi 1994. Diplóma í stjórnun skólastofnana KHÍ 2000. Diplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2017.
Starfsferill
Frístundaleiðbeinandi hjá ÍTR 1986-1988. Knattspyrnuþjálfari hjá Knattspyrnufélaginu Fram 1988-1990, Frechen 1920 í Þýskalandi 1991-1994 og University of South Carolina í Bandaríkjunum 1994. Æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996. Deildarstjóri íþrótta- og tómstundadeildar Akureyrarbæjar 1996-2002. Bæjarstjóri Austur-Héraðs 2002-2004, Fljótsdalshéraðs 2004-2010 og Akureyrarbæjar 2010-2018. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar 2019-2022 og menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar 2023-2024.
Stúdentspróf MS 1982. Próf frá Lögregluskóla ríkisins 1989. BSc-próf í viðskiptafræði HR 2005, MSc-próf í reikningshaldi og endurskoðun HR 2007.
Starfsferill
Lögreglumaður, varðstjóri, aðalvarðstjóri, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum í Reykjavík 1987-1991 og 1998-2004, hjá lögreglustjóranum á Ísafirði 1991-1997, hjá ríkislögreglustjóranum 2004-2007, hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2008-2014 og 2016-2024, hjá sérstökum saksóknara 2009-2015, hjá héraðssaksóknara 2016. Viðskiptafræðingur hjá Deloitte, endurskoðun 2007-2008.
Stúdent af félagsbraut FS 1978. Stúdent af viðskiptabraut FS 1987. Próf í kerfisfræði frá Tölvuháskóla VÍ 1989.
Starfsferill
Fulltrúi í innheimtudeild Útvegsbanka Íslands 1979–1981. Leiðbeinandi við Grunnskólann í Sandgerði 1981–1987. Ráðgjafi á meðferðarstofnun fyrir vímuefnaneytendur í Svíþjóð 1990–1992. Framkvæmdastjóri Nýs miðils hf., sem rak útvarpsstöðina Brosið og Suðurnesjafréttir, 1993–1995. Starfsmaður byggingavöruverslunarinnar Járn og skip 1995–1996. Verslunarstjóri Kaskó í Keflavík 1996–1998. Framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Suðurnesja 1998–2019. Ýmis tónlistarstörf samhliða öðrum störfum.
Stúdentspróf MR 1985. BA-próf í heimspeki og hagfræði HÍ 1999. MBA-próf frá University of California Davis 2001.
Starfsferill
Blaðamaður á Morgunblaðinu 1990-1999. Formaður nefndar menntamálaráðuneytis, ÍSÍ og UMFÍ um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna 1996-1997. Formaður nefndar menntamálaráðuneytis og skrifstofu jafnréttismála um konur og fjölmiðla 1998-1999. Framkvæmdastjóri Stjórnendaskóla HR 2001-2003. Framkvæmdastjóri HR 2003-2005. Í starfshópi menntamálaráðuneytis um mótun íþróttastefnu 2005-2006. Framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips 2005-2006. Í nefnd á vegum menntamálaráðherra um lög um opinbera háskóla 2007-2008. Stundakennari í HR 2007-2009. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2007-2009. Stundakennari við Háskólann á Bifröst 2009-2011. Forstöðumaður viðskiptaþróunar Icepharma 2010-2012. Í stjórn Sjálfstæðra Evrópumanna frá 2010. Í stjórn MP banka 2011-2014. Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma 2012-2016. Í stjórn Hlíðarenda ses. frá 2013. Atvinnuvegaráðherra síðan 21. desember 2024.
Ýmsir framhaldsskólar og listnámskeið. Meistaragráða í sviðslistum (MFA) frá LHÍ 2021.
Starfsferill
Hefur starfað sem leikari í öllum atvinnuleikhúsum landsins, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og er félagi í Félagi íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum (FÍL). Hefur einnig starfað sem rithöfundur, leikskáld og handritshöfundur og er meðlimur í Rithöfundasambandi Íslands.
Borgarstjóri Reykjavíkur 2010-2014.
Stúdentspróf MÍ 2009. BS- próf í sálfræði HÍ 2013. Diplóma í opinberri stjórnsýslu, HÍ 2020.

Starfsferill
Forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Djúpið, Ísafirði 2009-2010. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2013-2014. Markaðsstjóri GOmobile 2014-2015. Sérfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu/dómsmálaráðunyetinu 2015-2017. Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar 2017-2022. Kynningarstýra UN Women á Íslandi 2022-2023. Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar 2023-2024.
Starfsmaður Fóðurblöndunnar 1989–1992. Dagskrárgerðarmaður og dagskrárstjóri á Aðalstöðinni og X-inu 977 1992–1998. Umsjónarmaður dægurmálaútvarps Rásar 2 1998. Fréttamaður á fréttastofu Sjónvarpsins 1998–2000. Fréttamaður á Stöð 2 2000–2002. Einn af umsjónarmönnum Kastljóss á RÚV 2002–2015 og ritstjóri 2010–2015. Umsjónarmaður Gettu betur 2006–2008. Umsjónarmaður Útsvars 2007–2017. Þulur í Eurovision 2006–2010. Umsjónarmaður Okkar á milli 2020–2021. Umsjónarmaður þáttarins Nýjasta tækni og vísindi 2020. Stjórnandi Morgunútvarps Rásar 2 2015–2021. Hefur að auki stýrt fjölmörgum öðrum þáttum á RÚV, Rás 2 og Stöð 2, m.a. kosningaumfjöllun og kosningasjónvarpi. Kennari í miðlun upplýsinga við MBA-nám HÍ 2020–2021.
Stúdentspróf MR 1998. Cand. juris HÍ 2005. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá Columbia University í Bandaríkjunum 2011.
Starfsferill
Vann við blaðamennsku á DV á háskólaárum. Aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2007-2008. Aðstoðarmaður dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur 2008-2009. Vann við rannsóknarstörf í Háskóla Íslands, EDDA – Öndvegissetur 2012-2013. Aðstoðarsaksóknari hjá ríkissaksóknara 2013-2015. Deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst 2015-2017. Aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra 2017. Saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara 2018-2020. Dómsmálaráðherra síðan 21. desember 2024.
Lögfræðingur hjá Lögmönnum Höfðabakka 1993-1994. Yfirmaður samfélags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997-1999. Menntamálaráðherra 31. desember 2003 til 1. febrúar 2009. Forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins 2013-2016. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Utanríkisráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 2010. B.Sc.-próf. í viðskiptafræði frá HÍ 2013. Framhaldsnám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2014-2015. Stundar framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Starfsferill
Viðskiptafræðingur hjá Fjárvakri 2012-2015. Skipuleggjandi ferða hjá Iceland Travel 2015-2016. Viðskiptafræðingur hjá KPMG 2016.