Stúdentspróf MR 1926. Læknisfræðipróf HÍ 1932. Framhaldsnám á sjúkrahúsum í Danmörku 1932—1936. Viðurkenndur sérfræðingur í tauga- og geðsjúkdómum 1936.
Starfsferill
Starfandi læknir í Reykjavík frá 1936. Eftirlitslæknir við hressingarheimilið í Kumbaravogi 1943—1945. Geðlæknir við Elliheimilið Grund í Reykjavík frá 1953 og starfaði að áfengisvörnum við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur frá sama tíma.
Vann ýmis verkamannastörf í Reykjavík til 1944, er hann gerðist starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og varð það ævistarf hans.
Starfsferill
Í stjórn Verkamannafélagsins Dagsbrúnar frá 1942, formaður 1961—1982. Formaður Verkamannasambands Íslands frá stofnun þess 1964—1975. Átti sæti í nefnd sem undirbjó lög um atvinnuleysistryggingar 1956. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs frá stofnun hans 1956. Í verðlagsnefnd landbúnaðarvara (Sexmannanefnd) 1959—1971. Átti og sæti í nefndum, sem endurskoðuðu lög um slysatryggingar og atvinnuleysistryggingar. Fulltrúi Alþýðusambands Íslands á ársfundum Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf 1955 og 1957. Kosinn 1967 í milliþinganefnd um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Skipaður 1973 í lífeyrissjóðanefnd.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1921. Lagði stund á þýskar og enskar bókmenntir og tungu við Friedrich-Wilhelm Universität í Berlín 1921—1924, en lauk ekki prófi.
Starfsferill
Kennari við framhaldsdeild Gagnfræðaskólans á Akureyri 1924—1928. Forstjóri Síldareinkasölu Íslands 1928—1931. Forstjóri Íslensk-rússneska verslunarfélagsins hf. 1931—1935. Ritstjóri 1935—1946. Stundaði síðan ritstörf áfram og kenndi í flokksskólum og leshringum.
Stúdentspróf MR 1927. Las lög við Háskóla Íslands veturinn 1927—1928. Lagði stund á alþjóðarétt í París, Genf, Berlín og Róm 1928—1933.
Starfsferill
Ritstjóri Alþýðublaðsins 1933—1938. Framkvæmdastjóri bókaútgáfu Menningar- og fræðslusambands alþýðu 1938—1944. Settist að á Marbakka við Fossvog 1940. Bæjarstjóri Kópavogskaupstaðar 1955—1957. Bankastjóri Útvegsbanka Íslands 1957—1972.
Stúdentspróf MR 1953. Lagði stund á verkfræði við Háskóla Íslands 1953—1955. Stýrimannapróf í Reykjavík (utan skóla) 1962.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1957—1960 og jafnframt við Iðnskólann þar 1958—1960. Kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961—1962 og 1963—1973, settur skólastjóri 1969—1970. Stundaði sjómennsku með námi og kennslu, að aðalstarfi 1955—1957, stýrimaður á fiskiskipum á sumrum frá 1962. Starfsmaður Veiðieftirlits sjávarútvegsráðuneytisins 1987—1990. Starfsmaður Landsbanka Íslands síðan 1990.
Kennari við íþróttaskólann í Haukadal 1938—1940, við unglingaskóla í Garði og Sandgerði 1940—1941. Afgreiðslumaður í Sandgerði 1941—1943. Vann að ritstörfum og blaðamennsku 1943—1956. Forstjóri Menningarsjóðs 1956—1975.
Stundaði ýmis störf frá 1944, aðallega verkamannavinnu. Lögregluþjónn á Siglufirði á sumrum 1946—1950. Starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík síðan 1953.
Stundaði sjómennsku í 12 ár og síðan landvinnu. Fluttist til Reykjavíkur 1917 og þaðan til Siglufjarðar 1928. Vann þar að ýmsum störfum, m. a. verkstjórn. Starfsmaður verkalýðsfélaganna á Siglufirði í 10 ár. Dvaldist að mestu í Reykjavík átta síðustu æviárin.
Kennari á Búðum í Fáskrúðsfirði 1953—1955. Kennari við barna- og unglingaskólann á Búðareyri í Reyðarfirði 1956—1962, skólastjóri 1962—1971. Félagsmálafulltrúi hjá Öryrkjabandalagi Íslands síðan 1987.
Stúdentspróf MA 1955. Diplom-próf í líffræði frá háskólanum í Leipzig 1963, assistent þar við Hygiene-stofnun háskólans 1963. Kynnisferðir til Bandaríkjanna vegna náttúruverndar 1971 og vegna skólamála í nóvember 1973.
Starfsferill
Vann við landbúnaðarstörf, skógrækt, landmælingar, þýðingar og túlkun á námsárum. Kenndi nútímaíslensku við norrænudeild háskólans í Leipzig samhliða námi 1958-1961. Starfsmaður á rannsóknastofu Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað 1963-1964. Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1964-1973, framhaldsdeildir frá 1968. Stundakennari við Námsflokka Neskaupstaðar og Iðnskóla Austurlands 1964-1973. Starfaði að náttúrurannsóknum, einkum á Austurlandi, 1968-1978, fyrst samhliða kennslustörfum, síðar á vegum Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað. Undirbjó stofnun þess safns 1965-1971 og veitti því forstöðu 1971-1978. Átti sæti í Náttúruverndarráði 1972-1978 og var fulltrúi á átta náttúruverndarþingum 1972-1992. Margvísleg störf á vegum Náttúruverndarráðs 1972-1978. Frumkvöðull að Safnastofnun Austurlands og stjórnarformaður hennar 1972-1978. Formaður byggingarnefndar Menntaskólans á Egilsstöðum 1973-1978. Skipaður iðnaðarráðherra 1. september 1978, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður iðnaðarráðherra 8. febrúar 1980, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
Kennarapróf KÍ 1938. Framhaldsnám við kennaraháskólann í Kaupmannahöfn 1964—1965.
Starfsferill
Kennari við barnaskólann í Vestmannaeyjum 1938—1963, við Vogaskóla í Reykjavík 1963—1966. Fræðslufulltrúi og fræðslustjóri í Kópavogi frá 1966 til æviloka.
Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1934—1943. Starfaði að útgerð þar 1944—1948. Forstjóri Bæjarútgerðar Neskaupstaðar 1948—1952. Skipaður 24. júlí 1956 sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember. Skipaður 14. júlí 1971 sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst.
Stúdentspróf MR 1938. Við verkfræðinám í Danmarks Tekniske Højskole og Polyteknisk Læreanstalt 1938—1940. Við norrænunám í Hafnarháskóla 1940—1943, síðar við háskólana í Lundi og Stokkhólmi.
Starfsferill
Ritstjóri í Reykjavík 1947—1971. Skipaður 14. júlí 1971 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og iðnaðarráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst.
Héraðsskólapróf Reykjanesi 1942. Samvinnuskólapróf 1950. Nám í framhaldsdeild Samvinnuskólans 1950—1951.
Starfsferill
Verslunarmaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki 1951—1952 og Kaupfélagi Hellissands 1952—1955. Rak útgerð 1954—1969. Framkvæmdastjóri Jökuls hf. á Hellissandi síðan 1961. Forstöðumaður Gistihússins Gimli á Hellissandi síðan 1991.
Nám í Samvinnuskólanum 1941—1942. Fréttamaður við Ríkisútvarpið 1946—1965, dagskrárfulltrúi þar 1965—1973. Kennari við Héraðsskólann á Laugum 1973—1974.
Starfsferill
Í tryggingaráði 1978—1987, formaður 1980—1983. Í Rannsóknaráði ríkisins 1978—1983. Í Norðurlandaráði 1980—1983. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1975—1976 og 1979—1983. Fulltrúi Íslands á fundi þingmannanefndar EFTA 1978.
Stúdentspróf MR 1964. Innritaðist í lögfræði við Háskóla Íslands 1964, nám í Berlín 1967-1968.
Starfsferill
Vann með námi ýmis önnur störf, m.a. við Þjóðviljann, í verkamannavinnu, hjá Samtökum hernámsandstæðinga og hjá Alþýðubandalaginu. Fastur starfsmaður við Þjóðviljann frá 1968, ritstjórnarfulltrúi fyrst, en síðan ritstjóri hans 1971-1978. Skipaður 1. september 1978 viðskiptaráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Skipaður 28. september 1988 menntamálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Aðalræðismaður í Winnipeg 1999-2001. Framkvæmdastjóri þúsund ára hátíðahaldanna í Kanada 2000. Sendiherra Íslands í Svíþjóð 2001–2006. Sendiherra Íslands í Danmörku 2006-2010. Sendiherra Íslands gagnvart Afríkusambandinu 2008.
Stúdentspróf MR 1949. AB-próf í ensku og enskum bókmenntum við Smith College í Northampton, Massachusetts í Bandaríkjunum 1952. Rannsóknarnám í íslenskum fornbókmenntum við Somerville College, Oxford 1952—1953. Nám í sænskum nútímabókmenntum við Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1965—1966.
Starfsferill
Ritari í utanríkisráðuneytinu og íslenska sendiráðinu í Stokkhólmi 1955—1960. Kennari við Barna- og unglingaskólann á Eskifirði 1963—1964. Blaðamaður við Lesbók Morgunblaðsins 1966—1969. Starfsmaður við dagskrárdeild Ríkisútvarpsins 1969—1970. Stundaði ritstörf.
Rektorsritari í Menntaskólanum í Reykjavík 1957-1967. Deildarstjóri félagsmála- og upplýsingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins 1973-1980. Rithöfundur.
Stúdentspróf MA 1953. Nám í íslenskum fræðum í Háskóla Íslands 1954—1956, í germönskum fræðum í Vín 1956—1958, í heimspekideild Háskóla Íslands 1958—1960. BA-próf í þýsku og mannkynssögu HÍ 1961.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Samtaka hernámsandstæðinga 1960—1962. Framkvæmdastjóri Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1962—1968. Starfsmaður Alþýðubandalagsins og Þjóðviljans 1969—1972. Ritstjóri Þjóðviljans 1972—1978 og 1980—1983.
Stúdentspróf MR 1958. Nám í bókmenntum og heimspeki við sænska háskóla 1959—1961. Lögfræðipróf HÍ 1968. Hdl. 1968.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann í Flensborg í Hafnarfirði 1958—1959. Settur kennari við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar í Reykjavík 1967—1969 og við Gagnfræðaskólann við Laugalæk 1969—1970. Settur skólastjóri við barna- og unglingaskólann í Varmahlíð í Skagafirði 1970—1972. Skipaður 1. september 1978 menntamála- og samgönguráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 fjármálaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
Gagnfræðapróf Reykjavík 1938. Loftskeyta- og símritunarpróf 1941 við símritunarskólann í Reykjavík.
Starfsferill
Hóf 1930 starf hjá Landssíma Íslands í Reykjavík sem sendisveinn, yfirmaður skeytasendinga þar 1933. Símritari 1941—1952, lengst af í Reykjavík. Jafnframt starfsmaður í skrifstofu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja 1945—1946. Kennari við símritunarskólann í Reykjavík 1947—1948. Umdæmisstjóri Pósts og síma á Brú í Hrútafirði 1952—1974. Skrifstofustjóri ritsímans í Reykjavík 1974—1977.
Stúdentspróf MR 1955. BA-próf í ensku, norsku og kennslufræði HÍ 1962. Nám í bókmenntum við Freie Universität í Vestur-Berlín 1964.
Starfsferill
Skrifstofustörf í Reykjavík ásamt námi 1955-1956 og 1958-1959. Blaðamennska hjá World Student News, Prag, 1957. Blaðamaður við Þjóðviljann með hléum 1960-1979, fréttastjóri þar 1979-1981. Kennari við háskólann í Greifswald 1962, gagnfræðastig í Reykjavík 1962-1963 og 1971-1972 og blaðamennskunámskeið í Tómstundaskólanum 1986-1992. Vann hjá sjónvarpi veturinn 1973-1974. Ritstjóri Norðurlands á Akureyri 1976-1977 og 1978. Kynningar- og útgáfustjóri Iðntæknistofnunar 1981-1988. Skólastjóri Tómstundaskólans 1988-1992. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda síðan 1992.
Miðskólapróf í Reykjavík, stundaði síðan flugnám um tíma. Kynnti sér fjölmiðla og blaðamennsku í Bandaríkjunum.
Starfsferill
Blaðamaður við Alþýðublaðið og síðar fréttastjóri 1959—1965, ritstjóri 1976—1977 og 1985—1987. Fréttamaður og varafréttastjóri við Ríkisútvarpið 1965—1976, fréttastjóri um hríð. Fréttaritstjóri Vísis 1976. Stofnaði með öðrum Útvarpsauglýsingar sf. og rak rúmt ár. Starfaði á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar 1985 við hjálparstarf í Eþíópíu. Framkvæmdastjóri hjá Slysavarnafélagi Íslands 1991—1992. Framkvæmdastjóri Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði síðan 1992.
Stúdentspróf MR 1912. Guðfræðipróf HÍ 1915. Framhaldsnám við háskólana í Kaupmannahöfn og Uppsölum 1916—1917. Heiðursdoktor við Manitobaháskóla 18. september 1961 og við Edinborgarháskóla 18. febrúar 1967.
Starfsferill
Kenndi sund í Vestmannaeyjum sumurin 1914 og 1915. Biskupsritari 1915—1916. Bankaritari við Landsbankann í Reykjavík 1917—1918. Kennari við Kennaraskólann 1918—1927. Fræðslumálastjóri 1926—1931 og 1934—1938. Skipaður 20. ágúst 1931 fjármálaráðherra, lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní. Skipaður þann dag forsætis- og fjármálaráðherra, lausn 16. nóvember l933, en gegndi störfum til 28. júlí 1934. Bankastjóri Útvegsbankans í Reykjavík 1938—1952. Kjörinn forseti Íslands 29. júní 1952 og tók við embætti 1. ágúst, endurkjörinn án atkvæðagreiðslu 1956, 1960 og 1964 og gegndi forsetaembætti til 1. ágúst 1968, sat á Bessastöðum.
Stúdentspróf MR 1923. Háskólanám í sagnfræði í Ósló og síðar Kaupmannahöfn, mag. art. 1929.
Starfsferill
Kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1929—1935, stundakennari 1935—1936. Settur prófessor í sögu við Háskóla Íslands 1930—1931. Skipaður þjóðskjalavörður 1935 og gegndi því embætti til æviloka.
Stúdentspróf MR 1943. BA-próf 1946 með sögu sem aðalgrein við Harvard-háskóla, Bandaríkjunum. Framhaldsnám sumarið 1947 í Oxford á Englandi.
Starfsferill
Íþróttafréttaritari Alþýðublaðsins og jafnframt blaðamaður við það öðru hverju 1938—1943, fréttastjóri þess 1946—1950. Ritstjóri Samvinnunnar 1951—1958 og jafnframt síðari árin forstöðumaður fræðsludeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1959—1969. Skipaður 1969 forstöðumaður Fræðslumyndasafns ríkisins. Skipaður 1. september 1978 utanríkisráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 15. október 1979 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980. Sendiherra í Svíþjóð 1982—1987, í Austurlöndum 1987—1989, hjá Sameinuðu þjóðunum í New York 1989—1991.
Stúdentspróf MA 1937. Nám í hagfræði við Háskólann í Stokkhólmi 1937—1939.
Starfsferill
Fluttist með foreldrum sínum til Ísafjarðar 1920. Annaðist afgreiðslu fiskflutningaskipa til Englands stríðsárin 1939—1945. Sá um útgerð og síldarsöltun á Siglufirði fyrir Samvinnufélag Ísfirðinga 1937—1955, framkvæmdastjóri þess 1945—1961, er félagið hætti störfum. Umboðsmaður Brunabótafélags Íslands 1954—1970. Fluttist til Reykjavíkur 1971 og starfaði við endurskoðun til 1993.
Stúdentspróf MA 1947. Læknisfræðipróf HÍ 1957. Sérfræðiviðurkenning í svæfingum og deyfingum 1977.
Starfsferill
Aðstoðarlæknir á Sjúkrahúsi Akraness 1958—1959 og 1960—1969 og starfandi læknir á Akranesi sama tíma. Héraðslæknir í Kirkjubæjarhéraði 1959—1960. Aðstoðarlæknir á svæfingadeild Borgarspítalans 1969—1970 og 1977. Svæfingalæknir á sjúkrahúsum í Svíþjóð í sumarafleysingum 1965, 1972, 1974 og 1975 og í Færeyjum 1978. Heilsugæslulæknir í Borgarnesi 1977—1979. Yfirlæknir á svæfingadeild Sjúkrahúss Akraness 1980—1996.
Sveinspróf í múrsmíði Iðnskólanum í Reykjavík 1947. Tungumálanám í aukatímum og á kvöldnámskeiðum.
Starfsferill
Múrari í Reykjavík 1947—1953 og stundaði þá iðn að nokkru næstu ár. Skrifstofustjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins 1961—1965. Skipaður 31. ágúst 1965 sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra, 1. janúar 1970 sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí. Framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1972—1979. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins 1979—1993.
Stúdentspróf MR 1959. Nám í stjórnmálafræði við Delaware-háskóla í Bandaríkjunum 1960—1961. BA-próf í ensku og enskum bókmenntum HÍ 1967. Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr ensku 1962.
Starfsferill
Blaðamaður og síðar ritstjórnarfulltrúi við Alþýðublaðið 1962—1967. Yfirþýðandi, fréttamaður og fulltrúi dagskrárstjóra frétta- og fræðsludeildar Sjónvarps frá 1967 til 1. desember 1978. Skipaður 30. apríl 1991 umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 14. júní 1993. Sendiherra 1993-2009.
Aðstoðarverkfræðingur Óðinsvéum á Fjóni 1925—1926. Bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði 1926—1930. Bæjarstjóri þar 1930—1937. Vita- og hafnamálastjóri 1937—1944 og 1949—1957. Skipaður 21. október 1944 samgöngumálaráðherra, lausn 10. október 1946, en gegndi störfum til 4. febrúar 1947. Skipaður þann dag samgöngu- og viðskiptamálaráðherra, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember 1949. Utanríkisráðherra í forföllum 3. ágúst til 17. október 1956. Skipaður 23. desember 1958 forsætis-, sjávarútvegs- og samgöngumálaráðherra, lausn 19. nóv. 1959, en gegndi störfum til næsta dags og var þá skipaður sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra, lausn 31. ágúst 1965, er hann var skipaður utanríkisráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí. Bankastjóri við Landsbankann 1957—1958.
Gagnfræðingur Akureyri 1925. Nám í framhaldsdeild Gagnfræðaskólans á Akureyri 1925—1927.
Starfsferill
Réðst til bæjarfógetans á Siglufirði 1. nóvember 1927, fulltrúi hans 1928—1936. Ráðinn 1936 skrifstofustjóri síldarútvegsnefndar, 1939 framkvæmdastjóri nefndarinnar og gegndi því starfi til ársloka 1958. Skrifstofustjóri Brunabótafélags Íslands 1959—1976.
Póstmaður á Akureyri 1910—1918, verslunarmaður þar 1919—1920. Póstmeistari á Ísafirði 1920—1932. Framkvæmdastjóri Samvinnufélags Ísfirðinga 1928— 1944. Skipaður 21. október 1944 félagsmála- og dómsmálaráðherra, lausn 10. október 1946, en gegndi störfum til 4. febrúar 1947. Í fjárhagsráði 1947—1949. Forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins frá 1949 til æviloka.
Stúdentspróf MR 1967. Lögfræðipróf HÍ 1972. Hdl. 1974. Próf í stjórnmálafræði Manchester-háskóla 1974. BA-próf Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986. MA-próf í tónfræði Kaliforníu-háskóla, Los Angeles 1989. Framhaldsnám í tónsmíðum í San Diego 1990. Atvinnuflugmannspróf 1980.
Starfsferill
Lögfræðistörf á eigin vegum 1974—1978. Umboðsfulltrúi hjá dómsmálaráðuneyti 1980—1982. Lögfræðingur Félags íslenskra hljómlistarmanna 1982—1985. Kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1990 jafnframt öðrum tónlistarstörfum.Íslandsmeistari í siglingum 1974 og formaður Siglingasambands Íslands 1976. Í orkuráði 1979—1983. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1978.
Stúdentspróf MR 1930. Lögfræðipróf HÍ 1935. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1937—1938.
Starfsferill
Fulltrúi sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógetans í Hafnarfirði 1935. Starfsmaður Olíuverslunar Íslands í Reykjavík 1936—1937. Bæjarstjóri í Hafnarfirði 1938—1945. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri 1945—1958 og 1959—1967. Skipaður 23. desember 1958 dómsmála-, landbúnaðar- og félagsmálaráðherra, lausn 19. nóvember 1959, en gegndi störfum til 20. nóvember. Yfirborgarfógeti í Reykjavík 1967—1979.
Starfsmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar heima og erlendis 1982—1987. Sóknarprestur í Heydalaprestakalli síðan 1987. Sat þing Evrópuráðsins 1980 og þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1991, 1993 og 1994.
Stúdentspróf MR 1936. Kandídatspróf í rekstrarhagfræði frá háskólanum í Frankfurt am Main 1939. Doktorspróf sama háskóla 1954. Námsdvöl við háskóla í Danmörku, Sviss og Bretlandi 1946, í Bandaríkjunum 1952 og Þýskalandi 1954. Heiðursdoktor Háskóla Íslands 1971.
Starfsferill
Starfsmaður í Landsbanka Íslands 1939—1940. Kennari við Viðskiptaháskóla Íslands 1939—1940, dósent 1940—1941. Stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík 1939—1946 og 1947—1956. Skipaður 1941 dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, skipaður 1946 prófessor í laga- og viðskiptadeild Háskóla Íslands, leyfi frá störfum 1956, lausn 1966. Skipaður 24. júlí 1956 mennta- og iðnaðarmálaráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember Skipaður 23. desember 1958 mennta-, iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra, lausn 19. nóvember 1959, en gegndi störfum til 20. nóvember. Skipaður 20. nóvember 1959 mennta- og viðskiptamálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí 1971. Prófessor í viðskiptadeild Háskóla Íslands 1972—1987.
Stundaði kennslu á vetrum, en vegavinnu, síldarmat o. fl. á sumrum árin 1912—1919. Gjaldkeri í útibúi Íslandsbanka á Ísafirði 1919—1923. Blaðamaður í Reykjavík 1924. Kaupfélagsstjóri í Reykjavík 1925—1927. Ritstjóri í Reykjavík 1927—1931. Útibússtjóri Útvegsbankans á Seyðisfirði 1931—1934. Skipaður 28. júlí 1934 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, lausn 20. mars 1938. Skipaður 1938 forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Skipaður 1957 sendiherra í Ósló og síðar jafnframt sendiherra í Tékkóslóvakíu og Póllandi, lausn 1963.
Skrifstofustjóri Landsverslunar 1917—1926. Meðal stofnenda Tóbaksverslunar Íslands hf. 1926 og var framkvæmdastjóri hennar til 1929. Stofnaði Olíuverslun Íslands hf. 1927 og var framkvæmdastjóri hennar til æviloka.
Kennarapróf KÍ 1920. Framhaldsnám við kennaraháskólann í Kaupmannahöfn september—desember 1920. Íþróttanámskeið í Reykjavík 1922.
Starfsferill
Kennari (í forföllum) við Bændaskólann á Hvanneyri 1921. Kennari við barnaskólann á Norðfirði 1921—1933, við unglingaskólann þar 1923—1933. Framkvæmdastjóri Fóðurmjölsverksmiðju Norðfjarðar 1933—1938 og Togarafélags Neskaupstaðar 1936—1937. Framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins 1938—1939. Eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna 1939—1953. Skipaður 17. september 1946 skrifstofustjóri félagsmálaráðuneytisins, lausn 1. febrúar 1953 að eigin ósk. Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga 1945—1967. Forstjóri Bjargráðasjóðs Íslands 1952—1967.
Stúdentspróf MA 1949. Viðskiptafræðipróf HÍ 1955. Sótti spænskunámskeið við Háskóla Íslands. Tungumálanám á Spáni 1953 (fjóra mánuði) og 1983 (sex vikur).
Starfsferill
Var í millilandasiglingum 1949—1951. Skrifstofustörf við Vélaverkstæðið Foss hf. á Húsavík 1955—1957. Fulltrúi hjá Kaupfélagi Þingeyinga 1957—1958. Skrifstofustjóri Útflutningsnefndar sjávarafurða 1958—1960. Fulltrúi í viðskiptamálaráðuneyti 1960—1962. Gekkst fyrir stofnun útgerðarfélagsins Hreifa hf. á Húsavík 1955. Einnig með útgerð og fiskvinnslu í Hafnarfirði 1961—1990. Gekkst fyrir stofnun netaverkstæðisins Hringnótar hf. í Hafnarfirði með fimm útgerðarfyrirtækjum og veitti því forstöðu 1963—1981. Fulltrúi hjá Siglingamálastofnun ríkisins um öryggismál 1979—1980. Útflutningsstjóri hjá Lýsi hf. í Reykjavík 1980—1984.
Prentnám í Prentsmiðju Þjóðviljans á Ísafirði og Bessastöðum 1897—1901.
Starfsferill
Prentari á Bessastöðum 1901—1905, í Gutenberg í Reykjavík 1905—1918. Forstjóri Alþýðubrauðgerðarinnar í Reykjavík 1918—1930. Bankastjóri Útvegsbankans frá 1930 til æviloka.
Stúdentspróf MA 1960. Fil. kand. í þjóðhagfræði, tölfræði o. fl. frá Stokkhólmsháskóla 1964. M.Sc. Econ. í þjóðhagfræði frá London School of Economics and Political Science 1967.
Starfsferill
Hagfræðingur við Efnahagsstofnun 1964—1967, deildarstjóri hagdeildar þar 1967—1970, hagrannsóknastjóri þar 1970—1971. Forstöðumaður hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972—1974. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar 1974—1986. Fastafulltrúi Norðurlanda (executive director) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1980—1983. Skipaður 8. júlí 1987 dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra, einnig ráðherra Hagstofu Íslands, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 28. september 1988 viðskipta- og iðnaðarráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skipaður 30. apríl 1991 viðskipta- og iðnaðarráðherra, lausn 14. júní 1993. Bankastjóri Seðlabanka Íslands og formaður bankastjórnar 1993—1994. Aðalbankastjóri Norræna fjárfestingarbankans 1994—2005.
Stúdentspróf MA 1961. Lokapróf í þjóðhagfræði (Diplom Volkswirt) við Kölnarháskóla 1969. Sveinspróf í prentiðn 1969. Dr. rer. pol. við Kölnarháskóla 1974.
Starfsferill
Aðstoðarkennari við Kölnarháskóla 1971—1975. Aðstoðarmaður í sendiráði Íslands í Bonn 1976—1977. Deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti 1977—1987. Sérfræðingur í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti síðan 1991.
Stúdentspróf MA 1944. Lögfræðipróf HÍ 1949. Hdl. 1950. Hrl. 1973.
Starfsferill
Fulltrúi bæjarfógetans í Vestmannaeyjum sumarið 1949. Fluttist til Akureyrar haustið 1949 og rak þar málaflutningsskrifstofu til 1955. Starfsmaður Alþýðusambands Íslands í Reykjavík 1955—1960. Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1960—1963 og aftur frá 1971 til æviloka. Dómari í Félagsdómi 1986—1994. Dómari í Kjaradómi 1991—1993.
Kennari við barnaskóla Keflavíkur 1960—1976, en starfaði jafnframt á skrifstofum verkalýðsfélaganna þar, í fullu starfi þar 1977—1978. Námsstjóri Félagsmálaskóla alþýðu um skeið. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins 1993—2007.
Stúdentspróf MR 1959. Próf í byggingarverkfræði við Kungl. Tekniska Högskolan í Stokkhólmi 1963. Nám í rekstrarhagfræði við Stokkhólmsháskóla 1963—1964. MS-próf í rekstrarverkfræði við Illinois Institute of Technology í Chicago 1965, sérnám og rannsóknir við sama skóla og doktorspróf þaðan 1969.
Starfsferill
Vann á Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar og Guðmundar B. Guðmundssonar og sem stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík 1963, hjá Vegagerð ríkisins 1964 og á Reiknistofnun Háskóla Íslands 1969. Rak ráðgjafarþjónustu í rekstrarskipulagningu og áætlanagerð í Reykjavík 1966-1978. Stundakennari við verkfræðideild Háskóla Íslands 1971-1973. Skipaður dósent í stærðfræðilegri hagfræði og tölfræði í viðskiptadeild Háskóla Íslands frá 1. janúar 1974, lausn 1. ágúst 1990, leyfi 1978-1980 og 1989-1990. Skipaður 1. september 1978 sjávarútvegsráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 15. október 1979 sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980. Skipaður sendiherra frá 1. ágúst 1989, lausn 1. janúar 2006, leyfi 1. september 1994 til 1. september 2000. Fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum í Genf 1989-1994, jafnframt sendiherra í Egyptalandi, Eþíópíu, Tansaníu og Kenía. Kjörinn samhljóða á fundi utanríkisviðskiptaráðherra EFTA-landanna Austurríkis, Finnlands, Íslands, Liechtensteins, Noregs, Sviss og Svíþjóðar hinn 16. júní 1993 í stöðu aðalframkvæmdastjóra samtakanna (Secretary General), hóf störf 1. september 1994, lét af embætti 1. september 2000. Sendiherra í utanríkisráðuneytinu 2000-2002. Fastafulltrúi Íslands í Brussel hjá Evrópusambandinu 2002-2005, jafnframt sendiherra í Liechtenstein, Lúxemborg og Marokkó.
Skipstjórnarréttindi á 30 tonna skip 1980. Stúdentspróf Fjölbrautaskólanum á Akranesi 1985. Lögfræðipróf HÍ 1991.
Starfsferill
Fulltrúi bæjarfógeta, síðar sýslumanns, í Vestmannaeyjum 1991-1994, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins um sex mánaða skeið 1993-1994. Yfirlögfræðingur í umhverfisráðuneytinu 1994-1995. Í bæjarstjórn Vestmannaeyja 2002-2006.
Gagnfræðapróf MR 1922. Farmannapróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1930.
Starfsferill
Sjómaður 1920—1932. Varð þá kaupfélagsstjóri í Vestmannaeyjum í nokkur ár, síðan skipstjóri og útgerðarmaður þar. Stundaði kaupsýslustörf síðustu árin.
Landspróf frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1956. Námskeið í tölvufræðum í Ósló og Reykjavík 1970-1972.
Starfsferill
Starfsmaður Pósts og síma á Ísafirði 1956-1962. Skrifstofu- og verslunarstörf 1962-1963 og 1967-1968. Starfsmaður tölvudeildar Loftleiða 1972-1976. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1988-1989. Skipuð félagsmálaráðherra 12. nóvember 1994, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl.
Stúdentspróf MA 1961. Fyrrihlutapróf í viðskiptafræði HÍ 1966, en lauk ekki námi.
Starfsferill
Starfsmaður Sjómannasambands Íslands og verkalýðsmálanefndar Alþýðuflokksins 1964-1965. Fulltrúi á skrifstofu iðnfræðsluráðs 1967-1969. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1969-1974. Skipaður 15. október 1979 fjármálaráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980; fór jafnframt með Hagstofu Íslands. Framkvæmdastjóri Norræna félagsins 1984-1991. Skipaður 30. apríl 1991 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 14. júní 1993. Skipaður 14. júní 1993 iðnaðar- og viðskiptaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, skipaður einnig heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 24. júní 1994, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands frá 2001.
Stúdentspróf MR 1922. Guðfræðipróf HÍ 1926. Framhaldsnám við Hafnarháskóla og námsför um Finnland, Þýskaland, Austurríki og Tékkóslóvakíu 1928—1929. Námsför um Svíþjóð, Pólland og Danmörku 1935. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1936—1937. Námsför um Bretland, Ítalíu, Egyptaland, Líbanon, Sýrland, Jórdaníu, Ísrael og Grikkland 1957.
Starfsferill
Prestur í Flatey á Breiðafirði 1926—1928. Eftirlitsmaður með kennslu í æðri skólum 1929—1930. Kennari við Kennaraskóla Íslands 1930—1937. Fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 1931—1937, fréttastjóri 1937—1941. Dósent í guðfræði við Háskóla Íslands 1937—1944. Skrifstofustjóri í fræðslumálaskrifstofunni 1944—1946. Prestur í Holti undir Eyjafjöllum frá 1946 til æviloka. Kennari og prófdómari við Héraðsskólann í Skógum frá 1949 um árabil.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1934. Nám í læknadeild Háskóla Íslands 1934—1935. Próf í efnaverkfræði 1939 við Norges Tekniske Højskole í Þrándheimi. Framhaldsnám í verkstjórnarfræðum og vinnuhagræðingu við Teknologisk Institut í Ósló sumurin 1962 og 1963.
Starfsferill
Verkfræðingur við Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði 1940—1942, síldarverksmiðjuna Rauðku á Siglufirði 1944. Starfsmaður við hráefnaúthlutun til matvælaiðnaðarins hjá Skömmtunarskrifstofu ríkisins 1940—1950. Kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, síðar Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1941—1953, stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík 1948—1955, kennari við Verslunarskólann 1953—1970, yfirkennari 1957—1970. Forstöðumaður verkstjórnarnámskeiða frá því er þau voru upp tekin 1962—1970. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins frá 1970 til æviloka.
Háseti og stýrimaður í siglingum og á fiskveiðum 1900—1917. Skipstjóri 1918—1919. Afgreiðslumaður Alþýðublaðsins í Reykjavík 1919—1927. Afgreiðslumaður og verkstjóri hjá Skipaútgerð ríkisins 1930—1942.
Verslunarskólapróf VÍ 1945. Nám við City of London College 1946—1947 og við University College, Exeter, Englandi, í stjórnfræði 1947—1949.
Starfsferill
Starfsmaður í Útvegsbankanum 1945—1946. Fulltrúi í Tryggingastofnun ríkisins 1949—1954. Bæjarstjóri í Hafnarfirði 1954—1962. Fulltrúi í viðskiptaráðuneytinu 1962—1963, deildarstjóri útflutningsdeildar 1963—1982. Viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í London 1982—1987. Deildarstjóri útflutningsskrifstofu utanríkisráðuneytisins og síðar skrifstofustjóri 1987—1991.
Stúdentspróf MR 1918. Lögfræðipróf HÍ 1922. Hrl. 1926. Kynnti sér félagsmálalöggjöf á Norðurlöndum 1928 með styrk úr sáttmálasjóði.
Starfsferill
Starfsmaður bæjarfógetans í Reykjavík á háskólaárum sínum og til haustsins 1923. Fulltrúi hjá Jóni Ásbjörnssyni hæstaréttarlögmanni 1922—1925. Stofnaði 1925 málaflutningsskrifstofu í Reykjavík og rak hana með öðrum málaflutningsmönnum til 1945. Skipaður 17. apríl 1939 félagsmálaráðherra og fór jafnframt með utanríkismál, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður 18. nóvember 1941 utanríkis- og félagsmálaráðherra, lausn 17. janúar 1942. Framkvæmdastjóri Brunabótafélags Íslands 1945—1957. Skipaður 4. febrúar 1947 forsætis- og félagsmálaráðherra, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember. Skipaður 1957 sendiherra í Danmörku, jafnframt sendiherra í Írlandi og frá 1958 sendiherra í Tyrklandi, lausn 1965.
Stúdentspróf MR 1925. Nam náttúrufræði í Hafnarháskóla 1925—1930, var þó eitt ár frá námi vegna veikinda. Lauk fyrri hluta meistaraprófs í grasafræði 1930. Framhaldsnám og rannsóknir við háskólann í Ósló 1951. Heiðursdoktor HÍ 1981.
Starfsferill
Kennari við Menntaskólann á Akureyri 1930—1966, skólameistari 1966—1972. Vann að gróðurrannsóknum á sumrum frá 1930—1976.
Stúdentspróf MR 1968. BA-próf Manchester-háskóla á Englandi 1971. MA-próf Exeter-háskóla á Englandi 1973.
Starfsferill
Sögukennari við Menntaskólann í Reykjavík frá 1972 til æviloka. Jafnframt dálkahöfundur við Vísi og Dagblaðið frá 1975. Skipaður 15. október 1979 dóms- og kirkjumála- og menntamálaráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980.
Stúdentspróf MR 1911. Læknisfræðipróf HÍ 1916. Heiðursdoktor HÍ 1959. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Ósló sumarið 1916 og í Kaupmannahöfn 1918—1919.
Starfsferill
Settur 1916 héraðslæknir í Þistilfjarðarhéraði, sat á Þórshöfn. Héraðslæknir í Ísafjarðarhéraði 1917—1931. Landlæknir 1931—1959. Skólalæknir Menntaskólans í Reykjavík 1931—1938.
Verkamaður á Akureyri frá 1932, starfsmaður verkalýðsfélaganna þar 1946—1949 og 1952—1955. Forseti Alþýðusambands Íslands 1972—1980. Skipaður 16. júlí 1973 félagsmála- og samgönguráðherra. Lausn 6. maí 1974.
Héraðsskólapróf Laugum 1929. Kennarapróf KÍ 1931. Stúdentspróf MA 1935. Lagði stund á íslensk fræði við Háskóla Íslands 1935—1936.
Starfsferill
Kennari í Reykdælahéraði 1936—1938, við Gagnfræðaskóla og Iðnskóla Akureyrar 1938—1946. Tryggingafulltrúi hjá bæjarfógetanum á Akureyri 1946—1964. Útibússtjóri Útvegsbankans á Akureyri 1964—1979. Skipaður 15. október 1979 landbúnaðar- og iðnaðarráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980.
Gerðist að loknu prófi fulltrúi á málaflutningsskrifstofu Stefáns Jóh. Stefánssonar alþingismanns og Ásgeirs Guðmundssonar, varð meðeigandi Stefáns Jóhanns 1. janúar 1936 og rak málaflutningsskrifstofuna með honum til 1945. Skipaður 1945 sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði, lausn 1965, en gegndi ekki embætti eftir að hann varð ráðherra árið 1956. Settur bæjarfógeti í Kópavogskaupstað júní til ágúst 1955. Skipaður 24. júlí 1956 utanríkisráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember. Skipaður 23. desember 1958 utanríkis- og fjármálaráðhera, lausn 19. nóvember 1959, en gegndi störfum til 20. nóvember og var þá skipaður utanríkisráðherra að nýju, lausn 31. ágúst 1965. Skipaður 1965 sendiherra í Stóra-Bretlandi og Hollandi með aðsetri í Lundúnum, jafnframt sendiherra á Spáni og í Portúgal 1965 og í Nígeríu 1971. Sendiherra í Bandaríkjunum og jafnframt í Argentínu, Brasilíu, Kanada, Mexíkó og á Kúbu 1971—1973. Sendiherra í Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki með setu í Stokkhólmi 1973—1977. Sendiherra í Belgíu og Lúxemborg, hjá Evrópubandalaginu og Atlantshafsbandalaginu 1977—1979.
Gagnfræðapróf MR 1938. Próf frá Loftskeytaskólanum 1946. Símvirkjapróf, radíótækni sérgrein, 1948, síðan framhaldsnám hjá Pósti og síma.
Starfsferill
Sjómaður 1937—1942, m.a. á norsku fragtskipi á fyrstu árum seinni heimsstyrjaldar. Bifreiðarstjóri 1942—1945. Loftskeytamaður á togara 1946 og síðar í afleysingum. Starfaði í radíótæknideild Pósts og síma 1946—1956, verkstjóri þar 1950—1953, yfirverkstjóri 1953—1956. Stöðvarstjóri Pósts og síma í Vestmannaeyjum 1956—1966, 1975—1978 og 1983—1987. Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum 1966—1975. Skipaður 1. september 1978 félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 15. október 1979 félags-, heilbrigðis- og tryggingamála- og samgönguráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980.
Héraðsskólapróf Laugarvatni 1941. Nám í Samvinnuskólanum 1941—1942. Nám við New York University School of Commerce 1945—1946. Kynnti sér starfsemi innkaupastofnana í Bandaríkjunum sumarið 1960 í boði bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Starfsferill
Skrifstofustjóri Landssmiðjunnar í Reykjavík 1947—1956, átti jafnframt sæti í viðskiptanefnd um skeið. Settur verðgæslustjóri 1950—1951. Forstjóri Innflutningsskrifstofunnar 1956—1959. Forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins 1959—1966. Framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar 1966—1967. Forstjóri Álafoss hf. 1968—1973. Starfsmannastjóri við Sigölduvirkjun 1974—1976. Forstjóri Norðurstjörnunnar hf., Hafnarfirði 1976—1981. Fulltrúi í Framkvæmdastofnun ríkisins frá 1981.
sveitarstjórnsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MA 1972. Lögfræðinám HÍ 1974—1975.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1972—1974 og 1975—1976. Kaupmaður á Akureyri 1976—1991. Sveitarstjóri Skútustaðahrepps í Mývatnssveit 1997—2005. Sveitarstjóri í Þingeyjarsveit 2006—2008.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1968. BS-próf í líffræði HÍ 1973. MSc.-próf í taugalífeðlisfræði Birmingham-háskóla á Englandi 1975. Þjálfun í vefjarannsóknum við Montreal-háskóla í Kanada níu mánuði 1979—1980. Próf frá leiðsöguskólanum í Kópavogi 2018.
Starfsferill
Rannsóknastörf við Birmingham-háskóla á Englandi 1975—1976. Rannsóknir og kennsla í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands 1976—1980. Lektor í lífeðlisfræði við læknadeild Háskóla Íslands 1980—1985. Framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins 1987—1989. Stundakennari í taugalífeðlisfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri 1989—1990. Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1990—1992. Ritari ráðgjafarnefndar EFTA í Genf og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra 1993—1995. Skrifstofustjóri félags- og heilbrigðismála hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn 1995-1997. Ritari þingmannanefndar EFTA í Brussel 1998-1999. Ritari EFTA ráðsins í Genf 1999-2005 og yfirmaður skrifstofu framkvæmdastjóra EFTA 2008-2014. Deildarstjóri erlendra rannsóknarstyrkja hjá Íslenskri erfðagreiningu 2005-2008 og framkvæmdastjóri samskiptasviðs 2014-2018. Dálkahöfundur hjá Alþýðublaðinu 1988—1992. Pistlahöfundur hjá Ríkisútvarpinu 1990—1992.
Sjúkraliðapróf 1971. Nám á viðskiptabraut 1982—1983. Framhaldsnám fyrir sjúkraliða í geðhjúkrun 1995.
Starfsferill
Við búskap 1972—1978 í Þykkvabæ í Djúpárhreppi. Við hjúkrunarstörf á elli- og hjúkrunarheimilinu í Hornafirði 1978—1981, forstöðukona þess síðasta árið. Við hjúkrunarstörf í sjúkrahúsi Húsavíkur frá 1981, en hefur starfað við geðdeild Borgarspítalans í Arnarholti frá 1991.
sveitarstjórnsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Nám í Fósturskóla Íslands 1973—1976 og við Barnevernsakademiet í Ósló 1977—1978.
Starfsferill
Forstöðumaður dagvistarheimila hjá Reykjavíkurborg 1976—1977 og 1980—1981 og hjá Hafnarfjarðarbæ 1982—1983. Kennari í hagnýtri uppeldisfræði við Fósturskóla Íslands 1978—1980. Stofnaði og gaf út bæjarblað í Garðabæ 1987—1990, Blaðið okkar, var ritstjóri þess. Vann við ríkissjónvarpið og Stöð 2 að sjónvarpsþáttum um neytendamál og umræðuþáttum á árunum 1988—1990, leysti auk þess af á fréttastofu. Kaupmaður og heildsali síðan 1990.
Stúdentspróf MR 1962. Arkitektspróf frá Tækniháskólanum í Aachen í Rínarlöndum 1971.
Starfsferill
Stundaði arkitektsstörf hjá öðrum 1971—1975 og sjálfstætt 1975—1985. Ráðgjafi í byggingamálum á vegum menntamálaráðuneytisins 1987—1988. Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli síðan 1988.
Stúdentspróf MH 2003. BA-próf í sálfræði og kynjafræði HÍ 2007. M.Sc.-próf í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Lundi 2008.
Starfsferill
Meðferðarfulltrúi við Meðferðarheimilið Torfastöðum 1997-2004. Stuðningsfulltrúi og verkefnastjóri á geðdeildum Landspítalans með námi 2006-2009. Starfaði við viðskiptaþróun og mannauðsmál á ráðgjafar- og þjónustumiðstöðinni Vinun 2010-2011. Mannauðs- og stjórnunarráðgjafi hjá Capacent 2011-2013. Umhverfis- og auðlindaráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.
Stúdentspróf MS 1989. Próf í innanhússhönnun frá Istituto di arti operativi í Perugia 1993. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1994. BA-próf í viðskiptatungumálum frá Syddansk Universitet Óðinsvéum 2001. D-vottun í verkefnastjórnun frá Símenntun HA 2012.
Starfsferill
Leiðsögumaður á sumrin frá 1994. Starfaði hjá Neytendasamtökunum 2002–2013, ritstjóri Neytendablaðsins 2005-2013. Safnstjóri Nonnahúss 2002-2008.
Stúdentspróf MR 1992. BA-próf í íslensku og heimspeki HÍ 1995. Framhaldsnám í heimspeki við kaþólska háskólann í Leuven, Belgíu, 1996-1997. Meistarapróf í heimspeki frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1998. Meistarapróf í heimspeki frá Oxfordháskóla í Bretlandi 2001. Stundaði framhaldsnám í hagfræði við HÍ.
Starfsferill
Blaðamaður meðfram námi á Tímanum og DV. Starfandi tónlistarmaður í hljómsveitinni Skárren ekkert, síðar Ske, frá 1992. Dagskrárgerðarmaður í hlutastarfi á Ríkisútvarpinu 1998-2005. Starfsmaður í almannatengslum á auglýsingastofunni ABX 2002. Blaðamaður á Fréttablaðinu 2003-2004, pistlahöfundur þar 2003-2009. Dagskrárgerðarmaður á Skjá 1 og sjónvarpsstöðinni Sirkus 2004-2006. Aðstoðarmaður borgarstjóra 2007-2008. Sjálfstæður atvinnurekandi á sviði textagerðar og hugmyndasmíði fyrir auglýsingar, almannatengsl og ráðgjöf af ýmsu tagi 2004-2009.
Lokapróf frá Sturgis High School, Sturgis Michigan Bandaríkjunum, 1990. Diploma Culinary Arts frá Cambridge School of Culinary Arts Cambridge Massachusetts, 1999. B.Ed.-próf í leikskólakennarafræðum frá KHÍ 2007. M.Ed.-próf frá HÍ í náms- og kennslufræði með kjörsviðið mál og læsi 2013.
Starfsferill
Ræstingar 2000-2007. Leiðbeinandi við leikskólann Heiðarborg 2000-2003. Leiðbeinandi, leikskólakennari, deildarstjóri, verkefnastjóri við leikskólann Múlaborg 2004-2009. Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Ösp 2009-2011, leikskólastjóri 2011-2016.
Lokapróf frá Pennridge High School, Perkasie, Pennsylvania, Bandaríkjunum, 1986.
Starfsferill
Starfaði við bóksölu hjá Almenna bókafélaginu, Eymundsson og Máli og menningu 1987-2010. Tónlistarmaður og lagahöfundur með hljómsveitunum HAM, Dr. Spock, Rass og fleiri frá 1988. Leikari, handritshöfundur, hljóðmaður og framleiðandi við kvikmynda- og heimildarmyndagerð af og til frá 1991. Heilbrigðisráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.
Háskólabrú Keilis, Ásbrú, 2008. B.Ed.-grunnskólakennarapróf frá menntavísindasviði HÍ 2011.
Starfsferill
Starfaði hjá Fiskmarkaði Suðurnesja 1989-1997 og aftur 2000-2003. Starfaði 1997-1999 hjá Sønderborg kommune í Danmörku og hjá Danmarin Fiskehermetik-, fiskefars- og fiskefiletfabrik í sömu borg. Fiskvinnslustörf í Grindavík 2003-2005. Öryggisvörður hjá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli 2005-2007. Grunnskólakennari við Njarðvíkurskóla 2011-2012. Kennari við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík 2012-2013.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MA 1955. Fyrrihlutapróf í byggingarverkfræði HÍ 1958. Próf í byggingarverkfræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn 1961, lic. techn. í æðri burðarþolsfræði og sveiflufræði 1966. Sérnám í jarðskjálftafræðum við International Institute of Seismology and Earthquake Engineering í Tókíó 1963—1964.
Starfsferill
Ráðgjafarverkfræðingur í Reykjavík 1965—1968. Rannsóknarverkfræðingur við byggingarannsóknastofnun Danmarks Ingeniörakademi 1969—1970. Rannsóknarverkfræðingur og aðstoðarkennari við aflfræði- og burðarvirkjadeild Tækniháskólans í Kaupmannahöfn 1970—1972. Lektor 1972. Prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands síðan 1972. Skipaður 10. september 1989 ráðherra Hagstofu Íslands og samstarfsráðherra Norðurlanda, tók 23. febrúar 1990 við embætti umhverfisráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Gistiprófessor við ríkisháskóla Mexíkó í Mexíkóborg 1991—1992. Forseti verkfræðideildar Háskóla Íslands 1993—1995.
Kennarapróf KÍ 1955. Framhaldsnám í sögu og dönsku við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn 1957—1959. Framhaldsnám í skólastjórn við háskólann í Suður-Flórída, Bandaríkjunum, 1979—1980.
Starfsferill
Kennari við Barnaskóla Selfoss 1955—1957. Kennari við Gagnfræðaskólann á Selfossi (síðar Sólvallaskóla) 1959—1970, skólastjóri 1970—1987 og 1991—2001. Skipaður 10. september 1989 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl.
Stúdentspróf MR 1953. Nám við verkfræðideild Háskóla Íslands 1953—1954. Próf í byggingarverkfræði við Tækniháskólann í Helsingfors 1961. Nám í umhverfisvernd við Nordiska Hälsovårdshögskolan í Gautaborg 1971.
Starfsferill
Virkjanarannsóknir í Finnlandi 1960—1961. Framkvæmdastjóri Flóaáveitunnar og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða 1961—1964. Stundaði ýmis verkfræðistörf og kennslu á árunum 1961—1964. Verkfræðingur hjá Steinstólpum hf. 1964. Verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg 1964—1971. Stundakennari við Tækniskóla Íslands 1970, fastráðinn 1971—1973. Rak eigin verkfræðistofu í Reykjavík 1971—1980. Verkfræðilegur ráðunautur Framkvæmdastofnunar ríkisins 1980—1985. Fulltrúi forstjóra Byggðastofnunar 1985—1989.
Stúdentspróf Lsk. 1883. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1893. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn vorið 1905 og 1918.
Starfsferill
Læknir í Höfðahverfishéraði 1893—1904, sat fyrst í Nesi, þá í Höfða og loks í Grenivík. Starfandi læknir á Akureyri 1904—1912. Héraðslæknir í Reyðarfjarðarhéraði 1913—1928, sat á Eskifirði. Fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka.
Stúdentspróf MR 1965. Stundaði nám í heimspeki og sálfræði við University College í Dublin 1968-1970 og í heimspeki og sálfræði við Université d´Aix-Marseille 1970-1972. Próf í leikstjórn og kvikmyndaframleiðslu frá Dramatiska Institutet í Svíþjóð 1977.
Starfsferill
Kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur. Blaðamaður og pistlahöfundur um árabil, en stundaði aðallega kvikmyndagerð 1977-1995. Ritstjóri Þjóðviljans 1987-1988 og tímaritsins Hestsins okkar 1990. Rithöfundur að aðalstarfi 1995-2009.
Fulltrúi bæjarfógetans í Reykjavík 1923—1925. Tók við búi föður síns í Fagraskógi að honum látnum, en gegndi jafnframt fulltrúastarfi hjá bæjarfógetanum á Akureyri um hríð. Bóndi í Fagraskógi frá 1925 til æviloka.
Stúdentspróf MR 1905. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1908. Framhaldsnám við Pastoralseminariet og háskólann í Kaupmannahöfn og námsför um Noreg og Svíþjóð alls tíu mánuði 1908—1909.
Starfsferill
Vígður 1909 aðstoðarprestur séra Jens Pálssonar í Görðum á Álftanesi. Prestur í Grundarþingum í Eyjafirði 1911—1918, sat að Hrafnagili, á Mosfelli í Grímsnesi 1918—1921, Akranesi 1921—1946. Prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi 1931—1946. Skipaður 3. júní 1932 atvinnu- og samgöngumálaráðherra og 23. júní jafnframt kirkju- og kennslumálaráðherra, lausn 16. nóvember 1933, en gegndi störfum áfram til 28. júlí 1934. Tók þá aftur við prests- og prófastsstörfum. Átti heima í Reykjavík síðustu ár ævi sinnar.
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum 1986. Nám í ensku HÍ 1989–1990. BEd-próf frá Kennaraháskóla Íslands 1994. Diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Nordica Consulting Group við Endurmenntun HÍ 2016. D-stig IPMA-vottunar verkefnastjóra hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands.
Starfsferill
Kennari við Árbæjarskóla 1994–1995 og Ölduselsskóla 1995–1996. Starfsmaður hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni 1999–2001. Kennari við Selásskóla 2003–2005. Starfsmaður hjá Apex 2005–2006. Sölufulltrúi hjá H. Jacobsen 2005–2008. Kennari við Barnaskóla Hjallastefnunnar 2008–2009 og Flataskóla 2010–2011. Starfsmaður hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni 2009–2010. Kennari við Árbæjarskóla 2011–2017, Öldutúnsskóla 2017–2019 og Árbæjarskóla 2019–2021. Mennta- og barnamálaráðherra 21. desember 2024 - 22. mars 2025.
Próf frá East Aurora High School í New York-ríki 1988. Stúdentspróf MS 1989. Embættispróf í lögfræði HÍ 1998. Nám í Evrópurétti við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu 1998. Hdl. 1999. Próf í verðbréfamiðlun 2000. LLM-próf í lögfræði frá Pennsylvaníuháskóla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum.
Starfsferill
Fulltrúi hjá sýslumanninum í Hafnarfirði 1998–2000. Fulltrúi og héraðsdómslögmaður á Lögfræðistofu Sóleyjargötu 17 2000–2001. Aðalfulltrúi hjá sýslumanninum á Sauðárkróki 2001. Lögfræðingur á starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis 2002–2004. Lögfræðingur, sviðsstjóri þjónustusviðs og fjármálastjóri hjá Skipulagsstofnun 2004–2006. Lögfræðingur á lánasviði hjá Fjármálaeftirlitinu 2006–2007. Aðstoðarsaksóknari í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra 2007–2011. Í barnaverndarnefnd Reykjavíkur árið 2008. Lögfræðingur hjá DNB-banka í Ósló 2011–2013. Lögmaður, stofnandi og meðeigandi hjá VestNord Legal í Reykjavík 2013–2015. Lögfræðingur hjá Nordea-banka í Ósló 2015–2019. Lögfræðingur hjá Isavia 2019–2020. Sjálfstætt starfandi lögfræðingur 2020–. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra síðan 21. desember 2024.
Gagnfræðapróf frá Ármúlaskóla trésmíðadeild 1972. Nám við trésmíðadeild Iðnskólans í Reykjavík 1974. Skrifstofunám, vefsíðugerð og myndvinnsla í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum (NTV) 1997.
Starfsferill
Lögreglumaður í Grindavík og Keflavík 1974-1980. Afgreiðslumaður í versluninni Brynju 1981-1993. Í endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar 2014-2016 fyrir Pírata. Mennta- og barnamálaráðherra 2025-2026.
Stúdentspróf VÍ 1980. BA-próf í uppeldisfræði HÍ 1986. MA-próf í námssálarfræði og ráðgjöf frá Rhode Island College í Rhode Island fylki í Bandaríkjunum 1989. MA-próf í félags- og persónuleikasálfræði, einnig frá Rhode Island College 1991. Gráða í uppeldis- og kennslufræðum HÍ 1994.<br><br>Löggilding sem sálfræðingur 1992. Sérfræðileyfi Landlæknisembættisins í klínískri sálfræði 2008.
Starfsferill
Kennsla við Grunnskólann á Stokkseyri 1980-1983. Sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins 1991-1993. Námsráðgjafi við MH 1991-1992 og kennari við MH 1993-1994. Stundakennari við Fangavarðaskóla ríkisins 1992. Kennari í sálfræði við Fósturskóla Íslands 1993-1994. Stundakennari við HÍ 1992-2002. Rekstur sálfræðistofu 1992-2025. Yfirsálfræðingur og deildarstjóri á Meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga (sem síðar varð Stuðlar) 1994-1998. Sálfræðingur barnaverndarmála í Kópavogi 1998-2005 og verktaki hjá Kópavogsbæ, sálfræðingur barnaverndarmála 2005-2007. Skólasálfræðingur í Áslandsskóla 2006-2016, í Hraunvallaskóla 2011 og í Stóru-Vogaskóla 2012-2013. Stundakennari í umferðarsálfræði í Ökuskólanum Mjódd 2010-2025. Stjórnandi þáttanna Í nærveru sálar á sjónvarpsstöðinni ÍNN 2008-2010. Heilsugæslusálfræðingur 2013-2018. Sálfræðingur hælisleitenda á Göngudeild sóttvarna 2017-2022.<br><br>Oddviti Flokks fólksins og borgarfulltrúi síðan 2018.
Stúdentspróf MR 1975. BS-próf í stærðfræði HÍ 1978. M.Sc.-próf í hagfræði frá London School of Economics and Political Science 1980. Doktorspróf í hagfræði HÍ 2013. Löggiltur verðbréfamiðlari 1998. Stóðst hæfis- og hæfnismat Fjármálaeftirlitsins til að sitja í stjórn eignarhaldsfélags fjármálafyrirtækja 2010. Lauk leiðsögunámi á háskólastigi frá EHÍ 2018.
Starfsferill
Hagfræðingur í Þjóðhagsstofnun 1980-1983. Hagfræðingur í alþjóðadeild Seðlabanka Íslands 1983-1985. Hagfræðingur á stjórnarskrifstofu Norðurlanda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í Washington 1985-1987. Efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar 1987-1988. Sérfræðingur í hagfræðideild Seðlabanka Íslands 1989-1991. Framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Íslands 1991-2003 (í leyfi frá störfum 2002-2003). Aðalfulltrúi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington 2002-2003. Lektor við Háskólann í Reykjavík 2003-2013. Dósent við Háskólann á Bifröst og framkvæmdastjóri gæðamála við skólann 2014-2017.
Sölustjóri o.fl. hjá Erninum 1992-2016. Formaður VR 2017-2024. Formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 2019-2024. Varaforseti ASÍ 2020-2024. Félags- og húsnæðismálaráðherra síðan 11. janúar 2026.
Flugþjónn hjá Air Atlanta 1995-2001. Bílstjóri og vakstjóri hjá Íslandspósti 2003-2005. Þjónustufulltrúi hjá TNT hraðflutningum 2005-2011. Safnvörður hjá Seðlabanka Íslands 2015-2021 og hjá Byggðasafni Reykjanesbæjar 2024. Hefur unnið að gerð sjónvarpsþáttanna Fyrir alla muni frá 2019 og tónlistarsmíð fyrir ýmsa sjónvarpsþætti frá 2019.
Stúdentspróf MR 1985. BS-próf í líffræði HÍ 1990. Framhaldsnám í fráveitu- og vatnshreinsifræðum (Water Pollution Control Technology) í Cranfield á Englandi. Diploma í opinberri stjórnsýslu HÍ. Vélstjórnarnám við FNV 2023, A-réttindi.
Starfsferill
Forfallakennari í Hólabrekkuskóla 1985-1986. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra frá 1992. Störf við fiskvinnslu og sjómennsku með hléum til ársins 2024. <br>Stundakennari við HÍ 1992-1994. Kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 1993-1994 og af og til frá árinu 2008.
Sveinspróf í matreiðslu frá Matsveina- og veitingaþjónaskóla Íslands 1971. Verslunarpróf VÍ 1972. BS-próf í hótel- og veitingahúsastjórnun frá Alþjóðaháskólanum í Flórída í Miami 1979. Meistararéttindi í matreiðslu 1980. Hótelstjórnunarnámskeið við Cornell-háskóla í Íþöku í New York-ríki 1997. Nám í innanhússhönnun við American InterContinental University í Lundúnum 2000–2001.
Starfsferill
Matreiðslumaður á Steigenberger-flugvallarhótelinu í Frankfurt 1971. Matreiðslumaður hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli 1971–1973. Hótelstjóri á City Hotel í Reykjavík 1973. Kaupmaður í Matarbúðinni í Hafnarfirði 1973–1974. Framkvæmdastjóri félagsheimilisins Festar í Grindavík 1974–1977. Framkvæmdastjóri hamborgarastaðarins Winny's 1980. Stofnandi og eigandi Tommahamborgara 1981–1984. Stofnandi og eigandi Villta tryllta Villa, skemmtistaðar fyrir unglinga, síðar Safari, 1982–1984. Stofnandi og eigandi Sprengisands 1985–1987. Stofnandi og eigandi veitingahússins Hard Rock Café 1987–1997. Stofnandi og eigandi skemmtistaðarins Ömmu Lú 1990–1994. Stofnandi og eigandi Glaumbars 1990–1992. Eigandi og rekstraraðili Hótels Borgar 1992–2002. Stofnandi og eigandi Skuggabars 1994–1996. Stofnandi og eigandi kaffihússins Kaffibrennslunnar 1996–2002. Stofnandi og aðaleigandi Hamborgarabúllu Tómasar 2004–2021.
Gerðist 1. mars 1892 lögregluþjónn í Kaupmannahöfn. Fulltrúi bæjarfógetans í Reykjavík 1893. Sýslumaður í Suður-Múlasýslu 1894—1911, sat á Eskifirði, gegndi um hríð báðum Múlasýslum. Fluttist til Reykjavíkur og varð yfirréttarmálaflutningsmaður 1911. Umboðsmaður erlendra tryggingafélaga 1912—1918. Forstjóri Sjóvátryggingafélags Íslands frá stofnun þess 1918 (félagið tók til starfa 1. janúar 1919) til 1933.
stjórnendursveitarstjórnþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Nam skósmíði. Dvaldist í Kaupmannahöfn, m. a. við tónfræðinám, 1878—1879 og 1882—1883.
Starfsferill
Skósmiður 1876—1882. Bókhaldari í Reykjavík 1883—1888, kaupmaður þar 1888—1910. Bæjargjaldkeri í Reykjavík 1889—1891. Bankastjóri Landsbankans 1909—1918, nema þann tíma sem hann var ráðherra. Skipaður fjármálaráðherra 4. janúar 1917, lausn 28. ágúst 1917. Hafði síðan sérstök eftirlaun ævilangt.
Settur 1882 sýslumaður í Dalasýslu og gegndi því embætti rúmt ár, sat að Staðarfelli. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði þar málflutning og önnur störf. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1886—1891. Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1891—1904, sat á Kirkjubæjarklaustri. Amtsráðsmaður fyrir Vestur-Skaftafellssýslu 1892—1904. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri frá 1904 til æviloka. Jafnframt formaður amtsráðs Norðuramtsins til 1907, er amtsráðin féllu niður.Einn af stofnendum Stórstúku Íslands 1886 og formaður hennar 1888—1891. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1890—1891. Í milliþinganefnd í skattamálum 1907.
Bóndi í Bakkagerði í Jökulsárhlíð 1876—1883, á Ketilsstöðum 1883—1885, í Húsey í Hróarstungu 1885—1888 og á Sleðbrjót í Jökulsárhlíð 1888—1900, var póstafgreiðslumaður þar. Veitingamaður á Vopnafirði 1900—1903. Fluttist þá vestur um haf. Bóndi þar fyrst í Álftavatnsbyggð, en síðar í Siglunesbyggð við Manitoba-vatn til æviloka.
Landfógetaskrifari 1876—1877. Sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1878—1886. Yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirrétti 1886, 1. yfirdómari 1889, háyfirdómari 1908—1911. Jafnframt settur amtmaður í suður- og vesturamtinu 1891—1894. Skipaður 14. mars 1911 ráðherra Íslands, lausn 24. júlí 1912. Skipaður 1912 dómstjóri að nýju. Skipaður 1. des. 1919 dómstjóri í Hæstarétti.
Fylgdarmaður Kr. Kålunds á ferðum hans um Ísland sumurin 1873 og 1874. Biskupsskrifari í Reykjavík 1877—1881 og stundaði jafnframt kennslu. Fékk Gilsbakka 1881, lausn 1918 vegna sjóndepru, en bjó áfram til æviloka á Gilsbakka. Prófastur í Mýraprófastsdæmi 1883—1892 og 1911—1915.
Settur málaflutningsmaður við landsyfirdóminn 1. ágúst 1884. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1884—1892. Vikið frá 1892. Lausn með eftirlaunum 1895. Stjórnaði kaupfélagi á Ísafirði 1888—1901, það annaðist m.a. saltfisksölu til Miðjarðarhafslanda. Rak verslun á Ísafirði 1895—1915. Ritstjóri og bóndi á Bessastöðum á Álftanesi 1901—1908 og rak þar prentsmiðju. Fluttist til Reykjavíkur 1908 og átti þar heima síðan.
Stúdentspróf Lsk. 1884. Nám í náttúrufræði við Hafnarháskóla með grasafræði sem sérgrein, lauk ekki prófi.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann á Möðruvöllum, síðar á Akureyri 1887—1908, skólameistari frá 1908 til æviloka. Átti heima í Stórubrekku 1889—1891. Bóndi á Möðruvöllum 1891—1910, en fluttist með skólanum til Akureyrar 1902.
Stúdentspróf Lsk. 1880. Læknisfræðipróf Læknaskólanum 1884. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1884—1885.
Starfsferill
Staðgöngumaður héraðslæknisins á Akureyri 1884. Héraðslæknir á Akranesi 1885—1886. Héraðslæknir í Austur-Skaftafellssýslu 1886—1905, sat í Borgum í Nesjum. Héraðslæknir í Keflavík 1905—1929. Póstafgreiðslumaður í Nesjum 1891—1905. Gjaldkeri Sparisjóðs Keflavíkur frá stofnun hans 1907.
Stúdentspróf Lsk. 1877. Læknisfræðipróf Læknaskólanum 1881. Við framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn og Ósló 1882—1883, 1896—1897 og 1919—1920.
Starfsferill
Héraðslæknir í Keflavík 1883—1904. Síðan starfandi læknir í Reykjavík til æviloka, nema veturinn 1911—1912, er hann var staðgöngumaður héraðslæknisins á Akureyri. Settur 1881—1882 kennari við Möðruvallaskóla. Gjaldkeri við Íslandsbanka í Reykjavík 1904—1909. Átti sæti í hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps, sýslunefnd Gullbringu- og Kjósarsýslu og amtsráði suðuramtsins. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Suðurnesja og framkvæmdastjóri Þilskipafélags Suðurnesja í þrjú ár. Í stjórn Rauða kross Íslands frá stofnun hans 1924 til æviloka.
Starfsmaður við kaupfélagið Dagsbrún í Ólafsvík 1943—1947, kaupfélagsstjóri 1947—1962. Skrifstofustjóri Ólafsvíkurhrepps 1962—1966, oddviti og síðan sveitarstjóri 1966—1978. Skipaður 26. maí 1983 félagsmálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí.
Ýmis störf hjá Hafnarfjarðarbæ meðfram námi, m.a. æskulýðsstörf og stundakennsla. Verkefni hjá velferðarráðuneytinu 2014–2015. Tímabundið verkefni á skrifstofu utanríkisráðherra 2015. Aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2015–2016. Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2016–2017. Skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins 2017. Aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017–2018.
Samvinnuskólapróf 1983. Ýmis námskeið í rekstrarfræði, stjórnun og stjórnmálafræði frá HÍ og HA.
Starfsferill
Ýmis skrifstofustörf 1983-1987. Frétta-, blaða- og dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, á blöðum og tímaritum 1987-1994. Kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi fyrir alþingiskosningar 1995. Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999, aðstoðarmaður utanríkisráðherra 1999-2001. Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins 2001-2003. Skipaður 23. maí 2003 félagsmálaráðherra, lausn 7. mars 2006.
Héraðsskólapróf Reykholti 1934. Búfræðipróf Hólum 1937. Próf við Statens småbrukslærerskule í Sem í Asker í Noregi 1940.
Starfsferill
Starfsmaður við Vollebekk-tilraunastöð búnaðarháskólans í Ási í Noregi og við Statens Centrala Frökontrollanstalt í grennd við Stokkhólm 1941—1942. Bóndi í Ásgarði 1943—1983.
Búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2002. B.Sc.-próf í almennum búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007.
Starfsferill
Starfaði við landbúnað í hlutastarfi til ársins 2009. Rak eigið innflutnings- og sölufyrirtæki með vörur fyrir landbúnað til 2011. Félags- og jafnréttismálaráðherra 30. nóvember 2017 til 31. desember 2018 , félags- og barnamálaráðherra 1. janúar 2019 til 27. nóvember 2021. Mennta- og barnamálaráðherra 28. nóvember 2021 til 21. desember 2024.
Stúdentspróf Lsk. 1901. Próf í forspjallsvísindum 1902.
Starfsferill
Íslenskukennari í barnaskóla Reykjavíkur 1901—1902. Við fiskkaup fyrir Edinborgarverslun á Austfjörðum sumarið 1902. Einn af stofnendum Landvarnarflokksins 1902 og blaðamaður við blöð flokksins, Landvörn og Ingólf, 1903. Póstmaður í Reykjavík 1903—1904. Ritstjóri í Reykjavík 1905—1911 og 1913—1915. Endurskoðandi Landsbankans 1912—1915. Aðstoðarbókavörður í Landsbókasafni 1915—1916. Gæslustjóri Landsbankans 1917, bankastjóri 1918—1921. Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1916—1917. Ráðinn 1922 útgáfustjóri að sögu Alþingis. Endurskoðandi Íslandsbanka 1923—1930. Bókavörður í Landsbókasafni 1931—1941, skjalavörður í Þjóðskjalasafni 1941—1948.
Fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík 1923—1927. Sýslumaður Barðastrandarsýslu 1927—1935, sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði 1935—1945. Skipaður sakadómari í Reykjavík 1945, vikið frá embætti um stundarsakir 15. október 1946, settur í embættið aftur 28. janúar 1947, lausn 9. apríl 1947. Rak lögfræðiskrifstofu í Hafnarfirði og Reykjavík frá 19. maí 1947 til æviloka.
Verslunarskólapróf VÍ 1910. Búfræðipróf Hvanneyri 1913. Framhaldsnám í Danmörku og Noregi.
Starfsferill
Bóndi í Knarrarnesi 1915—1921, á Reykjum í Mosfellssveit 1921—1951. Lét reisa fyrstu ylræktarhús á Íslandi 1923. Bankastjóri Búnaðarbankans 1929—1938. Skipaður landbúnaðarráðherra 4. febrúar 1947, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember. Settur búnaðarmálastjóri um skeið 1950. Sendiherra í Noregi 1951—1956.
Gagnfræðapróf Flensborg 1909. Kennarapróf KÍ 1912. Kennarapróf í íþróttum og sundi við Statens Gymnastikinstitut í Kaupmannahöfn 1914. Námsför til Stokkhólms 1929.
Starfsferill
Kennari við barnaskólann í Hafnarfirði 1912—1915, skólastjóri 1915—1929. Jafnframt leikfimikennari við Flensborgarskóla 1912—1927 og íþróttakennari í ýmsum íþróttafélögum í Hafnarfirði. Keypti Straum í Hafnarfirði og rak þar búskap 1918—1930. Skólastjóri Héraðsskólans á Laugarvatni 1929—1959. Jafnframt stundakennari við skóla Björns Jakobssonar, síðar Íþróttakennaraskóla Íslands 1932—1946 og Húsmæðraskóla Suðurlands 1942—1952. Ráðsmaður við skólabúið að Laugarvatni 1935—1953, sjálfur bóndi þar 1953—1962 og átti þar heima til 1967, er hann fluttist til Reykjavíkur.
Stúdentspróf ML 1981. Nám í sagnfræði og þjóðfræði við HÍ 1982-2007.
Starfsferill
Landbúnaðarverkamaður 1976-1979. Verkamaður á Höfn í Hornafirði 1980. Verkamaður í Ísrael og Palestínu 1982. Ritstjóri Stúdentablaðsins 1983. Blaðamaður á Tímanum og NT 1984-1985. Blaðamaður á Helgarpóstinum 1985-1986. Ritstjóri Bóndans 1986. Ritstjóri og aðaleigandi Bændablaðsins 1987-1994. Ritstjóri Þjóðólfs, málgagns framsóknarmanna á Suðurlandi, 1988–1991. Ritstjóri og eigandi Sunnlenska fréttablaðsins 1991-2006. Bóksali á Selfossi frá 2006. Stofnaði Sunnlensku bókaútgáfuna 2001.
Starfsmaður við Kaupfélag Árnesinga á Selfossi 1947—1952. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Austfjarða á Seyðisfirði 1952—1963. Hefur síðan starfað við útgerðarrekstur og fiskverkun sunnanlands. Stofnandi og framkvæmdastjóri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Glettings hf. 1957—1990 og útgerðarfyrirtækisins Húnarastar hf. í Þorlákshöfn frá 1973.
Vann ýmis lögfræðistörf um hríð, m. a. setudómarastörf. Aðstoðarmaður lögreglustjórans á Akranesi janúar—apríl 1935. Settur sýslumaður í Rangárvallasýslu að því er dómsmál snerti 22. ágúst til 8. september 1935. Settur sýslumaður í Árnessýslu 1. desember 1936 til 1. október 1937. Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1937—1977.
Bóndi á Víkingavatni 1908—1916. Kaupfélagsstjóri á Kópaskeri 1916—1946. Símstjóri á Kópaskeri 1922—1957, póstafgreiðslumaður þar 1922—1925. Fluttist til Reykjavíkur 1957.
Búfræðipróf Hólum 1923. Samvinnuskólapróf 1925. Ferðaðist um Noreg og Danmörku 1927—1928 og Nýja-Sjáland og Ástralíu 1928—1929 til þess að kynna sér meðferð á kjöti og markaði fyrir það.
Starfsferill
Bóndi á Ytri-Löngumýri í Svínavatnshreppi síðan 1930. Jafnframt kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1955—1960. Stofnaði útgerðarfélagið Húnvetning hf. 1957 og Húna hf. 1962 og rak útgerð í allmörg ár.
Au pair í Þýskalandi sumrin 1994 og 1995. Vann með skóla hjá Heilsugæslunni í Reykjavík 1996-1998 og Landsvirkjun 1998-2000. Framkvæmdastjóri stúdentaráðs HÍ 2001-2002. Starfaði á skrifstofu Framsóknarflokksins 2002-2003.
Skrifstofustjóri Sölunefndar varnarliðseigna 1947—1954, jafnframt starfsmaður fjárhagsráðs. Fulltrúi í fjármálaráðuneyti 1954—1957. Sparisjóðsstjóri Samvinnusparisjóðsins frá stofnun hans 1. mars 1957 til 1963 og jafnframt fulltrúi forstjóra Sambands íslenskra samvinnufélaga og forstöðumaður lífeyrissjóðs sambandsins til 1960. Bankastjóri Samvinnubankans 1963—1971. Skipaður 14. júlí 1971 utanríkisráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum áfram til 28. ágúst. Skipaður utanríkisráðherra á ný 28. ágúst 1974, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Sendiherra í Danmörku frá 1980 til æviloka og jafnframt sendiherra á Ítalíu, í Ísrael og Tyrklandi.
Vann í foreldrahúsum 1893—1900 og starfaði jafnframt við barnakennslu. Bóndi á Litla-Eyrarlandi frá 1901 til æviloka. Skipaður 7. mars 1929 fjármálaráðherra, lausn 20. apríl 1931.
Nam einn vetur í Gagnfræðaskólanum á Akureyri. Samvinnuskólapróf 1928.
Starfsferill
Starfsmaður Kaupfélags Langnesinga á Þórshöfn 1928—1931. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Grímsnesinga að Minni-Borg 1931—1932. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Dýrfirðinga á Þingeyri 1932—1960 og jafnframt framkvæmdastjóri útgerðarfélaga þar. Starfsmaður Sambands íslenskra samvinnufélaga 1960—1972.
Stúdentspróf FVA 1996. B.Ed.-grunnskólakennarapróf frá KHÍ 2005. MLM-próf í stjórnun og forystu frá Háskólanum á Bifröst 2019.
Starfsferill
Starfaði við fiskvinnslu hjá Skinney–Þinganesi á Höfn í Hornafirði á sumrin 1993–1997. Fulltrúi hjá Tryggingastofnun ríkisins 1998–1999. Ritari hjá Brekkubæjarskóla á Akranesi 1999–2001 og leiðbeinandi þar 2001–2003. Kennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit 2005-2006 og við Brekkubæjarskóla á Akranesi 2006–2013. Grunnskólakennari við Brekkubæjarskóla á Akranesi 2018–2019. Aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi 2019–.
Stúdentspróf FB 1992. Fil.kand.-próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla 2000. Framhaldsnám í viðskiptafræði við HÍ síðan 2007.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009. Skrifstofustjóri Hlíðardals ehf. 2003-2004. Viðskiptastjóri Tok hjá Ax hugbúnaðarhúsi hf. 2004-2006. Framkvæmdastjóri Nínukots ehf. 2006-2008. Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands 2008. Félags- og húsnæðismálaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Samstarfsráðherra Norðurlanda 16. ágúst 2013 til 11. janúar 2017.
stjórnendurtæknar og sérmenntað starfsfólkþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Samvinnuskólapróf 1927. Nám við Pitman College í Lundúnum sumarið 1929.
Starfsferill
Stundaði verslunarstörf á Djúpavogi og ýmsa aðra vinnu ásamt heimanámi 1921—1923. Sjómaður 1924—1925. Starfsmaður í Stjórnarráði Íslands 1927—1930 og jafnframt endurskoðandi fyrir Skattstofu Reykjavíkur. Stundakennari við Samvinnuskólann 1927—1930. Skattstjóri í Reykjavík og jafnframt formaður niðurjöfnunarnefndar 1930—1934. Skipaður 28. júlí 1934 fjármálaráðherra, lausn 17. apríl 1939. Skipaður sama dag viðskiptamálaráðherra, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður sama dag viðskiptamálaráðherra að nýju, lausn 16. maí 1942. Framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Eddu 1943—1947. Skipaður 4. febrúar 1947 menntamálaráðherra, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember Skipaður 14. mars 1950 fjármálaráðherra, lausn 11. september 1953. Skipaður sama dag fjármálaráðherra áfram, leystur frá störfum 14. apríl til 8. september 1954 vegna veikinda, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí 1956, skipaður sama dag fjármálaráðherra enn á ný, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember.
Stúdentspróf MS 1982. Cand.oecon-próf HÍ 1988. MBA-próf London Business School 1991.
Starfsferill
Sumarstörf við fiskvinnslu, rafeindavirkjun og forritun. Viðskiptafræðingur hjá VÍB 1988-1990. Ráðgjafi hjá Kaupþingi 1991-1992. Markaðsstjóri Tölvusamskipta 1992-1994. Fjármálastjóri Marels 1993-1996. Forstjóri Nýherja 1996-2001. Stjórnarformaður CCP 1999-2005. Ráðgjafastörf frá 2001. Stofnandi og framkvæmdastjóri Dohop 2005-2010, stjórnarformaður frá 2010. Meðstofnandi og stjórnarformaður Datamarket 2009-2013. Í stjórn Arctica Finance 2012-2013.
Stúdentspróf MR 1926. Stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 1926—1929. Námsferð um Þýskaland, Sviss og Ítalíu sumarið 1929.
Starfsferill
Hafði á höndum kennslu barna og unglinga á Langanesi öðru hverju 1921— 1925. Stundakennari við Samvinnuskólann 1928—1929 og 1930—1934, skólastjóri í forföllum 1930—1931. Innanþingsskrifari við Alþingi 1928—1929. Ritstjóri í Reykjavík 1929—1940. Stundaði síðan ýmis ritstörf.
Stúdentspróf MR 1987. Embættispróf í lögfræði HÍ 1992. Próf í rekstrar- og viðskiptafræðum EHÍ 1999. Hdl. júní 1997. Hrl. 2004. Próf í verðbréfaviðskiptum HR 2005. Við meistaranám í viðskiptarétti við Edinborgarháskóla frá 2005.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna 1992-1993. Lögfræðingur hjá embætti ríkissaksóknara 1993-1995. Aðstoðarmaður umhverfisráðherra 1995-1999. Hefur rekið eigin lögmannsstofu í samstarfi við aðra frá 1999.
Starfsmaður við Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík 1963-1967, við útibú Samvinnubanka Íslands á Húsavík 1967-1977 og útibússtjóri sama banka í Keflavík 1977-1980. Skipaður 8. júlí 1987 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 28. september 1988 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl 1991. Skipaður 23. apríl 1995 landbúnaðar- og umhverfisráðherra, lausn 11. maí 1999.
Stúdentspróf Lsk. 1904. Læknisfræðipróf Læknaskólanum 1909. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1909. Nám í augnlækningum í Prag og Vín 1923—1924. Viðurkenndur sérfræðingur í augnlækningum 1928.
Starfsferill
Gegndi Rangárhéraði 1909—1910, Öxarfjarðarhéraði 1910—1911, sat á Kópaskeri. Héraðslæknir í Rangárhéraði 1912—1925, sat að Stórólfshvoli. Augnlæknir í Reykjavík 1924—1933 og ferðaðist um landið með styrk úr ríkissjóði. Skipaður 1933 héraðslæknir í Fáskrúðsfjarðarhéraði, stundaði jafnframt augnlækningar og ferðaðist um Austfirðingafjórðung til augnlækninga með styrk úr ríkissjóði.
Stúdentspróf MR 1959. Fyrrihlutapróf í verkfræði HÍ 1963. Byggingaverkfræðipróf Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn 1966.
Starfsferill
Verkfræðingur við skipulagsdeild og síðar í gatnadeild hjá borgarverkfræðingi Reykjavíkur 1966—1970. Stofnaði eigin verkfræðistofu 1970 og rak hana til 1979, en breytti henni þá í fyrirtækið Fjölhönnun hf. í eigu starfsmanna. Verkfræðingur hjá Fjölhönnun 1984—1987. Stofnaði með öðrum Verkfræðistofu Suðurlands á Selfossi 1973. Sjálfstætt starfandi verkfræðingur síðan 1991.
Mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna 1976-1987. Skipaður 28. maí 1999 landbúnaðarráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 landbúnaðarráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf FNV á Sauðárkróki 1989. Nám í atvinnulífsfélagsfræði við HÍ.
Starfsferill
Verslunarstjóri Ábæjar 1989-1990 og 1991-1995. Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991. Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Einherja 1991-1992. Sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf. 1996-1997. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997-1999. Markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999. Starfaði á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002. Framkvæmdastjóri Ábæjar 2002-2003. Framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. 2004-2007. Utanríkisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. 1. varaformaður Miðflokksins síðan apríl 2018.
Bóndi á Hvilft síðan 1950. Kennari við Héraðsskólann á Núpi 1953—1954 og við barna- og unglingaskóla á Flateyri 1959—1974. Kaupfélagsstjóri á Flateyri 1980—1988.
Stúdentspróf Háskólinn á Bifröst 2013. BS-próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2015. ML-próf í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2017. Námskeið í ferla- og gæðastjórnun við Opna háskólann í HR 2020.
Starfsferill
Lögfræðingur hjá nefnd um eftirlit með lögreglu 2018–2019. Nefndarritari á nefndasviði Alþingis 2019–2020. Lögfræðingur hjá nefnd um eftirlit með lögreglu 2020–2021.
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 2001. BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 2005. Meistaragráða í alþjóðasamvinnu (MALD) með áherslu á hagfræði og orkumál frá The Fletcher School við Tufts háskóla í Bandaríkjunum 2011. Meistaragráða í opinberri stjórnsýslu með áherslu á umhverfis- og orkumál frá Harvard Kennedy School of Government 2017.
Starfsferill
Starfaði við sendiráð Íslands í Brussel í Evrópu-, menningar- og markaðsmálum 2005-2009. Störf á sviði milliríkjaviðskipta, þróunarsamvinnu og kennslu í Lomé í Tógó í Vestur-Afríku og við Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) um nokkurra mánaða skeið á árunum 2009-2010. Forstöðumaður alþjóðaþróunar HR 2011-2013. Framkvæmdastjóri Iceland School of Energy við HR 2013-2016 og stundakennari við sama skóla til ársins 2020. Aðjúnkt við Harvard Kennedy School og kennsla á meistarastigi á sviði Norðurslóða, orku- og loftslagsmála 2019 til dagsins í dag. Meðstofnandi og stjórnandi við miðstöð Norðurslóða; Arctic Initiative, við Harvard Kennedy School of Government 2017-2021. Stofnandi Arctic Innovation Lab í samvinnu við fjölda háskóla. Leiðbeinandi í orkutengdum nýsköpunarhröðlum 2015-2021. Orkumálastjóri 2021-2024.
Stundaði nám við MÍ 1998-2001. Stundaði nám við frumgreinadeild Háskólans á Bifröst 2001-2002. BS-próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst 2005. Diplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2011. Stundar framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Starfsferill
Starfsmaður Sparisjóðs Bolungarvíkur 1980-1984. Leiðbeinandi við Grunnskóla Önundarfjarðar veturinn 1999-2000. Sumarstörf hjá Sparisjóði Mýrasýslu 2003 og 2004. Bóndi á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði í tíu ár. Fjármálastjóri Bolungarvíkurkaupstaðar 2005-2018.
Samvinnuskólapróf 1965. Löggiltur endurskoðandi 1970. Framhaldsnám við verslunarháskólana í Björgvin og Kaupmannahöfn 1971-1973.
Starfsferill
Lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands 1973-1975. Skipaður 26. maí 1983 sjávarútvegsráðherra, skipaður jafnframt 16. október 1985 samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 sjávarútvegsráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 28. september 1988 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 10. september 1989. Skipaður á ný sama dag sjávarútvegsráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skipaður 23. apríl 1995 utanríkisráðherra og jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 28. maí 1999. Fór jafnframt með landbúnaðarráðuneytið og umhverfisráðuneytið 11.-28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 utanríkisráðherra, lausn 23. maí 2003. Fór jafnframt með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið frá 23. janúar til 6. febrúar og 9.-26. febrúar 2001 í forföllum Ingibjargar Pálmadóttur. Skipaður 23. maí 2003 utanríkisráðherra, lausn 15. september 2004. Skipaður á ný sama dag forsætisráðherra; jafnframt ráðherra Hagstofu Íslands síðan 27. september 2005, lausn 15. júní 2006.
Kennari við barna- og unglingaskólann í Borgarfirði eystra 1916—1919. Veitti forstöðu unglingaskólanum þar 1919—1920. Starfsmaður Kaupfélags Borgarfjarðar 1920—1922. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgarfjarðar 1922—1940. Rak jafnframt bóksölu á Bakkagerði 1922—1940 og búskap á föðurleifð sinni, Grund, 1923—1932. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Vopnfirðinga 1940—1959, veitti jafnframt áfram forstöðu Kaupfélagi Borgarfjarðar 1940—1942. Útibússtjóri Búnaðarbankans á Egilsstöðum 1960—1966. Átti síðan heima í Reykjavík.
Héraðsskólapróf Reykholti 1937. Búfræðipróf Hvanneyri 1938. Óreglulegur nemandi í Samvinnuskólanum hluta úr vetri.
Starfsferill
Bóndi að Staðarfelli í Dalasýslu 1937—1955. Sveitarstjóri í Borgarnesi 1955—1969. Skipaður 14. júlí 1971 fjármála- og landbúnaðarráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst. Skipaður 28. ágúst 1974 landbúnaðar- og samgönguráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Starfsmaður í Búnaðarbanka Íslands 1980—1984.
Verkstjóri og heimiliskennari á Egilsstöðum á Völlum og Skriðuklaustri í Fljótsdal næstu árin. Forstöðumaður söludeildar Pöntunarfélags Fljótsdalshéraðs á Seyðisfirði 1903—1909. Bóndi í Hamborg í Fljótsdal 1909—1921 og á Torfastöðum í Vopnafirði 1921—1928. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins (Brunabótafélags Íslands og Slysatryggingar ríkisins) 1928—1936 og Brunabótafélags Íslands 1936—1945.
Starfsmaður Sláturfélags Austur-Húnvetninga 1915—1917, endurskoðandi þess 1918 og forstjóri 1919—1922. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Vestur-Húnvetninga 1923—1933. Bóndi í Kirkjuhvammi á Vatnsnesi 1929—1948 og í Þórormstungu 1943. Forstjóri síldarverksmiðjunnar í Nesi í Norðfirði 1938—1941, starfaði jafnframt við endurskoðun í Landsbankanum. Rak samtímis síldarútgerð frá Norðfirði með leiguskipum frá Færeyjum. Fulltrúi í endurskoðunardeild fjármálaráðuneytisins 1943—1963. Fékk leyfi frá starfi 1. nóvember 1960 til 1. júní 1962 og var þann tíma sveitarstjóri í Ólafsvík.
Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1989. B.Ed.-próf KHÍ 1993. Diplóma í náms- og starfsráðgjöf HÍ 1994. Meistaragráða í mannauðs- og samskiptastjórnun frá Oklahoma University 2002. Laganám HR síðan 2008.
Starfsferill
Námsráðgjafi við Árbæjarskóla 1994-1997. Dagskrárgerð hjá Fínum miðli 1997-1999. Atvinnuráðgjafi á markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar 2000-2002. Verkefnastjóri hjá Iðntæknistofnun 2002-2005. Skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna 2005-2008.
Stúdentspróf MR 1920. Lögfræðipróf HÍ 1924. Hrl. 1945. Kynnti sér lögreglumál á Norðurlöndum og í Þýskalandi vorið 1928.
Starfsferill
Fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Reykjavík 1924—1928. Lögreglustjóri í Reykjavík 1929—1934. Skipaður 28. júlí 1934 forsætisráðherra og jafnframt dóms- og kirkjumálaráðherra og landbúnaðarráðherra, einnig atvinnu- og samgöngumálaráðherra frá 20. mars til 2. apríl 1938 og fór með kennslumál og utanríkismál frá 20. mars 1938 til 17. apríl 1939, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður 18. nóvember 1941 forsætisráðherra að nýju og jafnframt dómsmála- og landbúnaðarráðherra, lausn 16. maí 1942. Varð þá lögfræðilegur ráðunautur Búnaðarbankans. Skipaður 14. mars 1950 landbúnaðarráðherra, lausn 11. september 1953. Skipaður 24. júlí 1956 forsætisráðherra og jafnframt landbúnaðar- og dómsmálaráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember 1958.
Stúdentspróf MH 1970. Kennarapróf KHÍ 1979. BA-próf í íslensku HÍ 1982. M.Ed.-próf í skólastjórnun frá Bresku Kólumbíu-háskólanum í Kanada 1990.
Starfsferill
Kennari við Grunnskóla Sandgerðis 1970-1972 og 1977-1978, Fróðskaparsetur Föroya 1972-1973, Flensborgarskóla 1973-1977, Holtaskóla í Keflavík 1978-1980, Víðistaðaskóla og starfaði í Fræðsluskrifstofu Reykjaness 1980-1981 og Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðan 1981, skólameistari þar síðan 1985. Ýmis önnur störf, t.d. þáttagerð í útvarpi, löggæslustörf, blaðamennska og sjómennska.
Stúdentspróf VMA 1995. Nám í viðskipta- og stjórnmálafræði við HÍ jafnhliða námi í lögfræði. Nám í Evrópurétti og alþjóðlegum einkamálarétti við Lundarháskóla í Svíþjóð 2001. Lögfræðipróf HÍ 2003. Hdl. 2005.
Starfsferill
Aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur 2003-2005. Lögmaður á Mörkinni lögmannsstofu hf. 2005-2007. Stundakennari í viðskiptarétti við Háskólann í Reykjavík 2005-2007.
Hjúkrunarfræðipróf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1970.
Starfsferill
Hjúkrunarfræðingur við Sjúkrahús Akraness 1970-1988. Skipuð 23. apríl 1995 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipuð á ný sama dag heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Leyst frá ráðherrastörfum um stundarsakir vegna veikinda frá 23. janúar til 6. febrúar og 9.-26. febrúar 2001. Leyst frá ráðherrastörfum 14. apríl 2001, afsalaði sér þingmennsku sama dag.
Kennarapróf KÍ 1942. Kennaranámskeið í Askov á Jótlandi 1946. Nám í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1946—1947 og í The Polytechnic School of Modern Languages í Lundúnum 1947—1948.
Starfsferill
Kennari í Lundarreykjadal 1942—1943, við barnaskólann á Eskifirði 1943—1944, skólastjóri barnaskólans í Grenivík 1944—1945, kennari við Héraðsskólann á Laugum 1945—1946 og 1949—1970 og við Gagnfræðaskólann á Siglufirði 1948—1949. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykdæla 1952—1974. Bóndi á Kárhóli í Reykjadal 1955—1986. Ferðaþjónustubóndi á Narfastöðum í Reykjadal frá 1988. Forstöðumaður Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins í Reykjavík 1970—1974.
búskapursveitarstjórnþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Gagnfræðapróf Möðruvöllum 1892.
Starfsferill
Stundaði kennslu í Fnjóskadal, verslunarstörf og ýmsa vinnu 1892—1901. Bæjarfógetaskrifari á Akureyri 1901—1906, oft settur sýslumaður og bæjarfógeti. Bóndi í Fjósatungu frá 1905 til æviloka.
Héraðsskólapróf Reykjum í Hrútafirði 1945. Samvinnuskólapróf 1947. Sótti þriggja mánaða námskeið í meðferð og viðhaldi landbúnaðarvéla í Bandaríkjunum 1956.
Starfsferill
Starfsmaður Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga 1947—1949. Vann við og rak lengst af bifreiðaverkstæði á Laugarbakka í Miðfirði 1950—1959. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga 1959—1995.
Stúdentspróf MA 1947. Stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 1947—1948 og í sagnfræði við háskólann í Leeds í Englandi 1948—1949. Lögfræðipróf HÍ 1956. Hdl. 1962.
Starfsferill
Blaðamennska og ýmis störf í Reykjavík lengst af með námi 1949—1956. Fulltrúi í fjármálaráðuneyti 1956—1957. Skrifstofustjóri Framsóknarflokksins á Akureyri 1957—1963, en stundaði jafnframt ýmis lögfræðistörf. Stundakennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri 1958—1959. Dómarafulltrúi á Akureyri flest sumur 1963—1969. Skipaður 8. febrúar 1980 menntamálaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Ritstjóri Tímans 1987—1991.
Vinnumaður 1887—1896. Fluttist austur í Nes í Norðfirði 1891. Útgerðarmaður þar 1896—1928, formaður á fiskibátum fyrr á árum. Bóndi á Ekru (Nes-Ekru) frá 1896 til æviloka.
Nám við Kennaraskóla Íslands 1971-1973. Kennarapróf frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1976. Nám við íþróttaháskólann í Sønderborg, Danmörku, 1973-1974 og 1978.
Starfsferill
Kennari við Grunnskóla Ólafsvíkur 1976-1978. Kennari við Gagnfræðaskólann í Mosfellssveit 1979-1981. Kennari við Samvinnuskólann á Bifröst 1981-1987. Kennari á námskeiðum hjá starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar og á námskeiðum í félagsmálum á vegum menntamálaráðuneytis og UMFÍ. Starfsmannastjóri KRON og Miklagarðs 1987-1990. Sveitarstjóri á Hvolsvelli 1990-1995. Sveitarstjóri í Hrunamannahreppi síðan 2003.
Nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1995–1998. Undirbúningsnám við Midlands Technical College í Columbia í Suður-Karólínu 2009. BA-próf í heilbrigðisvísindum frá Arnold School of Public Health við Suður-Karólínuháskóla 2011. Meistarapróf í lýðheilsuvísindum frá sama skóla 2013.
Starfsferill
Rannsóknastörf við taugalækningadeild Prisma Health Richland-sjúkrahússins í Columbia í Suður-Karólínu 2014–2015. Fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu 2016–2019. Framkvæmdastjóri Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs 2019–2021.
Gagnfræðapróf Akureyri 1905. Nám í lýðháskólanum í Askov á Jótlandi 1906—1907, í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1907—1908. Kynnti sér skólamál í Þýskalandi, Frakklandi og Englandi 1908—1909 með styrk úr landssjóði, dvaldist þá m. a. eitt missiri á Ruskin College í Oxford.
Starfsferill
Kennari við unglingaskólann á Ljósavatni 1905—1906. Kennari við Kennaraskólann í Reykjavík 1909—1918. Skólastjóri Samvinnuskólans frá stofnun hans haustið 1919—1927 og 1932—1955. Skipaður 28. ágúst 1927 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 20. apríl 1931, skipaður 20. ágúst 1931 dóms- og kirkjumálaráðherra að nýju, lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní.
Barnakennari í Reykjadal 1909—1910. Við ýmis störf í Kanada í sex ár. Ritstjóri Dags á Akureyri 1920—1927 og ritstjóri Tímans í Reykjavík 1927—1929. Fyrsti útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1930—1953.
Skrifstofustjóri Lögmannafélags Íslands 1978-1981. Fulltrúi hjá bæjarfógeta Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Seltjarnarness og sýslumannsins í Kjósarsýslu 1981. Fulltrúi hjá yfirborgarfógeta Reykjavíkur 1982 og hjá bæjarfógeta Ísafjarðar og sýslumanni Ísafjarðarsýslu 1982-1984. Fulltrúi á Lögfræðiskrifstofu Páls Arnórs Pálssonar hrl. og Stefáns Pálssonar hrl. 1984-1985. Hefur rekið Lögfræðistofuna sf. síðan 1985 ásamt eiginmanni sínum Pétri Þór Sigurðssyni. Skipuð 15. júní 2006 umhverfisráðherra og jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
Kennari við Flensborgarskóla í Hafnarfirði febrúar—apríl 1916. Prestur í Staðarhólsprestakalli í Dalasýslu 1916—1918, á Kvennabrekku í Miðdölum 1918—1928, á Prestsbakka í Hrútafirði 1928—1948. Skólastjóri Héraðsskólans á Reykjum í Hrútafirði 1930—1932, kennari við hann 1934—1940 og 1944—1948 (skólinn var hernuminn 1940—1943). Skjalavörður í Þjóðskjalasafni 1948—1959.
Stóð fyrir búi móður sinnar í Seglbúðum nokkur ár að námi loknu. Bóndi þar síðan 1959. Sá um sauðfjárræktarbú í Seglbúðum 1950—1980. Stundakennari við unglingaskólann á Kirkjubæjarklaustri 1966—1970. Skipaður 26. maí 1983 landbúnaðar- og dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 landbúnaðarráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september.
Stúdentspróf MA 1947. Lögfræðipróf HÍ 1951. Hdl. 1955. Hrl. 1961.
Starfsferill
Við ýmis störf á Siglufirði 1951—1952. Fulltrúi hjá ríkisskattanefnd 1952—1954. Fulltrúi í fjármálaráðuneyti 1955—1961. Rak lögfræðiskrifstofu í Reykjavík, Kópavogi og Keflavík 1955—1960. Deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu 1978— 1979. Yfirborgarfógeti í Reykjavík 1979—1992, sýslumaður í Reykjavík 1992— 1994.
Búfræðipróf Hvanneyri 1906. Kennarapróf KÍ 1909. Nám í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1911—1912.
Starfsferill
Kennari í Nesjahreppi 1907—1908, við barnaskólann í Reykjavík 1909—1919. Bóndi í Múla í Biskupstungum 1919—1922, í Skálholti 1922—1948 og í Kaldaðarnesi í Flóa 1948—1963.
Stúdentspróf MK 1980. BA-próf í almennri bókmenntafræði og ensku HÍ 1984. MA-próf í fjölmiðlafræði University of Minnesota 1986. Stundaði nám í rekstrar- og viðskiptafræði EHÍ 1999. BA-gráða í lögfræði HR 2013.
Farkennari í Tjörneshreppi 1916—1920. Bóndi í Eyvík á Tjörnesi 1920—1932. Framkvæmdastjóri Kaupfélags Þingeyinga 1935—1937. Bæjarstjóri á Húsavík janúar—október 1950. Forstjóri Sparisjóðs Kaupfélags Þingeyinga 1932—1965, er sparisjóðurinn var sameinaður Samvinnubankanum.
Stúdentspróf MR 1972. BS-próf í stærðfræði HÍ 1979.
Starfsferill
Kennari við Grunnskóla Tálknafjarðar 1973, Grunnskóla Bolungarvíkur 1974-1975 og 1979-1981, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks 1975-1976, við Fjölbrautaskólann við Ármúla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1977-1979. Skrifstofustjóri hjá Jóni Fr. Einarssyni, byggingarþjónustu, í Bolungarvík 1981-1986, starfsmaður Bókhaldsþjónustunnar þar 1986-1991.
Kennari á Síðu 1891—1898. Bóndi í Múlakoti á Síðu 1900—1906 og á Kirkjubæjarklaustri frá 1906 til æviloka. Símstöðvarstjóri og póstafgreiðslumaður frá 1929.
Stúdentspróf MR 1993. Skiptinám í stjórnmálasögu Austur-Asíu við Ewha University, Seúl, 1993-1994. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1998. Skiptinám í þjóðhagfræði og heimspeki við Minnesota University 1998. Meistaragráða í alþjóðahagfræði frá Columbia University, New York, 2001.
Starfsferill
Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta og markaðsmála í Seðlabanka Íslands 2001-2010. Varaformaður menntaráðs Reykjavíkurborgar 2006-2010. Ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington 2010-2013. Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands 2013-2014. Verkefnastjóri í forsætisráðuneytinu 2014-2015. Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands 2016. Utanríkisráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Menningar- og viðskiptaráðherra 1. febrúar 2022 til 21. desember 2024.
Stúdentspróf VÍ 2016. Nám í faggreinakennslu HÍ 2018–2020.
Starfsferill
Leiðsögumaður á Eiríksstöðum í Haukadal 2016–2018. Leikskólaleiðbeinandi í Auðarskóla 2016–2017. Skólaliði og stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Borgarfjarðar 2018–2019. Starfsmaður á Hótel Varmalandi 2019–2020. Deildarstjóri á Hjallastefnuleikskólanum Hraunborg á Bifröst 2021.
Stúdentspróf ME 1985. BS-próf í líffræði HÍ 1989. Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ 1991. Nám í svæðisleiðsögn 2006. Viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2018.
Starfsferill
Ýmis tímabundin störf við kennslu og rannsóknir 1989-1993. Endurmenntunarstjóri við Bændaskólann á Hvanneyri 1993-1996. Verkefnisstjóri samstarfsnefndar framhaldsskóla á Austurlandi 1998-2000. Starfaði við endurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri 1998-2002. Framkvæmdastjóri Fræðslunets Austurlands 2002-2004. Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 2004-2006. Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 2006-2013. Verkefnisstjóri hjá Austurbrú 2017.
Nam beykisiðn á Akureyri og í Kaupmannahöfn 1878—1882, lauk prófi í Kaupmannahöfn.
Starfsferill
Vann að verslunarstörfum á Akureyri 1882—1893, setti þá sjálfur á fót verslun og sjávarútgerð þar og rak til 1917, jafnframt afgreiðslumaður Eimskipafélagsins 1914—1920. Skipaður 1913 yfirfiskmatsmaður á Akureyri. Forstjóri Landsverslunarinnar 1918—1927. Rak jafnframt útgerð í Reykjavík frá 1924. Skipaður 28. ágúst 1927 fjármálaráðherra og gegndi því starfi til æviloka, 8. desember 1928.
Starfsmaður búvörudeildar SÍS 1980-1981. Kennari við Grunnskóla Ólafsvíkur 1981-1982. Bæjarritari í Ólafsvík 1982-1985. Sjómennska 1987-1988. Sveitarstjóri í Grundarfirði 1990-1995. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi 1999-2001. Skipaður 15. júní 2006 félagsmálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1894—1904, sat í Árbæ í Holtum. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1904—1921. Sýslumaður í Árnessýslu 1921—1936, sat fyrst á Selfossi, en síðan á Eyrarbakka. Fluttist síðan til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka.
Stúdentspróf MA 1935. Lögfræðipróf HÍ 1939. Hdl. 1942. Framhaldsnám í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn 1945—1946.
Starfsferill
Lögfræðingur og endurskoðandi hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1939—1943, rak jafnframt málaflutningsskrifstofu í Reykjavík með Ragnari Ólafssyni hæstaréttarlögmanni frá 1940 til ársloka 1943. Yfirmaður endurskoðunardeildar Sambandsins 1942—1943. Í viðskiptaráði 1943—1944. Varð haustið 1944 framkvæmdastjóri félagsmáladeildar Sambandsins og lögfræðilegur ráðunautur þess og kaupfélaganna. Stundakennari við Samvinnuskólann 1937—1943 og við Kvennaskólann 1942—1944. Prófessor við laga- og viðskiptadeild, síðar lagadeild Háskóla Íslands 1947—1978, kenndi ekki frá 1971. Gegndi oft varadómarastarfi í Hæstarétti 1949—1971. Skipaður forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra 14. júlí 1971, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst. Skipaður 28. ágúst 1974 dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Skipaður 1. september 1978 forsætisráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 utanríkisráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
Stúdentspróf ML 1968. B.Sc.-próf í landafræði (sagnfræði og jarðfræði) HÍ 1972. MA-próf í landafræði (skipulag byggða og bæja) í Sussex-háskóla, Englandi, 1973.
Starfsferill
Ráðgjafi hjá Hagvangi hf. 1973-1979, framkvæmdastjóri 1980-1985. Framkvæmdastjóri innanlandsdeildar Ferðaskrifstofunnar Útsýnar 1986-1987. Framkvæmdastjóri Gallups á Íslandi 1988-1992. Sjálfstætt starfandi ráðgjafi 1993-1994. Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum 2010-2017.
Lögfræðistörf og endurskoðun hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1936—1937. Sýslumaður í Árnessýslu 1937—1982, jafnframt bæjarfógeti á Selfossi 1978—1982.
Störf við landbúnað, vega- og brúargerð 1903—1908. Bóndi á Vífilsstöðum í Hróarstungu 1909—1923. Bústjóri á Eiðum 1923—1928, bóndi þar 1928—1944. Kennari við Alþýðuskólann á Eiðum 1938—1941. Ýmis félagsmála- og ritstörf á Reyðarfirði 1945—1957.
Vélfræðingur frá Vélskóla Íslands 1978. Skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskóla Íslands 1983.
Starfsferill
Vann við almenna fiskvinnslu með skóla auk sjómennsku á vertíðarbátum milli skólaára 1973-1978. Vélstjóri 1978-1981 og 2000-2002. Starfsmaður Vélsmiðju Jóns og Kristins í Grindavík 1982-1983. Vélstjóri, skipstjóri og bátsmaður 1983-1994. Útgerðarstjóri hjá Vísi hf. 1994-2000. Skipstjóri og útgerðarmaður síðan 2003.
Bóndi á Höllustöðum síðan 1957. Skipaður 23. apríl 1995 félagsmálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 félagsmálaráðherra, lausn 23. maí 2003.
Búfræðipróf Hólum 1905. Framhaldsnám 1905—1909 hjá Ræktunarfélagi Norðurlands, Stövring-lýðskóla og Askov-lýðháskóla, Ladelund-búnaðarskóla og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Próf þaðan 1909. Ferð um Noreg og Svíþjóð sumarið 1909. Námsdvöl í Noregi og Danmörku 1925—1926.
Starfsferill
Kennari á Hvanneyri 1909—1920. Vann hjá Ræktunarfélagi Norðurlands sumarið 1910, mældi jarðabætur í ýmsum sýslum sumurin 1911—1913. Bóndi á Kletti í Reykholtsdal 1914—1920. Skólastjóri á Hólum 1920—1928. Ráðunautur Búnaðarfélags Íslands í nautgriparækt 1928—1951, í sauðfjárrækt 1928—1936. Búnaðarmálastjóri 1950—1956. Hafði eftirlit með forðagæslustarfi 1956—1962.
Gagnfræðapróf Akureyri 1915. Stúdentspróf MR 1918. M.Sc.-próf í dýrafræði Hafnarháskóla 1926, en las auk þess grasafræði, jarðfræði, eðlisfræði og efnafræði.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri 1926—1929. Rektor Menntaskólans í Reykjavík frá 1929 til æviloka.
Vinnumaður og lausamaður 1879—1890. Bóndi í Leirulækjarseli á Mýrum 1890—1892, ráðsmaður á Ánabrekku 1892—1893, húsmaður í Hjörsey 1893—1894, bóndi þar 1894—1942. Fluttist til Borgarness 1944.
Afgreiðslumaður Tímans 1925—1936. Stundakennari við Samvinnuskólann 1926—1933. Bréfritari við Tóbakseinkasöluna 1934—1946. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík 1949—1974. Dómari í verðlagsdómi Reykjavíkur 1950—1974.
Stúdentspróf Lsk. 1886. Guðfræðipróf frá Prestaskólanum 1888.
Starfsferill
Barnakennari á Sauðárkróki veturinn 1888—1889. Prestur í Hvammi í Laxárdal 1889—1900, Mælifelli 1900—1919. Varð 1919 kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og fluttist þá til Sauðárkróks, gegndi því starfi til æviloka.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Kvennaskólapróf og landspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1961. Próf frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1962. Stundaði nám við öldungadeild MH 1974-1976. BA-próf í þjóðfræði og borgarfræðum frá HÍ 2006.
Starfsferill
Banka- og skrifstofustörf í Þýskalandi 1962-1967. Bankastörf á Íslandi 1967-1969. Kennari á Bíldudal 1969-1971. Kaupmaður í Reykjavík 1971-1994. Forstöðumaður og kynningastjóri Víkurinnar, Sjóminjasafnsins í Reykjavík, 2005-2011. Umhverfis- og auðlindaráðherra 31. desember 2014 til 11. janúar 2017.
Stúdentspróf ML 1982. Embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn (KVL). Almennt dýralæknaleyfi í Danmörku 1989 og á Íslandi 1990.
Starfsferill
Landbúnaðarstörf samhliða námi 1970-1984. Afgreiðslu- og verkamannastörf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík 1982-1983. Bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi 1987-1994. Sjálfstætt starfandi dýralæknir í uppsveitum Árnessýslu 1990-1995. Settur héraðsdýralæknir í Hreppa- og Laugarásumdæmi 1992-1994 og um skeið í Vestur-Barðastrandarumdæmi. Dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1996-2009. Oddviti Hrunamannahrepps 2002-2009. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Umhverfis- og auðlindaráðherra 23. maí 2013 til 31. desember 2014. Forsætisráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021, innviðaráðherra 28. nóvember 2021 til 9. apríl 2024. Fjármála- og efnahagsráðherra 9. apríl 2024 til 21. desember 2024.
Ólst upp í Ystafelli hjá Guðbjörgu Aradóttur, ekkju séra Þorsteins Jónssonar frá Reykjahlíð og var síðan forráðamaður fyrir búi hennar til 1889. Bóndi í Ystafelli 1889—1917. Stundaði jafnframt kennslu á ýmsum stöðum í Suður-Þingeyjarsýslu á yngri árum og hélt unglingaskóla heima hjá sér öðru hverju 1875—1897. Ferðaðist um og flutti erindi um samvinnumál 1911—1915. Skipaður 4. janúar 1917 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, lausn 12. ágúst 1919, en gegndi störfum áfram til 25. febrúar 1920. Fluttist þá aftur að Ystafelli og átti þar heima til æviloka.
Stundaði næstu ár söðlasmíði ásamt almennum sveitastörfum. Bóndi á Nautabúi í Skagafirði 1912—1938. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga 1937—1946, fluttist til Sauðárkróks 1938 og átti þar heima til 1946, fluttist þá til Reykjavíkur. Starfsmaður í fjárhagsráði 1947—1953 og Innflutningsskrifstofunni 1953—1960, er hún var lögð niður.
Samvinnuskólapróf 1919. Kennarapróf KÍ 1923. Framhaldsnám í Danmörku (Askov), Svíþjóð og Finnlandi 1936.
Starfsferill
Skólastjóri barnaskólans í Ólafsvík 1923—1932. Kennari við Miðbæjarbarnaskólann í Reykjavík 1932—1943. Bókari og gjaldkeri Dósaverksmiðjunnar hf. í Reykjavík 1937—1946, framkvæmdastjóri hennar 1946—1963. Bóndi í Saurbæ á Rauðasandi 1947—1952.
Stúdentspróf MA 1993. BA-próf í sagnfræði HÍ 2001. Skiptinám við Karl-Franzens-Universität í Graz, Austurríki, í sagnfræði og þýskum bókmenntum. Meistarapróf í alþjóðaviðskiptum (MIB) frá Háskólanum á Bifröst 2017.
Starfsferill
Lögreglumaður í Keflavík sumrin 1995, 1996 og 1998. Skrifta á fréttastofu RÚV 1997-1998. Leiðbeinandi við Njarðvíkurskóla 1998-1999. Blaðamaður og fréttastjóri Víkurfrétta 1999-2001. Blaðamaður hjá Fróða (Vikan og Hús og híbýli) 2001-2003. Ritstjóri Suðurfrétta 2003. Framkvæmdastjóri Hraunlistar 2003-2005. Starfaði í móttöku Flughótels 2004-2005. Skjalastjóri og aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar HS Orku 2008-2013.
Stúdentspróf MR 1982. BS-próf í sjúkraþjálfun HÍ 1986.
Starfsferill
Sjúkraþjálfari hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra 1986-1988. Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur 1988-1995. Samstarfsráðherra Norðurlanda 28. maí 1999 til 24. september 2004. Umhverfisráðherra 28. maí 1999 til 15. september 2004. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 7. mars 2006 til 24. maí 2007.
Vann hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga 1915—1922. Kaupmaður á Hvammstanga 1924—1927 og rak jafnframt landbúnað. Starfsmaður hjá Akurgerði sf. í Hafnarfirði 1927—1930, hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga í Reykjavík 1930—1933. Kaupfélagsstjóri á Hvammstanga 1934—1947. Skipaður 2. apríl 1938 atvinnumálaráðherra, fór einnig með heilbrigðismál, lausn 17. apríl 1939. Gegndi störfum fjármálaráðherra vegna veikindaforfalla 14. apríl til 8. september 1954.
Gagnfræðapróf á Sauðárkróki 1949 og Iðnskólapróf þar 1951. Sveinsbréf í húsasmíði 1956 og meistarapróf 1959.
Starfsferill
Stofnaði ásamt fleirum trésmiðjuna Borg hf. á Sauðárkróki 1963, framkvæmdastjóri hennar 1963-1971. Framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Skagfirðinga 1971-1981.
Stúdentspróf FNV 1995. Próf frá Lögregluskóla ríkisins 2000.
Starfsferill
Almennur lögreglumaður í lögreglunni í Reykjavík 1997–2000. Í sérsveit ríkislögreglustjóra 2000–2007. Í friðargæslu NATO í Afganistan 2006–2007. Í greiningardeild ríkislögreglustjóra 2007–2008. Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Sauðárkróki 2008–2015. Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra 2015–2021.
Stundaði ýmis störf í Reykjavík 1942—1948, var m. a. verkstjóri hjá Reykjavíkurborg um skeið. Bóndi í Auðbrekku frá 1948 í félagsbúi með ættingjum. Vann á vetrum flest árin 1953—1962 við ýmis störf á Suðurnesjum.
Stúdentspróf MR 1948. B.Sc.-próf í rafmagnsverkfræði frá Illinois Institute of Technology í Chicago 1951. M.Sc.-próf frá California Institute of Technology í Pasadena 1952.
Starfsferill
Verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1952—1953 og hjá Áburðarverksmiðjunni hf. 1953—1954. Í varnarmálanefnd og verkfræðilegur ráðunautur utanríkisráðherra varðandi Keflavíkurflugvöll 1954. Verkfræðingur við Southern California Edison Company í Los Angeles 1955—1956. Verkfræðingur við Verklegar framkvæmdir hf. 1957. Framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins 1957—1978. Framkvæmdastjóri atvinnumálanefndar ríkisins 1957—1961. Skipaður 1. september 1978 dóms- og kirkjumála- og landbúnaðarráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 sjávarútvegs- og samgönguráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Skipaður 26. maí 1983 forsætisráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 utanríkisráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 28. september 1988 forsætisráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Bankastjóri við Seðlabanka Íslands 1994—1998.
Búfræðipróf Hvanneyri 1915. Próf frá búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1924.
Starfsferill
Vann á búi foreldra sinna á Litluströnd við Mývatn 1915—1917. Fjármaður á Hvanneyri 1917—1920. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1924—1928. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum 1928—1935. Búnaðarmálastjóri 1935—1962 nema þann tíma er hann var ráðherra. Nýbýlastjóri 1936—1941. Skipaður 14. mars 1950 forsætis- og félagsmálaráðherra, lausn 11. september 1953. Skipaður 11. september 1953 landbúnaðar- og félagsmálaráðherra, fór einnig með kirkju- og orkumál, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí.
Nám í unglingaskóla í Vík 1912—1913. Gagnfræðapróf í Flensborg 1916. Stúdentspróf MR 1918. Próf í Hafnarháskóla í hebresku 1919, grísku 1920, guðfræðipróf 1925. Framhaldsnám í Leipzig (semísk mál) 1925—1926.
Starfsferill
Prestur í Laufási 1926—1927. Kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1926—1927. Skólastjóri Flensborgarskólans 1930—1931. Prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð 1927—1963, prófastur 1941—1963. Reisti nýbýlið Staðarbakka og bjó þar til æviloka.
búskapursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Nám í lýðháskólunum í Vanheim og Aulestad í Noregi 1881—1882. Gagnfræðapróf Möðruvöllum 1884. Framhaldsnám í Københavns Seminarium 1885—1886.
Starfsferill
Kennari í Mjóafirði 1884—1885, 1886—1887 og 1911—1913. Bóndi á Asknesi í Mjóafirði 1887—1899. Verslunarstjóri í Borgarfirði eystra 1899—1901. Bóndi í Firði frá 1901 til æviloka. Umboðsmaður Múlasýslujarða frá 1909.
Biskupsritari og barnakennari í Reykjavík 1912—1913. Prestur á Hesti í Borgarfirði 1913—1917. Settur dósent í guðfræði við Háskóla Íslands 1916—1917. Ritstjóri Tímans 1917—1927. Skipaður 28. ágúst 1927 forsætisráðherra og atvinnumálaráðherra, var jafnframt fjármálaráðherra frá 12. desember 1928 til 7. mars 1929, var síðan forsætis-, dóms-, kirkju- og kennslumálaráðherra frá 20. apríl til 20. ágúst 1931, varð þá aftur forsætisráðherra og atvinnumálaráðherra. Lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní. Bankastjóri Búnaðarbankans frá 1932 til æviloka.
Próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1967. Þýskunám við Berlitz-skóla í Hamborg 1968-1969, enskunám við Richmond-skóla í London 1971-1972.
Starfsferill
Ritari hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1967-1968. Ritari kaupfélagsstjóra KEA 1969-1970. Læknaritari á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1970-1971. Kennari við Grenivíkurskóla 1972-1976, í hlutastarfi 1977-1982. Húsmóðir og bóndi á Lómatjörn síðan 1974. Skipuð 31. desember 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipuð 23. maí 2003 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 15. júní 2006. Skipuð 24. september 2004 samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 27. september 2005. Skipuð 15. júní 2006 utanríkisráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
Garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1984. Stundaði nám við frumgreinadeild Háskólans á Bifröst 2003-2004. BS-próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2007. Lögfræðipróf (ML) frá Háskólanum á Bifröst 2008. Framhaldsnám í skattarétti við Háskólann á Bifröst 2008.
Starfsferill
Garðyrkjumaður, blómaskreytir og deildarstjóri í Blómavali 1984–1991. Fyrsti fagdeildarstjóri og kennari við blómaskreytingabraut Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi 1988–1991. Stundakennari við Garðyrkjuskóla ríkisins 1991–1995. Eigandi Blómabúðar Reykjavíkur, Hótel Sögu, 1991–1995 og Jóns Indíafara í Kringlunni 1995–1997. Blómaskreytir og garðyrkjufræðingur í Blómagalleríi 1998–2003. Aðstoðarkennari í skattarétti við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst 2008. Lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands 2008–2009.
Bóndi á Brekku í Mjóafirði 1936—1967, fyrst með föður og föðurbróður, síðar með syni. Kennari við barnaskólann í Mjóafirði 1936—1947, skólastjóri 1956—1967. Vann jafnan nokkuð við jarðvinnslu í Mjóafirði haust og vor, síðar forstöðumaður Ræktunarfélags Mjóafjarðar, verkstjóri við vegagerð um tíma. Rak með öðrum síldarsöltun í Mjóafirði 1964—1970. Skipaður 28. ágúst 1974 menntamálaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Aðstoðarsáttasemjari 1979—1980.
Heimiliskennari á Akureyri 1905—1906. Kennari við barnaskólann á Seyðisfirði 1907—1908. Stofnaði unglingaskóla í Borgarfirði eystra 1909 og hélt hann til 1919. Skólastjóri við barnaskólann þar 1910—1919. Rak búskap á Hvoli í Borgarfirði 1910—1918 og í Stóru-Breiðuvík 1918—1921, enn fremur smábátaútgerð í Bakkagerði 1913—1918. Kaupfélagsstjóri í Bakkagerði 1918—1921. Kennari við barnaskólann á Akureyri 1921—1932. Skólastjóri gagnfræðaskólans þar 1935—1955. Rak búskap í Skjaldarvík syðri við Eyjafjörð 1922—1924 og að Svalbarði á Svalbarðsströnd 1934—1939. Rak bóka- og ritfangaverslun á Akureyri 1923—1935. Hóf bókaútgáfu 1924 og rak hana lengi. Fluttist til Reykjavíkur 1956 og átti þar heima síðan.
Stundaði ýmis störf, svo sem smíðar, pípulagnir, vélaviðgerðir, bifreiðaakstur, og vann við búskap. Bústjóri tilraunabús Búnaðarsambands Suðurlands í Laugardælum frá stofnun þess 1952 til ársloka 1979.
Sauðfjárbóndi síðan 1986. Grunnskólakennari 1999-2008, áður leiðbeinandi. Skólastjórnandi 2005-2008. Verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Austurlands, nú Austurbrú, 2008-2013. Í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 2010-2014, oddviti 2010-2013.
Stúdentspróf VÍ 1983. Cand. oecon. próf HÍ 1987. Cand. merc. próf frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn 1996. B.Ed.-próf HÍ 2003. Atvinnuþjálfararéttindi, UEFA Prolicence, frá enska knattspyrnusambandinu 2010.
Starfsferill
Handknattleiksþjálfari 1986-1995. Kennari við MK 1986-2013. Starfaði hjá Samvinnuferðum-Landsýn 1988-1995. Kennari við Ferðamálaskólann 1993-2001. Knattspyrnuþjálfari 1997-2013. Í stjórn Sparisjóðs Kópavogs 2000-2007, varaformaður 2006-2007. Aðjúnkt við HR 2007-2010, stundakennari 2010-2013. Heilbrigðisráðherra 28. nóvember 2021 til 21. desember 2024.
Gagnfræðapróf Reykjavík 1930. Kennarapróf KÍ 1941. Starfsnám í Privatbanken í Kaupmannahöfn 1946 og Skandinaviska Banken í Stokkhólmi 1946—1947.
Starfsferill
Bifreiðarstjóri í Reykjavík 1933—1939, strætisvagnsstjóri frá 1936. Starfsmaður Útvegsbankans í Reykjavík 1941—1950. Útibússtjóri Útvegsbankans á Ísafirði 1950—1973. Útibússtjóri Útvegsbankans í Kópavogi 1974—1975. Bankastjóri Útvegsbankans 1975—1983.
Nám við Samvinnuskólann á Bifröst 1973-1975. Stúdentspróf Samvinnuskólanum í Reykjavík 1979. Viðskiptafræðipróf HÍ 1984.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Kötlu 1975-1976. Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Dyngju 1977-1978. Stundakennari í hagfræði við Flensborgarskólann í Hafnarfirði 1982-1983. Aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1983-1987. Aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1987-1991. Skipaður 23. apríl 1995 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 31. desember 1999.
Stúdentspróf MR 1952. Nam guðfræði í Háskóla Íslands 1952—1953 og 1954—1955, heimspeki í Strasbourg-háskóla 1953—1954, þjóðfræði og mannfræði í Parísarháskóla 1956—1957 og í Stokkhólmsháskóla 1961—1966, lauk fil. lic.-prófi í mannfræði þar 1966.
Starfsferill
Blaðamaður við Alþýðublaðið 1958—1961 og Tímann sumarið 1963. Dagskrárstjóri við Ríkisútvarpið 1966—1972. Lektor við Háskóla Íslands 1973—1978, dósent síðan 1979.
Stúdentspróf MR 1938. Próf í efnaverkfræði við Danmarks Tekniske Höjskole í Kaupmannahöfn 1943.
Starfsferill
Verkfræðingur 1943—1945 í Afdeling for teknisk Hygiejne, DTH. Vann við þann skóla að rannsóknum. Verkfræðingur 1945—1952 hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga í Reykjavík, forstöðumaður tæknideildar þess frá 1948, einkum við skipulagningu ullar- og fiskiðnaðar samvinnufélaganna, m. a. umsjón með endurbyggingu ullarverksmiðjunnar Gefjunar á Akureyri og skipulagningu dreifikerfis Olíufélagsins hf. Framkvæmdastjóri iðnsýningarinnar í Reykjavík 1952. Verkfræðingur hjá Food and Agriculture Organization (FAO) við skipulagningu hraðfrystihúsa í Tyrklandi 1953—1954. Formaður Íslenskra aðalverktaka sf. 1954—1960. Framkvæmdastjóri Sambands ísl. samvinnufélaga 1961—1969. Bankastjóri Landsbankans 1971—1988.
Bókari í fjármálaráðuneytinu 1958—1962, fulltrúi í sama ráðuneyti 1962—1966. Bæjarstjóri á Ísafirði 1966—1970. Bæjarstjóri í Keflavík 1970—1980. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1983—1987. Starfsmaður Vörubílastöðvar Keflavíkur nokkra mánuði 1991 og umhverfis- og heilbrigðismálaráðuneytisins 1992. Framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurnesja og Heilsugæslustöðvar Suðurnesja frá 1992 til starfsloka.
Stúdentspróf MA 1952. Búfræðipróf Hólum 1953. Kandídatspróf frá landbúnaðarháskólanum að Ási í Noregi 1957. Framhaldsnám við breskar jurtakynbótastöðvar og háskóla (Hurley og Aberystwith í Wales) 1961—1962.
Starfsferill
Vann hjá fyrirtækinu Fóður og fræ í Gunnarsholti sumurin 1960—1963. Kennari við bændaskólann á Hvanneyri 1957—1963. Sérfræðingur við Rannsóknastofnun landbúnaðarins í Reykjavík 1963—1966. Jarðræktarráðunautur Búnaðarfélags Íslands 1966—1971. Aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra 1971—1974. Starfsmaður Búnaðarfélags Íslands (ritstjóri) 1974—1980. Búnaðarmálastjóri 1980—1995.
Samvinnuskólapróf 1935. Náms- og kynnisför til Danmerkur og Noregs 1938.
Starfsferill
Verkstjóri við Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði 1935—1942. Skrifstofustjóri Þormóðs Eyjólfssonar hf. (skipaafgreiðsla og umboð tryggingafélaga) 1943— 1946. Umboðsmaður Samvinnutrygginga, Flugfélags Íslands og fleiri félaga 1947—1949. Rak jafnframt eigin söltunarstöð og útgerð í félagi við Hannes Guðmundsson lögfræðing 1947—1948. Bæjarstjóri á Siglufirði 1949—1958. Forstjóri Áfengisverslunar ríkisins í Reykjavík 1957—1961, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá 1961 til æviloka.
Verslunarstörf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1959-1963. Verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum 1963-1978. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags Héraðsbúa 1978-1984. Skipaður 14. apríl 2001 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 7. mars 2006. Skipaður 7. mars 2006 félagsmálaráðherra, lausn 15. júní 2006.
Vann ýmis störf á sjó og landi til 1936. Síðan skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík fram til 1960. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags Árnesinga frá 1960 til æviloka og átti þá heima á Selfossi.
Nám í Alþýðuskólanum á Eiðum 1939—1941. Stúdentspróf MA 1945. Lögfræðipróf HÍ 1949. Framhaldsnám við Harvard Law School í Bandaríkjunum 1951—1952 og lauk þar prófi í alþjóðaverslunarrétti. Hdl. 1950. Hrl. 1964.
Starfsferill
Rak málflutningsskrifstofu á Akureyri 1949—1951 og 1952—1953, jafnframt stundakennari við gagnfræðaskólann þar, erindreki framsóknarfélaganna og blaðamaður við Dag. Starfsmaður í utanríkisráðuneytinu 1953—1960, forstöðumaður og deildarstjóri varnarmáladeildar frá stofnun hennar 10. nóvember 1953 til 1960. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík ásamt Vilhjálmi bróður sínum 1960—1972. Framkvæmdastjóri Tímans 1960—1964. Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972—1978 og 1983—1984. Skipaður 1. september 1978 fjármálaráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 viðskiptaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Bankastjóri við Seðlabanka Íslands 1985—1993.
Stýrimannanám á Ísafirði 1964-1965. Fiskimannapróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1966.
Starfsferill
Háseti, matsveinn og vélstjóri frá 1959. Stýrimaður 1965 og skipstjóri 1967-1997. Formaður Skipstjóra- og stýrimannfélagsins Bylgjunnar 1975-1984. Forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 1983-1999.
Búfræðingur með fiskeldi sem sérgrein frá Bændaskólanum á Hólum 1986. Cand. mag.-próf í fiskeldis- og rekstrarfræðum frá Héraðsháskóla Sogns og Firðafylkis í Noregi 1991. Cand. scient.-próf í fiskifræði frá Háskólanum í Björgvin 1994.
Starfsferill
Starfaði við landbúnað, fiskvinnslu, sjómennsku og fiskeldi 1981-1989. Rannsóknamaður við Veiðimálastofnun og hafrannsóknastofnanir Íslands og Noregs 1989-1997. Rannsóknir og kennsla við Sjávarútvegsháskóla Noregs í Tromsö 1994-1997. Fréttaritari RÚV í Noregi 1997-1999. Blaðamaður hjá norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren og fréttamaður í sjónvarpi og útvarpi (RÚV) 1997-2003.
Stúdentspróf Lsk. 1895. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1903. Málflutningsleyfi við landsyfirréttinn 1906.
Starfsferill
Settur um stuttan tíma sýslumaður í Rangárvallasýslu 1904, í Barðastrandarsýslu 1905 og í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1906. Aðstoðarmaður í atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu 1906—1907. Settur 1907 sýslumaður í Rangárvallasýslu. Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1908—1914, sat í Vík í Mýrdal. Skipaður 21. júlí 1914 ráðherra Íslands, lausn 4. maí 1915. Sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum 1915—1917, sat í Borgarnesi. Var jafnframt póstafgreiðslumaður þar um hríð. Settur bæjarfógeti í Reykjavík 1917. Skipaður 28. ágúst 1917 fjármálaráðherra, lausn 12. ágúst 1919, en gegndi störfum til 25. febrúar 1920. Framkvæmdastjóri Smjörlíkisgerðarinnar í Reykjavík 1920—1922. Skipaður 7. mars 1922 forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 5. mars 1924, en gegndi störfum til 22. mars. Varð 1. apríl 1924 bankastjóri Íslandsbanka og gegndi því starfi þar til bankinn var lagður niður 3. febrúar 1930. Gerðist þá málaflutningsmaður í Reykjavík og rak þar málaflutningsskrifstofu um skeið. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1932—1934. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og jafnframt bæjarfógeti á Akureyri 1934—1945. Fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka.
Heimastjórnarflokkurinn (22)
framhaldsmenntunháskólamenntun: lögfræðibúskapurþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Bóndi á Ósi í Breiðdal 1880—1881, í Papey 1881—1882, í Eyjum í Breiðdal 1882—1883, að Kirkjubóli í Stöðvarfirði 1883—1887, á Heyklifi í Breiðdal 1887—1892 og á Þverhamri frá 1892 til æviloka.
Dvaldist áfram í Kaupmannahöfn við ritstörf og var jafnframt aðstoðarmaður fógeta þar. Ritstjóri og útgefandi Heimdallar 1884, síðar danska blaðsins Vort Hjem (síðar Hjemmet), sem hann stofnaði ásamt dönskum manni. Gegndi sýslumannsstörfum í Þingeyjarsýslu sumarið 1887. Aðstoðarmaður hjá föður sínum í Árnessýslu 1888—1890. Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1890. Sýslumaður í Dalasýslu 1891—1914, sat að Sauðafelli. Fluttist þá til Reykjavíkur og bjó þar til æviloka.
Við búnaðarnám í Stend í Noregi 1878—1880. Ferðaðist síðan um Danmörku 1880—1881.
Starfsferill
Húsmaður á Hvanneyri í Borgarfirði 1882—1883, bóndi þar 1884—1886. Dvaldist síðan í Reykjavík 1886—1887. Bóndi í Reykjakoti, síðar Reykjahvoli í Mosfellssveit 1887—1898, í Gröf, síðar Grafarholti í sömu sveit 1898—1919, en átti þar áfram heima til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1869. Dvaldist heima til 1872 vegna vanheilsu, fór þá utan og lagði stund á málfræði og sögu við Hafnarháskóla, cand. mag. 1877. Doktorspróf Hafnarháskóla 1883. Prófessor að nafnbót 1904. Heiðursdoktor í heimspeki við háskólann í Kristjaníu 1911. Heiðursdoktor Háskóla Íslands 1918.
Starfsferill
Ferðaðist um Grikkland og Ítalíu 1878 með styrk af opinberu fé. Kennari við Lærða skólann í Reykjavík 1879—1904, rektor 1895—1904. Skipaður 1911 prófessor í íslenskri málfræði og menningarsögu við Háskóla Íslands og varð jafnframt fyrsti rektor Háskólans, 1911—1912, lausn 3. júlí 1918.
Stundaði kennslu og verslunarstörf 1899—1901. Verslunarmaður á Seyðisfirði 1902—1903. Kaupfélagsstjóri og verslunarstjóri á Breiðdalsvík 1903—1913. Kaupmaður á Búðareyri við Reyðarfjörð 1913—1919. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði þar skrifstofustörf til æviloka.
Heimiliskennari á Borðeyri veturinn 1888—1889. Fékk 1889 Breiðabólstað í Fljótshlíð og hélt til æviloka. Skipaður 1918 prófastur í Rangárvallaprófastsdæmi.
búskapurstjórnendurþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Nam búfræði af Halldóri Jónssyni búfræðingi á Rauðamýri 1878—1879. Var síðan á unglingaskóla að Hvoli í Saurbæ hjá Torfa Bjarnasyni.
Starfsferill
Jarðyrkjustörf í Danmörku 1880—1881. Bóndi að Hvalsá 1883—1887, á Ljúfustöðum 1887—1902 og á Kleifum á Selströnd 1902—1907, fluttist þá til Hólmavíkur og bjó þar til 1919. Framkvæmdastjóri Verslunarfélags Steingrímsfjarðar 1899—1919. Fluttist til Reykjavíkur 1919, bjó þar á Hlíðarenda (nýbýli) til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1887. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1894. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1894.
Starfsferill
Starfandi læknir í Reykjavík 1894—1895. Jafnframt kennari við Læknaskólann 1894—1895 í stað Schierbecks landlæknis í orlofi hans. Héraðslæknir í Reykjavík 1895—1906 og jafnframt kennari við Læknaskólann. Landlæknir og forstöðumaður Læknaskólans 1906, jafnframt ljósmæðrakennari. Prófessor við læknadeild Háskólans 1911. Orlof frá landlæknisstörfum 30. september 1921 um sex mánaða skeið, en jafnframt falið að undirbúa framkvæmd laga um varnir gegn berklaveiki. Lausn frá embætti 1931.
Nam búfræði í Stend í Noregi 1875—1877. Stundaði nám við landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn 1881—1882.
Starfsferill
Ferðaðist um Norður-Múlasýslu 1878—1880 og leiðbeindi í búnaði. Kennari við Möðruvallaskóla 1880—1881. Skólastjóri búnaðarskólans að Eiðum 1883—1888. Bóndi á Strönd á Völlum 1888—1894, í Geitagerði frá 1894.
Stúdentspróf Lsk. 1886. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1888. Heiðursdoktor Háskóla Íslands 1925.
Starfsferill
Stundaði kennslu í Reykjavík 1888—1891. Ritstjóri í Reykjavík 1892—1909. Vann að ritstörfum og fræðistörfum 1910—1911. Settur 1911 dósent í íslenskri sögu við Háskóla Íslands. Aðstoðarskjalavörður við Þjóðskjalasafnið 1912—1924. Þjóðskjalavörður 1924—1935. Ráðunautur hins íslenska hluta ráðgjafarnefndar sumarið 1925 við endurheimt íslenskra skjala úr söfnum í Kaupmannahöfn. Hafði frá 1911 styrk frá Alþingi til að semja ævisögur lærðra manna.Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1902—1909. Átti sæti í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar 1909—1913 og frá 1917 til æviloka. Settur 1. desember 1909 gæslustjóri við Landsbankann til 5. janúar 1910. Forseti Sögufélagsins frá 1924 til æviloka.
Búfræðipróf Hólum 1884. Var síðan í Danmörku um skeið, við nám í landbúnaðarháskólanum þar í sex mánuði.
Starfsferill
Vinnumaður og lausamaður til 1882. Skólastjóri Alþýðuskólans í Hléskógum í Höfðahverfi 1887—1888. Skólastjóri Búnaðarskólans á Hólum 1888—1896. Bóndi á Þingeyrum 1896—1905. Ráðsmaður Laugarnesspítala 1905—1910. Lagði síðan stund á ritstörf. Dvaldist í Ólafsvík og Reykjavík til skiptis 1910—1917, í Vesturheimi 1917—1922 og síðan í Reykjavík til æviloka.
Trésmiður á Ísafirði 1882—1883, í Haukadal í Dýrafirði 1883—1887 og á Þingeyri frá 1887 til æviloka. Póstafgreiðslumaður á Þingeyri frá 1898 til æviloka. Gjaldkeri sparisjóðsins á Þingeyri frá stofnun hans 1896 til æviloka.
Dvaldist heima hjá foreldrum sínum á Akureyri uns hann réðst vorið 1867 fulltrúi amtmannsins í Holbæk á Sjálandi, gegndi því starfi til 1870, er hann varð aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn. Amtmaður í norður- og austuramtinu 1881—1893, í suður- og vesturamtinu 1894—1904. Sat á Akureyri meðan hann var amtmaður nyrðra, en fluttist síðan til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka. Skipaður 1904 forseti amtsráðs suðuramtsins og gegndi því embætti þar til amtsráðin voru lögð niður 1907.
Dvaldist í Reykjavík 1888—1889 við ýmis störf. Aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn 1889—1891. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri 1891—1904. Settur amtmaður í norður- og austuramtinu 1894. Landritari 1904—1917, er embættið var lagt niður. Vann síðan að sögurannsóknum og ritstörfum. Skipaður 7. mars 1922 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, skipaður 18. apríl 1923 jafnframt fjármálaráðherra í stað Magnúsar Jónssonar, sem lét af því embætti daginn áður, lausn 5. mars 1924, en gegndi störfum áfram til 22. mars.
Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1891—1892. Settur sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1892. Sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1894—1908, sat í Stykkishólmi. Forseti amtsráðs vesturamtsins frá 1904 til ársloka 1907, er amtsráðin voru lögð niður. Skipaður 1908 forstöðumaður Lagaskólans í Reykjavík. Prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands 1911—1919, rektor 1913—1914. Skipaður 1. desember 1919 dómari í Hæstarétti, lausn 1931. Prófdómari í lagadeild Háskóla Íslands 1924—1934.
Verslunarmaður hjá Möller á Akureyri og síðan Örum & Wulff á Húsavík 1877—1884, á Djúpavogi 1884—1891 og á Vopnafirði 1891—1893, verslunarstjóri á Vopnafirði 1893—1904. Bókari í Landsbankanum í Reykjavík 1904—1908. Verslunarstjóri og verslunarfulltrúi hjá L. Tang & Sön á Ísafirði 1908—1922, síðan í Vestmannaeyjum til æviloka.
Var um skeið unglingakennari í Mývatnssveit. Bóndi á Gautlöndum 1884—1919, fluttist þá til Reykjavíkur. Skipaður 25. febrúar 1920 atvinnumálaráðherra og gegndi því starfi til æviloka.
Nam trésmíðar hjá móðurbróður sínum Ólafi Briem þjóðfundarmanni og timburmeistara á Grund 1850—1853. Dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1863—1864 og lærði þá m.a. ljósmyndun, fór þaðan til Noregs og var þar um tíma á búnaðarskólanum í Ási.
Starfsferill
Sendur til Reykjavíkur sumarið 1858 í verslunarerindum fyrir Höfðhverfinga og seldi þá kaupmönnum syðra skipsfarm af eyfirskum afurðum og tók vörur norður í staðinn. Bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal 1859—1873. Stofnandi Gránufélagsins og kaupstjóri þess 1871—1893. Fluttist til Kaupmannahafnar 1873. Bankastjóri Landsbankans í Reykjavík 1893—1909, var þá vikið frá, en Alþingi ákvað síðan að hann nyti fullra eftirlauna til æviloka.
Vann á búi föður síns 1887—1892. Bóndi á Sandi í Aðaldal 1892—1906, á Einarsstöðum í Reykjadal 1906—1913, á Litlu-Laugum 1913—1942 og var þar til æviloka.
Hreyfingin (6)
háskólamenntun: listirframhaldsmenntunsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Grunnskólapróf Núpi 1983. Sjálfmenntuð í vefhönnun og vefþróun, grafískri hönnun og umbroti.
Starfsferill
Fjöllistakona, rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og myndlistarmaður. Hefur meðfram því starfað sem grafískur hönnuður og blaðamaður og sem pistlahöfundur hjá íslenskum jafnt sem erlendum tímaritum og vefmiðlum. Hefur haldið fjölda málverkasýninga og gefið út yfir 20 frumsamdar ljóðabækur á ensku og íslensku. Frumkvöðull í vinnslu ljóða og lista á netinu og í skapandi útfærslu í netheimum í árdaga þess.
Stúdentspróf VÍ 1992. BA-próf í almennri bókmenntafræði HÍ 1997.
Starfsferill
Stundaði verslunar- og gallerísrekstur 1992-2008. Bókmenntagagnrýnandi á DV 1996-1999. Sjálfstætt starfandi fræðimaður á sviði barnabóka og barnamenningar frá 1997. Stundakennari hjá Námsflokkum Reykjavíkur, Endurmenntun KHÍ og víðar 1997-2000. Ritstjóri hjá Máli og menningu og síðar Eddu – útgáfu 2000-2003. Sjálfstætt starfandi myndritstjóri, þýðandi og textahöfundur 2003-2009. Barnabókahöfundur. Formaður Hreyfingarinnar 2009-2010.
Próf úr miðskóla 1976. B.Sc.-próf í markaðsfræði frá University of South Carolina 1991. MA-próf í hagfræði frá New York University 1995. Kennararéttindi fyrir framhaldsskólastig frá HA 2000.
Starfsferill
Háseti og bátsmaður hjá Eimskipafélagi Íslands 1977-1987. Enskukennari í Barcelona 1991-1992. Aðstoðarhagfræðingur hjá SOM Economics / The Brenner Group, New York, 1993-1995. Hagfræðingur hjá The Conference Board, New York, 1995-1997. Ritstjóri UN Statistical Yearbook (41. útgáfu), Sameinuðu þjóðunum, New York, 1997. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands 1997-2001. Hagfræðingur hjá Lánasýslu ríkisins 2002-2007. Stundakennari við Tækniskólann frá 2006. Ráðgjafi hjá OECD, París, 2008-2010. Formaður Hreyfingarinnar 2010-2011 og síðan 2012.
Stúdentspróf Lsk. 1901. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1907. Yfirréttarmálaflutningsmaður 25. mars 1909.
Starfsferill
Málaflutningsmaður á Akureyri 1907—1918. Settur sumarið 1907 sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri, var síðar nokkrum sinnum settur bæjarfógeti þar og setudómari. Aukalögreglustjóri á Siglufirði sumarið 1908. Settur dómari í Þingeyjarsýslu um þingtímann 1913—1914. Sjódómsmaður á Akureyri 1914—1918. Rak bú á Kaðalsstöðum í Hvalvatnsfirði 1909—1920 og hálfri jörðinni Svalbarði við Eyjafjörð 1913—1917, fluttist sjálfur að Svalbarði 1918 og bjó þar síðan á allri jörðinni til æviloka. Rak þar jafnframt síldarútgerð og síldarverslun.
Stúdentspróf Lsk. 1901. Hóf verkfræðinám í Kaupmannahöfn, en hvarf frá því.
Starfsferill
Kennari við gagnfræðaskólann í Flensborg 1905—1906 og við barna- og unglingaskólann á Ísafirði 1906—1910, skólastjóri 1910—1915. Rak útgerð á Ísafirði 1915—1917 og aftur 1920—1926. Hafnargjaldkeri í Reykjavík 1918—1920. Bankastjóri við útibú Landsbankans á Ísafirði 1926—1937. Fluttist á Seltjarnarnes 1938. Trúnaðarmaður hjá hf. Kol & Salt í Reykjavík 1938—1940. Endurskoðandi Eimskipafélags Íslands eftir 1940.
Sjúkraliðapróf VMA 1991. Leikskólakennari frá Fyns Pædagogseminarium 2002. Diplóma í menntunarfræðum með áherslu á stjórnun og diplóma í menntunarfæðum með áherslu á sérkennslufræði HA 2008, M.Ed.-próf í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á sérkennslufræði HA 2010.
Starfsferill
Umönnun aldraðra Kristnesi við Eyjafjörð 1989-1991, sjúkraliði þar 1991-1993. Sjúkraliði við dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð, Akureyri, 1993-1995. Sjúkraliði í heimahjúkrun í Óðinsvéum 1995–1996. Sjúkraliði á gjörgæslu heila- og taugaskurðlækningadeildar á Odense Sygehus 1996–1997. Starfsmaður við hæfingarstöðina við Skógarlund á Akureyri 2002–2003. Deildarstjóri sérdeildar og ráðgjafi við Síðuskóla á Akureyri og fagstjóri sérkennslu yngsta stigs í grunnskóla 2003–2011. Formaður aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar um launajafnrétti kynjanna 2013-2016. Formaður Jafnréttissjóðs Íslands frá 2016.
Stúdentspróf FVA 1996. BS-próf í viðskiptafræði frá HÍ 2011. Stundaði framhaldsnám í stjórnun við Manchester Business School 2011-2014.
Starfsferill
Aðstoðarmaður samgönguráðherra 2003–2006. Ýmis ráðgjafarstörf 2006–2009 ásamt því að sitja í stjórnum fyrirtækja og stofnana á árunum 2003–2017. Starfsmaður Kaupþings 2007–2008. Framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi og þar á undan fjármálastjóri félagsins 2009–2016.
Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1986. BA-próf í guðfræði HÍ 2002. Diplóma í opinberri stjórnsýslu og stjórnun EHÍ 2003. Meistarapróf í alþjóðasamskiptum og utanríkisþjónustu (MIS) frá School of International Service, American University, Washington DC, 2006.
Starfsferill
Lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli sumrin 1986-1990 og slökkviliðsmaður þar sumrin 1991-1996. Stjórnandi samskiptasviðs Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli 1997-2005. Í bæjarstjórn sveitarfélagsins Voga 2002-2005. Ráðgjafi á sölu- og markaðssviði SPRON 2007-2009. Starfsmaður utanríkisráðuneytisins 2011. Rak eigin ferðaþjónustu 2012-2014. Starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum við yfirstjórn UNRWA, Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna, í Miðausturlöndum 2014–2016.
Stúdentspróf ML 1990. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1993. MA-próf í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Kent, Kantaraborg (UKC) 1997.
Starfsferill
Sendiherra Íslands í Noregi 2019-2022. Sendiherra Íslands í Grikklandi frá sama tíma, með aðsetur í Noregi. Samþykktur sendiherra Íslands gagnvart Egyptalandi, Íran og Pakistan, með aðsetur í Noregi frá sama tíma (ekki hægt að ferðast til að afhenda trúnaðarbréf vegna kórónuveirufaraldursins). Kosningastjóri framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn UNESCO 2018-2019. Ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum 2015-2018. Skipuð sendiherra 1. janúar 2016. Sendifulltrúi og staðgengill sendiherra, sendiráði Íslands í London 2014-2015. Sendifulltrúi og staðgengill sendiherra, sendiráði og fastanefnd Íslands í Vínarborg 2010-2014. Deildarstjóri mannréttinda og jafnréttismála í utanríkisráðuneytinu 2009-2010. Sendiráðunautur á sviði pólitískra og öryggismála í utanríkisráðuneytinu 2005-2009. Sendiráðsritari, fastanefnd Íslands í Genf 2000-2005. Sendiráðsritari í utanríkisráðuneytinu 1999-2000.<br>Í leyfi frá störfum í utanríkisþjónustu frá 2023.
Verslunarpróf VÍ og stúdentspróf FB 1981. Cand. juris HÍ 1989. Hdl. 1996. Próf í stjórnun I frá EHÍ og Lögregluskóla ríkisins 2007.
Starfsferill
Fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslumannsins í Gullbringusýslu 1989-1990 og starfaði um skeið hjá ríkisskattanefnd. Fulltrúi sýslumannsins í Árnessýslu og bæjarfógetans á Selfossi, síðar sýslumannsins á Selfossi, 1990-1998. Settur sýslumaður á Hólmavík um skeið sumarið 1996, auk þess að vera settur í einstaka málum sem rannsóknarlögreglustjóri ríkisins, lögreglustjóri í Reykjavík o.fl. á árunum 1995-1998. Sýslumaður í Vestmannaeyjum 1998-2014. Skólastjóri Lögregluskóla ríkisins 2014-2016. Lögmaður á eigin stofu 2022-2023. Lögreglustjóri í Vestmannaeyjum 2023-2024.
Stúdentspróf VÍ 1998. Viðskiptafræðingur MBA frá HR 2016.
Starfsferill
Starfaði hjá Eimskipafélagi Íslands 1998-2008. Sjálfstætt starfandi 2008-2025, m.a. í rekstri verslana, heildsölu og fjárfestingafélags.<br><br>Í stjórn Isavia 2018-2025, í stjórn Fríhafnarinnar 2020-2025, í stjórn Náttúrulækningabúðarinnar 2008-2025, í stjórn Ilta Inv. 2003-2025 og í endurskoðunarnefnd Isavia 2018-2025.
Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.
Starfsferill
Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007. Forsætisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Dómsmálaráðherra 26. ágúst til 4. desember 2014.
Lögfræðingur hjá Verslunarráði Íslands 1999-2005. Í dómstólaráði 2004-2009. Héraðsdómslögmaður hjá LEX 2007-2015. Í nefnd um heildarendurskoðun laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, 2013-2014. Dómsmálaráðherra frá 11. janúar 2017 til 14. mars 2019. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 2022-2024. Sjálfstætt starfandi lögmaður frá 2022.
Stúdentspróf MR 2017. BA-próf í íslenskum fræðum HÍ 2021.
Starfsferill
Blaðamaður á Morgunblaðinu 2018-2021. Fréttamaður á Vísi og Stöð 2 2021-2023, ásamt dagskrárgerð. Stofnandi margmiðlunarfyrirtækis og hlaðvarps undir merkjum Snorra Mássonar ritstjóra frá hausti 2023. Hlaðvarpið Skoðanabræður 2019-2024.
Verslunarpróf VÍ 1971. Próf í opinberri stjórnsýslu og stjórnun EHÍ 2000. Próf í rekstrarfræði EHÍ 2004.
Starfsferill
Sölufulltrúi hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1971-1977. Kaupfélagsstjóri 1977-1988. Ýmis viðskiptastörf 1988-1997. Skrifstofustjóri sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli 1997-2007. Sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar í umhverfis- og auðlindaráðuneyti 2007-2013.
Stúdentspróf Lsk. 1851. Las hagfræði við Hafnarháskóla í nokkur ár og stundaði jafnframt ritstörf, lauk ekki námi. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1863.
Starfsferill
Var einkakennari sonar Blixen-Finecke baróns og ferðaðist með þeim feðgum um Suðurlönd. Tók þátt í leiðangri 1860 til könnunar ritsímalögn til Íslands. Prestur á Bægisá 1863—1889, á Sauðanesi frá 1889 til æviloka.
Kennarapróf 1877 í Lindsay í Ontario í Kanada. Stúdentspróf Lsk. 1882. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1884.
Starfsferill
Fór til Vesturheims og stundaði þar ýmsa vinnu 1874—1877. Fékk Borg á Mýrum 1884, Mývatnsþing 1888 og sat á Skútustöðum. Fékk Hólma í Reyðarfirði 1913 og hélt til æviloka. Prófastur í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi 1889—1913.
Sýslumaður í Snæfellsnessýslu 1856—1861. Skipaður landfógeti og bæjarfógeti í Reykjavík 1861, landfógeti eingöngu er embættin voru aðgreind með konungsúrskurði 31. janúar 1874, lausn 9. september 1904, enda var þá embættið lagt niður. Jafnframt settur 2. yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirrétti frá 1. júlí 1877 til 30. apríl 1878 og síðar frá 1. maí 1886 til 28. júlí, en var oft endranær meðdómandi í einstökum málum.
Við barnakennslu á Húsavík veturinn 1850—1851. Vígðist 1851 aðstoðarprestur til Skúla Tómassonar í Múla. Fékk Garða á Akranesi 1856, Hvamm í Norðurárdal 1858, Múla 1860, lausn frá fardögum 1890, fluttist þá til Reykjavíkur og dvaldist þar til æviloka. Prófastur í Mýraprófastsdæmi 1859—1860 og í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi 1871—1878 og aftur 1886—1889. Gæslustjóri Landsbankans 1890—1898.
Heimiliskennari á Reynistað 1850—1852. Skipaður 5. maí 1859 2. yfirdómari og dómsmálaritari við landsyfirréttinn, sat að Elliðavatni, vikið frá embætti 19. ágúst 1870. Sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1874—1897, sat á Héðinshöfða. Fluttist til Reykjavíkur 1897, bjó að Vatnsenda frá 1898.
Varð aðstoðarmaður í dómsmálaráðuneytinu danska 1857. Amtmaður í vesturamtinu 1866, sat í Stykkishólmi, varð jafnframt amtmaður í suðuramtinu er embættin voru sameinuð 1872. Fluttist til Reykjavíkur vorið 1873. Settur landshöfðingi 1882 og aftur 1883, skipaður landshöfðingi 7. maí 1884 og gegndi því embætti til æviloka 1886.
Stúdentspróf Lsk. 1882. Mag. art. í sagnfræði Hafnarháskóla 1890.
Starfsferill
Aðstoðarmaður í ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn 1893—1903. Styrkþegi Árnasafns yfir 20 ár alls. Hafði frá 1904 styrk í fjárlögum til þess að semja sögu Íslands. Forgöngumaður um stofnun Hins íslenska fræðafélags 1912 og formaður þess frá stofnun til æviloka. Dvaldist í Kaupmannahöfn til æviloka.
búskapurstjórnendurþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Var við jarðyrkjunám 1855—1857 í Fornhaga í Hörgárdal hjá Friðbirni Björnssyni.
Starfsferill
Dvaldist á Hálsi hjá stjúpa sínum og móður næstu árin en síðan með Pétri Havstein mági sínum á Möðruvöllum. Ráðsmaður Tryggva bróður síns á Hallgilsstöðum 1864—1865. Bóndi á Espihóli í Eyjafirði 1866—1869, á Laugalandi 1876—1879. Kaupstjóri á Akureyri um hríð. Umboðsmaður Munkaþverárklaustursjarða 1864—1882. Settur sýslumaður í Skagafjarðarsýslu um skeið 1869. Var mest í Reykjavík eftir 1880 og rak verslun þar og víðar, stofnaði m. a. Bresk-íslenska verslunarfélagið 1880 auk annarra umsvifa, svo sem stofnunar fiskifélags (útgerðarfélags) og ábyrgðarfélags fyrir skip. Reis ekki undir fjárhagslegum skuldbindingum og fór af landi brott 1884 og hvarf í Bretlandi.
Nam gullsmíðar 1843—1847. Við nám í Kaupmannahöfn 1847—1848.
Starfsferill
Fékkst við kennslu og önnur störf á Austfjörðum 1849—1853. Bóndi móti föður sínum að Þverá í Dalsmynni 1853—1855, bóndi í Nesi í Höfðahverfi frá 1855 til æviloka. Hafði skipaútveg til hákarlaveiða um hríð og kenndi sjálfur hinum fyrstu hákarlaskipstjórum sjómannafræði. Skipaður 1882 umboðsmaður Möðruvallaklausturs.
Bóndi á Hraunum í Fljótum 1863—1898. Fór til Noregs 1878 með styrk frá Alþingi til að kynna sér bátasmíðar þar, en kynnti sér jafnframt niðursuðu matvæla og hófu þeir Snorri mágur hans slíkan iðnað. Kaupmaður í Haganesvík frá 1898 til æviloka. Stundaði jafnframt brúa- og skipasmíðar.
Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1879—1880, í Norður-Múlasýslu 1880—1894, sat á Seyðisfirði, vikið frá embætti um stundarsakir 30. júní 1894, lausn 29. maí 1896 með eftirlaunum. Dvaldist um tíma áfram á Seyðisfirði, en fluttist svo til Kaupmannahafnar.
Stúdentspróf Lsk. 1864. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1867. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1879—1880. Prófessor að nafnbót 1911.
Starfsferill
Heimiliskennari hjá foreldrum sínum 1864—1866. Biskupsritari 1867—1874 og kenndi jafnframt stýrimannsefnum sjómannafræði. Prestur í Þingeyraprestakalli 1874—1880, sat í Steinnesi, tók þar ýmsa pilta til náms á veturna og bjó suma undir skóla. Prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi 1876—1880. Kennari við Prestaskólann 1880—1911. Hafði jafnframt á hendi kennslu í trúarbrögðum og stærðfræði í Lærða skólanum 1881—1896.
Fékk Presthóla 1881, Lund 1882, Breiðabólstað á Skógarströnd 1884, Staðarstað 1890 og Prestsbakka og Stað í Hrútafirði 1901, sat á Prestsbakka til 1904, síðan á Stað til 1920. Prófastur í Strandaprófastsdæmi 1902—1920. Póstafgreiðslumaður á Stað frá 1. janúar 1905 til æviloka.
Setti bú í Flatey 1844. Vígðist 1849 aðstoðarprestur föður síns. Fékk Helgafell 1860 og hélt til æviloka, sat fyrst á Þingvöllum, en fluttist síðar í Stykkishólm. Prófastur í Snæfellsnesprófastsdæmi frá 1875 til æviloka.
Vann að búi móður sinnar frá því að hann hafði aldur til. Bóndi í Ytra-Vallholti í Vallhólmi 1863—1881, í Húsey 1881—1885, að Skálá í Sléttuhlíð 1885—1899 og í Málmey 1899—1910. Brá þá búi og fluttist ásamt konu sinni að Svaðastöðum til Önnu dóttur sinnar og átti þar heima til æviloka.
Stúdent úr heimaskóla hjá Árna biskupi Helgasyni 1837. Hóf nám í lögfræði við Hafnarháskóla, en lagði brátt stund á heimspeki og bókmenntir, varð mag. art. 1845, en sú nafnbót hækkuð í dr. phil. með konungsúrskurði 1854. Hlaut 1846 konungsstyrk til kynnisfarar um Evrópu og stóð sú ferð tvö ár.
Starfsferill
Í þjónustu utanríkismálaráðuneytisins danska 1848—1866, síðast skrifstofustjóri. Var meðal annars um skeið aðstoðarmaður sendiherra Dana í Brussel og Lundúnum. Bóndi á Bessastöðum á Álftanesi frá 1868 til æviloka.
Skrifari og kennari hjá Eiríki Sverrissyni sýslumanni í Kollabæ í Fljótshlíð. Vígðist 1842 aðstoðarprestur Ólafs Sívertsens í Flatey, sat í Skáleyjum og gegndi Múlasókn á Skálmarnesi. Fékk Kvennabrekku 1848, Breiðabólstað á Skógarströnd 1868 og hélt til æviloka. Prófastur í Dalaprófastsdæmi 1864—1869.
Bóndi í Langholti í Bæjarsveit 1886—1900, fór þá til Vesturheims. Bóndi í Big-Point-byggð 1900—1921 og í Langruth 1921—1923. Dvaldist síðustu æviár sín á elliheimilinu Gimli.
Dvaldist með foreldrum sínum í Kaupmannahöfn frá 1841 og hlaut þar menntun.
Starfsferill
Við gullgröft o. fl. í Ástralíu 1849—1853, kaupsýslu í Liverpool 1853—1859 og í Kaupmannahöfn 1859—1862. Var þá í kaupferðum til Íslands. Kaupmaður í Melbourne í Ástralíu 1862—1870, í Ólafsvík og að Búðum 1870—1879, í Stykkishólmi 1879—1897 og í Reykjavík frá 1897 til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1872. Hagfræðipróf Hafnarháskóla 1877. Framhaldsnám í Edinborg 1877—1878.
Starfsferill
Aðstoðarmaður landfógeta 1878. Endurskoðandi landsreikninganna (revisor) 1879—1904, fulltrúi í fjármála- og endurskoðunardeild stjórnarráðsins 1904, skrifstofustjóri þar 1909—1918. Stundaði síðan ritstörf í Reykjavík til æviloka.
Heimiliskennari hjá Guðmundi Thorgrímsen verslunarstjóra á Eyrarbakka 1862—1864 og hjá móður sinni að Selalæk 1864—1865. Fékk Keldnaþing 1865, sat að Stokkalæk 1865—1870 og í Vestri-Kirkjubæ 1870—1879. Fékk Arnarbæli 1878 og hélt til æviloka. Amtsráðsmaður 1887—1892.
Stúdentspróf Lsk. 1847. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1849. Lækningaleyfi 3. nóvember 1879.
Starfsferill
Barnakennari í Reykjavík 1849—1851. Prestur á Kálfatjörn 1851—1857, á Ríp 1857—1868 og á Kvennabrekku frá 1868 til æviloka, en sat á Sauðafelli frá fardögum 1874.
Stúdentspróf Lsk. 1860. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1866. Dr. med. Hafnarháskóla 1882. Framhaldsnám febrúar—ágúst 1868, maí—september 1882 og júní—september 1892 í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn.
Starfsferill
Staðgöngumaður Jóns Hjaltalíns landlæknis í utanför hans apríl—júní 1867. Settur 1868 aðstoðarmaður landlæknis við læknakennslu og jafnframt sýslulæknir í Kjósar- og Borgarfjarðarsýslum. Varð sama ár læknir við sjúkrahúsið í Reykjavík. Héraðslæknir í Reykjavíkurhéraði 1873—1895. Landlæknir 1895—1906. Kennari við Læknaskólann frá stofnun hans 1876 og forstöðumaður hans 1881—1882 og 1895—1906. Læknir við franska sjómannaspítalann í Reykjavík 1903—1905.
Við kennslu og ritstörf í Reykjavík 1864—1866, í Lundúnum 1866—1868 og 1869—1871 og í Kaupmannahöfn 1868—1869. Bókavörður í Edinborg 1871—1880. Skólastjóri við gagnfræðaskólann á Möðruvöllum í Hörgárdal, síðar á Akureyri 1880—1908.
Var með móður sinni á veturna 1846—1847 og 1949—1851 og kenndi bræðrum sínum undir skóla. Prestur á Hofi á Skagaströnd 1850—1860. Verslunarbókari í Grafarósi 1861—1865, á Hólanesi 1865—1866, á Akureyri 1866—1870, í Höfðakaupstað 1870—1871. Verslunarstjóri á Borðeyri 1871—1872, í Grafarósi 1872— 1874. Varð 1. febrúar 1875 kaupvörður Verslunarfélags Skagfirðinga í Grafarósi.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Sat í Bessastaðaskóla 1825—1830, en var útskrifaður stúdent sumarið 1830 hjá Gunnlaugi Oddssyni dómkirkjupresti. Var næstu fjögur ár við læknisfræðinám hjá Jóni Thorstensen landlækni, hlaut námsvottorð hjá honum vorið 1834, og sigldi síðan til Kaupmannahafnar til frekara náms þar í Hinu konunglega kírúrgíska akademíi, lauk læknisfræðiprófi þaðan vorið 1837 og vorið 1839 við háskólann í Kiel, sama ár lauk hann doktorsprófi þar. Ferðaðist um Þýskaland 1838 til þess að kynna sér geðveikrahæli og aftur 1841 til þess að kynna sér vatnslækningar.
Starfsferill
Varð 1837 læknir við St. Hans-spítalann í Kaupmannahöfn. Læknir við hersveit Danakonungs (Kompagni-Kirurg ved Kongens Regiment) 1839—1842 og aðstoðarlæknir í fótgönguliðinu 1842—1846. Fékk konungsleyfi 1844 til þess að reisa vatnslækningastofnun við Klampenborg á austurströnd Sjálands. Stofnunin var reist af hlutafélagi og tók til starfa 1845, var hann læknir við hana til 1851. Sumarið 1840 dvaldist hann hér á landi við rannsóknir á holdsveikinni og sumarið 1851 kom hann aftur út eftir áskorun stjórnarinnar til þess að rannsaka brennisteinsnámur hér á landi og bráðapestina, settist þá að á Eyrarbakka. Landlæknir 1855—1881. Hélt uppi læknakennslu í Reykjavík 1860—1876. Skipaður forstöðumaður Læknaskólans við stofnun hans 1876.
Stúdentspróf Lsk. 1880. Nám í latínu og grísku við Hafnarháskóla 1880—1887, lauk ekki prófi.
Starfsferill
Dvaldist með föður sínum á Víðimýri í Skagafirði 1887—1890, hóf þá sjálfur búskap þar og var bóndi til 1896, jafnframt póstafgreiðslumaður. Aðstoðarbókavörður í Landsbókasafni 1896—1908, jafnframt forngripavörður 1897—1907. Landsbókavörður 1908—1924.
Aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn 1882—1883. Landshöfðingjaritari 1883—1889. Settur 1. maí 1886 bæjarfógeti í Reykjavík til 1. september. Settur 15. september 1886 málaflutningsmaður við landsyfirréttinn til 31. desember. Skipaður 1889 2. yfirdómari og dómsmálaritari við landsyfirdóminn, skipaður 1. yfirdómari 1908, settur dómstjóri (háyfirdómari) 1911—1912. Settur 1890 amtmaður í suður- og vesturamtinu um tíma.
Stúdentspróf Frúarskólanum í Kaupmannahöfn 1861. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1867.
Starfsferill
Var um skeið eftir prófið aðstoðarmaður föður síns í Álaborg og aftur haustið 1868. Við lögfræðistörf í Reykjavík veturinn 1867—1868 og vann þá jafnframt í skrifstofu stiftamtmanns. Settur sýslumaður í Árnessýslu 1868. Skipaður 1872 landshöfðingjaritari frá 1. apríl 1873 að telja, jafnframt lögreglustjóri og erindreki í fjárkláðamálinu 1875—1877. Settur bæjarfógeti í Reykjavík 1878. Stofnandi og aðalritstjóri Víkverja 1873—1874. Settur málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1878—1880.
Stúdentspróf Lsk. 1869. Nám í Hafnarháskóla veturinn 1871—1872. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1874.
Starfsferill
Prestur í Bjarnanesi 1875—1891, á Stafafelli frá 1891 til æviloka. Prófastur í Austur-Skaftafellsprófastsdæmi frá 1876. Umboðsmaður Bjarnanesjarða 1876— 1918.
Bóndi á Arnarvatni 1881—1887, á Skútustöðum 1887—1888, á Reykjum í Reykjahverfi 1888—1892 og í Múla í Aðaldal 1892—1899. Kaupstjóri og verslunarfulltrúi fyrir L. Zöllner á Seyðisfirði 1899—1905, Akureyri 1905—1908, Reykjavík 1908—1911 og að nýju á Seyðisfirði 1911—1912. Umboðsmaður Norðursýslujarða 1895—1900.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Sat í Lærða skólanum 1863—1868, tók þar fyrri hluta burtfararprófs 1868.
Starfsferill
Blaðamaður og síðar ritstjóri Baldurs í Reykjavík 1868—1870. Dvaldist í Björgvin 1870—1871 og fékkst þar við blaðamennsku. Ritstjóri Göngu-Hrólfs í Reykjavík 1872—1873. Var prentun blaðsins bönnuð og fór hann þá til Vesturheims. Dvaldist þar til 1875 og tók m. a. þátt í landkönnunarför til Alaska. Kom til Íslands aftur 1875 og vann um hríð við skrifstofustörf í Reykjavík. Dvaldist í Kaupmannahöfn 1876—1877. Ritstjóri á Eskifirði 1877—1880, í Kaupmannahöfn 1880—1881. Ritstjóri í Reykjavík 1882—1885. Dvaldist áfram í Reykjavík næstu ár og fékkst við kennslu og ýmis önnur störf. Fór aftur til Vesturheims 1890. Ritstjóri í Winnipeg 1890—1894. Fór þá suður í Bandaríki til Chicago og vann þar fyrst nokkur missiri við blaðamennsku, lengst af við „Norden“, en síðar um stund við bókasafn þar í borg. Kom til Íslands aftur vorið 1897 og dvaldist í Reykjavík til æviloka. Vann áfram að blaðamennsku til ársloka 1913, en rak jafnframt bóka- og pappírsverslun um skeið. Stundakennari við Stýrimannaskólann 1899—1901, við Verslunarskólann 1907—1912. Hafði á hendi spjaldskráningu prentaðra bóka í Landsbókasafni 1900—1913. Vann síðustu árin að samningu íslenskrar orðabókar með styrk úr landssjóði.
Var um tíma ólaunaður starfsmaður í Rentukammerinu. Heimiliskennari veturinn 1842—1843 hjá Birni Blöndal alþingismanni. Gegndi sýslumannsstörfum í Eyjafjarðarsýslu 1843—1844. Skipaður 1844 sýslumaður í Strandasýslu. Sat fyrst á Melum, en fluttist 1846 að Prestsbakka. Skipaður 1847 sýslumaður í Borgarfjarðarsýslu, 1848 sýslumaður í Mýra- og Hnappadalssýslum, en gegndi jafnframt Borgarfjarðarsýslu til 1849. Fluttist vorið 1849 að Norðtungu, bjó þar til 1850, er hann fluttist að Hamri í Þverárhlíð, fór þaðan til Reykjavíkur þá um sumarið. Skipaður 1850 2. yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirdómi, 1856 1. yfirdómari, 1877 háyfirdómari, lausn 16. apríl 1889. Settur amtmaður í vesturamtinu 1847—1848 í fjarveru Bjarna amtmanns Thorsteinsonar. Settur bæjarfógeti í Reykjavík frá hausti 1851 til sumars 1852. Settur landshöfðingi 1886. Kennari í kirkjurétti við Prestaskólann 1853—1889. Gæslustjóri Landsbankans frá stofnun hans 1885 til 1890.
Stúdent 1829 úr heimaskóla hjá séra Gunnlaugi Oddssyni. Lagði stund á málfræði og sögu, síðar stjórnfræði og hagfræði við Hafnarháskóla en lauk ekki prófi.
Starfsferill
Við verslunarstörf í Reykjavík 1829—1830. Skrifari hjá Steingrími biskupi Jónssyni í Laugarnesi 1830—1833. Varð 1835 styrkþegi Árnasafns, skrifari í stjórnarnefnd þess frá 1848 til æviloka. Vann samtímis hjá Bókmenntafélaginu, Vísindafélagi Dana (Det kgl. danske Videnskabernes Selskab), Fornfræðafélaginu (Det kgl. nordiske Oldskriftselskab), var skjalavörður þess félags 1845—1849, er staðan var lögð niður, naut síðan biðlauna um hríð og styrks úr sjóði J. L. Smidts, uns hann fékk fastan styrk úr ríkissjóði Dana til þess að gefa út fornbréfasafn.
Tók við búsforráðum á Gautlöndum með móður sinni eftir lát föður síns, bóndi þar frá 1848 til æviloka. Umboðsmaður Norðursýslu- og Reykjadalsjarða frá 1885 til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1877. Nám í guðfræði við Hafnarháskóla 1877—1880, en lauk ekki prófi. Ferðaðist um Þýskaland og England 1881—1882 með styrk af opinberu fé til þess að kynna sér alþýðumenntun og skólamál og um Norðurlönd í sama skyni sumurin 1890 og 1896 og veturinn 1907—1908.
Starfsferill
Skipaður 1882 skólastjóri við gagnfræðaskólann í Flensborg í Hafnarfirði, jafnframt forstöðumaður kennaradeildar skólans frá stofnun hennar 1892—1908. Skipaður fræðslumálastjóri 1908 og gegndi því embætti til æviloka.
Ritari stiftamtmanns og landfógeta 1865—1867. Sýslumaður í Dalasýslu 1867—1877, sat fyrst á Staðarfelli, en frá 1872 í Innri-Fagradal. Jafnframt settur sýslumaður í Barðastrandarsýslu 1870—1871. Sýslumaður í Húnavatnssýslu 1877—1894, sat á Kornsá. Skipaður 26. febrúar 1894 amtmaður í norður- og austuramtinu frá 1. júlí að telja, andaðist þá um vorið.
Kennari hjá Blixen-Finecke barón í Danmörku tvö til þrjú ár. Settur sýslumaður í Árnessýslu 1866—1868, sat á Eyrarbakka. Sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1868—1874, sat á Húsavík. Bæjarfógeti í Reykjavík og jafnframt sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1874—1878. Dómsmálaritari og 2. yfirdómari í landsyfirrétti 1878—1886, 1. yfirdómari 1886—1889, háyfirdómari 1889—1908. Bankastjóri Landsbankans frá stofnun hans 1. júlí 1886 til 1. maí 1893.
Stundakennari í kristnum fræðum við Lærða skólann í Reykjavík veturinn 1873—1874. Biskupsritari 1874—1877. Fékk Valþjófsstað 1877, leystur frá embætti 28. júní 1883 vegna þess að hann tók upp breytingar í kirkjusiðum. Prófastur í Norður-Múlaprófastsdæmi 1878—1883. Prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reyðarfirði 1885—1899, sat á Grund í Eskifirði 1884—1888, síðan á Kollaleiru. Prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík 1899—1903. Settur kennari við Lærða skólann 1904. Eftir að hann kom til Reykjavíkur stýrði hann, lengstum með öðrum, Aldarprentsmiðju, en seldi prentverkið 1907.
Vann frá 1863 í hinni íslensku stjórnardeild í Kaupmannahöfn, varð 8. maí 1865 aðstoðarmaður þar. Annar yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirrétti 1870—1877, 1. yfirdómari 1877—1886. Jafnframt settur amtmaður í suður- og vesturamtinu frá 1. maí 1883 til 10. apríl 1886. Skipaður 10. apríl 1886 landshöfðingi, lausn 27. janúar 1904 frá 1. febrúar að telja. Bjó síðan embættislaus í Reykjavík til æviloka.
Skrifari hjá föður sínum 1870—1884. Bóndi á Frostastöðum í Blönduhlíð 1885—1887 og á Álfgeirsvöllum í Efribyggð 1887—1920. Fluttist þá til Reykjavíkur og varð aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu til æviloka. Umboðsmaður Reynistaðarklaustursjarða 1888—1920. Settur sýslumaður í Skagafjarðarsýslu nokkrum sinnum um lengri eða skemmri tíma.
Kennari og skrifari hjá Bjarna Thorarensen amtmanni á Möðruvöllum 1834—1837 og jafnframt djákn Möðruvallaklausturs síðustu 14 mánuði sína þar. Var sumarið 1841 með Jóni Sigurðssyni í Svíþjóð til uppskrifta á íslenskum handritum. Dvaldist hjá Árna Helgasyni biskupi í Görðum veturinn 1842—1843. Fékk Reynivelli í Kjós 1843, Holt undir Eyjafjöllum 1846, en fór þangað ekki, Stafholt 1847. Dómkirkjuprestur í Reykjavík 1854—1871. Prestur á Melstað frá 1871 til æviloka. Prófastur í Mýraprófastsdæmi 1851—1854, í Kjalarnesprófastsdæmi 1856—1871 og í Húnavatnsprófastsdæmi frá 1872 til æviloka.
Var fulltrúi hjá yfirréttarmálaflutningsmanni í Kaupmannahöfn 1884—1885. Hlaut 1885 styrk úr landssjóði til rannsókna á íslenskum lögum og vann að þeim í Reykjavík og Kaupmannahöfn 1885—1886. Sýslumaður í Dalasýslu 1886—1887, sat að Staðarfelli. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1887—1890. Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1890—1894, sat fyrst í Odda, en síðan í Árbæ í Holtum. Skipaður frá 12. september 1894 amtmaður í norður- og austuramtinu, fluttist þá til Akureyrar, lausn með biðlaunum 1. ágúst 1904, er amtmannsembættin voru lögð niður. Varð þá bankastjóri við Íslandsbanka og fluttist til Reykjavíkur.
Stundaði heimanám hjá föður sínum og nám einn vetur hjá Sigurði Gunnarssyni alþingismanni í Vallanesi.
Starfsferill
Vinnumaður hjá mágum sínum Siggeiri Pálssyni og Birni Péturssyni alþingismönnum 1848—1853, síðan lausamaður. Varð vorið 1855 ráðsmaður á Hallfreðarstöðum hjá Þórunni Pálsdóttur, sem þá var ekkja. Bóndi þar 1856—1862, að Höfða á Völlum 1862—1864, á Eyjólfsstöðum 1864—1866, aftur á Hallfreðarstöðum 1866—1892 og loks í Nesi í Loðmundarfirði 1892—1900. Fluttist þá ásamt Ragnhildi konu sinni að Sigurðarstöðum á Sléttu til Guðrúnar, systur hennar, síðar að Presthólum til séra Halldórs Björnssonar, bróður Ragnhildar, en vorið 1905 til Reykjavíkur.
Vígður 1873 aðstoðarprestur föður síns á Melstað. Prestur í Hestþingum 1875—1876. Gerðist aftur aðstoðarprestur föður síns. Fékk Stað í Hrútafirði 1877, Prestsbakka 1880 (ásamt Stað). Prestur í Vatnsfirði 1900—1928. Prófastur í Strandaprófastsdæmi 1883—1900. Prófastur í Norður-Ísafjarðarsýslu 1906—1927.
Fluttist 1846 til föðurbróður síns, séra Jóns Sigurðssonar á Breiðabólstað í Vesturhópi, og ólst upp hjá honum. Bóndi á Auðunarstöðum 1865—1868, í Dæli frá 1868 til æviloka.
Var í Lærða skólanum 1850—1852, fór utan til lækninga við málleysi 1853, las síðan utan skóla. Stúdentspróf Lsk. 1858. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1860.
Starfsferill
Vígðist 1861 aðstoðarprestur til föður síns að Prestsbakka. Fékk Meðallandsþing 1862, sat í Langholti, Kálfafell í Fljótshverfi 1863, Mosfell í Mosfellssveit 1865, en tók ekki við því. Lét þá af prestskap í bili og lagði sig eftir málleysingjakennslu, skipaður 1867 heyrnar- og málleysingjakennari og hélt uppi skóla til æviloka. Fékk Kálfafell að nýju 1866, fékk leyfi 1867 til að búa á Prestsbakka og gegna nauðsynlegri prestsþjónustu í Kirkjubæjarprestakalli fyrir prestinn þar, fluttist þangað á fardögum 1868. Prestur þar til 1877, á Stafafelli 1877—1881, en fékk þá Hallormsstað og Þingmúla og hélt til æviloka, sat í Þingmúla.
Stúdentspróf Bessastöðum 1827. Guðfræðipróf Hafnarháskóla 1834, lic. theol. 1840, dr. theol. 1844, prófessor að nafnbót 1849.
Starfsferill
Barnakennari Geitaskarði 1827—1828. Dvaldist hjá foreldrum sínum og á Flugumýri við kennslustörf 1834—1837. Veittur Breiðabólstaður á Skógarströnd 1836, en tók aldrei við því kalli. Fékk Helgafell 1837 og Staðarstað sama ár. Skipaður 1838 prófastur í Snæfellsnesprófastsdæmi. Dvaldist í Kaupmannahöfn 1839—1840 og 1843—1844. Skipaður 1847 forstöðumaður (lektor) Prestaskólans í Reykjavík. Settur jafnframt dómkirkjuprestur í Reykjavík frá júní til nóvember 1854, gegndi jafnframt biskupsstörfum nálega árlangt 1855—1856. Skipaður 1866 biskup yfir Íslandi, lausn 16. apríl 1889.
Bóndi á Löndum í Vestmannaeyjum, jafnframt póstafgreiðslumaður þar og kirkjuorganleikari. Fór 1904 vestur um haf og dvaldist í Selkirk í Manitoba til 1915. Kom þá aftur heim, gerðist póstafgreiðslumaður í Vestmannaeyjum að nýju og stundaði það starf til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1873. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1876. Framhaldsnám í guðfræði við Hafnarháskóla 1877—1878.
Starfsferill
Kennari við barnaskólann í Reykjavík 1873—1876 og 1878—1880. Prestur í Flatey á Breiðafirði 1880—1921. Prófastur í Barðastrandarprófastsdæmi 1881—1902. Póstafgreiðslumaður í Flatey 1914—1921.
Ólst upp í Kaupmannahöfn hjá Jóni Sigurðssyni móðurbróður sínum. Stúdentspróf Borgerdydskolen í Kaupmannahöfn 1869. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1875.
Starfsferill
Starfaði 1875—1878 í lögregluliði Kaupmannahafnar og því næst rentukammeri. Skipaður 1878 sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu og gegndi því embætti til æviloka, sat í Stykkishólmi.
Kenndi piltum undir skóla í Hjálmholti hjá Páli bróður sínum veturinn 1845—1846. Settur 1846 kennari (adjunkt) við Lærða skólann í Reykjavík. Skipaður 1847 fyrri kennari við Prestaskólann. Forstöðumaður hans (lektor) 1866—1885.
Bóndi á Miðgrund undir Eyjafjöllum 1859—1864, á Fitjarmýri 1864—1885, á Berghyl í Hrunamannahreppi 1885—1903, í Austurey í Laugardal frá 1903 til æviloka.
Verslunarmaður á Skagaströnd og Hofsósi. Verslunarstjóri á Siglufirði frá 1864 til æviloka. Var brautryðjandi um síldveiðar í nót og niðursuðu matvæla ásamt Einari B. Guðmundssyni mági sínum.
Starfaði í skrifstofu land- og bæjarfógeta 1867—1868. Settur 1868 sýslumaður í Borgarfjarðarsýslu, 1869 jafnframt sýslumaður í Mýra- og Hnappadalssýslu. Skipaður 1871 sýslumaður í Mýrasýslu eftir að þessar sýslur voru aðskildar, veitt Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 1871 eftir að þær voru sameinaðar, sat í Hjarðarholti í Stafholtstungum. Skipaður 1878 bæjarfógeti í Reykjavík. Skipaður 1886 amtmaður í suður- og vesturamtinu og gegndi því embætti til æviloka. Gæslustjóri við Söfnunarsjóð Íslands um skeið.
Stúdentspróf Lsk. 1881. Las lögfræði við Hafnarháskóla en hætti námi vegna veikinda.
Starfsferill
Ritstjóri í Reykjavík 1886—1891. Bóndi í Stóradal 1894—1895, á Syðri-Löngumýri 1895—1896 og Sólheimum 1896—1900. Skipaður póstafgreiðslumaður í Reykjavík 1900. Póstmeistari þar 1920—1928.
Var við verslunarstörf í Svendborg á Fjóni um hríð, síðan á Vatneyri við Patreksfjörð. Kaupmaður á Ísafirði frá 1870 til æviloka og rak þar jafnframt brauðgerð.
Bóndi í Núpakoti undir Eyjafjöllum 1863—1886, í Svaðbæli 1886—1905, vann þar mjög að jarðabótum, hýsti stórmannlega og nefndi býlið Þorvaldseyri. Dvaldist í Reykjavík 1905—1909 og átti þá talsverðan þátt í togaraútgerð. Fluttist síðan aftur að Núpakoti og var þar til æviloka.
Vígður 1849 aðstoðarprestur til föður síns. Fékk Vatnsfjörð 1854 og lagði þá jafnframt stund á lækningar. Fékk Garða á Álftanesi 1868 og hélt til æviloka. Prófastur í Norður-Ísafjarðarprófastsdæmi 1865—1868. Prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi frá 1872 til æviloka.
Fór fjögurra ára gamall í fóstur til móðurbróður síns, Erlends Þórðarsonar bónda í Kálfholtshjáleigu. Vinnumaður 1859—1868. Bóndi á Hala í Holtum 1869—1913 og dvaldist þar síðan til æviloka. Formaður í 30 ár fyrir Háfssandi og Loftsstaðasandi.
Stundaði fyrst kennslu og var skrifari hjá Þórði Björnssyni sýslumanni í Garði í Aðaldal. Vann um tíma í fjármálastjórn Dana í Kaupmannahöfn. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu 1834—1837. Dómari í landsyfirrétti 1837—1877, háyfirdómari frá 1856. Settur sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu frá 3. mars 1840 til 31. júlí, að nýju frá 19. september 1850 fram á sumar 1853, gegndi þar og dómarastörfum 1855—1856. Settur amtmaður í norður- og austuramtinu 1849—1850. Settur landfógeti frá marsmánuði 1852 fram á sumar. Settur stiftamtmaður frá 1. mars 1855 til 26. júní, að nýju frá nóvember 1859 til 15. júní 1860 og enn frá 2. ágúst 1860 til 8. maí 1865. Stundakennari við Lærða skólann í Reykjavík 1847—1852.
Bóndi í Hvítanesi og á Borg í Skötufirði um langt skeið, í Hattardal meiri í Álftafirði og loks á Skarðseyri í Skötufirði, sem ýmsir hafa síðan kallað Þórðareyri. Fluttist 1893 til Vesturheims, settist að í Manitoba, og átti þar heima til æviloka.
Stúdentspróf FSu 1998. BA-próf í heimspeki HÍ 2004. Nám í þýsku við Freie Universität Berlin 2004-2005. Nám í heimspeki við Humboldt-Unversität zu Berlin 2005-2006. MA-próf í stjórnmálafræði University of Sussex 2007.
Starfsferill
Starfsmaður á geðdeildum Landspítala 2002-2004. Blaðamaður á 24 stundum 2007-2008. Verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun HÍ 2009. Upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 2009-2010. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2010. Nefndarritari hjá stjórnlagaráði 2011. Aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra 2011-2013. Ýmis verkefni fyrir landsnefnd UNICEF á Íslandi 2015-2016.
Stúdentspróf VÍ 2003. BA-próf í lögfræði HÍ 2007. Mag. jur.-próf í lögfræði HÍ 2009. LLM-próf í mannréttindum frá Kaþólska háskólanum í Leuven 2013.
Starfsferill
Fulltrúi á LEX lögmannsstofu 2009–2011. Lögfræðingur á Barnaverndarstofu 2011. Lögfræðingur í innanríkisráðuneyti 2011–2012. Lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi 2014–2020. Sjálfstætt starfandi lögmaður 2021.
Stúdentspróf MR 2010. BA-próf í sagnfræði frá HÍ 2014. Nám í heimspeki við Háskólann í Varsjá (Uniwersytyet Warszawski) 2012. Nám í farsí við Háskólann í Teheran 2012.
Starfsferill
Ýmis verslunar- og þjónustustörf 2004-2011. Starfsnám á skrifstofu þingmanns á Evrópuþingi 2013. Verktaki hjá The Tactical Tech 2014 og 2015. Verkefnastjóri Evrópumála hjá The Democratic Society 2015.
Stúdentspróf FÁ 1996. BS-próf í tölvunarfræði HÍ 2008. MA-próf í tölvunarfræði frá Brandeis University 2010.
Starfsferill
Starfsmaður í leikskólunum Staðarborg og Jörfa 1996-1999. Kerfisstjóri hjá LÍN 1999-2000. Starfsmaður við hugbúnaðarþjónustu hjá Hugviti hf. 2000-2003. Kennsla við Foldaskóla 2003-2005. Gæðaeftirlit hjá CCP 2006-2008. Hugbúnaðarsérfræðingur hjá Meniga 2013-2014. Hugbúnaðarsérfræðingur hjá Námsmatsstofnun, síðar Menntamálastofnun, 2014-2016.
Stúdentspróf MA 1990. Kennsluréttindi fyrir framhaldsskóla frá HA 2000. MA-próf í sagnfræði og þýsku frá Georg-August-Universität í Göttingen, Þýskalandi, 1997.
Starfsferill
Kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 1998-1999. Kennari við VMA 1999-2010. Ritstóri Súlna, tímarits Sögufélags Eyfirðinga, 2000-2002. Kennari við MA 2010-2016.
Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 2010. B.Sc.-próf. í viðskiptafræði frá HÍ 2013. Framhaldsnám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2014-2015. Stundar framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Starfsferill
Viðskiptafræðingur hjá Fjárvakri 2012-2015. Skipuleggjandi ferða hjá Iceland Travel 2015-2016. Viðskiptafræðingur hjá KPMG 2016.
Stúdentspróf MK 1989. BS-próf í tölvunarfræði og efnafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1994. Diplóma í þróunarfræði HÍ 2017.
Starfsferill
Forritari í hlutastarfi hjá Axel – hugbúnaði 1984–1991. Forritari hjá Rank Xerox 1993–1994. Forritari hjá Taugagreiningu 1994–1996. Verkefnastjóri hjá Medtronic 1996–1998. Yfirverkefnastjóri hjá Microsoft 1998–2001. Tæknilegur ráðgjafi hjá IMG Capacent 2001–2002. Framkvæmdastjóri Griðlands ehf. 2002–2003. Stundakennari við HR 2001–2004. Sölu- og markaðsstjóri hjá Microsoft á Íslandi 2003–2007. Ráðgjafi ríkisstjórna og alþjóðastofnana í stafrænni umbyltingu hjá Microsoft 2007–2010. Yfirmaður neyðarmála hjá NetHope 2010–2015. Tæknistjóri hjá Beringer Finance 2015–2018. Ráðgjafi hjá NetHope 2019. Tæknistjóri hjá One Acre Fund 2019–2021. Leiðbeinandi hjá Icelandic Startups í ýmsum viðskiptahröðlum 2014–. Leiðbeinandi í viðskiptahraðlinum Snjallræði 2019–. Leiðbeinandi og ráðgjafi hjá viðskiptahraðlinum Antler í Austur-Afríku 2019–. Hefur einnig kennt og haldið fyrirlestra víða um heim.
Háskólanám við The Open University of Hong Kong 2001–2003, háskólanám við Open University of the UK 2003–2005, B.Sc.-gráða (Hons) frá The Open University – Social Sciences 2005.
Starfsferill
Blaðamaður Tölvuheims 1996–2000. Dagskrárgerðarmaður hjá Dægurmálaútvarpi Rásar 2 1996–1997. Greinaskrif fyrir útgáfufyrirtækið Fróða 1999–2005. Greinaskrif fyrir The Scandinavian Newsletter í Peking 2002–2003. Borgarleikhúsið – styrkur til áframhaldandi þróunar á leikriti 2006. Blaðamaður Reykjavík Grapevine 2006. Þýðingar fyrir erlend fyrirtæki 2007. Greinaskrif fyrir Morgunblaðið og Frjálsa verslun 2007. Fréttamaður RÚV 2008–2016.
Stundaði nám í fatahönnun og ítölsku við Scuola Lorenzo de' Medici í Flórens á Ítalíu 2002. Stundaði nám í fatahönnun við Listaháskóla Íslands 2003.
Starfsferill
Starfaði við skipulagningu og sölu ferða hjá Íslenskum ferðamarkaði 2006-2007. Rekstrarstjóri/deildarstjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Íslenskum ferðamarkaði 2007–2012. Ferðahönnuður hjá Iceland Encounter 2016.
Kerfisstjóri hjá RÚV 1999-2000. Forritari hjá Veflausnum Símans, síðar Íslensku vefstofunni, 2000-2001. Kerfisstjóri og forritari hjá Símanum 2001-2006. Forritari hjá Citrus Oy, Helsinki, 2006-2007. Forritari hjá Skýrr 2007-2009. Forritari hjá Modern Earth Web Design, Winnipeg, 2009-2012. Kerfisstjóri og forritari hjá GreenQloud (Tölvuský) 2012-2013. Eigandi og framkvæmdastjóri Fossbúans ehf. síðan 2017.
Stúdentspróf FÍV 2004. Stundaði nám í stærðfræði við HÍ 2005-2007.
Starfsferill
Ýmis fiskvinnslustörf samhliða grunnskólanámi. Forritari hjá SALT Systems 2000-2001. Forritari hjá Þjóðskjalasafni Íslands 2001-2002. Verkefnastjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar 2004-2007. Verkefnastjóri hjá Fab Lab, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, 2008-2009. Forritari hjá 1984 ehf. 2010-2012. Framkvæmdastjóri IMMI, alþjóðlegrar stofnunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, 2010-2013. Yfirráðgjafi (principal consultant) hjá Thoughtworks 2013-2014. Tæknistjóri (chief technology officer) hjá Organized Crime and Corruption Reporting Project 2014-2016.
Stúdentspróf FB 2007. LL.B-próf (alþjóða- og Evrópulög) frá Háskólanum í Groningen, Hollandi, 2012. LL.M-próf (mannréttindi og alþjóðlegur refsiréttur) frá Háskólanum í Utrecht, Hollandi, 2013.
Starfsferill
Starfsnemi hjá Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum fyrir fyrrum Júgóslavíu 2014. Rannsóknarblaðamaður fyrir Kvennablaðið 2014-2016. Fræðiskrif fyrir Snarrótina, samtök um borgaraleg réttindi, 2015-2016. Fræðiskrif fyrir landssamtökin Geðhjálp frá 2016.
Nam seglasaum í Björgvin 1885—1886 og sjómannafræði í Mandal í Noregi 1890—1891, lauk þar stýrimannaprófi.
Starfsferill
Skipstjóri á þilskipum 1886—1898. Kaupmaður og útgerðarmaður í Hafnarfirði 1899—1932, rak einnig seglasaumastofu í Hafnarfirði. Stofnandi sameignarfélagsins Dvergs og stjórnarformaður í 19 ár. Fluttist til Kaupmannahafnar 1931.
Barnakennari í Stykkishólmi veturinn 1873—1874. Fékk Hjaltastað 1874, Dvergastein 1884, lausn 1925. Fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka.
Stundaði kennslu og skriftir í Reykjavík veturinn 1876—1877. Fékk 1879 Fell í Sléttuhlíð, Miklabæ í Blönduhlíð 1885, Kirkjubæ í Hróarstungu 1888, Desjarmýri 1909, en fluttist þangað 1910, og Hof í Vopnafirði 1912, lausn 1929 og fluttist þá til Reykjavíkur. Amtsráðsmaður í austuramtinu fyrir Norður-Múlasýslu 1892—1900. Prófastur í Norður-Múlaprófastsdæmi 1894—1929.
Settur sýslumaður í Dalasýslu 1886, sat að Staðarfelli. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1887. Sinnti síðan lögfræðistörfum um hríð. Landshöfðingjaritari frá 1889 og jafnframt að nýju málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1890—1893. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1896—1904. Skipaður 31. janúar 1904 ráðherra Íslands frá 1. febrúar að telja, lausn 31. mars 1909. Bankastjóri við Íslandsbanka 1909—1912. Skipaður 24. júlí 1912 ráðherra Íslands að nýju frá 25. júlí, lausn 21. júlí 1914. Varð aftur bankastjóri við Íslandsbanka 1914 og gegndi því starfi til 1917, er hann varð að láta af því vegna vanheilsu.
Barnakennari á Eyrarbakka veturinn 1872—1873. Vígður 1873 aðstoðarprestur föður síns. Fékk Þingvelli 1879, Útskála 1886 og Garða á Álftanesi 1895, hélt þá til æviloka. Prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi frá 1900 til æviloka. Sýslunefndarmaður í Árnessýslu 1884—1886, í Gullbringusýslu 1887—1896 og 1899—1912. Kosinn í útgáfunefnd handbókar þjóðkirkjunnar 1897.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf Lsk. 1889. Hóf haustið 1889 nám í læknisfræði við Hafnarháskóla en hvarf frá því 1891 og tók að stunda sagnfræði, lauk ekki námi. Heiðursdoktor við Háskóla Íslands 25. október 1919.
Starfsferill
Dvaldist í Kaupmannahöfn til 1897 við rannsóknir á íslenskri sögu 18. aldar, vann þá einnig að uppskrift skjala í ríkisskjalasafni Dana, kennari tvo vetur í Vallekilde. Stundaði kennslustörf, flutti alþýðufyrirlestra o. fl. í Reykjavík 1897—1906. Bókavörður við Landsbókasafnið 1906—1911. Sögukennari við Háskóla Íslands frá stofnun hans 1911, dósent til 1919, síðan prófessor.
Nám í búnaðarháskólanum í Stend í Noregi 1877—1879 og lokapróf þaðan. Verklegt búnaðarnám í Danmörku 1879—1880. Nám í búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn veturinn 1885—1886 og lokapróf þaðan (cand. agr.). Námsför til Noregs og Danmerkur með styrk úr landssjóði (m. a. á búnaðarsýningu í Björgvin) 1898 og námsför með opinberum styrk til Norðurlanda allra 1902—1903 til að kynna sér kennslu í búnaðarskólum.
Starfsferill
Búnaðarráðunautur í Skagafjarðarsýslu sumarið 1881. Skólastjóri Búnaðarskólans á Hólum í Hjaltadal frá stofnun hans 1882—1888 og 1896—1902, kennari 1902—1934, settur skólastjóri 1906—1907. Bóndi á Bjarnastöðum í Kolbeinsdal 1888—1892, á Ásgeirsbrekku 1892—1896, á Vatnsleysu 1902—1922 og 1934— 1940, en á Hólum var heimili hans 1922—1934. Fluttist til Reykjavíkur 1941 og átti þar heima til æviloka.
Verslunarstörf í Haukadal 1882—1889 og á Flateyri 1889—1890, stundaði jafnframt kennslu. Stofnaði með öðrum í Haukadal fyrsta barnaskóla í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1885 og kenndi sjálfur við hann til 1889. Kaupmaður í Haukadal 1892—1897, verslunarstjóri þar 1897—1908, kaupmaður að nýju 1908—1914. Fluttist til Reykjavíkur 1914 og gerðist erindreki Fiskifélags Íslands. Ferðaðist í markaðsleit á vegum Fiskifélags og ríkisstjórnar um Bandaríkin 1917—1918 og 1918—1919, um Ítalíu og Spán 1919—1920. Gjaldkeri Landsverslunar 1920—1928. Forstöðumaður vöruskömmtunarskrifstofu ríkisstjórnarinnar 1920—1921. Starfsmaður hjá Olíuverslun Íslands 1928—1935. Fluttist þá til Borgarness.
Búfræðipróf Hólum 1890. Búnaðarnám í Danmörku og Noregi 1897—1899 með styrk frá Búnaðarfélagi suðuramtsins.
Starfsferill
Starfsmaður Búnaðarfélags Þingeyrarhrepps 1890—1891, en barnakennari þar að vetrinum. Vann hjá Búnaðarfélagi suðuramtsins 1892—1897, átti þá heima í Langholti. Ráðunautur Búnaðarfélags Íslands frá 1900 til æviloka, sat í Reykjavík.
Aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn 1894—1897. Sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1897—1920, sat á Húsavík. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri 1920—1934.
Stúdentspróf Lsk. 1883. Mag. art. Hafnarháskóla 1887. Dr. phil. þar 1889.
Starfsferill
Kennari (dósent) í íslenskri sögu og bókmenntum við Hafnarháskóla frá 1. apríl 1890. Prófessor í íslenskri sögu og bókmenntum frá 1920. Stofnandi Eimreiðarinnar og ritstjóri.
Bæjarstjóri á Siglufirði 1938—1942. Fluttist þá til Reykjavíkur og rak þar málaflutningsskrifstofu. Skipaður 21. október 1944 sjávarútvegsmálaráðherra, fór einnig með flugmál, lausn 10. október 1946, en gegndi störfum til 4. febrúar 1947.
Búfræðipróf Hvanneyri 1927. Nám við leikfimi- og lýðháskólann í Ollerup á Fjóni veturinn 1928—1929. Kennarapróf KÍ 1940.
Starfsferill
Ráðsmaður við skólabúið á Hvanneyri 1929—1932, jafnframt leikfimikennari við skólann þar. Bóndi á Reyðará 1932—1958. Hélt uppi unglingakennslu í Austur-Skaftafellssýslu veturna 1932—1934. Kennari í Nesjum 1934—1939 og 1940—1946. Fulltrúi við Búnaðarbankann í Reykjavík 1958—1973.
Stúdentspróf MR 1918. Las náttúrufræði við Hafnarháskóla 1918—1923 og lauk fyrrihlutaprófi. Las heimspeki við háskóla í Berlín 1923—1924.
Starfsferill
Stundakennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1926—1936 og Gagnfræðaskólann í Reykjavík 1928—1932. Ritstjóri í Reykjavík 1930—1935. Skipaður 21. október 1944 menntamálaráðherra, lausn 10. október 1946, en gegndi störfum til 4. febrúar 1947.
Tungumálanám í Reykjavík 1916—1917 hjá Alexander Jóhannessyni síðar prófessor og Boga Ólafssyni menntaskólakennara. Við verslunarnám og skrifstofustörf í Kaupmannahöfn 1918—1919.
Starfsferill
Kaupfélagsstjóri við Kaupfélagið Drífanda í Vestmannaeyjum 1920—1930 og Kaupfélag verkamanna 1931—1943. Framkvæmdastjóri Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis í Reykjavík 1943—1953. Forstjóri Kaupstefnunnar í Reykjavík frá 1955 til æviloka.
Stúdentspróf MR 1942. Nám í BA-deild Háskóla Íslands 1942—1943, nám í blaðamennsku 1943—1944 við American University í Washington og University of Minnesota í Minneapolis í Bandaríkjunum.
Starfsferill
Blaðamaður við Fálkann 1944—1946, við Þjóðviljann 1946—1952, jafnframt ritstjóri Landnemans 1947—1952. Sjómaður 1953—1954. Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1954—1957, við Flensborgarskólann í Hafnarfirði 1957—1958, 1960—1964 og 1981—1985 og við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar í Reykjavík 1958—1960. Kennari við Héraðsskólann í Reykholti 1964—1967, 1980 og 1985—1987.
Stúdentspróf MR 1915. Læknisfræðipróf HÍ 1921. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Noregi, Danmörku og Þýskalandi 1921—1923. Fór síðar námsferðir til Evrópulanda og Kína til þess að kynna sér heilsugæslu og heilsuvernd barna. Viðurkennd sérfræðingur í barnasjúkdómum 1927.
Starfsferill
Héraðslæknir í Flateyjarhéraði 1924—1926. Síðan starfandi læknir í Reykjavík og jafnframt læknir ungbarnaverndar og heilsuverndarstöðvar Líknar, síðar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur 1927—1940, yfirlæknir stöðvarinnar til 1955 og yfirlæknir barnadeildar 1955—1961. Staðgöngumaður yfirlæknis barnadeildarinnar í sumarleyfum frá 1962 til æviloka.
Gagnfræðapróf Flensborgarskóla 1920. Stúdentspróf MR 1922. Mag. art. í íslenskum fræðum HÍ 1928. Framhaldsnám í þýskum bókmenntum í Kiel, Berlín og Leipzig 1929—1931.
Starfsferill
Kennari við Alþýðuskólann á Hvítárbakka 1927—1929. Um skeið íslenskukennari við Kvennaskólann og Iðnskólann í Reykjavík. Bókavörður við Landsbókasafnið 1931—1932, starfaði síðan við ritstörf og bókaútgáfu til æviloka. Framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Heimskringlu frá stofnun hennar 1934 og bókmenntafélagsins Máls og menningar frá stofnun þess 1937—1971.
Kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928—1942. Stundakennari við Samvinnuskólann 1928—1930 og Gagnfræðaskólann í Reykjavík 1928—1933. Vann við ritstjórn og blaðamennsku jafnan eftir 1934.
Verkfræðingur við Reykjavíkurhöfn 1927, hjá vita- og hafnamálastjóra 1928— 1931. Rak eigin verkfræðiskrifstofu í Reykjavík 1931—1961, en var síðan til 1975 framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sf., er hann stofnaði ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum. Kennari við Iðnskólann í Reykjavík 1928—1929, Menntaskólann í Reykjavík 1929—1932 og Samvinnuskólann 1933—1934.
Vinnumaður á Gilsá og Æsustöðum í Eyjafirði til 1922. Daglaunamaður í Glerárþorpi 1922—1932, á Akureyri 1932—1949. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði þar leigubílaakstur til 1983. Fulltrúi í skrifstofu verðlagsstjóra 1957—1965.
Verslunarmaður í Reykjavík 1919—1920. Dvaldist erlendis 1920—1923. Settist að í Vestmannaeyjum í febr. 1924, hafði þar á hendi verkstjórn og starfaði auk þess við fiskmat og verslun. Vann hjá Sambandi íslenskra berklasjúklinga 1943—1974. Framkvæmdastjóri Vöruhappdrættis SÍBS frá stofnun þess 1949—1967.
Stundaði nám við lýðskólann í Hjarðarholti 1914—1916. Kennarapróf KÍ 1921.
Starfsferill
Kennari í Skarðshreppi í Dalasýslu 1917—1919, Saurbæjarhreppi 1921—1925, Miðdalahreppi 1926—1927 og Laxárdalshreppi 1927—1932. Námsstjóri í Dalasýslu 1931—1932. Kennari í Austurbæjarskólanum í Reykjavík 1932—1933. Stundaði síðan ritstörf í Reykjavík 1933—1940, í Hveragerði 1940—1959 og aftur í Reykjavík frá 1959 til æviloka.
Stúdentspróf MH 2000. B.Sc.-próf í félagsfræði HÍ 2005. Áttunda stigs próf á píanó frá Tónlistarskólanum á Ísafirði 2010. M.Sc.-próf í landfræði HÍ 2012.
Starfsferill
Ráðgjafi og verkefnastjóri í barnavernd og félagsmálum hjá Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar 2003-2005. Forstöðumaður Gamla apóteksins á Ísafirði 2004-2006. Leiðsögumaður um Jökulfirði og Hornstrandir í sumarleyfum frá 2004. Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfirðinga 2006-2008. Rannsakandi í ferðamálum hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands í Bolungarvík 2008-2010. Organisti í Dýrafirði, Önundarfirði, Súgandafirði og Arnarfirði í afleysingum 2008-2014. Verkefnastjóri og kennari hjá Háskólasetri Vestfjarða 2009-2015. Bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ 2010-2014, forseti bæjarstjórnar 2011 og 2013, fulltrúi í bæjarráði Ísafjarðarbæjar 2010-2014. Formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga 2010-2014. Verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Ísafirði 2012-2014. Verkefnastjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ 2014-2016. Framkvæmdastjóri EIMS 2016-2017.
Stúdentspróf MA 1981. Cand. med. (læknisfræði) HÍ 1988. Sérfræðiviðurkenning í svæfinga- og gjörgæslulækningum 1995. Dokorspróf í svæfinga- og gjörgæslulækningum frá Háskólanum í Lundi 1999. Meistaranám í stjórnun og lýðheilsu HR 2010. Sérfræðiviðurkenning í heilbrigðisstjórnun 2010. Diplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2018.<br>
Starfsferill
Kandídat og læknir í sérnámi, Borgarspítala og Landspítala 1988-1993. Læknir á þyrlu Landhelgisgæslunnar 1990-1992. Sérnám og sérfræðistörf við Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð 1993-2003. Yfirlæknir svæfingadeildar á Landspítala Fossvogi 2003-2006. Yfirlæknir gjörgæsludeildar á Landspítala Hringbraut 2006-2014. Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítala 2014-2018. Landlæknir 2018-2024. Heilbrigðisráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf frá Framhaldsskóla Vestfjarða, nú Menntaskóla Ísafjarðar, 1996. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 2000. MS-próf í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði HÍ 2024.
Starfsferill
Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða 2004-2007. Verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands 2007-2020. Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum 2020-2022. <br>Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar 2022-2024.
Stúdentspróf MR 1997. Lögfræðipróf HÍ 2003. BA-próf í hagfræði HÍ 2003. MPA New York University 2011.
Starfsferill
Stundaði ýmis störf sumrin 1998-2001, m.a. sem blaðamaður á Degi, hjá fjármálaráðuneytinu, ríkisskattstjóra og við nýsköpunarverkefni um reglur um persónuvernd í íslenskum og alþjóðlegum rétti fyrir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Ráðgjafi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York 2011-2012. Stundakennari í meistaranámi stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands 2012-2016. Efnahags- og atvinnuráðgjafi forsætisráðherra 2012-2013. Fjármála- og hagfræðiráðgjafi hjá Capacent ehf. 2014-2016. Aðalmaður í bankaráði Seðlabanka Íslands 2013-2017. Aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 2015-2017.
Stúdentspróf MH 1985. Lögfræðipróf HÍ 1991. Nám í Evrópurétti við Collège dEurope í Brugge í Belgíu 1991-1992. Hdl. 1997. Sumarnám í Evrópurétti við Harvard Law School / European University Institute í Flórens 1999.
Starfsferill
Stundakennsla við Menntaskólann við Hamrahlíð 1988-1992. Ráðgjafi utanríkisráðherra í Evrópumálum 1992-1994. Embættismaður á viðskiptaskrifstofu og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins 1994-1995. Sendiráðsritari í fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu og Vestur-Evrópusambandinu í Brussel og fulltrúi Íslands í stjórnmálanefnd Atlantshafsbandalagsins 1995-1998. Lögmaður með eigin rekstur og ráðgjafi 1998-2007. Stundakennari í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík 2004-2009. Félags- og tryggingamálaráðherra 10. maí 2009 til 2. september 2010, efnahags- og viðskiptaráðherra 2. september 2010 til 31. desember 2011.
Burtfararpróf í trompetleik frá Tónlistarskóla Árnesinga 2004. BA-próf í mennt og miðlun frá LHÍ 2007. Stundaði meistaranám í listkennslu í LHÍ 2009-2012. Meistarapróf í menningarstjórnun með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf frá Háskólanum á Bifröst 2021.
Starfsferill
Tónlistarkennari í Tónlistarskóla Árnesinga 2004-2014 og 2020-2022. Tónmenntakennari í Grunnskóla Þorlákshafnar 2010-2014 og 2020-2022. Tónleikahaldari og umboðsmaður tónlistarfólks 2013-2022. Markaðs- og verkefnastjóri í Gamla bíói 2014-2016. Stjórnandi Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts í afleysingum 2016-2017. Markaðs- og verkefnastjóri í Stúdíó Sýrlandi 2018-2019. Verkefnastjóri á menningarsviði Ölfuss 2019-2022. Stofnandi og framkvæmdastjóri Skjálftans, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi, 2021-2024. Verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu 2022-2024. <br><br>Í bæjarstjórn Ölfuss 2022-2025.
Þýskunámskeið í Lindau í Þýskalandi 1967. Stúdentspróf MR 1969. Nám í félagsvísindum og ensku HÍ 1969-1973. Námskeið fyrir fararstjóra erlendis 1979. Ýmis stjórnunarnámskeið hjá Háskóla Íslands, Endurmenntunarstofnun og Iðntæknistofnun 1987, 1990 og 1993-1994.
Starfsferill
Flugfreyja hjá Loftleiðum 1969-1972. Plötusnúður í Glaumbæ 1969-1971, auk þess í Tónabæ og Klúbbnum. Kennari við Gagnfræðaskólann á Hellu 1974-1976. Kennari við Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði 1976-1979. Starfsmaður barnaársnefndar menntamálaráðuneytisins á barnaári Sameinuðu þjóðanna 1979 og sá um útvarps- og sjónvarpsþætti um málefni barna það ár í tengslum við verkefni nefndarinnar. Dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 1971-1990, umsjón með dægurmála-, tónlistar- og fréttatengdum þáttum bæði í útvarpi og sjónvarpi. Dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni 1983. Fararstjóri fyrir Íslendinga erlendis 1980-1994. Deildarstjóri félagsmála- og upplýsingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins 1990-1995. Félags- og tryggingamálaráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí 2009.
Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Suðurlands 1993. BA-próf í sögu og heimspeki HÍ 1997.
Starfsferill
Blaðamaður á Vikublaðinu 1996-1997. Ritstjóri Stúdentablaðsins 1997-1998. Framkvæmdastjóri Reykvískrar útgáfu 1999. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og þingflokks Samfylkingarinnar 1999-2002. Kosningastjóri Samfylkingarinnar á Suðurlandi og í Árborg 1999 og 2002. Viðskiptaráðherra 24. maí 2007 til 1. febrúar 2009. Samstarfsráðherra Norðurlanda 10. júní 2008 til 1. febrúar 2009.
Stundaði skrifstofustörf í Reykjavík 1982-1987. Starfsmaður dómsmálaráðuneytis 1990-1992. Lögfræðingur hjá ASÍ 1992-1995. Stundakennari við Háskólann á Bifröst 2004-2005. Deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst 2005-2011. Rektor Háskólans á Bifröst 2011-2013. Starfsmannastjóri Landspítala 2013-2015. Ríkissáttasemjari síðan 2015.
Stúdentspróf MR 1992. Embættispróf í læknisfræði HÍ 1999. Meistarapróf í mannréttindum og alþjóðalögum frá Háskólanum í Lundi 2005.
Starfsferill
Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1994-1995. Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna 1995-1996. Dagskrárgerðarmaður og vísindafréttamaður á Ríkisútvarpinu, Rás 1, 1995-1998. <br><br>Aðstoðarlæknir á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi 2000-2001. Heilsugæslulæknir á Ísafirði 2001. Læknir á slysa- og bráðasviði og læknir á sýkladeild Landspítalans 2002-2004. <br><br>Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002. Formaður skipulagsráðs 2004-2006. Oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar 2006-2025. Borgarstjóri október 2007 - janúar 2008. Formaður borgarráðs 2010-2014. Borgarstjóri júní 2014 - 16. janúar 2024. Formaður borgarráðs 16. janúar 2024 - janúar 2025.
Útskrifuð úr hárgreiðsluiðn frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 1996. Sveinsbréf í hársnyrtiiðn 1997. Meistararéttindi í hársnyrtiiðn frá Verkmenntaskóla Austurlands 1999. Kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri 2006.
Starfsferill
Eigandi og rekstraraðili Hársnyrtistofu Eydísar á Eskifirði 1997-2007. Kennari við Verkmenntaskóla Austurlands 1999-2022. Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands 2022-2024.
Gagnfræðaskólapróf 1962. Vélvirkjapróf frá Iðnskóla Akraness 1968. Nám í sementsvélaviðhaldi hjá Ålborg Portland í Danmörku 1976-1977. Vélstjórapróf frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi 1982. Skipstjórnarréttindi (30 tn) 1989.
Starfsferill
Verkamaður hjá Sementsverksmiðju ríkisins 1963, vélvirkjanemi og vélvirki þar 1964-1976. Vélvirki hjá Ålborg Portland í Danmörku 1977-1978. Yfirverkstjóri hjá Sementsverksmiðju ríkisins 1979-1992, við tölvustýrt vélaviðhald þar 1992-1993.
sveitarstjórnsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Kennarapróf KÍ 1971. Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978. Framhaldsnám í skólastjórn KHÍ 1992-1995. Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London) 2005.
Starfsferill
Vann á sumrum samhliða námi í Búrfellsvirkjun og Sementsverksmiðju Akraness. Kennari við Grunnskóla Akraness 1971-1973. Erindreki Bandalags íslenskra skáta 1973-1975. Kennari við Peder Lykke Skolen á Amager í Kaupmannahöfn 1978-1979. Kennari við Grunnskóla Akraness 1979-1981. Skólastjóri Grundaskóla Akranesi 1981-2007. Í bæjarstjórn Akraness 1986-1998. Í bæjarráði 1986-1998, formaður þess 1986-1989 og 1995-1997. Forseti bæjarstjórnar 1988-1989, 1994-1995 og 1997-1998. Félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra 2. september 2010 til 31. desember 2010. Velferðarráðherra 1. janúar 2011, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Stúdentspróf MA 1975. Próf í félagsráðgjöf frá Sosialhögskolen í Stafangri í Noregi 1979. Vélavarðanám við Framhaldsskóla Vestfjarða 1991. Námskeið til 30 tonna skipstjórnarréttinda á Ísafirði 1992. Nám í stjórnunarfræðum frá University of South Florida í Tampa 1992-1993. MPH í lýðheilsufræði frá Nordiska högskolan för folkhälsovetenskap í Gautaborg 2014.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann í Stykkishólmi 1975-1976. Forstöðumaður Dalbæjar, heimilis aldraðra, á Dalvík 1979-1982, Múlabæjar, þjónustumiðstöðvar aldraðra og öryrkja, í Reykjavík 1982-1989 og Hlíðabæjar, dagdeildar fyrir alzheimersjúklinga, í Reykjavík 1985-1989. Dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, hljóðvarpi í Reykjavík 1985-1988. Fréttamaður og dagskrárgerðarmaður (hlutastarf) hjá RÚV, hljóðvarpi á Ísafirði 1989-1992. Félagsmálastjóri Ísafjarðarbæjar 1989-1991. Rækjusjómaður og trillukarl á Ísafirði 1991-1992. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ 1993-2001, sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi frá 2001 og sameinaðrar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands 2010-2016.
Stúdentspróf MS 1978. BA-próf í íslensku HÍ 1983. Framhaldsnám í íslensku við HÍ 1983-1987.
Starfsferill
Rithöfundur. Ritstjóri hjá Máli og menningu og seinna Eddu 1987-2004 og hjá Forlaginu 2008-2017. Pistlagerð frá árinu 1988 fyrir Þjóðviljann, Pressuna, Alþýðublaðið, Ríkisútvarpið, Bylgjuna, DV, Dag-Tímann og Fréttablaðið. Höfundur skáldsagna, æviminninga og þýðinga. Ritstjóri Tímarits Máls og menningar (1987-1989 og 2008-2017).
Verkamannastörf 2005-2008. Félagsmiðstöðvarstarfsmaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2008-2017. Forstöðumaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2017-2020. Stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ 2014 og 2021. Framkvæmdastjóri LifeQuest ehf. 2020-2022. Verkefnastjórnun fyrir Knattspyrnusamband Íslands 2022. Sérfræðingur í Evrópuáætlunum fyrir ungt fólk hjá Rannís 2022-2024.
Stúdentspróf Flensborgarskóla 1975. Nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1978-1980.
Starfsferill
Blaðamaður við Alþýðublaðið 1975-1976. Lögreglumaður í Reykjavík 1976-1979. Blaðamaður við Helgarpóstinn 1979-1981. Ritstjórnarfulltrúi við Alþýðublaðið 1981-1982. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1982-1985. Þáttagerð í útvarpi 1975-1986. Fjölmiðlaráðgjöf og lausamennska við dagblöð og ljósvakamiðla 1985-1986. Ritstjóri blaðs fangahjálparinnar Verndar 1980-1986. Bæjarstjóri í Hafnarfirði 1986-1993. Skipaður 14. júní 1993 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 23. júní 1994. Skipaður félagsmálaráðherra 23. júní 1994, lausn 11. nóvember 1994.
Lauk námi í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Roskilde Universitetscenter 1983, framhaldsnám við sama skóla í fjölmiðlafræði 1983-1985, cand. comm.-próf 1985.
Starfsferill
Vann ýmis störf áður en nám hófst, m.a. á dagskrárdeild Ríkisútvarpsins, var sviðsmaður í Þjóðleikhúsinu, uppeldisfulltrúi við sérdeildir Hlíðaskóla og starfaði á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Starfsmaður SÍNE 1985-1988, verkefnisstjóri hjá LÍN, handleiðsla hjá Styrktarfélagi vangefinna, framkvæmdastjóri námskeiða fyrir aðstandendur fatlaðra barna og félagsmálafulltrúi hjá Sjálfsbjörgu. Yfirfélagsráðgjafi á kvennadeild Landspítala 1988-1994 og stundakennari við læknadeild og félagsvísindadeild HÍ. Deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu 1998-1999.
Stúdentspróf MH 1982. Lokapróf í vélaverkfræði HÍ 1988.
Starfsferill
Deildarstjóri við Iðnskólann í Reykjavík 1988-1990. Ráðgjafi hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni 1990-1992. Fræðslustjóri Bifreiðaskoðunar 1992-1994. Framkvæmdastjóri Aðalskoðunar hf. 1994-2006 og í stjórn Sýnis skoðunarstofu 1998-2006.
Stundaði nám við MH 1988-1994. Leikkona frá Leiklistarskóla Íslands 1998. BA-próf í lögfræði HR 2009. Meistarapróf í lögfræði HR 2011. Hdl. 2011.
Starfsferill
Leikkona og leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1999. Leikkona hjá New Perspective Theatre Company 2000. Dagskrárgerðarkona á Bylgjunni 2000–2002. Upplýsingafulltrúi hjá Eddu, miðlun og útgáfu, 2001–2002. Dagskrárgerðarkona á Ríkisútvarpinu 2002–2005 og á Talstöðinni og NFS 2005–2006. Rekstrarstjóri á Kaffi Edinborg sumarið 2007. Blaðakona á Mannlífi 2008. Í stjórn Íslandspósts 2008–2010. Löglærður fulltrúi á Lögron, Lögfræðistofu Reykjavíkur og nágrennis, 2009-2011. Rak eigin lögmannsstofu, Valva lögmenn, 2011–2017. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2012-2013. Varaformaður Þjóðleikhúsráðs 2012–2014. Í stjórn Dansmenntar ehf. frá 2013. Í höfundaréttarráði frá 2014. Athafnastjóri hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista, frá 2016.
Stúdentspróf MR 2012. BA-próf í heimspeki með lögfræði sem aukagrein HÍ 2015. MS-próf í sagnfræði frá Edinborgarháskóla 2017. MS-próf í evrópskri stjórnmálahagfræði frá London School of Economics and Political Science 2020.
Starfsferill
Blaðamaður á DV 2012–2015. Blaðamaður á Stundinni 2015–2019. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra síðan 21. desember 2024.
Vann í sumarbúðum KFUM og KFUK á mennta- og háskólaárum og einnig við verslunarstörf á sumrin og með námi. Kennari við Hallormsstaðaskóla 1982-2001. Kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum 2001-2009.
Kennari við Barnaskólann í Ólafsvík 1974-1975, Laugargerðisskóla í Eyjahreppi 1976-1977 og Grunnskóla Eyrarsveitar 1979-1981. Sjómennska á netabátum og togurum. Gerði út handfærabát frá Hellnum undir Jökli. Sóknarprestur Staðarprestakalls í Súgandafirði 1987-1989, Ísafjarðarprestakalls 1989-1991, Tálknafjarðarprestakalls 1991-1995 og Setbergsprestakalls 1995-2003.
Stúdent MK 1994. Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995-1999. Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá EHÍ 2001.
Starfsferill
Innkaupastjóri hjá G. Einarsson & co. ehf. 1994-1998, framkvæmdastjóri þar 1999-2000. Framkvæmdastjóri stúdentaráðs HÍ 1998-1999. Verkefnastjóri og ráðgjafi hjá ráðgjafar- og hugbúnaðarhúsinu Innn hf. 2000-2003. Iðnaðarráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Í fæðingarorlofi 24. febrúar til 1. september 2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 1. október 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Próf frá Iðnskóla Siglufjarðar 1971. Kennarapróf frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1976. Ýmis námskeið á sviði félags- og íþróttamála í Noregi og Svíþjóð 1977-1982.
Starfsferill
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1970-1974. Íþróttakennari í Bolungarvík 1976-1978. Íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1978-1988. Verslunarstjóri í Rafbæ Siglufirði 1988-1990. Rak verslunina Siglósport 1990-1999. Samgönguráðherra 24. maí 2007 til 10. maí 2009, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 10. maí 2009 til 2. september 2010.
Rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 2001, sveinsbréf í rafeindavirkjun 2002. Rafiðnfræðingur frá HR 2008. Rafeindavirkjameistari 2009. Rekstrariðnfræðingur frá HR 2010. Rafvirkjun frá Tækniskólanum 2021, sveinsbréf í rafvirkjun 2022. Lauk námi í sáttamiðlun hjá Consensus Mediation, samþykkt af Mediatiors' Institute of Ireland, 2022.
Starfsferill
Verkamaður hjá Friðþjófi hf. (síðar Samherji hf.) 1998. Rafeindavirki hjá Hátækni 2001-2002. Rafeindavirki hjá ISAL, Rio Tinto í Straumsvík, 2000-2001 og 2002-2011. Framkvæmdastjóri Rafiðnaðarsambands Íslands 2011-2024.
Stúdentspróf MR 2008. BS-próf í hagfræði HÍ 2011. MA-próf í hagfræði frá Boston-háskóla 2014. MA-próf í alþjóðafræði með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál frá Yale-háskóla 2016.
Starfsferill
Starf meðfram hagfræðinámi á skrifstofu seðlabankastjóra 2009–2010. Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011–2012. Blaðamaður á Viðskiptablaðinu 2013–2014. Hagfræðingur í vinnuhópi á vegum forsætisráðuneytis 2014. Sérfræðingur í greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum 2015–2017. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2017. Formaður verðlagsnefndar búvara í atvinnumálaráðuneyti 2017–2018. Aðjúnkt við hagfræðideild HÍ 2018–2020. Aðalhagfræðingur Kviku banka hf. 2018–2021. Forsætisráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf MA 1985. Próf í arkitektúr frá Arkitekthøgskolen í Ósló 1992.
Starfsferill
Arkitekt hjá H.J. teiknistofu 1992-1994, skipulagsdeild Akureyrarbæjar 1994-1996, Teiknistofunni Form 1996-1997, Úti og inni arkitektastofu 1997-2003, Arkitektúr.is arkitektastofu 2003-2004 og Kollgátu arkitektastofu 2003-2016. Stundakennari við HR 2010-2012. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra síðan 21. desember 2024. Samstarfsráðherra Norðurlanda síðan 23. desember 2024.
Íþróttafréttamaður hjá ríkissjónvarpinu 1997-1999. Framkvæmdastjóri hjá KR Sporti 1999-2000. Verkefnisstjóri hjá Símanum 2000-2003. Stofnandi og framkvæmdastjóri hjá Birtu vefauglýsingum 2003-2004. Stundakennari við viðskiptadeild HR 2004-2006. Sölu- og markaðsstjóri húðvara hjá Bláa lóninu 2006-2009.
Stúdentspróf frá aðfaranámi KHÍ 1977. B.Ed.-próf frá KHÍ 1980. Stærðfræðinám til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi HÍ 1991. MA-próf í uppeldis- og menntunarfræði HÍ 2001.
Starfsferill
Grunnskólakennari 1980-1985. Kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1985-1993, deildarstjóri stærðfræðideildar 1988-1990, sviðsstjóri stærðfræði- og raungreinasviðs 1990-1993. Kennari við Menntaskólann á Akureyri 1993-1994. Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1994-2003. Vann við skipulag og stjórnun vettvangsnáms á vegum Endurmenntunar HÍ fyrir starfandi stjórnendur í framhaldsskólum 2001-2002. Verkefnisstjóri í menntamálaráðuneytinu 2003-2004. Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 2005. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2006-2009. Fjármálaráðherra 31. desember 2011 til 1. september 2012. Fór jafnframt með iðnaðarráðuneytið 24. febrúar til 6. júlí 2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 1. september til 1. október 2012.
Stúdentspróf MH 2012. BS-próf í læknisfræði HÍ 2017. Kandídatspróf í læknisfræði HÍ 2022.
Starfsferill
Störf við rannsóknir í lyflækningum 2015-2018. Sumarstarf sem læknanemi á geðsviði Landspítala 2019, skurðsviði 2020 og lyflækningasviði 2021. Vaktir samhliða námi á Landspítala. Læknir í sérnámsgrunni á Landspítala, HSN Húsavík, Heilsugæslunni Garðabæ og HVE Akranesi 2022-2023. Læknir í sérnámi í skurðlækningum á Landspítala 2023-2024. Umsjónardeildarlæknir sérnámslækna maí - nóvember 2024. <br><br>Varaborgarfulltrúi 2018-2020 og borgarfulltrúi 2020-2022 (Samfylkingin). Varaborgarfulltrúi maí 2022 - janúar 2025.
Stúdentspróf MA 1981. Ýmis fjölmiðlanámskeið í Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum 1981-1986.
Starfsferill
Blaðamaður á Vísi 1981 og DV 1981-1983. Ritstjórnarfulltrúi á Helgarpóstinum 1983-1985. Þáttastjórnandi hjá Ríkissjónvarpinu 1985-1986. Fréttamaður og síðar varafréttastjóri á Stöð 2 1987-2001. Ritstjóri DV 2001-2003. Þáttastjórnandi á Skjá 1 2003-2004. Fréttaritstjóri á Fréttablaðinu 2004-2005. Fréttastjóri á Stöð 2 2005-2007 og forstöðumaður fréttasviðs á sömu stöð 2007-2009. Hugmyndasmiður á Pipar, auglýsingastofu 2013-2014. Stofnandi og sjónvarpsstjóri Hringbrautar 2015-2021. Aðalritstjóri allra miðla Torgs; Fréttablaðsins, DV, Markaðarins og Hringbrautar 2021-2023. Rithöfundur og sjónvarpsmaður hjá SERES hugverkasmiðju 2023-2024.
Stúdentspróf MR 1987. BA-próf í sagnfræði HÍ 1992. Meistarapróf í viðskipta- og hagfræði frá Uppsalaháskóla 2002.
Starfsferill
Verkefnisstjóri hjá Norræna félaginu 1994-1996. Sérfræðingur á þjóðhagsreikningasviði Hagstofu Íslands 2002-2005. Sérfræðingur á hagdeild ASÍ 2005-2007. Sérfræðingur á velferðarsviði félags- og tryggingamálaráðuneytis 2007-2009. Formaður framkvæmdastjórnar Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna 2008-2009.
Stúdentspróf MR 1984. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1994. MPA-próf í opinberri stjórnsýslu frá University of Minnesota 2005.
Starfsferill
Dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 1984-1996. Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs HÍ 1992-1993. Dagskrárgerðarmaður hjá Bylgjunni 1996-1998. Dagskrárstjóri Bylgjunnar 1998-1999. Framkvæmdastjóri innlendra viðburða hjá Reykjavík - menningarborg Evrópu 1999-2000. Útgáfustjóri hjá Eddu - miðlun og útgáfu 2001-2003. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar 2006-2009. Varaformaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands 2007-2008. Formaður stjórnar Iceland Naturally 2007-2009.
Stúdentspróf MS 1986. BA-próf í sagnfræði HÍ 1992. Stundaði nám í opinberri stjórnsýslu við HÍ 2006-2007.
Starfsferill
Starfsmaður launaskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1986-1987. Starfaði á skrifstofu Kvenfélagasambands Íslands 1992-1996. Framkvæmdastjóri kvennaheimilisins Hallveigarstaða 1996-1998. Borgarstjóri í Reykjavík 2004-2006.
Kennarapróf KÍ 1972. Stúdentspróf KÍ 1973. Dipl.Ed. KHÍ 2004. M.Ed. KHÍ 2005. Hagnýt jafnréttisfræði HÍ 2014.
Starfsferill
Kennari við Grunnskólann í Dalvík 1974-1988 og 1991-1995, aðstoðarskólastjóri 1992-1993. Stofnaði saumaverkstæðið Gerplu á Dalvík árið 1986 og tók þátt í rekstri þess til 1988. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1988-1991. Tók þátt í uppbyggingu námsvers á Dalvík 2004–2006. Blaðamaður 2005–2006. Bæjarstjóri/sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð 2006-2014. Stofnaði ráðgjafafyrirtækið Ráðrík ehf. 2015.
Starfsmaður hagdeildar Flugleiða 1975-1978. Fulltrúi í sjávarútvegsráðuneytinu 1978-1980. Fulltrúi í hagdeild Flugleiða 1980. Forstöðumaður hagdeildar Flugleiða 1981-1985. Yfirmaður hótelrekstrar Flugleiða 1985-1986. Deildarstjóri efnahagsrannsókna hjá AEA - Association of European Airlines, sem hefur aðsetur í Brussel, 1987-1990. Sjálfstætt starfandi ráðgjafi í Brussel í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Prisma, við verkefni fyrir m.a. Vinnuveitendasamband Íslands og Félag íslenskra iðnrekenda, 1990-1991. Sérfræðingur (fór með samgöngumál) á aðalskrifstofu EFTA í Brussel 1991-1994. Skrifstofustjóri á skrifstofu samgangna, fjarskipta og fjármálastarfsemi (málefni sem farið var með í „samninganefnd II“) á aðalskrifstofu EFTA í Brussel. Tók þátt í samningum um viðbætur við EES-samninginn 1994-2001. Framkvæmdastjóri Sjúkrahúsapóteksins ehf. 2001-2003. Yfirmaður lyfjaþjónustu Landspítala - háskólasjúkrahúss 2003-2005. Sviðsstjóri á innkaupa- og vörustjórnunarsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss 2005-2009.
Húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1991. Lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins 2006.
Starfsferill
Húsasmiður 1991-2000. Verkefnastjóri hjá Almannavörnum ríkisins 2000-2003. Verkefnastjóri í almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra 2003-2006. Deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra 2006-2015. Verkefnastjóri almannavarna hjá Lögreglustjóranum á Suðurlandi 2015-2019. Öryggisstjóri Knattspyrnusambands Íslands, í hlutastarfi 1997-2018 og fullu starfi 2018-2019. Sviðsstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra 2020-2024.
Stúdentspróf MR 1984. BA-próf í stjórnmála- og fjölmiðlafræði HÍ 1989. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins háskóla, Bandaríkjunum, 1991. MA-próf í hagnýtri siðfræði HÍ 2014.
Starfsferill
Starfsmaður við móttöku víetnamskra flóttamanna til Íslands hjá Rauða krossi Íslands 1991-1992. Í starfsþjálfun á upplýsingaskrifstofu EFTA í Genf 1992. Framkvæmdastýra Samtaka um kvennalista 1992-1995. Upplýsingafulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins í Tansaníu 1995-1996. Verkefnastörf fyrir Rauða kross Íslands 1996. Upplýsingafulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Aserbaísjan 1996-1997. Annar tveggja kosningastjóra Reykjavíkurlistans fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1998. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1998-1999. Umhverfisráðherra 24. maí 2007 til 1. febr. 2009. Aðstoðarkona formanns Samfylkingarinnar 2013. Framkvæmdastýra Samfylkingarinnar 2013–2015. Formaður BHM 2015–2021.
Stúdentspróf MR 1973. BS-próf í líffræði HÍ 1979. Doktorspróf í lífeðlisfræði með fiskeldi sem sérgrein frá Háskólanum í East Anglia, Englandi, 1983. Styrkþegi British Council við framhaldsrannsóknir 1983-1984.
Starfsferill
Ritstjóri Þjóðviljans 1984-1987. Lektor við Háskóla Íslands 1987-1988. Aðstoðarforstjóri Reykvískrar endurtryggingar 1989-1991. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1996-1997 og DV 1997-1998. Umhverfisráðherra 14. júní 1993 til 23. apríl 1995. Iðnaðarráðherra 24. maí 2007 til 1. febrúar 2009. Samstarfsráðherra Norðurlanda 24. maí 2007 til 10. júní 2008. Iðnaðar- og utanríkisráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí. Utanríkisráðherra 10. maí 2009, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Stúdentspróf MA 1972. Frönskunám við Université de Paris Cencier 1974 og 1975. Kennarapróf KHÍ 1979. Diplóma í menntunarfræðum KHÍ 1998. Meistaranám í menntunarfræðum KHÍ frá 1998. Ýmis námskeið í kennslufræðum 1980-1997.
Starfsferill
Starfaði í gestamóttöku Hótel Sögu 1975-1979. Kennari við Gagnfræðaskóla Sauðárkróks 1979-1990. Kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í hlutastarfi 1979-1996. Framkvæmdastjóri Farskóla Norðurlands vestra – miðstöðvar símenntunar 1995-2003.
Stúdent MH 2004. BA lögfræði HÍ 2008. Mag. juris HÍ 2010.
Starfsferill
Laganemi hjá samgönguráðuneyti 2008–2010. Starfsnemi hjá utanríkisráðuneyti 2010. Lögfræðingur hjá umboðsmanni skuldara 2010–2014. Lögfræðingur hjá umboðsmanni borgarbúa 2015–2018. Lögfræðingur hjá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara 2017–2018. Persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar 2018–2023.
Stúdentspróf MT 1974. BA-próf í sagnfræði og bókmenntum HÍ 1979. Gestanemandi við Hafnarháskóla 1979-1981. Cand. mag. nám í sagnfræði við HÍ 1981-1983.
Starfsferill
Vann ýmis almenn störf með námi 1974-1981. Starfsmaður dönsku póstþjónustunnar 1979-1981. Ritstjóri tímaritsins Veru 1988-1990. Ýmis ritstörf og blaðamennska 1990-1991. Borgarstjóri Reykjavíkur 1994-2003. Skipuð 24. maí 2007 utanríkisráðherra, lausn 1. febrúar 2009.
Sveinspróf í bakaraiðn 1978. Stúdentspróf Flensborgarskóla 1978. BA-próf í íslensku og bókmenntum HÍ 1984.
Starfsferill
Blaðamaður á Þjóðviljanum 1979–1989, fréttastjóri 1987-1989. Starfsmaður Blaðamannafélags Íslands 1989-2002, samhliða kennslustörfum og ritstörfum. Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 1994-1998, bæjarfulltrúi Fjarðarlistans 1998-2002 og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og bæjarstjóri í Hafnarfirði 2002–2010. Ráðgjafi hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2011.
Stúdentspróf frá FB 1989. BA-próf í heimspeki frá HÍ 1997. MA-próf í hagfræði frá University of San Francisco 1998. M.Phil. próf í Evrópufræði frá University of Cambridge (Trinity Hall) 2001. Doktorspróf (Ph.D) í stjórnmálafræði frá HÍ 2011 og M.Mus. próf í tónsmíðum frá LHÍ (2022).
Starfsferill
Sumarstarf í farskrárdeild Flugleiða 1985–1988. Sumarstörf sem blaðamaður á Alþýðublaðinu 1989–1990. Flokksstjóri í Vinnuskóla Kópavogs 1991 og 1993–1996, yfirflokksstjóri 1997–1998. Tómstundafulltrúi Nordjobb á Íslandi 1992. Framkvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna 1993–1994. Blaðamaður á Alþýðublaðinu 1994–1995. Blaðamaður Tölvuheims (PC World Ísland) 1996–1998. Fréttastjóri Netheims 1998. Lektor og síðar dósent við Viðskiptaháskólann á Bifröst 2000–2006, aðstoðarrektor við sama skóla 2001–2006, partner hjá Capacent 2006–2008, forstöðumaður Skóla skapandi greina hjá Keili 2008–2009, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands 2009–2010, rektor Háskólans á Bifröst 2010–2011 og dósent við sama skóla síðan þá. Leysti af sem stjórnandi við Evrópufræðideild Háskólans í Haag í Hollandi árið 2016 og starfaði fyrir borgaralegan sendifulltrúa NATO í Kabúl í Afganistan 2018 á vegum íslensku friðargæslunnar.
Stúdentspróf MR 1976. Hdl. 1984. Alþjóðlegur einkamálaréttur, Hague Academy of International Law 1991. Hrl. 1992. Evrópuréttur og réttarheimspeki, Kaupmannahafnarháskóli 1996. Inngangur að heimspeki, HÍ 1997. Diplóma í alþjóðasamskiptum, HÍ 2009.
Starfsferill
Iðnverkamaður samhliða námi 1972-1978. Háseti á MS Fjallfossi 1976. Háseti á togurum Fiskvinnslunnar á Seyðisfirði, Emily NS 124 og Gullver NS 12 sumrin 1977-1980. Stundakennari við MH 1981-1982. Fulltrúi á lögmannsstofu 1981-1984. Fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík 1981. Rak lögmannsstofu með Atla Gíslasyni hrl. og alþingismanni 1985-1995. Sri Lanka Monitoring Mission, vopnahléseftirlitsmaður, DHOD, 2004-2005. Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands frá 1998.
Stúdentspróf MÍ 1979. BA-próf í íslensku HÍ 1985. Cand.mag.-próf í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði HÍ 1992. Stjórnunarnám við viðskipta- og hagfræðideild HÍ 1998-1999. Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi 2001. Dr. phil. í íslenskum bókmenntum HÍ 2000.
Starfsferill
Vann við fiskvinnslu, var ritari og stundaði almenn skrifstofustörf 1975-1985. Blaðamaður á NT, fréttastjóri á Alþýðublaðinu 1985-1986. Frétta- og dagskrárgerðarmaður á RÚV 1986-1990. Stundakennari í þjóðfræðum við Háskóla Íslands 1992-2000. Forstöðumaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands 1998-2000. Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði 2001-2006. Verkefnisráðinn sérfræðingur við Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands 2006-2009.
Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi 1984. Próf í fiskeldisfræði frá Barony College Skotlandi 1986. Stundaði stjórnmálafræðinám við HÍ 1990-1992.
Starfsferill
Starfaði hjá Veiðimálastofnun 1986. Stöðvarstjóri Lindalax 1987-1989. Stuðningsfulltrúi á Barna- og unglingageðdeild 1991-1992. Framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyfirðinga 1993-1994. Framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Aftureldingar 1994-2005. Stuðningsfulltrúi á sambýli fyrir einhverfa.
Stúdentspróf MR 1948. Nám í ensku við háskólann í Lundúnum 1948—1949. Meistarapróf í íslenskum fræðum HÍ 1956. Dr. phil. Háskóla Íslands 1963.
Starfsferill
Stundakennari við skóla í Reykjavík 1948—1955. Sendikennari í íslenskri tungu og bókmenntum við háskólann í Uppsölum 1956—1962. Kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1962—1963, stundakennari 1964—1966. Prófessor í íslenskri bókmenntasögu við Háskóla Íslands 1963-1998.
Gagnfræðapróf Akureyri 1922. Kennarapróf Johnstrup Statsseminarium í Danmörku 1927.
Starfsferill
Hélt smábarnaskóla á Ísafirði 1927—1928. Kennari við barnaskólann á Akranesi 1928—1929. Skólastjóri barnaskólans í Súðavík 1929—1931. Skrifstofumaður hjá Samvinnufélagi Ísfirðinga 1931—1938, hafði jafnframt umsjón með byggingu Alþýðuhúss Ísafjarðar og var forstöðumaður þess 1934—1938. Stundakennari við Gagnfræðaskólann á Ísafirði 1931—1938, skólastjóri 1938—1954 og 1975. Ritstjóri í Reykjavík 1952—1954. Skipaður 24. júlí 1956 félags- og heilbrigðismálaráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember 1958. Skipaður 14. júlí 1971 samgöngu- og félagsmálaráðherra, lausn 16. júlí 1973. Rak búskap í Selárdal í Arnarfirði 1966—1977.
Blaðamaður við Þjóðviljann 1945—1962, lengst fréttastjóri erlendra frétta, ritstjóri 1959—1962. Deildarstjóri í Bókabúð Máls og menningar í Reykjavík 1963—1971. Skipaður 14. júlí 1971 menntamálaráðherra og 6. maí 1974 félagsmála- og samgönguráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst; fór jafnframt með Hagstofu Íslands. Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar 1978—1989.
Stúdentspróf MR 1958. MA-próf í hagfræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi 1963. Framhaldsnám í vinnumarkaðshagfræði við Stokkhólmsháskóla 1963—1964. Próf í uppeldis- og kennslufræðum HÍ 1965. Framhaldsnám við Harvard-háskóla (Center for European Studies) í Bandaríkjunum 1976—1977.
Starfsferill
Kennari í Hagaskóla í Reykjavík 1964—1970. Blaðamaður við Frjálsa þjóð 1964—1967. Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði 1970—1979. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1979—1982. Skipaður 8. júlí 1987 fjármálaráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 28. september 1988 utanríkisráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skipaður 30. apríl 1991 utanríkisráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Sendiherra Íslands í Bandaríkjunum 1998-2002 og í Finnlandi 2002—2005. Hefur síðan starfað sem gistiprófessor og gestafyrirlesari við Háskóla Íslands, háskólana í Vilníus, Litáen og Tartu í Eistlandi. Einnig sem gestafyrirlesari við háskóla og rannsóknarstofnanir í Bandaríkjunum, Kína, Þýskalandi, Belgíu, Spáni, Sviss og á Norðurlöndum.
Stúdentspróf MR 1962. BA-próf í hagfræði og stjórnmálafræði háskólanum í Manchester í Englandi 1965, doktorspróf í stjórnmálafræði sama skóla 1970.
Starfsferill
Lektor í stjórnmálafræði Háskóla Íslands 1970—1973, prófessor 1973—1993. Skipaður 28. september 1988 fjármálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Kjörinn forseti Íslands 29. júní 1996 og tók við embætti 1. ágúst, endurkjörinn 2000, 2004, 2008 og 2012. Sat á Bessastöðum til 2016.
Samtök um jafnrétti og félagshyggju (3)
stjórnendur
Stúdentspróf MR 1972. BA-próf í sagnfræði og almennri bókmenntasögu HÍ 1978. Cand. mag. í sagnfræði HÍ 1985. Nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1972—1974. Nám við Myndlistaskólann í Reykjavík 1980—1988. MSc. í tölvunarfræði HÍ 2008.
Starfsferill
Kennari við Garðaskóla í Garðabæ 1976—1977. Útvarpsstörf síðan 1978. Blaðamaður á Vikunni 1980—1985. Lausráðinn blaðamaður 1985—1989. Fékkst við sagnfræðirannsóknir og -skrif, blaðamennsku og þáttagerð í útvarpi 1995—2001. Starfaði við hugbúnaðargerð 2001—2018.
Stúdentspróf MT 1973. BA-próf í þýsku og norsku HÍ 1979. Próf úr Leiðsöguskóla Ferðamálaráðs 1978. Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ 1981. Framhaldsnám í Christian-Albrechts-háskóla í Kiel í Þýskalandi 1983—1984.
Starfsferill
Stundakennari í Reykjavík 1976—1977, settur kennari við Fjölbrautaskólann á Akranesi 1978, skipuð 1981—1990. Stundakennari við Menntaskólann við Hamrahlíð 1985—1987. Kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ 1991—1992. Kennari við Menntaskólann í Reykjavík síðan 1992. Hefur á sumrum og með námi unnið ýmiss konar skrifstofustörf og við leiðsögu ferðamanna.
Stúdentspróf ML 1969. BA-próf í sálarfræði frá Vassar College, Bandaríkjunum, 1971. MSc.-próf í sálarfræði frá háskólanum í Manchester, Englandi, 1974. Doktorspróf í uppeldis- og menntunarfræði frá háskólanum í Leeds, Englandi, 1987.
Starfsferill
Stundaði ýmis algeng sumarstörf með námi 1965-1974. Starfaði hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, sálfræðideild skóla og var stundakennari við Kennaraháskóla Íslands og Fósturskóla Íslands 1974-1975. Lektor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands 1975-1987 (sett prófessor 1980-1983), dósent 1987-1995.
Stúdentspróf VÍ 1961. Læknisfræðipróf HÍ 1968. Kandídat á sjúkrahúsum í Reykjavík og London 1969—1970. Nám og störf í veiru- og ónæmisfræði við Hammersmith-spítala og við Royal Postgraduate Medical School í London 1970—1981. Almennt lækningaleyfi á Íslandi 1978 og sérfræðingsréttindi sama ár. Félagi í Royal College of Pathologists í Bretlandi með sérfræðiprófi 1981 og fullt lækningaleyfi í Bretlandi sama ár.
Starfsferill
Honorary Senior Registrar í veirufræðideild Hammersmith-spítala í London 1971—1972 og Senior Registrar við sama spítala 1972—1979. Lecturer og Honorary Senior Registrar við sama spítala og við Royal Postgraduate Medical School í London 1979. Senior Lecturer og Honorary Consultant við sama skóla 1979—1981. Sérfræðingur í veirufræði við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum 1981—1983 og síðan 1991, í hlutastarfi frá 1993.
Gagnfræðapróf Ísafirði 1952. Nám í orgelleik við Tónlistarskóla Ísafjarðar 1952—1954. Próf frá Húsmæðraskólanum Ósk á Ísafirði 1955. Nám í tungumálum og bókfærslu við Kvöldskólann á Ísafirði 1973—1975. Starfsleikninám kennara 1989—1991.
Starfsferill
Starfaði í Ísafjarðar Apóteki 1952—1958. Stundakennari við Barnaskólann í Hnífsdal 1958—1962. Kennari við Barnaskóla Ísafjarðar 1972—1974 og stundakennari við Grunnskólann á Ísafirði 1989—1991. Starfaði sjálfstætt við fatasaum (jafnframt húsmóðurstörfum) 1963—1972. Rekstrarstjóri Félagsheimilisins í Hnífsdal 1974—1978. Útibússtjóri Kaupfélags Ísfirðinga í Hnífsdal 1978—1981. Störf á Endurskoðunar- og bókhaldsstofu Guðmundar E. Kjartanssonar, síðar Löggiltum endurskoðendum hf. 1981—1991.
Stúdentspróf MH 1971. Háskólanám í Svíþjóð 1971-1972. BA-próf í sagnfræði og bókmenntum HÍ 1977. Framhaldsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands og Hafnarháskóla.
Starfsferill
Blaðamaður við Þjóðviljann 1980-1981. Þjóðháttarannsóknir og störf á vegum Samtaka um kvennalista 1982-1985. Kennari í sögu við Kvennaskólann í Reykjavík 1985-1991. Stundaði einnig kvennarannsóknir 1985-1992.
Stúdentspróf ML 1969. BS-próf í líffræði HÍ 1975. Cand. real. í lífeðlisfræði Óslóarháskóla 1979.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann og Iðnskólann í Keflavík 1970—1971. Stundakennari og sérfræðingur í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands 1975—1977 og 1979—1984, lektor 1985—1986. Sérfræðingur í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands 1987.
Stúdentspróf MR 1972. B.Sc.-próf í mannfræði við London School of Economics and Political Science 1975. Nám í mannfræði við LUniversite de Paris VII 1976—1977 og við University of Rochester, New York, 1977—1979, MA-próf og Ph.D.-próf (fyrri hluti) þaðan í árslok 1979 og Ph.D.-próf frá sama skóla 1990.
Starfsferill
Kennari við Menntaskólann og Iðnskólann á Ísafirði 1975—1976. Stundakennari í mannfræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands 1980—1983 og 1988—1989. Sjálfstæð rannsóknastörf 1987—1990. Lektor við Háskóla Íslands 1990—1994, dósent 1994-2000, prófessor síðan 2000.
Stúdentspróf MA 1976. Nám við The Royal Ballet School í London 1961—1963.
Starfsferill
Kennari við Listdansskóla Þjóðleikhússins, SÁL-skólann, Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og Leiklistarskóla Íslands. Leikari og danshöfundur víða. Fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Akureyrar 1973—1975. Einn stofnenda Alþýðuleikhúss 1975. Hefur starfað sem leikstjóri síðan við öll atvinnuleikhús á Íslandi, Íslensku óperuna, sjónvarp o. fl.
Stúdentspróf MR 1955. Las íslensk fræði við Háskóla Íslands 1955—1957. Kennarapróf KÍ 1962. BA-próf í dönsku og sagnfræði HÍ 1967.
Starfsferill
Starfsstúlka í eldhúsi Vífilsstaðahælis sumurin 1950—1953. Starfsmaður Landsbanka Íslands 1954—1961. Kennari við Lindargötuskóla 1962—1972. Stundakennari við Tollskóla Íslands 1972—1990. Forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur frá 1972.
Húsmóðir á Jaðri í Reykjadal 1948—1992. Ráðskona á sumrum hjá Vegagerð ríkisins 1968—1985. Aðstoðarráðskona við Kristnesspítala á vetrum 1981—1985, í fullu starfi frá 1985 til vors 1987. Kennari við grunnskóla Reykdæla 1967—1979. Bókavörður við Amtsbókasafnið á Akureyri 1992—2001.
Samvinnuskólapróf 1944. Verslunarnám 1944—1946 við Skerrys College, Glasgow, Skotlandi.
Starfsferill
Atvinnumaður í knattspyrnu árum saman og þá búsettur í Glasgow, London, Nancy, Mílanó, París og Nice. Heildsali í Reykjavík 1956—1989. Skipaður 26. maí 1983 fjármálaráðherra, lausn 16. október 1985, skipaður 16. október 1985 iðnaðarráðherra, lausn 24. mars 1987. Sendiherra Íslands í París 1989—1993.
Starfaði á lögmannsskrifstofum í Reykjavík og var fulltrúi við lögtök í Vestmannaeyjum fram á árið 1934, hóf þá rekstur eigin skrifstofu. Lögreglustjóri í Keflavík 1938—1949, bæjarfógeti þar 1949—1961 og aftur 1962—1975, jafnframt sýslumaður í Gullbringusýslu og bæjarfógeti í Grindavík 1974—1975. Bæjarstjóri í Keflavík 1961—1962.
Stundaði málflutning á Ísafirði 1935—1936. Lögfræðingur mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur 1940—1960. Borgarstjóri í Reykjavík (ásamt Geir Hallgrímssyni) 19. nóvember 1959 — 5. október 1960. Skipuð 10. október 1970 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.
Stúdentspróf MA 1987. BA-próf í stjórmálafræði HÍ 1994.
Starfsferill
Stofnandi ENNEMM og framkvæmdastjóri 1991-1995. Aðstoðarmaður samgönguráðherra 1995-1999, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1999-2005, aðstoðarmaður fjármálaráðherra 2005-2006. Bæjarfulltrúi í Kópavogi síðan 1998. Forseti bæjarstjórnar 2000-2001 og 2005-2007. Formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar 1998-2002. Formaður skólanefndar Kópavogs 2002-2006. Formaður stjórnar Strætós 2006-2008.
Kennari í Vestmannaeyjum 1964-1965 og í Reykjavík 1966-1967. Starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Blaðamaður við Morgunblaðið 1967-1991. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1911. Próf í forspjallsvísindum HÍ 1912.
Starfsferill
Var starfsmaður í verslunarfyrirtæki Louis Zöllners í Hull á Englandi 1912—1915. Verslunarmaður á Seyðisfirði 1916. Verslunarstjóri á Vopnafirði 1917—1924. Forstjóri Brunabótafélags Íslands 1924—1928. Ritstjóri í Reykjavík 1928—1930. Var síðan á fjórða ár á Seyðisfirði og gaf þar út og ritstýrði vikublaðinu Austfirðingi. Gerðist starfsmaður Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda í Reykjavík haustið 1933. Var síðan stjórnmálaritstjóri og blaðamaður dagblaðsins Vísis til 1942. Ritstjóri Þjóðólfs og síðan Íslands 1942—1944. Vann að ritstörfum í Reykjavík eftir það til æviloka.
Stúdentspróf Flensborgarskóla 1978. Embættispróf í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg, Skotlandi, 1983. Próf í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla, Skotlandi, 1985.
Starfsferill
Almenn dýralæknisstörf á Vopnafirði, í Árnessýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu 1983-1985. Héraðsdýralæknir (án fastrar búsetu) jan.-júlí 1984. Dýralæknir fisksjúkdóma 1985-1995. Framkvæmdastjóri Faxalax hf. 1988-1989. Skipaður 28. maí 1999 sjávarútvegsráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 sjávarútvegsráðherra, lausn 27. september 2005. Skipaður 27. september 2005 fjármálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skipaður 24. maí 2007 fjármálaráðherra, lausn 1. febrúar 2009.
Starfsmaður Sparisjóðsins í Keflavík 1960-1966. Fulltrúi og síðar útibússtjóri Verslunarbanka Íslands í Keflavík 1966-1971. Rak eigin bókhaldsstofu í Keflavík og útibú víðar 1971-1985. Fjármálastjóri hjá varnarliðinu, Vörumarkaðnum og Ragnarsbakaríi 1985-1988. Deildarstjóri hjá varnarliðinu 1988-1991 Í stjórn Hitaveitu Suðurnesja frá 1992.
Stúdentspróf VÍ 2010. BA-próf í lögfræði HÍ 2015. MA-próf í lögfræði HÍ 2017.
Starfsferill
Starfsmaður jafningjafræðslu Hins hússins 2010. Blaðamaður á Morgunblaðinu 2011-2013. Lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurlandi 2014-2015. Varaformaður Æskulýðsráðs 2014-2016. Laganemi á lögmannsstofunni Juris 2016. Dómsmálaráðherra 6. september 2019 til 27. nóvember 2021. Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 1. febrúar 2022 til 21. desember 2024.
Stundaði netagerð og sjómennsku 1970-1972. Vann við hreinsun Heimaeyjar sumarið 1973. Verkstjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsun, endurreisn og uppgræðslu Heimaeyjar 1974-1978. Framleiðslu- og yfirverkstjóri hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja 1978-1986. Sjálfstætt starfandi blaðamaður 1980-2003. Framkvæmdastjóri Samkomuhúss Vestmannaeyja 1986. Rak fiskvinnslufyrirtækið Kútmagakot ehf. 1988-2003. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur 2004. Verkefnastjóri Ljósanætur 2006. Verkefnastjóri í atvinnu- og menningarmálum hjá Reykjanesbæ 2008. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2009-2012.
Stúdentspróf MH 1976. B.Sc.-próf í hjúkrunarfræði HÍ 1980. MPA-próf í opinberri stjórnsýslu við HÍ 2006.
Starfsferill
Hjúkrunarfræðingur við Borgarspítalann 1980-1982. Fastur stundakennari við HÍ á námsbraut í hjúkrunarfræði 1981-1984, settur aðjúnkt 1982-1984. Deildarstjóri við öldrunardeild Borgarspítala 1984-1986 og fræðslustjóri á Borgarspítalanum 1987-1992. Formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1989-1994 og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1994-1999. Stundakennari við HÍ og HA síðan 1981. Framkvæmdastjóri Liðsinnis ehf. 2005.
Stúdentspróf frá Menntaskólanum Hraðbraut 2011. BA-próf í lögfræði HA 2016, ML-próf í lögfræði HA 2018. Hdl. 2021.
Starfsferill
Stundakennari og aðstoðarkennari við HA 2017–2019. Fulltrúi hjá Lögmönnum Norðurlandi 2018–2019. Lögfræðingur á skrifstofu rektors HA 2019–2021. Formaður stjórnar Fallorku 2020–2021.
Framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna 1961—1963. Rak eigin lögmannsstofu í Reykjavík 1963—l972. Borgarstjóri í Reykjavík frá desember 1972 til maí 1978. Ýmis störf að stjórnmálum frá maí 1978 til desember 1979. Skipaður 8. júlí 1987 menntamálaráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Bankastjóri Seðlabanka Íslands 1991-2005.
Stúdentspróf MR 1926. Lögfræðipróf HÍ 1930. Framhaldsnám í stjórnlagafræði, aðallega í Berlín, 1930—1932. Heiðursdoktor í lögfræði 1961 Háskóla Íslands.
Starfsferill
Prófessor í lögum við Háskóla Íslands 1932—1940. Borgarstjóri í Reykjavík 1940—1947. Skipaður 4. febrúar 1947 utanríkis- og dómsmálaráðherra, fór einnig með verslunarmál, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember. Skipaður 6. desember 1949 utanríkis-, dóms- og menntamálaráðherra, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Skipaður 14. mars 1950 utanríkis- og dómsmálaráðherra, lausn 11. september 1953. Skipaður sama dag dóms- og menntamálaráðherra, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí. Ritstjóri Morgunblaðsins 1956—1959. Skipaður 20. nóvember 1959 dóms-, kirkju-, heilbrigðis- og iðnaðarmálaráðherra, leystur frá þeim störfum 8. september 1961 frá 14. september til 31. desember að telja og jafnframt falið að gegna störfum forsætisráðherra þann tíma, tók við fyrri störfum 1. janúar 1962, lausn 14. nóvember 1963. Skipaður sama dag forsætisráðherra og gegndi því starfi til æviloka.
Stúdentspróf MR 1989. Lögfræðipróf HÍ 1995. Nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995-1996. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá University of Miami School of Law í Bandaríkjunum 1997. Hdl. 1998. Löggiltur verðbréfamiðlari 1998.
Starfsferill
Fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík 1995. Lögfræðingur hjá Eimskip 1997-1999. Lögmaður með eigin rekstur á Lex lögmannsstofu 1999-2003. Fjármála- og efnahagsráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Forsætisráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Fjármála- og efnahagsráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021 og 28. nóvember 2021 til 14. október 2023. Utanríkisráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Forsætisráðherra 9. apríl til 21. desember 2024.
Stúdentspróf MR 1909. Læknisfræðipróf HÍ 1914. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Danmörku 1915—1917. Námsför til Kaupmannahafnar 1926.
Starfsferill
Gegndi Patreksfjarðarhéraði 1914—1915. Starfandi læknir í Hafnarfirði frá 1917 til æviloka. Settur héraðslæknir þar 1941—1942 og 1947. Jafnframt yfirlæknir við St. Jósepsspítalann þar 1933—1956.
Útgáfustjóri Almenna bókafélagsins 1971-1974. Fréttastjóri erlendra frétta á Vísi 1974. Deildarstjóri í forsætisráðuneytinu 1974-1975, skrifstofustjóri 1975-1979. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1979-1984, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins 1984-1991. Skipaður 23. apríl 1995 menntamálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 menntamálaráðherra, lausn 2. mars 2002. Skipaður 23. maí 2003 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skipaður 24. maí 2007 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 1. febrúar 2009.
Póstmaður í Reykjavík 1908—1916. Verslunarfulltrúi 1916—1918. Stórkaupmaður og iðnrekandi frá 1918 til æviloka. Skipaður 16. desember 1942 fjármála- og viðskiptamálaráðherra, lausn 16. september 1944, en gegndi störfum til 21. október. Skipaður 6. desember 1949 fjármála- og viðskiptamálaráðherra að nýju, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Skipaður sama dag mennta- og viðskiptamálaráðherra, lausn 11. september 1953.
Stúdentspróf VÍ 1997. Diplóma í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands 2000. B.Sc.-próf í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands 2001. Hefur stundað framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Starfsferill
Verkefnisstjóri stuðningsverkefna fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hjá Impru nýsköpunarmiðstöð 2001-2003. Verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar Impru nýsköpunarmiðstöðvar með ábyrgð á norrænum og evrópskum nýsköpunar- og tækniyfirfærsluverkefnum 2003-2007. Fjármálastjóri hjá Góðum mönnum — rafverktökum ehf. 2007-2012. Stofnaði og rak útgáfufyrirtækið Góðan dag ehf. 2008-2010. Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og formaður skipulagsnefndar 2010-2018. Forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 2012–2014. Formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar 2014–2017. Í stjórn Strætó bs. 2012–2018, stjórnarformaður 2014–2016.
Skrifstofustjóri Leikfélags Reykjavíkur 1970-1972. Þingfréttaritari Morgunblaðsins 1973-1974. Starfsmaður Almenna bókafélagsins 1975. Skrifstofustjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1976-1978 og framkvæmdastjóri þess 1978-1982. Borgarstjóri í Reykjavík 1982-1991. Skipaður 30. apríl 1991 forsætisráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skipaður 23. apríl 1995 forsætisráðherra, lausn 28. maí 1999. Fór jafnframt með dóms- og kirkjumálaráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið 11.-28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 forsætisráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 forsætisráðherra, lausn 15. september 2004. Skipaður á ný sama dag utanríkisráðherra; jafnframt ráðherra Hagstofu Íslands síðan 1991, lausn 27. september 2005.
Stúdentspróf VÍ 2006. BA-próf í lögfræði frá HÍ 2009. MA-próf í lögfræði frá HÍ 2011. Hdl. 2012. LLM-próf í alþjóðlegum umhverfis- og auðlindarétti frá HÍ 2017. Hrl. 2018.
Starfsferill
Fulltrúi hjá Lögmáli ehf. 2011–2018. Stundakennari í lögfræði við VÍ 2018. Aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2018–2021.
Stúdentspróf Lsk. 1901. Lagði fyrst stund á norræna málfræði við Hafnarháskóla, en hvarf frá því. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1906. Yfirréttarmálaflutningsmaður 1907. Heiðursdoktor í lögum Háskóla Íslands 1936. Hrl. 1945.
Starfsferill
Ritstjóri Fjallkonunnar 1907. Kennari við Lagaskólann í Reykjavík 1908—1911. Prófessor í lögum við Háskóla Íslands 1911—1915. Skipaður 4. maí 1915 ráðherra Íslands, lausn 4. janúar 1917. Varð þá að nýju prófessor í lögum og gegndi því embætti til 1932, enda þótt hann fengi lausn í október 1919 og væri stjórnmálaritstjóri Morgunblaðsins og Ísafoldar veturinn 1919—1920. Rektor Háskóla Íslands 1918—1919 og 1929—1930. Jafnframt var hann skattstjóri í Reykjavík 1922—1928 og formaður niðurjöfnunarnefndar, sat í nefndinni til 1932. Hæstaréttardómari 1932—1942. Skipaður 16. desember 1942 dóms- og menntamálaráðherra, lausn 16. september 1944, en falið að gegna störfum áfram um stundarsakir, fékk lausn 21. september. Hæstaréttardómari 1944—1945.
Blaðamaður hjá dagblaðinu Vísi í Reykjavík júlí—október 1944. Fulltrúi í skrifstofu tollstjóra í Reykjavík 1944—1945, fulltrúi borgarfógeta 1945 og fulltrúi sakadómara 1946—1952. Bæjarfógeti á Siglufirði 1952—1966, sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði 1966—1973, sýslumaður í Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði og Seltjarnarneskaupstað 1974—1987, einnig bæjarfógeti í Garðakaupstað frá 1976.
Hlaut nokkra tilsögn hjá kennara í æsku (Nikulási Þórðarsyni).
Starfsferill
Stundaði sjóróðra og kennslu á fyrri árum. Kennari í Vestur-Landeyjahreppi 1891—1894. Kennari á Rangárvöllum 1899—1904. Bóndi á Geldingalæk vestri frá 1897 til æviloka. Sýsluskrifari öðru hverju hjá Páli Briem og Magnúsi Torfasyni.
Stúdentspróf MÍ 1975. BA-próf í stjórnmálafræði frá háskólanum í Essex, Englandi, 1981.
Starfsferill
Blaðamaður á Vísi 1975-1977. Skrifstofustörf í Bolungarvík 1979-1980 og 1981-1983. Útgerðarstjóri í Bolungarvík 1983-1991. Sjávarútvegsráðherra 27. september 2005 til 24. maí 2007. Sjávarútvegsráðherra og landbúnaðarráðherra 24. maí 2007, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 1. janúar 2008 til 1. febrúar 2009.
Yfirdómslögmaður í Reykjavík 1913—1915. Lögreglustjóri á Siglufirði sumarið 1913. Sýslumaður í Árnessýslu 1915—1917. Útibússtjóri Landsbankans á Selfossi 1918—1930. Fluttist þá til Reykjavíkur og var síðan fulltrúi bankans þar.
Stúdentspróf MH 1979. Grunnfagspróf í þjóðhagfræði frá Óslóarháskóla 1981. BS-próf í frétta- og blaðamennsku frá University of Florida, Gainsville 1984. MA-próf í sagnfræði HÍ 2005.
Starfsferill
Blaðamaður á DV 1984-1986. Fréttamaður á Bylgjunni 1986-1988. Fréttamaður á Stöð 2 1988-1993, fréttaþulur 1990-1996. Varafréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar 1993-1994, fréttastjóri 1994-1996. Nefndarmaður í úrskurðarnefnd um upplýsingamál 1997-2004. Fréttamaður Sjónvarpsins 1998-2001, fréttaþulur Sjónvarpsins 1998-2010. Fréttastjóri Sjónvarpsins 2002-2008. Dagskrárgerðarmaður hjá RÚV 2008-2010.
Stúdentspróf VÍ 1959. Við nám í Lundúnum 1959—1960. Lögfræðipróf HÍ 1966. Hdl. 1967.
Starfsferill
Blaðamaður við dagblaðið Vísi 1961—1964 og jafnframt starfsmaður við heildverslun föður síns. Fulltrúi á málflutningsskrifstofu Eyjólfs K. Jónssonar o.fl. á árunum 1965 og 1966. Skrifstofustjóri borgarverkfræðingsins í Reykjavík 1966—1971. Ritstjóri dagblaðsins Vísis 1980—1981 og síðan ritstjóri DV 1981—1995.
Stúdentspróf MR 1941. Lögfræðipróf HÍ 1947. Hdl. 1948. Hrl. 1991. Náms- og kynnisdvöl við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York september—desember 1949 og við State Police Academy í New Haven, Connecticut, Bandaríkjunum febrúar—júní 1950.
Starfsferill
Hóf störf hjá Ragnari Jónssyni hæstaréttarlögmanni að loknu prófi. Settur bæjarfógeti á Akranesi ágústmánuð 1947. Fulltrúi borgardómarans í Reykjavík 1947—1948. Fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík 1948—1949, 1950—1951 og 1952—1955. Oft settur lögreglustjóri í Reykjavík 1948—1955. Settur bæjarfógeti á Siglufirði 1951—1952. Sýslumaður í Dalasýslu 1955—1965 og 1991—1993. Sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1965—1975. Skipaður 8. febrúar 1980 dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.Stjórnarformaður Sparisjóðs Dalasýslu 1956—1965. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands 1960—1993, formaður 1969—1972. Í hreppsnefnd Stykkishólmshrepps 1966—1970. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1966, 1985, 1987 og 1990. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1967—1974 og 1976, formaður íslensku sendinefndarinnar 1968—1971. Fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins 1974. Fulltrúi Íslands á fundum þingmannanefndar EFTA 1975, 1977 og 1988. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977—1993. Í stjórn Brunabótafélags Íslands frá 1979, formaður 1987, og Vátryggingafélags Íslands síðan 1989. Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1983—1987 og sat aukaþing ráðsins 1988. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985 og 1987—1989, formaður.
Stúdentspróf MR 1963. Nám í læknadeild Háskóla Íslands 1963-1965, en síðan í lagadeild. Lögfræðipróf HÍ 1972.
Starfsferill
Stundakennari 1963-1967 í gagnfræðadeild Hlíðaskóla í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1972-1978. Framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hnífsdals í sumarafleysingum 1978-1986. Skipaður 8. júlí 1987 iðnaðarráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 30. apríl 1991 fjármálaráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skipaður 23. apríl 1995 fjármálaráðherra, lausn 16. apríl 1998.
Fulltrúi á málaflutningsskrifstofu Lárusar Jóhannessonar 1925—1931, að undanskildum sex mánuðum er hann var við framhaldsnám í Englandi. Rak eigin málaflutningsskrifstofu í Reykjavík frá 1. janúar 1932 til æviloka. Settur borgarstjóri í Reykjavík sumarið 1933.
Stúdentspróf MR 1944. Lögfræðipróf HÍ 1948. Framhaldsnám í lögfræði og hagfræði eitt ár við Harvard-lagaskóla, Bandaríkjunum. Hdl. 1951. Hrl. 1957.
Starfsferill
Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1951—1959. Forstjóri H. Benediktsson hf. 1955—1959. Borgarstjóri í Reykjavík 1959—1972. Skipaður forsætisráðherra 28. ágúst 1974, fékk lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september 1978. Skipaður utanríkisráðherra 26. maí 1983, fékk lausn 24. janúar 1986. Bankastjóri Seðlabanka Íslands frá 1986 til æviloka.
Stúdentspróf MR 1971. BA-próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla, Bandaríkjunum, 1973. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins háskóla, Bandaríkjunum, 1975. MA-próf í hagfræði frá Minnesota-háskóla, Bandaríkjunum, 1977.
Starfsferill
Blaðamaður við Morgunblaðið á sumrum 1972-1977. Hagfræðingur í alþjóðadeild Seðlabanka Íslands 1977-1983. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1983-1987. Skipaður 16. apríl 1998 fjármálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 fjármálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 fjármálaráðherra, lausn 27. september 2005. Skipaður 27. september 2005 utanríkisráðherra, lausn 15. júní 2006. Skipaður á ný sama dag forsætisráðherra og jafnframt ráðherra Hagstofu Íslands, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skipaður á ný sama dag forsætisráðherra og jafnframt ráðherra Hagstofu Íslands. Gegndi störfum sem ráðherra Hagstofu Íslands til 1. janúar 2008 er hún varð sjálfstæð stofnun er heyrir undir forsætisráðherra. Lausn frá störfum forsætisráðherra 1. febrúar 2009.
Nam járnsmíði á Ísafirði 1908—1909, vélsmíði í Englandi 1914 og Kaupmannahöfn 1915. Stundaði nám við vélfræðideild Stýrimannaskólans 1913—1914, við Vélstjóraskóla Íslands 1915—1916, lauk prófi frá honum (skírteini nr. 1).
Starfsferill
Kyndari 1910—1911. Vélstjóri á togurum 1911—1913. Vélstjóri á strandferðaskipum 1914—1915. Vélstjóri á skipum Eimskipafélags Íslands 1915 og 1917, yfirvélstjóri á skipum þess 1918—1924. Skipaður 1924 umsjónarmaður skipa og véla, sá um smíði allra nýsköpunartogara ríkissjóðs 1945—1950, lausn 1968. Jafnframt framkvæmdastjóri ýmissa félaga og fyrirtækja í Reykjavík og á Bíldudal frá 1933.
Dvaldist 1906—1907 á Akureyri og var þá um tíma settur bæjarfógeti þar og sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu. Varð 1910 yfirdómslögmaður í Reykjavík. Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1918—1947, sat í Vík í Mýrdal. Skipaður 19. júní 1947 sendiherra í Noregi, lausn 1. júlí 1951.
Stúdentspróf MR 1916. Las hagfræði við Hafnarháskóla 1916—1919, en hvarf frá því námi. Lögfræðipróf HÍ 1923.
Starfsferill
Starfsmaður á íslensku stjórnarráðsskrifstofunni í Kaupmannahöfn 1917—1919. Rak málaflutningsskrifstofu á Akureyri 1923—1931, bjó á Möðrufelli og stundaði þar jafnframt búskap 1924—1931. Fulltrúi sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógetans á Akureyri 1931—1932. Bjó í Litla-Hvammi (nýbýli) í Hrafnagilshreppi 1931—1932. Sýslumaður Húnavatnssýslu 1932—1960, sat á Blönduósi.
Stúdentspróf KHÍ 1977. BA-próf í sálfræði HÍ 1986. MA-próf í sálfræði frá West Virginia University 1989. Ph.D.-próf í sálfræði með áherslu á stjórnun frá West Virginia University 1991.
Starfsferill
Kennari við Myllubakkaskóla í Keflavík 1977-1983 og 1985-1986. Leiðbeinandi og doktorsnemi við West Virginia University 1986-1991. Forstjóri LEAD Consulting í Bandaríkjunum 1991-1999. Rektor Háskólans í Reykjavík 1998-2007. Í stjórn Félagsvísindastofnunar HÍ 1985-1986. Formaður nefndar um árangursstjórnun í ríkisrekstri 1995-1996. Í stjórn Baugs Group 1998-2003. Í stjórn Umhverfisverndarsamtaka Íslands 1999-2001. Í stjórn Fulbright á Íslandi 1999-2002. Í stjórn Auðs í krafti kvenna 1999-2003. Í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja frá 2004. Formaður stjórnar umhverfissjóðsins Kolviðar frá 2006.
stjórnendursveitarstjórnþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Starfsferill
Verslunar- og skrifstofustörf hjá verslun Gunnars Ólafssonar & co. hf. í Vestmannaeyjum 1973-1975. Gjaldkeri og síðar skrifstofustjóri og aðstoðarsparisjóðsstsjóri í Sparisjóði Vestmannaeyja 1975-1990. Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum 1990-2002. Útibússtjóri Sjóvár-Almennra hf. í Vestmannaeyjum 2002-2003.
Stúdentspróf MA 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1996.
Starfsferill
Umboðsmaður Brunabótafélags Íslands 1988-1989. Sölumaður hjá Vátryggingafélagi Íslands 1989-1993. Kynningarstjóri hjá Fjárvangi 1996-1997. Framkvæmdastjóri Fíns miðils 1997-1998. Forstöðumaður hjá Fjárvangi/Frjálsa fjárfestingarbankanum 1998-2001. Forstöðumaður hjá tryggingadeild Búnaðarbanka Íslands 2001-2003. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 24. maí 2007 til 31. desember 2007. Heilbrigðisráðherra 1. janúar 2008 til 1. febrúar 2009. Utanríkisráðherra 11. janúar 2017 til 31. desember 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 1. janúar 2020 til 27. nóvember 2021. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 28. nóvember 2021 til 21. desember 2024.
Fiskvinna og sjómennska á ýmsum fiskiskipum, varðskipum og kaupskipum 1956-1965. Stýrimaður á vitaskipinu Árvakri 1965-1970. Í afleysingum 1980-1985 fáeinar ferðir á ári sem háseti eða stýrimaður á fiskiskipum og kaupskipum. Starfsmaður Sjómannafélags Reykjavíkur 1972-1991.
Stúdentspróf VÍ 1950. Viðskiptafræðipróf HÍ 1954. Framhaldsnám í hagfræði við Christian Albrechts-háskóla í Kiel í Þýskalandi 1954—1955. Nám í endurtryggingum hjá Lloyds í London 1955. Nám í markaðsfræðum hjá International Marketing Institute, Harvard-háskóla og Graduate School of Business Administration í Bandaríkjunum 1965.
Starfsferill
Skrifstofustjóri hjá Iðnaðarmálastofnun Íslands 1955—1961. Fulltrúi og ritari stjórnar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 1961—1987. Hefur sinnt sérverkefnum fyrir sama fyrirtæki síðan 1987.
Stúdentspróf Laugarvatni 1957. Nam lögfræði í Háskóla Íslands tvö ár.
Starfsferill
Framleiðslustjóri í Vinnslustöðinni hf. 1963—1967. Framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum 1967—1992. Framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs í Vestmannaeyjum 1973. Markaðsstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Japan 1974—1975. Forstöðumaður veiðieftirlits Fiskistofu síðan 1992.
Stúdentspróf MR 1972. Próf í verkfræði frá HÍ 1977. M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University í Edinborg 1978. Doktorspróf í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri 1983.
Starfsferill
Verkfræðingur hjá Norðurverki 1977 og Hönnun hf. 1979-1980. Verkfræðingur og framkvæmdastjóri Gunnars og Guðmundar hf. 1980-1994 og Klæðningar ehf. síðan 1986. Bæjarstjóri Kópavogs 2005-2009, bæjarstjóri Fjallabyggðar 2015-2019 og sveitarstjóri Skaftárhrepps 2020.
Stúdentspróf MA 1950. Lögfræðipróf HÍ 1956. Framhaldsnám í þjóðarétti við Max Planck-stofnunina í Heidelberg í Þýskalandi og háskólann þar 1957—1958 og við háskólann í Cambridge í Englandi, Sidney Sussex College 1958—1960, doktorspróf þar í þjóðarétti 1961.
Starfsferill
Blaðamaður við Morgunblaðið á háskólaárunum og 1956—1957. Ritstjóri Vísis 1961—1966. Fulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1966, deildarstjóri 1967 og jafnframt ráðunautur utanríkisráðuneytisins í þjóðarétti. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1970—1971. Skipaður deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu 1971 og jafnframt sendiráðunautur og varafastafulltrúi í fastanefnd Íslands í New York til 1974. Einnig ræðismaður Íslands í New York 1971—1972. Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands síðan 1974. Ráðunautur stjórnarskrárnefndar 1975—1983 og fulltrúi í stjórnarskrárnefnd frá 1983.
Stúdentspróf MR 1929. Lögfræðipróf HÍ 1934. Framhaldsnám, aðallega í stjórnlagafræði og refsirétti, í Danmörku, Þýskalandi og Englandi apríl 1935 til júlí 1936. Doktorspróf í lögum Háskóla Íslands 1968.
Starfsferill
Stundaði lögfræðistörf í Reykjavík ásamt öðrum störfum 1936—1940. Framkvæmdastjóri Landsmálafélagsins Varðar í Reykjavík 1936—1937. Erindreki Sjálfstæðisflokksins 1937—1939. Prófessor við Háskóla Íslands 1940—1950, en fékk lausn frá kennsluskyldu fyrst um sinn 10. febrúar 1947. Kjörinn 1947 borgarstjóri í Reykjavík, fékk 19. nóvember 1959 leyfi frá þeim störfum og lausn 6. október 1960. Skipaður 20. nóvember 1959 fjármálaráðherra, lausn 8. maí 1965. Sendiherra Íslands í Danmörku 1965—1969. Hæstaréttardómari 1. janúar til 16. september 1970. Skipaður 1971 prófessor við Háskóla Íslands. Skipaður 28. ágúst 1974 iðnaðar- og félagsmálaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september 1978. Skipaður 8. febrúar 1980 forsætisráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
Grunnskólapróf frá Grunnskóla Njarðvíkur 1986. Stundaði nám tvo vetur í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Próf í markaðs- og útflutningsfræðum frá Den Danske Exportskole 1996. Nám í spænsku í Malaga 2000-2001.
Starfsferill
Sjómennska á ýmsum fiskiskipum 1986-1995. Söluverktaki hjá útflutningsfyrirtækinu Fisco ehf. 1996-1998. Framkvæmdastjóri Noordzee Iceland 1998-2000. Gerði út netabátinn Örlyg KE 111 1999-2000. Flutti út frystar afurðir frá Íslandi til Spánar sem verktaki fyrir spænskt félag 2000-2002.
Stundaði nám í Verslunarskólanum í Reykjavík 1905—1906.
Starfsferill
Póstmaður í Reykjavík 1906—1907. Verslunarmaður þar 1907—1911. Stofnaði 1911 umboðs- og heildverslun í Reykjavík og rak hana einn til 1921, í félagi við Hallgrím Tulinius 1921—1939 (H. Benediktsson & Co.), síðan einn aftur til æviloka.
Verslunarpróf VÍ 1984. Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1986. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. M.Sc.-próf í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Edinborgarháskóla 1993.
Starfsferill
Starfsmaður Öryggismálanefndar 1990-1991. Deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu 1994–1995. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1995–1999. Aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1999–2006. Borgarfulltrúi 2002-2013. Forseti borgarstjórnar og formaður skipulagsráðs Reykjavíkur 2006–2008. Borgarstjóri í Reykjavík 2008-2010. Innanríkisráðherra 23. maí 2013 til 4. desember 2014.
Verslunarmaður á Vatneyri við Patreksfjörð 1901—1902. Stundaði jarðyrkju og ýmsa aðra vinnu 1903—1907. Bóndi í Haga á Barðaströnd frá 1907 til æviloka. Jafnframt umsjónarmaður Landssímahússins í Reykjavík 1930—1940.
Stúdentspróf MR 1987. BS-próf í hagfræði HÍ 1995. MBA-próf frá London Business School 2000.
Starfsferill
Fiskvinna á sumrin hjá Hjálmi hf. Flateyri 1983-1993. Leiðbeinandi við Grunnskóla Flateyrar 1987-1988. Organisti Flateyrarkirkju 1995-1996. Skrifstofumaður hjá Vestfirskum skelfiski á Flateyri 1995-1997. Stundaði rannsóknir í fiskihagfræði við HÍ 1997-1998. Aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra 2000-2005. Mennta- og menningarmálaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017.
Prestur í Staðarhólsþingum frá 1960 til 1970 þegar þau voru sameinuð breyttu Hvammsprestakalli sem hann gegndi til starfsloka 2005. Prófastur í Dalaprófastsdæmi 1969—1971 og prófastur í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi frá 1976—2005. Fréttaritari Morgunblaðsins 1970—1994.
Kvennaskólapróf Reykjavík 1882. Nám hjá Þóru Pétursdóttur biskups 1882—1884. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1884—1885 og aftur 1886—1893. Dvaldist enn erlendis 1901—1903 og kynnti sér skólahald, aðallega í Þýskalandi og Sviss.
Starfsferill
Við kennslustörf í Reykjavík 1893—1901. Kennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1903—1906, forstöðukona hans frá 1906 til æviloka.
Bóndi á Hvaleyri við Hafnarfjörð 1916—1919. Framkvæmdastjóri við útgerð og verslun í Hafnarfirði 1919—1928 og við frystihús og útgerð þar 1928—1968. Formaður stjórnar Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1965-1967.
Stundaði ýmis störf, m. a. búnaðarstörf í Noregi um skeið og sjómennsku tvær vertíðir í Vestmannaeyjum. Barnakennari tvo vetur. Framkvæmdastjóri Kaupfélagsins Þórs á Hellu á Rangárvöllum 1935—1953 og 1956—1959. Skipaður 11. september 1953 viðskipta- og iðnaðarmálaráðherra, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júní. Skipaður 20. nóvember 1959 landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.
stjórnendursveitarstjórnsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf Lsk. 1902. Stundaði verkfræðinám í Kaupmannahöfn 1902—1905 og læknisfræðinám í Reykjavík 1906—1909, en lauk ekki námi.
Starfsferill
Ritari í Landsbankanum í Reykjavík 1909—1915. Ritstjóri í Reykjavík 1915—1924 og aftur síðar nokkurn tíma. Fékkst þá við ýmis störf í Reykjavík um skeið. Stjórnarformaður og síðar framkvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá stofnun þess 1937—1945. Skipaður 17. apríl 1939 fjármálaráðherra, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður 18. nóvember 1941 fjármálaráðherra að nýju, fór einnig með iðnaðarmál, jafnframt falið 17. janúar 1942 að fara með bæjar- og sveitarstjórnarmál, lausn 16. maí 1942. Skipaður 16. maí 1942 fjármála-, dómsmála- og félagsmálaráðherra, lausn 14. nóvember 1942, en gegndi störfum til 16. desember. Skipaður 1945 sendiherra í Kaupmannahöfn, 1947 jafnframt sendiherra í Finnlandi. Lét af þeim störfum 1951.
Stúdentspróf MA 1996. Stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ 1997-2000. Diplóma í stjórnun og leiðtogafærni í sjávarútvegi HR 2014. Executive MBA frá Norwegian School of Economics 2020.
Varð aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn 1891 og jafnframt fulltrúi hjá Otto Petersen yfirréttarmálaflutningsmanni. Sýslumaður í Húnavatnssýslu 1894—1897, sat á Kornsá. Sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði 1897—1918. Forseti í amtsráði austuramtsins 1904—1907. Bæjarfógeti í Reykjavík frá 1918 til ársloka 1928, er honum var veitt lausn við skiptingu embættisins. Átti síðan heima í Reykjavík.
Stúdentspróf MA 1934. Lögfræðipróf HÍ 1938. Framhaldsnám í þjóðarétti við Lundúnaháskóla 1938—1939 og sumarið og haustið 1939 í Danmörku og Þýskalandi.
Starfsferill
Erindreki Sjálfstæðisflokksins 1939—1942, framkvæmdastjóri flokksins 1942—1952. Kennari í þjóðarétti og almennri lögfræði við Viðskiptaháskóla Íslands 1939—1941. Bankastjóri Útvegsbanka Íslands 1952—1963. Skipaður 1961 dóms- og kirkjumálaráðherra og iðnaðarmálaráðherra frá 14. september að telja til 31. desember 1961. Skipaður 14. nóvember 1963 að nýju dóms- og kirkjumálaráðherra og iðnaðarmálaráðherra, fór einnig með heilbrigðismál til 1. janúar 1970. Gegndi jafnframt störfum forsætisráðherra frá 10. júlí 1970. Skipaður 10. október 1970 forsætisráðherra og iðnaðarráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.
Rak verslun og útgerð í Vestmannaeyjum í félagi við Gunnar Ólafsson kaupmann og alþingismanns (og fyrst í stað einnig Pétur J. Thorsteinsson frá Bíldudal) 1909—1955. Búsettur í Reykjavík frá 1935 og hafði þar umboðsverslun um skeið. Skipaður 4. febrúar 1947 fjármála- og sjávarútvegsmálaráðherra, lausn 2. nóvember 1949, en gegndi störfum til 6. desember. Skipaður 6. desember 1949 sjávarútvegs-, samgöngu- og iðnaðarmálaráðherra, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Framkvæmdastjóri Samlags skreiðarframleiðenda frá stofnun þess 1953 til ársloka 1960.
Stúdentspróf MA 1940. Lögfræðipróf HÍ 1946. Hdl. 1947.
Starfsferill
Rak lögfræðiskrifstofu á Akureyri frá miðju ári 1946 til ársloka 1962. Var jafnframt erindreki Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi. Settur 15. september 1961 bankastjóri við Útvegsbankann í Reykjavík til ársloka. Bankastjóri Útvegsbankans 1963—1984.
Stúdentspróf Lsk. 1896. Læknisfræðipróf Læknaskólanum 1901. Við framhaldsnám á sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1901. Fór námsför til Kaupmannahafnar 1908 og síðar margsinnis til ýmissa Evrópulanda og þrisvar til Vesturheims, síðustu árin til þess að kynna sér mataræði og náttúrulækningar.
Starfsferill
Héraðslæknir á Fljótsdalshéraði 1901—1911, sat á Arnheiðarstöðum 1901—1902, á Hrafnkelsstöðum 1902—1903 og síðan að Brekku í Fljótsdal. Héraðslæknir í Sauðárkrókshéraði 1911—1938. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði lækningar þar, uns hann gerðist læknir við heilsuhæli Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði frá stofnun þess 1955—1958, átti heima í Hveragerði til æviloka.
búskapurstjórnendurþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Búfræðipróf Hólum 1932.
Starfsferill
Bóndi á Hranastöðum 1933—1946. Jafnframt ráðunautur Búnaðarsambands Eyjafjarðar og eftirlitsmaður Nautgriparæktarsambands Eyjafjarðar 1934—1940. Bústjóri og tilraunastjóri að Hafursá á Fljótsdalshéraði 1947—1949 og að Skriðuklaustri í Fljótsdal 1949—1962. Hefur síðan átt heima að Lagarfelli í Fellabæ. Fulltrúi hjá Norðurverki við Lagarfossvirkjun 1971—1974. Framkvæmdastjóri Verslunarfélags Austurlands 1974—1982.
Bóndi á Garðsstöðum 1901—1904 og hreppstjóri í Ögurhreppi þau ár. Yfirfiskmatsmaður fyrir Vestfirði búsettur á Ísafirði 1904—1909. Bókari við útibú Landsbankans á Ísafirði 1905—1914, útibússtjóri 1914—1923. Útgerðarmaður og jafnframt framkvæmdastjóri ýmissa fyrirtækja á Ísafirði 1923—1947. Bæjarstjóri á Ísafirði 1934.
Vann að verslunarstörfum á Akranesi 1928-1932. Rak eigin verslun þar 1932—1936. Verslunarstjóri við verslun Þórðar Ásmundssonar hf. á Akranesi 1936—1964. Framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Ásmundar hf. og hraðfrystihússins Heimaskaga hf. á Akranesi 1943—1970. Forstjóri Fiskiðjunnar Arctic hf. frá 1966 til æviloka.
Próf frá málmiðnaðardeild Iðnskólans í Reykjavík 1975. Próf í rekstrar- og viðskiptafræðum EHÍ 1996.
Starfsferill
Bóndi að Barkarstöðum í Miðfirði 1981-1985. Yfirmaður auglýsinga- og áskriftadeildar Stöðvar 2 1986-1990. Markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda 1991-1993. Rak ásamt eiginkonu sinni innflutningsfyrirtækið Rún ehf. 1994-2004. Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2005-2007. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Innanríkisráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Dómsmálaráðherra 1. febrúar 2022 til 19. júní 2023.
Hóf vorið 1926 störf í útibúi Landsbanka Íslands á Akureyri, lengstum bókari, en útibússtjóri 1961—1976. Vann í Hambros Bank í London hluta af árinu 1937.
Naut fræðslu í Sjómannaskóla Árnessýslu. Stýrimannapróf 1899 Stýrimannaskólanum í Reykjavík.
Starfsferill
Útróðrarmaður á Stokkseyri frá 16 ára aldri og sjómaður á fiskiskútum í Reykjavík. Skipstjóri á þilskipum 1899—1911. Framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins „Alliance“ og fleiri félaga 1911—1930. Skipaður 4. apríl 1930 bankastjóri Útvegsbankans og gegndi því starfi til æviloka.
Gagnfræðapróf Akureyri 1903. Búfræðipróf Hólum 1904. Nám í lýðháskólanum í Askov 1906—1907. Búnaðarnám í Danmörku og Noregi 1907—1908.
Starfsferill
Bústjóri föður síns á Reynistað 1908—1919. Bóndi þar frá 1919 til æviloka, frá 1947 á móti Sigurði syni sínum og í félagi við hann. Kennari í unglingaskóla í Vík í Staðarhreppi 1909—1910.
Starfaði á vegum landsstjórnarinnar að rannsóknum á byggingarefnum og húsagerð hér á landi 1903—1905. Landsverkfræðingur 1905—1917. Rak sjálfstæða verkfræðiskrifstofu ásamt byggingarvöruverslun í Reykjavík 1917—1923, en frá 1923 til æviloka byggingarvöruverslun í félagi við Óskar Norðmann. Skipaður 22. mars 1924 fjármálaráðherra, settur 6. júlí 1926 jafnframt forsætisráðherra í stað Jóns Magnússonar, sem látist hafði 23. júní. Skipaður 8. júlí 1926 forsætis- og fjármálaráðherra, lausn 28. júlí 1927, en gegndi störfum til 28. ágúst. Kosinn 30. desember 1932 borgarstjóri í Reykjavík frá 1. janúar 1933 að telja og gegndi því starfi til æviloka.
Stúdentspróf MA 1956. Lögfræðipróf HÍ 1963. Nám í Dartmouth College í Bandaríkjunum 1956—1957. Hdl. 1992.
Starfsferill
Starfaði við Dráttarbraut Akraness og vélsmiðjuna Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og eftir sameiningu þeirra hjá Þorgeiri og Ellerti hf. 1963—1978. Hefur rekið lögfræðiskrifstofu á Akranesi 1963—1964 og síðan 1991. Framkvæmdastjóri hjá Þorgeiri og Ellerti hf. 1983—1991. Deildarstjóri í samgönguráðuneytinu 1995.
Stúdentspróf MR 1925. Læknisfræðipróf HÍ 1931. Framhaldsnám, aðallega í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp, í Nürnberg í Þýskalandi 1931. Fór margar námsferðir til Evrópu og Bandaríkjanna, kynnti sér aðallega handlækningar og svæfingar, en einnig barnaverndarmál og áfengisvarnir. Sérfræðingsviðurkenning í heimilislækningum 1978.
Starfsferill
Staðgöngumaður héraðslæknanna í Seyðisfjarðar-, Blönduós- og Stykkishólmshéruðum 1931—1932. Starfandi læknir á Ísafirði 1932—1963, jafnframt aðstoðarlæknir við sjúkrahúsið þar, staðgöngumaður héraðs- og sjúkrahúslæknis í fjarvistum hans og sjúkrahúslæknir 1942—1946 og 1954. Héraðslæknir í Kópavogshéraði 1963—1977, heimilislæknir í Kópavogi 1978—1985. Yfirlæknir sjúkrahótels Rauða krossins 1977—1985.
stjórnendursveitarstjórntæknar og sérmenntað starfsfólk
Menntun
Vélavarðanámskeið Fiskifélags Íslands 1963. Farmannapróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1967. Stúdentspróf TÍ 1975. Próf í útgerðartækni TÍ 1977.
Starfsferill
Sjómaður á fiskiskipum og farskipum 1960-1976. Sveitarstjóri á Suðureyri 1977-1980. Framkvæmdastjóri Útvers hf. í Ólafsvík 1980-1986. Bæjarstjóri í Ólafsvík 1986-1990. Bæjarstjóri í Njarðvík 1990-1994.
Stúdentspróf MA 1977. Skipstjórnarpróf (1. og 2. stig) frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1978. Nám í íslensku og almennum bókmenntum við HÍ 1981-1984. Kennsluréttindapróf HÍ 1984.
Starfsferill
Stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík 1978-1981 og á sumrin 1981-1985. Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981-1986. Kennari við Dalvíkurskóla 1984-1986. Bæjarstjóri Dalvíkur 1986-1994. Í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga hf. 1987-1990. Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987-1992. Í stjórn Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-1993. Í stjórn Sæplasts hf. 1988-1994. Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994-1997. Í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-1997. Formaður stjórnar Samherja hf. 1996-1998. Bæjarstjóri Akureyrar 1998-2006. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998-2007. Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 1999-2008. Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2007. Í stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins 1999-2000. Í Ferðamálaráði Íslands 1999-2003. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000-2007. Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000-2007. Í stjórn Íslenskra verðbréfa 2002-2009. Heilbrigðisráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Ráðherra norrænna samstarfsmála 24. janúar til 30. nóvember 2017. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021.
Stúdentspróf MR 1967. Viðskiptafræðipróf HÍ 1977. Framhaldsnám við Verslunarháskólann í Björgvin 1979-1981. Eisenhower Fellow 1990.
Starfsferill
Skrifstofustjóri hjá Læknasamtökunum 1968-1972. Ráðgjafi í sjúkrahússtjórn hjá Arthur D. Little, Boston, Bandaríkjunum, 1982-1983. Forstöðumaður áætlana- og hagdeildar Ríkisspítalanna 1983-1985. Framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1985-1989. Kennari í heilsuhagfræði við Hjúkrunarskólann 1985-1986 og Nýja hjúkrunarskólann 1986-1989. Forstöðumaður þróunardeildar Ríkisspítalanna 1989-1991.
Fulltrúi við bæjarfógetaembættið í Reykjavík 1921—1924, var þá öðru hverju settur bæjarfógeti. Einkaritari Jóns Magnússonar forsætisráðherra 1921—1922. Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1924—1960. Formaður útvarpsfélags er stofnað var í Reykjavík 1925. Stofnaði og rak Prentsmiðju Austurlands frá 1946 í mörg ár. Hæstaréttardómari 1960—1964. Stundaði síðan ættfræðirannsóknir til æviloka.
Starfsmaður við Veðurstofu Íslands jafnframt háskólanámi. Bæjargjaldkeri í Ólafsfirði 1960—1968. Starfsmaður Efnahagsstofnunarinnar með aðsetur á Akureyri 1968—1970. Framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga 1970—1971. Bankastjóri Útvegsbanka Íslands 1984—1987. Sérfræðistörf á eigin vegum 1987—1988. Framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda 1988—1991. Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna síðan 1991.
Yfirréttarmálaflutningsmaður 1913—1916 og átti þá heima á Búðum í Fáskrúðsfirði. Settur 1917 sýslumaður í Suður-Múlasýslu, sat á Búðum. Aðstoðarmaður í fjármáladeild Stjórnarráðsins 1918—1920, síðan fulltrúi til 1921, jafnframt fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Reykjavík 1920—1921. Settur sýslumaður í Árnessýslu 1919, sat á Eyrarbakka. Sýslumaður í Suður-Múlasýslu 1921—1939, sat á Eskifirði. Skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu 1939—1952. Endurskoðandi Eimskipafélags Íslands 1949—1962.
Aðstoðarmaður í atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu 1907—1912 (1. janúar—31. mars 1909 vann hann þó í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu). Jafnframt fulltrúi hjá Eggert Claessen yfirréttarmálaflutningsmanni og málaflutningsmaður Landsbankans. Skipaður 1912 til þess að takast á hendur rannsókn á gjaldkeramáli Landsbankans. Sýslumaður í Skagafjarðarsýslu 1912—1918, sat á Sauðárkróki. Skipaður 1918 skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Skipaður 25. febrúar 1920 fjármálaráðherra og 2. febrúar 1922 jafnframt atvinnu- og samgöngumálaráðherra eftir lát Péturs Jónssonar (20. janúar 1922), lausn 2. mars 1922, en gegndi störfum áfram til 7. mars. Málaflutningsmaður í Reykjavík 1922—1924, 1927—1932 og frá 1934 til æviloka. Skipaður 22. mars 1924 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, jafnframt forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra eftir lát Jóns Magnússonar (23. júní 1926) til 8. júlí 1926, en þá tók Jón Þorláksson fjármálaráðherra við störfum forsætisráðherra. Skipaður 8. júlí 1926 atvinnu- og samgöngumálaráðherra og jafnframt dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 28. júlí 1927, en gegndi störfum áfram til 28. ágúst. Skipaður 3. júní 1932 dómsmálaráðherra, lausn 11. nóvember, en skipaður að nýju 23. desember 1932, lausn 16. nóvember 1933, en gegndi störfum áfram til 28. júlí 1934.
Stúdentspróf MR 1907. Las málfræði með ensku að sérgrein við Hafnarháskóla 1907—1908. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1911. Heiðursdoktor 1932 við háskólann í Tartu (Dorpat) í Eistlandi.
Starfsferill
Stundakennari við unglingaskóla Ásgríms Magnússonar í Reykjavík 1910—1911, við barnaskólann á Ísafirði 1915—1916, við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928—1929. Þjónaði Tjaldbúðasöfnuði í Winnipeg júlí—okt. 1911. Dvaldist í Reykjavík frá árslokum 1911 til miðs sumars 1912. Prestur Garða- og Þingvallasafnaða í Norður-Dakota í Bandaríkjunum 1912—1915. Prestur á Ísafirði 1915—1917. Dósent við guðfræðideild Háskólans 1917—1928 og prófessor 1928—1942. Prófessor að nýju 1943—1952, hafði lausn frá kennskuskyldu frá 1947. Skipaður 16. maí 1942 atvinnu- og viðskiptamálaráðherra, lausn 14. nóvember 1942, en gegndi störfum áfram til 16. desember. Skipaður 1947 formaður fjárhagsráðs og gegndi því starfi uns ráðið var lagt niður 1. október 1953.
Stúdentspróf MA 1940. Lögfræðipróf HÍ 1946. Hdl. 1947.
Starfsferill
Ritstjóri á Akureyri 1946—1948. Starfsmaður í fjármálaráðuneytinu 1948—1949, fulltrúi þar 1949—1953. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1953—1960. Bankastjóri Búnaðarbankans 1961—1965 og að nýju frá 1971 til æviloka. Skipaður 8. maí 1965 fjármálaráðherra, fór einnig með Hagstofu Íslands, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.
Starfsmaður í atvinnumálaráðuneytinu 1. júní 1957 til 1. ágúst 1958. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1. ágúst 1958 til 1. ágúst 1967. Rak málflutningsskrifstofu í Hafnarfirði 1967—1974 og aftur frá 1991. Skipaður 28. ágúst 1974 fjármálaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. sept. Skipaður 26. maí 1983 viðskiptaráðherra, ráðherra Hagstofu Íslands og samstarfsráðherra um norræn málefni, lausn 16. okt. 1985. Skipaður 24. janúar 1986 utanríkisráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 samgönguráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september.
Skrifstofustörf hjá Björgvin hf. á Ísafirði 1940—1942. Framkvæmdastjóri Vestfjarðabátsins hf. á Ísafirði 1942—1943. Framkvæmdastjóri Djúpbátsins hf. 1943—1968. Framkvæmdastjóri Vélbátaábyrgðarfélags Ísfirðinga 1960—1974, í stjórn félagsins frá 1960. Rak verslun á Ísafirði 1944—1973. Framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Kögurs 1959—1966. Skipaður 28. ágúst 1974 sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Skipaður 26. maí 1983 heilbrigðis- og tryggingamála- og samgönguráðherra, lausn 16. október 1985. Skipaður sama dag samgöngu- og viðskiptaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí.
Stúdentspróf MR 1929. Læknisfræðipróf HÍ 1936. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Reykjavík 1936—1937 og í Bandaríkjunum 1942—1943. Viðurkenndur 1943 sérfræðingur í berklalækningum.
Starfsferill
Aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum 1937—1942 og 1943—1945. Yfirlæknir vinnuheimilisins að Reykjalundi 1945—1972 og framkvæmdastjóri þess einn 1945—1948 og með öðrum til 1963. Læknir öryrkjavinnustöðvar Sambands íslenskra berklasjúklinga í Múlalundi í Reykjavík frá stofnun hennar 1959—1964.
Grunnskólapróf frá Grunnskóla Ólafsvíkur 1983. Stúdentspróf MA 1987. Cand.pharm. HÍ 1993.
Starfsferill
Kennari við búvísindadeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri 1993-1994. Yfirlyfjafræðingur í Akranesapóteki 1995-1997. Yfirlyfjafræðingur í Sauðárkróksapóteki 1997-1998. Lyfsali í Apótekinu Iðufelli 1999-2001. Markaðsfulltrúi og síðar sölustjóri hjá lyfjafyrirtækinu Eli Lilly 2001-2006. Eigin rekstur í lyfsölu síðan 2006.
Stúdentspróf MA 1931. Las næsta vetur lögfræði við Háskóla Íslands, en síðan hagfræði við Hafnarháskóla, hagfræðipróf 1938.
Starfsferill
Aðstoðarmaður, síðar fulltrúi í Hagstofu Íslands 1938—1942. Kennari í viðskiptadeild Háskóla Íslands 1942—1982, dósent til 1948, síðan prófessor. Jafnframt stundakennari við Verslunarskólann 1948—1967.
Stúdentspróf MA 1953. Nám í læknisfræði 1953—1955. Lögfræðipróf HÍ 1960. Hdl. 1977.
Starfsferill
Sveitarstjóri í Garðahreppi 1960—1972, oddviti hreppsnefndar 1972—1975 og forseti bæjarstjórnar 1976—1978. Skipaður 30. apríl 1991 menntamálaráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl.
Stúdentspróf MR 1912. Las lögfræði við Hafnarháskóla og Háskóla Íslands, en lauk ekki námi.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri togarafélagsins Kveldúlfs hf. í Reykjavík 1914—1939. Skipaður 14. nóvember 1932 dómsmálaráðherra, lausn 23. desember 1932. Skipaður 17. apríl 1939 atvinnumálaráðherra, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður 18. nóvember 1941 atvinnumálaráðherra að nýju, lausn 16. maí 1942. Skipaður 16. maí 1942 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 14. nóvember 1942, en gegndi störfum til 16. desember. Skipaður 21. október 1944 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 10. október 1946, en gegndi störfum til 4. febrúar 1947. Skipaður 6. desember 1949 forsætisráðherra og félagsmálaráðherra, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Skipaður 14. mars 1950 sjávarútvegs- og iðnaðarmálaráðherra, lausn 11. september 1953. Skipaður sama dag forsætis- og sjávarútvegsmálaráðherra, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí. Skipaður 20. nóvember 1959 forsætisráðherra, lausn 14. nóvember 1963.
Stúdentspróf MA 1981. BS-próf í hagfræði frá Suffolk University í Boston 1989.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna, SUS, 1982-1983. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1984-1987 og 1991. Fréttaritari Morgunblaðsins í Bandaríkjunum 1988-1990. Framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins 1991-1993. Stofnandi og ritstjóri Viðskiptablaðsins 1994-1999. Stjórnandi og umsjónarmaður útvarpsþátta um viðskipti og efnahagsmál á Bylgjunni 1997-1999. Ritstjóri DV 1999-2003. Útgefandi Viðskiptablaðsins 2003-2007. Ritstjóri Amx.is 2008. Sjálfstætt starfandi blaðamaður og ráðgjafi 2009-2013. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2014. Útgefandi og ritstjóri Þjóðmála, tímarits um stjórnmál og menningu, 2015-2016. Höfundur nokkurra bóka.
Stúdentspróf MR 1986. Lögfræðipróf frá HÍ 1994. MBA-próf frá HR 2002.
Starfsferill
Deildarstjóri í samgönguráðuneyti 1996-1999. Lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi Íslands 1999-2001. Stundakennari í lögfræði við Viðskiptaháskólann á Bifröst 1999-2002. Deildarstjóri viðskiptalögfræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst 2001-2002. Yfirmaður heildsöluviðskipta hjá Landsvirkjun 2002-2004. Framkvæmdastjóri sölusviðs hjá RARIK 2004-2005 en 2005 var rafmagnssala tekin inn í sérstakt fyrirtæki, Orkusöluna, framkvæmdastjóri Orkusölunnar 2005-2006. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands 2013-2014. Innanríkisráðherra 4. desember 2014 til 11. janúar 2017.
Stúdentspróf KÍ 1975. Fil. kand. próf í stjórnmálasögu og hagsögu frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð, 1979.
Starfsferill
Kennari við Þinghólsskóla í Kópavogi 1979-1980 og Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1980-1981. Blaðamaður á Vísi 1980-1981. Fréttastjóri á Tímanum 1981-1982. Aðstoðarritstjóri Iceland Review/Storðar 1982. Fréttamaður hjá RÚV, sjónvarpi 1982-1985 og aðstoðarfréttastjóri 1985-1986. Fréttastjóri Stöðvar 2 1986-1990 og framkvæmdastjóri hjá Stöð 2 1990-1991. Forstjóri Íslenska útvarpsfélagsins 1991-1994. Sjónvarpsstjóri Sýnar 1995-1996. Fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar 1996-2000. Framkvæmdastjóri samskipta- og upplýsingasviðs Íslenskrar erfðagreiningar 2000-2003. Framkvæmdastjóri dagskrár- og fréttasviðs Stöðvar 2 og Bylgjunnar 2003-2005. Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 2005-2013. Stundaði heimildamynda- og útvarpsþáttagerð 2013-2016.
Stúdentspróf MR 1925. Lögfræðipróf HÍ 1930. Nám í Grenoble og Toulouse í Frakklandi 1936—1937.
Starfsferill
Ritari í utanríkisráðuneyti Dana í Kaupmannahöfn 1930—1936. Sendiráðsritari við sendiráð Dana á Spáni 1936—1939 og við sendiráð Dana í Bretlandi 1939—1940. Fulltrúi íslensku viðskiptanefndarinnar í Lundúnum í febrúar 1940. Sendifulltrúi fyrir Ísland í Bretlandi 27. apríl 1940 og síðar á sama ári sendifulltrúi hjá norsku ríkisstjórninni í Lundúnum. Sendiherra í Bretlandi 1941—1944, jafnframt sendiherra hjá norsku ríkisstjórninni þar. Skipaður sendiherra í Sovétríkjunum 1944, jafnframt sendiherra í Frakklandi, Póllandi, Belgíu og Tékkóslóvakíu 1946, á Ítalíu 1947, í Sviss, Spáni og Portúgal 1949 og á Írlandi 1951. Hafði aðsetur í Moskvu 1944—1947, í París 1947—1956, er hann fékk lausn að eigin ósk. Fulltrúi Íslands í Efnahagssamvinnustofnun Evrópu (OEEC) frá upphafi 1948—1956. Fulltrúi á ráðherrafundum NATO og ýmsum fundum Evrópuráðsins til 1956. Bankastjóri Landsbanka Íslands frá 1956 til æviloka.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1965. Diplom-próf í eðlisfræði, stærðfræði og tölvufræði við Kölnarháskóla 1968. Diplom-próf í hagnýtri stærðfræði, líkindafræði, tölfræði, tryggingastærðfræði og alþýðutryggingum við Kölnarháskóla 1971. Doktorspróf við sama háskóla 1973.
Starfsferill
Sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands 1973-1975. Stundakennari við Háskóla Íslands 1973-1977. Forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna 1977-1984. Tryggingafræðileg ráðgjöf og útreikningar fyrir lífeyrissjóði og einstaklinga 1977-1994. Framkvæmdastjóri Kaupþings hf. 1984-1991. Kennari við Verslunarskóla Íslands 1991-1994. Starfandi stjórnarformaður Tölvusamskipta hf. 1994-1995.
Málaflutningsmaður í Reykjavík 1915—1941 og 1947. Jafnframt starfsmaður við Landsbankann 1915—1920. Bankastjóri Búnaðarbankans 1930—1937. Bankastjóri Landsbankans 1941—1945. Skipaður 21. október 1944 fjármála-, viðskiptamála- og landbúnaðarráðherra, lausn 10. október 1946, en gegndi embættinu til 4. febrúar 1947. Bankastjóri Landsbankans á ný 1947—1948.
Bóndi á Ytra-Hólmi frá 1916 til æviloka. Hreppstjóri í Innri-Akraneshreppi frá 1918 til æviloka. Í landsbankanefnd 1928—1930 og aftur 1938—1945. Í stjórn Búnaðarfélags Íslands frá 1942 til æviloka og í stjórn Fiskifélags Íslands 1945—1966. Endurskoðandi Búnaðarbankans 1937—1945. Skipaður 1951 í nefnd til að gera tillögur um almenna bankalöggjöf. Í stjórn Sementsverksmiðjunnar frá 1961 til æviloka.
Gagnfræðapróf Reykjavík 1944. Fiskimannapróf hið meira Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1949 og farmannapróf 1951. Nám í hagræðingartækni og stjórnunarstörfum hjá Iðnaðarmálastofnun Íslands í Reykjavík 1961.
Starfsferill
Háseti, bátsmaður og stýrimaður á vélbátum, togurum og farskipum 1943—1963, frá 1952 hjá Eimskipafélagi Íslands. Erindreki Sjálfstæðisflokksins milli þinga 1963. Forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði 1977—1992.
Stúdentspróf Kvennaskólanum í Reykjavík 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum 1994.
Starfsferill
Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995-1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996-1997 og verkefnisstjóri í Reykjavík 1997-1998. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1998-2005. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2005-2006. Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2006-2007. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017.
Stúdentspróf MA 1969. Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ 1988. BA-próf í íslensku HÍ 1991. Framhaldsnám í menntunar- og uppeldisfræðum með áherslu á stjórnun KHÍ 2002.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskólann í Mosfellsbæ 1983-1991, skólastjóri við sama skóla 1991-2000. Skólastjóri Hjallaskóla í Kópavogi 2001-2002. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar 2002-2007.
Húsmóðir. Rak verslun í Reykjavík 1954—1955. Lögfræðingur mæðrastyrksnefndar 1959—1960 og 1964—1971. Ritstjóri Lagasafns 1982—1983. Skipuð 26. maí 1983 menntamálaráðherra, lausn 16. október 1985. Skipuð 16. október 1985 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí.
Stúdentspróf MA 1966. BA-próf í íslensku, sagnfræði og grísku frá HÍ 1977. Framhaldsnám við Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum 1983.
Starfsferill
Starfsmaður Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins 1966-1967 og 1969-1971. Kennari við Grunnskóla Eyrarsveitar í Grundarfirði 1975-1990 og Gagnfræðaskólann í Mosfellsbæ 1990-1991. Skip. 15. sept. 2004 umhverfisráðherra; jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda síðan 27. sept. 2005, lausn 15. júní 2006.
Fulltrúi við verslun Tang & Riis í Stykkishólmi 1917—1931. Keypti þá verslun 1932 og rak hana til 1966 ásamt útgerð, reisti hraðfrystihús í Stykkishólmi 1941 og rak það síðan.
Stúdentspróf MA 1936. Lögfræðipróf HÍ 1941. Framhaldsnám í Cambridge í Englandi 1945.
Starfsferill
Blaðamaður og ritstjóri í Reykjavík 1941—1969. Skip. 1970 sendiherra í Danmörku, Írlandi og Tyrklandi og 1973 sendiherra í Kína. Skipaður 1976 sendiherra í Englandi, Hollandi og Nígeríu. Starfaði í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík 1982—1985, var sendiherra á Kýpur frá 1983 og í Túnis og Indlandi frá 1984 með aðsetur í Reykjavík.
Fjórða bekkjar próf Lsk. 1904. Dýralæknispróf við dýralækna- og landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn 1910. Sótti 1922 þriggja mánaða námskeið við sama skóla. Sérnám við rannsóknarstofnun í Kiel í Þýskalandi veturinn 1929—1930.
Starfsferill
Skipaður 1910 dýralæknir í Norðlendinga- og Austfirðingafjórðungi, frá 1918 einungis í Norðlendingafjórðungi, sat á Akureyri. Skipaður 1943 yfirdýralæknir landsins og jafnframt héraðsdýralæknir í Reykjavík, lausn 1. janúar 1956.
Stúdentspróf VÍ 1993. Lögfræðinám við Kaþólska háskólann í Leuven 1997. Lögfræðipróf HÍ 1998. Hdl. 1999.
Starfsferill
Starfaði á lögmannsstofu Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. meðfram laganámi. Fulltrúi á Lex lögmannsstofu 1998-1999, hdl. þar 1999-2003. Stundakennari við Iðnskólann í Reykjavík 2001-2002.
Skólastjóri barnaskóla í Bolungarvík 1910—1911. Ráðunautur Búnaðarsambands Vestfjarða 1912—1917. Kennari á Ísafirði 1915—1930. Ritstjóri í Reykjavík 1930—1932. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1934—1938. Forstjóri Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum 1939—1956.
Unglingaskólanám á Eyrarbakka 1911—1913. Verslunarnámskeið 1913.
Starfsferill
Stundaði ýmis störf til lands og sjávar, var m.a. stundakennari við barnaskólann á Eyrarbakka 1915—1916. Bifreiðarstjóri og verslunarmaður á Eyrarbakka 1919—1927. Kaupmaður á Selfossi 1927—1964. Stundaði verslunar- og skrifstofustörf í Reykjavík 1964—1974.
Stúdentspróf MA 1947. BA-próf í ensku og frönsku við Leeds-háskóla 1951. Framhaldsnám í frönsku og frönskum bókmenntum við Sorbonne-háskóla 1951—1952.
Starfsferill
Kennari við Gagnfræðaskóla Akraness 1947—1948. Blaðamaður við Morgunblaðið 1952—1955. Stundakennari við Verslunarskóla Íslands 1952—1953, við Námsflokka Reykjavíkur 1953—1955 og 1956—1958. Kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Reykjavík 1956—1966. Stundakennari við Málaskólann Mími 1960—1961. Kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð frá 1967.
Stúdentspróf MH 1985. BA-próf í stjórnmálafræði og hagfræði HÍ 1990. Diplómanám í fjölmiðlafræði HÍ 1991. MA-próf í stjórnsýslufræði HÍ 2000.
Starfsferill
Deildarritari á gjörgæslu Borgarspítalans 1981-1985. Starfaði hjá verkfræðistofunni Símtækni sf. 1985-1990. Blaðamaður á DV 1990-1991. Starfaði hjá utanríkisráðuneytinu við að kynna EES-samninginn 1991-1992 og hjá upplýsingaskrifstofu ESB í London 1992-1993. Ritstjóri Voga 1994-1998. Ritstörf frá 1998.
Starfaði hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík 1977-1978. Fulltrúi á lögmannsstofu Ragnars Aðalsteinssonar hrl. 1979-1981. Kennari við Verslunarskóla Íslands 1983-1986. Skipuð 28. maí 1999 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 23. maí 2003.
Gagnfræðapróf Skógaskóla 1961. Sveinspróf í húsasmíði Iðnskólanum í Reykjavík 1966, húsasmíðameistari. Raungreinapróf Tækniskóla Íslands 1970. B.Sc.-próf í byggingatæknifræði Tækniskóla Íslands 1973.
Starfsferill
Vann með námi við húsbyggingar hjá föður sínum í Ólafsvík. Störf á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen 1971-1974. Sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í Stykkishólmi 1974-1991. Stundakennari við Iðnskólann í Stykkishólmi 1978-1985. Skipaður 28. maí 1999 samgönguráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 samgönguráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Framkvæmdastjóri Þróunarfélags Snæfellinga 2011-2014 og bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar 2014-2018.
Starfsmaður Vinnuveitendasambands Íslands 1955—1956. Skrifstofustjóri Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1956—1960. Fulltrúi hjá blaðaútgáfunni Vísi hf. 1960—1962. Hefur starfað að útgerðarmálum með bræðrum sínum. Formaður og framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra verslunarmanna frá stofnun þess 1957—1972. Forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1975—1983. Skipaður 26. maí 1983 iðnaðarráðherra, lausn 16. október 1985. Skipaður 16. október 1985 menntamálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Bankastjóri Landsbanka Íslands 1988—1998.
Sótti námskeið í bókhaldsfræðum í Háskóla Íslands 1941. Nám í Bandaríkjunum 1946.
Starfsferill
Símstöðvarstjóri í Keflavík 1928—1940. Útgerðarmaður og hluthafi í ýmsum útgerðarfélögum frá 1934, stjórnarformaður Ísvers hf. í Súgandafirði 1949—1962, Rastar hf. í Keflavík 1952—1961 og Snæfells hf. í Keflavík 1956—1962. Framkvæmdastjóri fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækisins Garðs hf. í Sandgerði 1941—1942. Stofnandi og annar eigandi heildsölufyrirtækisins Jónsson & Júlíusson í Keflavík 1941—1946. Stofnandi og framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur sf. 1942—1947, rak síðan fyrirtækið áfram með öðrum til 1952. Annar eigandi útgerðarfélaganna Hilmis sf. og Hilmis hf. 1969—1990. Í viðskiptanefnd 1947—1950. Forstjóri sölunefndar innflutningsréttinda bátaútvegsins 1951—1956. Varaforstjóri Innflutningsskrifstofunnar 1954—1960. Forstjóri Verðlagsráðs sjávarútvegsins frá 1961—1963. Forstjóri Fiskveiðasjóðs Íslands 1970—1982.
Stúdentspróf MR 2000. Lögfræðipróf frá HÍ 2006. Hdl. 2007.
Starfsferill
Lögmaður hjá LOGOS 2006-2007. Stjórnandi hjá Eyrarodda hf. 2007-2011. Lögmaður hjá OPUS lögmönnum 2011-2014. Aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra 2014-2016. Varamaður í stjórn Landsvirkjunar 2013–2016. Formaður undanþágu- og mönnunarnefndar fiskiskipa 2013–2014. Lögfræðingur Íslenskrar orkumiðlunar 2018-2020. Lögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni 2020-2022. Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra 2022 og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar 2022-2023.
Stúdentspróf MR 1922. Lögfræðipróf HÍ 1926. Framhaldsnám í hagfræði í Cambridge og París 1926—1927 og kynnisferð til Spánar og Portúgals. Heiðursdoktor í lögum 18. ágúst 1944 við Rider College í Trenton í New Jersey í Bandaríkjunum.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Kveldúlfs hf. í Reykjavík 1927—1934. Forstjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda 1934—1940. Fór í markaðsleit og öðrum verslunarerindum til Argentínu, Brasilíu og Nýfundnalands 1935 og til Kanada og Bandaríkjanna 1938. Skipaður 1940 aðalræðismaður í New York. Skipaður 1941 sendiherra í Bandaríkjunum, gegndi því starfi til æviloka, sat í Washington. Skipaður 1947 sendiherra í Kanada, 1952 sendiherra í Argentínu og Brasilíu og 1956 á Kúbu. Skipaður 1947 fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum.
Stúdentspróf MA 1963. Nám í frönsku og sagnfræði við HÍ 1963-1964. Nám í frönsku og frönskum bókmenntum, ensku og atvinnulandafræði við Montpellier-háskóla í Frakklandi. Licence ès lettres-próf 1967, Maître ès lettres modernes 1970.
Starfsferill
Kennari við Menntaskólann á Akureyri 1970-1991, aðstoðarskólameistari 1973-1983. Hótelstjóri Hótel Eddu Akureyri 1971-1973. Ritstjóri Íslendings á Akureyri 1984-1985. Skipaður 2. mars 2002 menntamálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 menntamálaráðherra, lausn 31. desember 2003.
Iðnrekstrarfræðipróf Tækniskóla Íslands 1992. M.Sc.-próf í hagfræði HÍ 1995. Doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla 1998.
Starfsferill
Hljóðmaður hjá Stúdíó Mjöt 1981-1986. Klippari á Stöð 2 1986-1989. Starfaði fyrir fjármálaráðuneytið og Iðntæknistofnun sumarið 1991. Sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands 1992-1995, forstöðumaður þar 1995-2006. Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands 2004-2006. Forstjóri Askar Capital 2006-2009. Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra 2008. Prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík frá 2009.
Stúdentspróf ML 1994. Embættispróf í lögfræði frá HÍ 2000.
Starfsferill
Fulltrúi sýslumanns á Ísafirði 2000-2002, settur sýslumaður á Ísafirði frá ársbyrjun 2002 og fram á vor. Fulltrúi sýslumanns á Selfossi og aðstoðarmaður við Héraðsdóm Suðurlands 2002-2004. Lögfræðingur hjá Fasteignamati ríkisins 2004-2006. Sveitarstjóri Rangárþings eystra 2006-2009.
Stúdentspróf MA 1975. BA-próf í íslenskum fræðum og almennum bókmenntum frá HÍ 1982. Kennslu- og uppeldisfræði frá HA 1996. Diplóma frá EHÍ 2005, stjórnun og forysta í skólaumhverfi.
Starfsferill
Ritari sýslumanns Þingeyjarsýslu 1982-1983. Bókari við Lífeyrissjóðinn Björgu á Húsavík 1983-1986. Gjaldkeri við Alþýðubankann á Húsavík 1986-1987. Íslenskukennari, námsráðgjafi og deildarstjóri við Framhaldsskólann á Húsavík 1987-1999. Skólameistari við Framhaldsskólann á Laugum 1999-2013.
Stúdentspróf FNV 2004. Lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins 2006. Ökukennararéttindi frá símenntunardeild HÍ 2009. BA-próf í lögfræði HR 2013, ML-próf í lögfræði HR 2015.
Starfsferill
Almenn sveita-, verslunar- og skrifstofustörf með námi. Rekstur Hofsprents ehf. 2002-2007. Lögreglustörf hjá sýslumanninum á Sauðárkróki 2004-2005. Lögreglumaður hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2006-2008 og hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum 2008-2013.
Stúdentspróf MH 1972. Próf í bóklegu atvinnuflugi og blindflugi hjá Flugmálastjórn 1973. Cand.oecon.-próf frá HÍ 1977. MBA-próf frá Rutgers University, New Jersey 1997.
Starfsferill
Starfaði á reiknistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands 1972-1973. Vann með námi hjá Seðlabanka Íslands 1974-1976 og 1995-1996. Starfaði hjá Útvegsbanka Íslands, m.a. í hagdeild og sem eftirlitsmaður útibúa 1977-1987, útibússtjóri bankans í Vestmannaeyjum 1980-1987. Starfsmaður Kaupþings hf. 1987–1988. Kennari við Iðnskólann í Reykjavík 1989–1995. Forstöðumaður verðbréfamarkaðar Fjárfestingafélagsins 1991–1993. Sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og síðar Hagstofu Íslands 2000-2007. Framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta 2007-2014.
Stúdentspróf MA 1972. Viðskiptafræðipróf HÍ 1977. MA-próf í hagfræði Suður-Kaliforníu-háskóla í Los Angeles 1980 og doktorspróf 1982.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri SUS á sumrum 1976 og 1977. Hagfræðingur Félags íslenskra iðnrekenda sumurin 1978 og 1981. Hagfræðingur Vinnuveitendasambands Íslands 1982-1987. Framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands 1987-2003. Fulltrúi (skrifstofustjóri) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Whashington 2003. Ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu 2004-2006. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá 2006.
Lögfræðingur hjá Lögmönnum Höfðabakka 1993-1994. Yfirmaður samfélags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997-1999. Menntamálaráðherra 31. desember 2003 til 1. febrúar 2009. Forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins 2013-2016. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Utanríkisráðherra síðan 21. desember 2024.
Blaðamaður við Morgunblaðið jafnframt námi frá 1970, fastráðinn blaðamaður 1974-1975. Ritstjóri dagblaðsins Vísis frá júlí 1975 til 1979. Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands 1979-1983. Skipaður 16. október 1985 fjármálaráðherra, fór einnig með Hagstofu Íslands, jafnframt iðnaðarráðherra frá 24. mars 1987, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 forsætisráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september. Skipaður 30. apríl 1991 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skipaður 23. apríl 1995 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 11. maí 1999. Sendiherra í Lundúnum 1999-2003 og í Kaupmannahöfn 2003-2005.
Fékkst við ýmis lögfræðistörf ásamt sveitavinnu 1914—1917. Settur um stund 1914 sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1917—1920. Settur 1918 sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði. Settur 1919 sýslumaður í Árnessýslu. Sýslumaður í Dalasýslu 1920—1954, sat í Búðardal. Átti heima í Reykjavík síðustu ár sín. Rak búskap á Staðarfelli, í Sælingsdalstungu og á Fjósum um skeið.
Skiptinám á vegum AFS í Vínarborg 2005-2006. Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 2007. BA-próf í lögfræði HR 2010. Erasmus-skiptinám við Universität Salzburg vorönn 2011. ML-próf í lögfræði HR 2012.
Starfsferill
Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011-2012. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013–2014. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2013–2015. Aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014–2016. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 11. janúar 2017 til 27. nóvember 2021 og dómsmálaráðherra 14. mars til 6. september 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Utanríkisráðherra 1. febrúar 2022 til 14. október 2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Utanríkisráðherra 9. apríl 2024 til 21. desember 2024. Sérstakur erindreki (e. Special Envoy) framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum síðan febrúar 2025.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1976. Laganám HÍ 1980-1982. MBA HÍ 2012.
Starfsferill
Fiskvinnslustörf og fleira á skólaárum. Starfsmaður afgreiðslu Smyrils og Eimskips 1975-1979. Kennari við Seyðisfjarðarskóla 1976-1977. Fulltrúi í launadeild Ríkisspítalanna 1977-1980. Verslunar- og skrifstofustörf 1982-1983. Skrifstofustörf hjá Fiskvinnslunni hf. og Gullbergi hf. 1983-1990. Skrifstofu- og fjármálastjóri Fiskiðjunnar Dvergasteins hf. 1990-1995.
Bifreiðarstjóri í Kjósarsýslu 1945—1952. Sundlaugavörður í Reykjavík 1953—1959, forstjóri Sundlauganna 1959—1962. Fulltrúi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1962—1968. Fulltrúi hjá Almannavörnum ríkisins 1968—1971. Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi 1971—1978.
Skrifstofustjóri Sölunefndar setuliðseigna 1944—1946, jafnframt fulltrúi á lögfræðiskrifstofu Sigurðar Ólasonar febrúar 1944 til mars 1946. Bæjarstjóri á Ísafirði 1946—1948. Framkvæmdastjóri togarafélagsins Ísfirðings hf. 1949—1962. Stundaði einnig málflutning á Ísafirði þessi ár. Skrifstofustjóri Eimskipafélags Íslands í Kaupmannahöfn 1962—1964. Sýslumaður í Barðastrandarsýslu 1964—1968. Borgarfógeti í Reykjavík 1968—1981. Deildarstjóri yfir hlutafélagaskrá í viðskiptaráðuneytinu 1981—1987.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1935. Nám í hagfræði við háskólana í Kiel og München 1935—1938, B.Ec.Sc.-próf Kiel 1938.
Starfsferill
Framhaldsnám við London School of Economics veturinn 1939—1940. Sótti námskeið við háskólann í Oxford 1940 og var í frönskunámi í Vervier í Belgíu. Hlýddi á fyrirlestra í hagfræði og alþjóðarétti við Sorbonne-háskóla í París hluta úr vetri 1952.Skrifstofustjóri Shell hf. í Reykjavík 1940—1946. Framkvæmdastjóri Bókfellsútgáfunnar 1944—1971 og Heildverslunar Magnúsar Kjarans 1946—1971. Kennari í hagfræði við Verslunarskóla Íslands 1941—1948.
Stúdentspróf MA 1959. Próf í efnaverkfræði frá Technische Hochschule í Stuttgart 1964 og doktorspróf í matvælaverkfræði frá Rutgers University, New Jersey, í Bandaríkjunum 1972.
Starfsferill
Verkfræðingur hjá Fiskimjölsverksmiðjunni hf. í Vestmannaeyjum 1965—1966. Sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins 1966—1969 og 1972—1974, forstjóri 1974—1984. Aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1979—1980. Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands síðan 1987.
Framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins og Stuðla hf. frá stofnun þeirra 1955 til 1960. Ritstjóri Morgunblaðsins 1960—1974. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík frá því í september 1956.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Gagnfræðapróf Akranesi 1959. Ýmis stjórnunarnámskeið 1960-1970. Skipstjórnarréttindi (30 tn) 1989.
Starfsferill
Starfsmaður Skipasmíðastöðvar Þorgeirs & Ellerts 1961–1991, fyrst sem gjaldkeri, en síðar skrifstofustjóri og staðgengill framkvæmdastjóra frá 1970. Verslunarrekstur á Akranesi. Starfsmaður Hagstofu 2004–2005. Framkvæmdastjóri Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis 2005–2013.
Stúdentspróf MA 1959. Nám í lögum og sagnfræði við Háskóla Íslands.
Starfsferill
Vann við hvalskurð í hvalveiðistöðinni í Hvalfirði á 15 vertíðum frá 1954 til 1974. Kennari og blaðamaður á árunum 1959-1980. Vann á Endurskoðunarstofu Björns Steffensens og Ara Ó. Thorlacius á Akureyri 1976-1978. Skipaður 30. apríl 1991 landbúnaðar- og samgönguráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skipaður 23. apríl 1995 samgönguráðherra, lausn 28. maí 1999.
Stúdentspróf MA 1971. Guðfræðipróf HÍ 1976. Framhaldsnám í St. Paul í Bandaríkjunum 1993.
Starfsferill
Sóknarprestur í Bólstaðarhlíðarprestakalli 1976-1980. Sóknarprestur í Sauðárkróksprestakalli síðan 1980, prófastur síðan 1982. Vann við löggæslu, fangavörslu, sjómennsku o.fl. Kenndi við Húnavallaskóla, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Kennari 1967-1979. Stundaði lögmannsstörf og rak eigin lögmannsstofu 1976-2007. Fasteignasali 1984-1993 og 2004-2006. Í úrskurðarnefnd í vátryggingamálum síðan 1994.
Búfræðipróf Hólum 1909. Við verklegt nám í gróðrarstöðinni á Akureyri vorið 1909.
Starfsferill
Bóndi á Ytri-Löngumýri 1913—1915 og 1917—1923, á Mörk í Laxárdal 1915—1917, á Akri við Húnavatn 1923—1963, en þar átti hann heimili til æviloka. Skipaður 6. desember 1949 landbúnaðarráðherra, fór einnig með orku- og vegamál, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars.
Stúdentspróf frá MR 1966. Kandídatspróf í læknisfræði frá HÍ 1973. Framhaldsnám í Bretlandi 1974-1979, sérfræðingur í heimilislækningum 1980.
Starfsferill
Læknir við heilsugæslustöðina í Fossvogi frá nóvember 1980, þar af yfirlæknir 1980-1982 og frá febrúar 1997 til ágúst 2002. Settur aðstoðarborgarlæknir 1979-1980.
Rak eigin útgerð á Bakkafirði 1975—1977. Framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækisins Útvers hf. þar síðan 1977. Framkvæmdastjóri við byggingu ratsjárstöðvar á Gunnólfsvíkurfjalli 1985—1988.
Verslunarskólapróf VÍ 1936. Nám í Þýskalandi 1938—1939.
Starfsferill
Verslunarmaður hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu 1936—1938, fulltrúi þar 1942—1950. Skrifstofumaður í Reykjavík 1939—1942. Framkvæmdastjóri Verslunarfélags Vestur-Skaftfellinga 1951—1961. Skrifstofustjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í Reykjavík 1961—1985. Settur forstjóri ÁTVR 1985—1986.
sérfræðingartæknar og sérmenntað starfsfólkþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MA 1985. Skipstjórnarréttindi á 30 tonna skip. Stundaði fjarnám við KÍ 1994-1996 og 1998-1999. Í MBA-námi á viðskipta- og hagfræðibraut HÍ.
Starfsferill
Sjómaður með námi til 1985. Starfsmaður Hafrannsóknastofnunar 1985-1986 og gestamóttöku Hótels Sögu 1985-1990. Kennari við Grunnskóla Siglufjarðar á árunum 1990-1999. Formaður Kennarafélags Siglufjarðar 1991-1996. Starfaði við umboðs- og verslunarfyrirtæki sitt 1992-1999. Fréttaritari Morgunblaðsins 1992-1999. Kynningarfulltrúi Olíuverslunar Íslands 1999-2001. Verkefnastjóri hjá Impru, Nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun síðan 2003.
Vélfræðipróf Tekniska Institutet í Stokkhólmi 1936.
Starfsferill
Vélfræðingur við Vélsmiðjuna Héðin í Reykjavík 1936—1943, forstjóri og meðeigandi frá 1943 til æviloka. Jafnframt forstjóri Stálsmiðjunnar og Járnsteypunnar frá 1943.
Gagnfræðapróf Flensborg 1942. Sveinspróf í vélvirkjun frá Iðnskóla Akraness 1946. Fullnaðarpróf frá Vélskólanum í Reykjavík 1949, einnig frá rafmagnsdeild skólans.
Starfsferill
Vélstjóri á togurum 1948—1956. Verksmiðjustjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness hf. 1956—1960, framkvæmdastjóri hennar 1960—1991 og jafnframt Vélsmiðjunnar hf. og Heimaskaga hf. frá 1971.
Blaðamaður við dagblaðið Verdens Gang í Ósló 1904—1905. Settur vorið 1906 og fram á sumar sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði. Yfirréttarmálaflutningsmaður í Reykjavík 1907—1914. Aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1909—1910, starfsmaður í veðdeild Landsbanka Íslands 1910—1914. Sýslumaður í Húnavatnssýslu 1914—1918, sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðsfirði 1918—1937. Starfsmaður í endurskoðunardeild fjármálaráðuneytisins 1941—1947.
Stúdentspróf Lsk. 1888. Cand. mag. í þýsku og klassískum málum Hafnarháskóla 1894. Dvaldist því næst um hríð í Þýskalandi.
Starfsferill
Varð fyrst stundakennari við Lærða skólann í Reykjavík 1895, síðar aukakennari, vikið frá 1904. Ritstjóri Ingólfs 1903—1904. Skipaður 1909 viðskiptaráðunautur til 31. desember 1913, er það starf var lagt niður. Skipaður 1915 dósent í latínu og grísku við Háskóla Íslands og gegndi því starfi til æviloka. Vann alla ævi jöfnum höndum að ritstörfum og fékk styrk til þeirra 1914—1915 af opinberu fé.
Stúdentspróf Lsk. 1869. Við laganám og ritstörf í Kaupmannahöfn 1871—1874 og 1878—1883, en lauk ekki lagaprófi.
Starfsferill
Heimiliskennari hjá Brynjólfi Benedictsen kaupmanni í Flatey 1869—1871. Rak prentsmiðju ásamt blaða- og bókaútgáfu og bókaverslun í Reykjavík. Stofnaði blaðið Ísafold 1874 og var ritstjóri þess að kalla mátti óslitið til 1909. Skipaður ráðherra Íslands 31. mars 1909, lausn 14. mars 1911.
Dvaldist í Skotlandi, Noregi og Danmörku 1873—1874 og lagði stund á smíðar. Vann að trésmíðum og verslunarstörfum 1874—1881. Fyrirvinna hjá móður sinni í Grímstungu 1881—1882. Bóndi á Hofi í Vatnsdal 1882—1886, í Grímstungu 1886—1899 og á Kornsá 1899—1925, átti þar heima til æviloka.
Fulltrúi hjá stiftamtmanni í Ribe í Danmörku 1902—1903 og síðan um hríð í málafærsluskrifstofu í Fjerritslev. Málafærslumaður við landsyfirdóminn 1905— 1906. Sýslumaður í Snæfellsnessýslu 1906—1911, Suður-Múlasýslu 1911—1917, Árnessýslu 1917—1920. Starfsmaður Áfengisverslunar ríkisins 1922—1924. Fulltrúi bæjarfógeta í Vestmannaeyjum 1927—1931, á Ísafirði 1932—1934 og á Akureyri 1934—1950.
Stúdentspróf Lsk. 1887. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1894. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1895—1896. Heiðursdoktor HÍ 1941.
Starfsferill
Héraðslæknir í Skagafirði 1894—1896, sat á Sauðárkróki. Héraðslæknir í Eyjafirði 1896—1907, sat á Akureyri. Héraðslæknir í Reykjavíkurhéraði og jafnframt kennari við Læknaskólann 1907—1911. Prófessor í læknadeild Háskólans 1911— 1936. Jafnframt settur 1921 til að gegna landlæknisstörfum í orlofi landlæknis. Rektor Háskólans 1915—1916 og 1924—1925. Kennari við Stýrimannaskólann 1912—1921 og 1922—1932.
Fékk Goðdali 1886, Breiðabólstað í Vesturhópi 1893 og Reynistaðarklaustursprestakall 1914, sat á Sauðárkróki, lausn 1934. Prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi 1906—1914, í Skagafjarðarprófastsdæmi 1919—1934. Vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi 1928—1937.
Jarðyrkjustörf í Dölum 1887—1892. Kennari við búnaðarskólann í Ólafsdal 1892—1894. Skólastjóri búnaðarskólans á Hvanneyri 1894—1907, kennari þar 1907—1911. Bóndi á Ytri-Skeljabrekku í Andakíl 1907—1915, í Arnarholti í Stafholtstungum frá 1915 til æviloka.
Stúdentspróf Lsk. 1882. Cand. mag. í norrænum fræðum Hafnarháskóla 1886. Dr. phil. Hafnarháskóla 30. júní 1888.
Starfsferill
Dvaldist við fræðistörf og ritstörf í Kaupmannahöfn til 1898, er hann fluttist til Reykjavíkur. Skipaður 1899 landsskjalavörður, 30. desember 1915 þjóðskjalavörður og hafði það embætti á hendi til æviloka. Skrifstofustjóri Alþingis 1894 og 1901—1905.
Settur sýslumaður í Rangárvallasýslu 1904 og sýslumaður í Skaftafellssýslu 1904—1905. Aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1906, jafnframt málaflutningsmaður við yfirréttinn í Reykjavík. Sýslumaður í Vestmannaeyjum 1910—1924. Aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1924—1952 og starfaði þá aðallega að endurskoðun.
Gagnfræðapróf Möðruvallaskóla 1895. Nám í Blaagaard Seminarium í Kaupmannahöfn frá 1901, kennarapróf 1904. Nám í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1907—1908.
Starfsferill
Kennari í Bárðardal 1895—1898 og 1900—1901, í Grundarþingum 1898—1900. Kennari við kvennaskólann á Akureyri 1904—1907. Stundakennari við gagnfræðaskólann á Akureyri 1905—1906 og 1908—1911. Skólastjóri við barna- og unglingaskólann á Seyðisfirði 1911—1945. Rak búskap á Klyppsstað í Loðmundarfirði 1917—1924 og á Sörlastöðum í Seyðisfirði 1925—1931.
Prestur á Söndum í Dýrafirði 1884—1903, Útskálum 1903—1916. Prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi 1912—1916. Fluttist til Reykjavíkur í fardögum 1916 og dvaldist þar til æviloka. Fulltrúi í endurskoðunardeild Landsbankans í Reykjavík 1916—1930.
Stúdentspróf Lsk. 1904. Læknisfræðipróf Læknaskólanum 1909. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Danmörku 1909—1910. Fór utan 1920 í þágu milliþinganefndar um berklavarnir. Námsför til Hamborgar 1928—1929.
Starfsferill
Héraðslæknir í Strandahéraði 1909—1922, sat á Hólmavík. Póstafgreiðslumaður á Hólmavík 1910—1922. Bæjarlæknir í Reykjavík, síðar héraðslæknir 1922—1949. Læknir við heilsuverndarstöð Líknar og Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 1926—1958.
Nam trésmíðar á Akureyri og fullkomnaðist í því námi í Kaupmannahöfn 1880—1882.
Starfsferill
Stundaði jöfnum höndum smíðar, þilskipaútgerð og verslun í Hafnarfirði 1884—1900. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði húsasmíðar og útgerð. Framkvæmdastjóri timburverslunarinnar Völundar 1903—1911. Rak síðan togaraútgerð, verksmiðjuiðnað og verslun. Síðari árin aðaleigandi og stjórnandi útgerðarfélagsins Sleipnis.
Stúdentspróf Lsk. 1870. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1873. Dvaldist eftir það um skeið í Englandi.
Starfsferill
Stundakennari við barnaskólann í Reykjavík 1873—1876. Skólastjóri barnaskólans á Ísafirði 1876—1879. Fékk 1878 Ás í Fellum, en fluttist ekki austur fyrr en vorið 1879. Valþjófsstaður var sameinaður Ási 1883 og fluttist hann þangað um fardaga 1884. Fékk 1894 Helgafell, sat þá í Stykkishólmi, lausn 1916. Prófastur í Norður-Múlaprófastsdæmi 1888—1894, Snæfellsnesprófastsdæmi 1895—1916. Fluttist til Reykjavíkur haustið 1916 og dvaldist þar til æviloka. Prófdómari við Kennaraskólann frá 1927 til æviloka.
Nám í kvöldskóla verslunarmanna í Reykjavík 1888—1889.
Starfsferill
Sótti sjó á vetrum, en vann sveitavinnu á sumrum í æsku. Verslunarmaður í Reykjavík 1889—1896, starfsmaður Brydes-verslunar í Vík í Mýrdal, bókhaldari 1896—1899, en verslunarstjóri 1899—1908. Fluttist til Vestmannaeyja 1909 og rak þar verslun og útgerð, lengi í félagi við Jóhann Þ. Jósefsson alþingismanns og ráðherra, oft settur sýslumaður í Vestmannaeyjum.
Sparnaðarbandalagið (4)
búskapurþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
búskapurstjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Gagnfræðapróf Flensborg 1884.
Starfsferill
Kennari í Hafnarfirði 1885—1887 og í Garðahreppi 1895—1898. Hóf útgerð 1886, árabáta- og þilskipaútgerð til 1924 og síðan togaraútgerð. Formaður á árabátum 1886—1895. Bóndi í Hlíð í Garðahreppi 1895—1900, á Óseyri við Hafnarfjörð 1900—1910 og hóf samhliða útgerð, verslun og fiskverkun. Kaupmaður og útgerðarmaður í Hafnarfirði 1910—1934. Framkvæmdastjóri og einn eigenda Fiskveiðihlutafélags Faxaflóa 1905—1907.
Gagnfræðapróf Flensborg 1900. Verslunarnám í Edinborg.
Starfsferill
Verslunarmaður í Reykjavík og Ólafsvík til 1906. Verslunarstjóri á Hellissandi 1906—1914. Meðstofnandi firmans Bræðurnir Proppé 1914, forstjóri Þingeyrarverslunar þess 1914—1920, útflutningsstjóri firmans í Reykjavík 1920—1926. Hóf þá eigin kaupsýslu þar og rak fiskútflutningsverslun til 1932. Meðstofnandi Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda 1932, varð þá einn af forstjórum þess og gegndi því starfi til æviloka. Fór árlega verslunarferðir til Suðurlanda og Bandaríkjanna 1920—1946. Aðstoðarmaður Sveins Björnssonar sendiherra 1936 í milliríkjasamningum við Ítali og Grikki.
Pöntunar- og kaupstjóri á Eyrarbakka 1905—1908, við verslunarstörf og kaupmennsku þar og í Reykjavík 1909—1914. Bóndi og útvegsmaður í Þorlákshöfn 1914—1928, í Garði á Eyrarbakka 1928—1930. Síðan um skeið fisksölustjóri í Reykjavík.
utan þingflokka (9)
framhaldsmenntunháskólamenntun: lögfræðibúskapursérfræðingar
Stúdentspróf MR 1911. Las lögfræði við Hafnarháskóla 1911—1912. Lögfræðipróf HÍ 1917.
Starfsferill
Ritstjóri dagblaðsins Vísis í Reykjavík 1914—1915. Yfirréttarmálaflutningsmaður í Reykjavík 1917—1922. Bóndi að Selalæk 1924—1928, fékkst jafnframt mikið við hestaverslun. Fluttist aftur til Reykjavíkur 1928 og stundaði þar lögfræðistörf til æviloka.
Nám í Hvítárbakkaskóla 1905—1907. Verslunarskólapróf VÍ 1916. Nám í Kennaraskólanum fyrri hluta vetrar 1914—1915.
Starfsferill
Farkennari í Reykholtsdal 1908—1909, í Lundarreykja- og Skorradal 1909—1913 og í Andakíl síðari hluta vetrar 1914—1915. Verslunarmaður í Stykkishólmi 1916—1917, í Borgarnesi 1917—1921. Kaupfélagsstjóri í Hornafirði 1922—1943. Varð 1943 skrifstofustjóri Grænmetisverslunar ríkisins, forstjóri 1944—1956. Sat í fjárhagsráði 1948—1953. Einn af forstöðumönnum Innflutningsskrifstofunnar 1954—1960.
Búfræðipróf Ólafsdal 1896. Við búfræðinám á Jaðri í Noregi 1899—1901. Dvaldist um skeið í Danmörku við frekara nám í landmælingum og landskiptareglum.
Starfsferill
Vann að jarðyrkju á Vestfjörðum og sunnanlands, mælingum á landi Reykjavíkur 1896—1899 og gerði kort af bænum. Bústjóri í Brautarholti á Kjalarnesi 1901—1908 hjá Sturlu Jónssyni kaupmanni. Bóndi á Ásgautsstöðum í Flóa 1909—1918, jafnframt ráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands og kenndi bændum plægingar og notkun sláttuvéla. Verkstjóri hjá Landsverslun í Reykjavík frá 1918 til æviloka.
Skrifari hjá Júlíusi amtmanni Havsteen á Akureyri 1884—1889. Sýslumaður í Vestmannaeyjum 1891—1896. Landshöfðingjaritari (landritari) 1896—1904. Skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1904—1908. Bæjarfógeti í Reykjavík 1909—1917. Skipaður 4. jan. 1917 forsætis-, dóms-, kirkju- og kennslumálaráðherra, lausn 12. ágúst 1919, en gegndi störfum til 25. febrúar 1920. Skipaður 25. febrúar 1920 forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra að nýju, lausn 2. mars 1922, en gegndi störfum til 7. mars. Skipaður 22. mars 1924 forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra í þriðja sinn og gegndi þeim störfum til æviloka.
Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1907—1920 og 1924—1926. Settur 29. september 1919 málaflutningsmaður við landsyfirréttinn til 31. desember. Skipaður 1920 sendiherra í Danmörku, lausn 1924. Skipaður 1926 að nýju sendiherra í Danmörku, lausn 1941. Ráðunautur ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum 1940—1941. Kjörinn af Alþingi ríkisstjóri Íslands 17. júní 1941 til jafnlengdar 1942, endurkjörinn 9. maí 1942 og 17. apríl 1943. Kjörinn af Alþingi fyrsti forseti Íslands að Lögbergi á Þingvöllum 17. júní 1944. Þjóðkjörinn án atkvæðagreiðslu frá 1945 og aftur frá 1949. Sat á Bessastöðum.
Stúdentspróf Lsk. 1877, samtímis próf í hebresku við Prestaskólann. Guðfræðipróf Hafnarháskóla 1883. Prófessor að nafnbót 1907.
Starfsferill
Stundakennari við Lærða skólann í Reykjavík veturinn 1883—1884. Fékk Reykholt 1884, varð sama ár prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Fékk 1885 Akureyri í brauðaskiptum við séra Guðmund Helgason. Kennari við Prestaskólann 1885, forstöðumaður hans 1894. Settur til þess að þjóna jafnframt dómkirkjuprestsembættinu í Reykjavík frá því í maímánuði 1889 til júnímánaðar 1890. Kenndi nokkra vetur sögu Íslands í einum bekk barnaskólans í Reykjavík. Skipaður 19. september 1908 biskup yfir Íslandi. Rak búskap í Laufási í Reykjavík, þar sem áður hét Móhús, frá 1896 til æviloka.
stjórnendursérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1975. B.Sc.-próf í stærðfræði með hagfræði sem aukagrein frá University of Wisconsin 1977. MS-próf í tölfræði frá Florida State University 1979. Doktorspróf í tölfræði sem aðalgrein og stærðfræði sem aukagrein frá Florida State University 1981.
Starfsferill
Kennsla við Verslunarskóla Íslands 1982-1986. Stofnaði árið 1984 ráðgjafarfyrirtækið Talnakönnun og stýrði því til 2016. Framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins Heims 2000-2016. Ritstjóri Skýja 2005-2016 og Vísbendingar 2006-2016. Hefur setið í og gegnt formennsku í allmörgum stjórnum fyrirtækja, nefndum og ráðum. Fjármála- og efnahagsráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.
Verzlunarpróf VÍ 1984. Stúdentspróf FÁ 1987. B.ed.-próf frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1990. Diplóma í íþróttafræðum frá Íþróttaháskólanum í Köln, Þýskalandi 1994. Diplóma í stjórnun skólastofnana KHÍ 2000. Diplóma í opinberri stjórnsýslu HÍ 2017.
Starfsferill
Frístundaleiðbeinandi hjá ÍTR 1986-1988. Knattspyrnuþjálfari hjá Knattspyrnufélaginu Fram 1988-1990, Frechen 1920 í Þýskalandi 1991-1994 og University of South Carolina í Bandaríkjunum 1994. Æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996. Deildarstjóri íþrótta- og tómstundadeildar Akureyrarbæjar 1996-2002. Bæjarstjóri Austur-Héraðs 2002-2004, Fljótsdalshéraðs 2004-2010 og Akureyrarbæjar 2010-2018. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar 2019-2022 og menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar 2023-2024.
Stúdentspróf MS 1982. Próf frá Lögregluskóla ríkisins 1989. BSc-próf í viðskiptafræði HR 2005, MSc-próf í reikningshaldi og endurskoðun HR 2007.
Starfsferill
Lögreglumaður, varðstjóri, aðalvarðstjóri, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum í Reykjavík 1987-1991 og 1998-2004, hjá lögreglustjóranum á Ísafirði 1991-1997, hjá ríkislögreglustjóranum 2004-2007, hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2008-2014 og 2016-2024, hjá sérstökum saksóknara 2009-2015, hjá héraðssaksóknara 2016. Viðskiptafræðingur hjá Deloitte, endurskoðun 2007-2008.
Stúdent af félagsbraut FS 1978. Stúdent af viðskiptabraut FS 1987. Próf í kerfisfræði frá Tölvuháskóla VÍ 1989.
Starfsferill
Fulltrúi í innheimtudeild Útvegsbanka Íslands 1979–1981. Leiðbeinandi við Grunnskólann í Sandgerði 1981–1987. Ráðgjafi á meðferðarstofnun fyrir vímuefnaneytendur í Svíþjóð 1990–1992. Framkvæmdastjóri Nýs miðils hf., sem rak útvarpsstöðina Brosið og Suðurnesjafréttir, 1993–1995. Starfsmaður byggingavöruverslunarinnar Járn og skip 1995–1996. Verslunarstjóri Kaskó í Keflavík 1996–1998. Framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Suðurnesja 1998–2019. Ýmis tónlistarstörf samhliða öðrum störfum.
Stúdentspróf MR 1985. BA-próf í heimspeki og hagfræði HÍ 1999. MBA-próf frá University of California Davis 2001.
Starfsferill
Blaðamaður á Morgunblaðinu 1990-1999. Formaður nefndar menntamálaráðuneytis, ÍSÍ og UMFÍ um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna 1996-1997. Formaður nefndar menntamálaráðuneytis og skrifstofu jafnréttismála um konur og fjölmiðla 1998-1999. Framkvæmdastjóri Stjórnendaskóla HR 2001-2003. Framkvæmdastjóri HR 2003-2005. Í starfshópi menntamálaráðuneytis um mótun íþróttastefnu 2005-2006. Framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips 2005-2006. Í nefnd á vegum menntamálaráðherra um lög um opinbera háskóla 2007-2008. Stundakennari í HR 2007-2009. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2007-2009. Stundakennari við Háskólann á Bifröst 2009-2011. Forstöðumaður viðskiptaþróunar Icepharma 2010-2012. Í stjórn Sjálfstæðra Evrópumanna frá 2010. Í stjórn MP banka 2011-2014. Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma 2012-2016. Í stjórn Hlíðarenda ses. frá 2013. Atvinnuvegaráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf (Baccalauréat Géneral) frá Lycée Emile Duclaux í Frakklandi 2004. BA-próf í frönsku frá HÍ 2007. MA-próf í alþjóðasamskiptum frá HÍ 2011.
Starfsferill
Starfsmaður sendiráðs Íslands í París 2010. Rannsóknir í Evrópumálum við Háskóla Íslands 2011-2012, 2013 og 2014. Sérfræðingur hjá sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og vefstjóri hjá Evrópustofu 2011-2013. Sérfræðingur hjá Particip GmbH 2013-2014. Sérfræðingur hjá Nordberg Innovation ehf. 2015-2016. Verkefnastjóri hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands 2010-2011 og 2014-2016. Stundakennari við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands 2015-2016. Aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands 2016.
Ýmsir framhaldsskólar og listnámskeið. Meistaragráða í sviðslistum (MFA) frá LHÍ 2021.
Starfsferill
Hefur starfað sem leikari í öllum atvinnuleikhúsum landsins, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og er félagi í Félagi íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum (FÍL). Hefur einnig starfað sem rithöfundur, leikskáld og handritshöfundur og er meðlimur í Rithöfundasambandi Íslands.<br>Borgarstjóri Reykjavíkur 2010-2014.
Stúdentspróf MA 1978. Embættispróf í lögfræði HÍ 1985. MPM frá tækni- og verkfræðideild HR 2013.
Starfsferill
Lögfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu 1985. Staðgengill framkvæmdastjóra Vinnumálasambands samvinnufélaganna 1985-1988. Aðstoðarframkvæmdastjóri og síðar framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 1988-2010. Í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins 2000-2004, stjórnarformaður 2004-2010. Í stjórn Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands 2002-2013. Stjórnarformaður Tækniskólans, skóla atvinnulífsins, 2007-2010. Í stjórn Geogreenhouse ehf. 2010-2013. Varaformaður stjórnar Framtakssjóðs Íslands 2011-2012. Í stjórn Lánatryggingasjóðs kvenna 2011-2013. Formaður stjórnar Landsbréfa hf. 2011-2013. Formaður stjórnar EVRIS Advice ehf. 2013-2015. Framkvæmdastjóri Evris Foundation ses. 2014-2015. Í stjórn Regins hf. 2014-2015. Framkvæmdastjóri Nordberg Innovation ehf. 2015-2016. Framkvæmdastjóri TravAble ehf. 2016.
Stúdentspróf MÍ 2009. BS- próf í sálfræði HÍ 2013. Diplóma í opinberri stjórnsýslu, HÍ 2020. <br>
Starfsferill
Forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Djúpið, Ísafirði 2009-2010. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2013-2014. Markaðsstjóri GOmobile 2014-2015. Sérfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu/dómsmálaráðunyetinu 2015-2017. Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar 2017-2022. Kynningarstýra UN Women á Íslandi 2022-2023. Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar 2023-2024.
Starfsmaður Fóðurblöndunnar 1989–1992. Dagskrárgerðarmaður og dagskrárstjóri á Aðalstöðinni og X-inu 977 1992–1998. Umsjónarmaður dægurmálaútvarps Rásar 2 1998. Fréttamaður á fréttastofu Sjónvarpsins 1998–2000. Fréttamaður á Stöð 2 2000–2002. Einn af umsjónarmönnum Kastljóss á RÚV 2002–2015 og ritstjóri 2010–2015. Umsjónarmaður Gettu betur 2006–2008. Umsjónarmaður Útsvars 2007–2017. Þulur í Eurovision 2006–2010. Umsjónarmaður Okkar á milli 2020–2021. Umsjónarmaður þáttarins Nýjasta tækni og vísindi 2020. Stjórnandi Morgunútvarps Rásar 2 2015–2021. Hefur að auki stýrt fjölmörgum öðrum þáttum á RÚV, Rás 2 og Stöð 2, m.a. kosningaumfjöllun og kosningasjónvarpi. Kennari í miðlun upplýsinga við MBA-nám HÍ 2020–2021.
Stúdentspróf MR 1998. Cand. juris HÍ 2005. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá Columbia University í Bandaríkjunum 2011.
Starfsferill
Vann við blaðamennsku á DV á háskólaárum. Aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2007-2008. Aðstoðarmaður dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur 2008-2009. Vann við rannsóknarstörf í Háskóla Íslands, EDDA – Öndvegissetur 2012-2013. Aðstoðarsaksóknari hjá ríkissaksóknara 2013-2015. Deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst 2015-2017. Aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra 2017. Saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara 2018-2020. Dómsmálaráðherra síðan 21. desember 2024.
Stúdentspróf MR 1990. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1995. AMP frá IESE Business School, University of Navarra. Stundaði framhaldsnám í stjórnun og stefnumótun við HÍ 2011-2013.
Starfsferill
Leiðbeinandi við Grunnskóla Siglufjarðar 1994-1995. Blaðamaður á Viðskiptablaði Morgunblaðsins 1995-1998. Forstöðumaður hjá Kaupþingi/Kaupthing Bank Luxembourg 1998-2002. Forstjóri/framkvæmdastjóri BM Vallár hf. 2002-2010. Framkvæmdastjóri Samtaka álframleiðenda 2010-2013. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins 2013-2016. Félags- og jafnréttismálaráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.
Stúdentspróf MR 1968. Próf í forspjallsvísindum HÍ 1971. Cand. mag. próf í jarðvísindum frá Óslóarháskóla 1973. Framhaldsnám í jarðvísindum við HÍ 1983-1984. Námskeið í fornveðurfræði og jöklajarðfræði við EHÍ 1991.
Starfsferill
Rannsóknastörf á vegum jarðhitadeildar Orkustofnunar 1968-1970, jöklarannsóknir 1969-1971. Kennslustörf 1973-1987, lengst af við Menntaskólann við Sund, konrektor 1985-1986. Námsráðgjafi 1986-1987. Prófdómari í jarðvísindum 1988-1998. Sérstörf hjá Samvinnuferðum-Landsýn 1987-1989. Ferðaleiðsögn um Ísland síðan 1967 og í útlöndum síðan 1997. Ráðgjafarstörf hjá verkfræðistofunni Línuhönnun/Efla 1998-2012. Útvarpsþáttagerð 1978-2008 og gerð sjónvarpsefnis og heimildarmynda fyrir RÚV 1983-2016. Þáttagerð fyrir Stöð 2 1990-2002. Veðurfréttamaður hjá Stöð 2 1989-1996 og 1998-2002. Ráðgjafi fyrir Landgræðslu ríkisins 1987-2000 og hjá Rannís um kynningu á vísindum 1997-2000. Ráðgjöf og störf fyrir Saga Film 1984-1998 auk ráðgjafar fyrir Panarctica, ON og Pegasus. Hönnun ýmissa safna og sýninga 2002-2016, þar á meðal Lava Centre á Hvolsvelli. Fulltrúi Rannís í úthlutunarnefnd ritlauna til fræðirithöfunda 2006-2008. Þátttaka í stefnumótun vegna náttúruverndarlaga 1989 og vegna nýtingar hálendisins 1996 fyrir samgönguráðuneytið. Höfundur fræðibóka, stuttsögusafns, sjö ljóðabóka og fjögurra skáldsagna.
Stúdentspróf MR 1968. Lögfræðipróf HÍ 1974. Framhaldsnám í eignar- og þjóðlendurétti í Ósló 1974-1975. Hdl. 1979. Framhaldsnám í vinnurétti í Kaupmannahöfn 1981-1982. Hrl. 1989.
Starfsferill
Við garðyrkjustörf með námi 1963-1974. Á síld sumarið 1968. Lögfræðingur hjá skattrannsóknardeild ríkisskattstjóra 1976-1980. Sjálfstætt starfandi lögmaður 1980-2007. Lögmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, síðar Eflingar – stéttarfélags, síðan 1982. Settur saksóknari 1989-1992 í ýmsum efnahagsbrotamálum og lögreglustjóri 1997 vegna rannsóknar á meðferð lögreglu á málum tengdum fíkniefnasala. Setudómari í Félagsdómi og í Hæstarétti. Nefndarmaður í gjafsóknarnefnd, refsiréttarnefnd og úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla 1992-2000.
Stúdentspróf MR 1971. B.Sc.-próf í líffræði HÍ 1975. Nám í þýsku og fjölmiðlun við Freie Universität í Vestur-Berlín 1976-1977.
Starfsferill
Kenndi líffræði með námi í MH og MR. Blaðamaður, þingfréttamaður og um tíma fréttastjóri við Þjóðviljann 1977–1987. Framkvæmdastjóri laxeldisstöðvarinnar Hafeldis í Straumsvík 1987–1989. Vann við gerð einkaleyfisumsókna og skráningu vörumerkja 1989–1991. Blaðamaður í lausamennsku 1991-1996. Upplýsingafulltrúi Samtaka um kvennaathvarf 1994–1995 og framkvæmdastjóri ráðstefnu norrænna kvennaathvarfa á Íslandi í nóvember 1995. Útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands 1996-2007 og ritstjóri Náttúrufræðingsins 1996-2006. Heilbrigðisráðherra 1. október 2009 til 2. september 2010.
Stúdentspróf MH 1979. Cand.mag.-próf í hagfræði og rússnesku frá Óslóarháskóla 1986. Framhaldsnám í slavneskum málvísindum við Stokkhólmsháskóla og Moskvuháskóla 1986-1988. Nám í opinberri stjórnsýslu við EHÍ 2000-2001.
Starfsferill
Fréttaritari RÚV í Moskvu 1988. Fréttamaður hjá RÚV 1988-1989. Deildarstjóri í samgönguráðuneytinu 1989-1991. Ritstjóri og ritstjórnarfulltrúi á Þjóðviljanum og síðar Helgarblaðinu 1991-1992. Félags- og launamálafulltrúi Kennarasambands Íslands 1992-1998. Aðstoðarmaður borgarstjóra 1998-1999. Framkvæmdastjóri þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1998. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1994-2007. Forseti borgarstjórnar 2002-2005. Formaður stjórnar Dagvistar barna 1994-1998. Varaformaður fræðsluráðs 1994-1996. Formaður stjórnar SVR 1996-1998. Formaður hafnarstjórnar 1994-2006. Formaður skipulags- og byggingarnefndar 1999-2002. Formaður samgöngunefndar 2002-2005. Formaður umhverfisráðs 2005-2006. Í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga 1994-2004, formaður 1997-2004. Verkefnisstjóri verkefnisins EES og íslensk sveitarfélög í Brussel 2005. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2007, varaformaður 2006-2007.
B.Ed.-próf KHÍ 2005 með áherslu á upplýsingatækni og samfélagsgreinar. Diplóma í náms- og starfsráðgjöf HÍ 2008.
Starfsferill
Almannatryggingafulltrúi og gjaldkeri á sýsluskrifstofu Ólafsfjarðar 1988-1991. Stýrði daglegum rekstri og skrifstofuhaldi Vélsmiðju Ólafsfjarðar 1989–2005. Rak Íslensk tónbönd 1994-1999. Leiðbeinandi við Barnaskóla Ólafsfjarðar 2000-2005. Var með veitingarekstur 2005–2016. Kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar 2005–2008. Síðar í Grunnskóla Fjallabyggðar til 2012. Sat í nemendaverndarráði skólans 2008-2012. Náms- og starfsráðgjafi í Menntaskólanum á Tröllaskaga og brautarstjóri starfsbrautar 2011-2013. Matvælaráðherra 9. apríl 2024 til 17. október 2024.
Skipstjórnarpróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1984. Kennsluréttindi HA 2006.
Starfsferill
Sjómaður síðan 1975. Stýrimaður og skipstjóri á togaranum Sólbergi ÓF-12. Yfirstýrimaður og síðar skipstjóri á frystitogaranum Kleifabergi ÓF-2 síðan 1997. Hafði umsjón með fyrsta stigs námi við Stýrimannaskólann í Ólafsfirði 1986-1988. Leiðbeinandi í sjóvinnu við Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði 1986-1988. Kennari á námskeiðum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum.
Stúdentspróf MR 1992. BA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum 1996. M. Phil.-próf í heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi 2000.
Starfsferill
Aðstoðarmaður prófessors í félagsvísindum við Harvard 1994-1996. Fræðslufulltrúi hjá miðstöð innflytjenda í Berlín 1996-1997. Starfaði við almannatengsl hjá General Motors Europe 1997-1999. Sjálfstæð fræðistörf hjá Reykjavíkurakademíunni 2001. Starfaði einnig sem kennari og pistlahöfundur. Starfsmaður skrifstofu Alþingis 2001-2007, m.a. framkvæmdastjóri þingmannanefndar um norðurskautsmál. Framkvæmdastýra þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2007-2009.
Stúdentspróf MA 1997. Hússtjórnarpróf frá Hússtjórnarskólanum í Reykjavík 1997. BS-próf í líffræði frá HÍ 2002. MS-próf í umhverfisfræði frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum 2006.
Starfsferill
Rannsóknir á vegum líffræðideildar HÍ 1999-2000 og Veiðimálastofnunar á Hólum í Hjaltadal sumrin 2000-2002 og 2004-2005. Landvörður á Þingvöllum 2003. Stundakennari í nokkrum námskeiðum við Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólasetur Vestfjarða á árunum 2006-2017. Starfaði hjá Landgræðslu ríkisins við alþjóðamál og rannsóknir 2006-2008 og hjá Stofnun Sæmundar fróða, Háskóla Íslands, við rannsóknir og verkefnastjórnun 2008-2011. Landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði 2009-2011 og 2014. Umsjónarmaður meistaranáms í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ 2010. Framkvæmdastjóri Landverndar 2011-2017. Umhverfis- og auðlindaráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022, félags- og vinnumarkaðsráðherra síðan 1. febrúar 2022. Ráðherra norrænna samstarfsmála 28. nóvember 2021 til 17. október 2024.
Stúdent ME 2001. BS-próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2011. ML-próf í lögfræði HR 2013.
Starfsferill
Almenn verkamannastörf 2001–2008. Lögfræðingur loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun 2013–2014. Verkefnastjóri og persónuverndarfulltrúi hjá Austurbrú ses. 2018–2021.
Stúdentspróf MR 1965. Búfræðipróf Hvanneyri 1967. Búfræðikandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1970.
Starfsferill
Kennari við Lækjarskóla í Hafnarfirði 1965-1966. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1970-1974. Bóndi í Bjarnarhöfn 1971-1982. Stundakennari við Grunnskóla Stykkishólms 1976-1981. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal 1981-1999. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 10. maí 2009 til 31. desember 2011.
Stúdentspróf MS 1996. BA-próf í íslensku með frönsku sem aukagrein HÍ 1999. Meistarapróf í íslenskum bókmenntum HÍ 2004.
Starfsferill
Málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV í hlutastarfi 1999–2003 auk fjölmargra sumarstarfa. Dagskrárgerð fyrir ljósvakamiðla og ritstörf fyrir ýmsa prentmiðla 2004–2006. Kennsla fyrir EHÍ, símenntunarmiðstöðvar og Mími tómstundaskóla 2004–2007. Ritstjórnarstörf fyrir Eddu – útgáfu og JPV-útgáfu 2005–2006. Stundakennsla við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólann í Reykjavík 2006–2007. Menntamálaráðherra 1. febrúar til 10. maí 2009, mennta- og menningarmálaráðherra 10. maí 2009, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013. Samstarfsráðherra Norðurlanda 1. febrúar 2009 til 23. maí 2013. Í fæðingarorlofi 31. maí til 31. október 2011. Forsætisráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021 og 28. nóvember 2021 til 9. apríl 2024.
Verslunarpróf VÍ 1973. Burtfararpróf frá Leiklistarskóla Íslands 1978.
Starfsferill
Leikari og hvíslari hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1978-1979, leikari og bókhaldari í Alþýðuleikhúsinu 1979-1983. Fulltrúastörf á skrifstofu Listahátíðar Reykjavíkur, störf hjá Kvikmyndafélaginu Óðni og Kvikmynd og fulltrúastörf hjá Leiklistarskóla Íslands 1979-1983. Framkvæmdastjóri Kramhússins 1984-1985. Leikstjóri og leikari hjá Svörtu og sykurlausu 1983-1986. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp 1980-1990. Framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga 1988-1993. Fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið 1995-1998. Lausráðinn leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar og hjá sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópum 1980-1999, auk þess að hafa leikstýrt fjölda leiksýninga hjá skólaleikfélögum og áhugamannaleikfélögum um land allt. Kennsla á leiklistarnámskeiðum víða um land, í Færeyjum og á Írlandi. Stjórnandi stórra menningarviðburða, m.a. Þjóðleiks á Þingvöllum á Lýðveldishátíðinni 1994, dagskrárstjóri á Kristnihátíð á Þingvöllum 2000. Skipuð umhverfisráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 1. febrúar 2009, lausn 10. maí 2009.
Stúdentspróf VÍ 1981. BBA-próf í viðskiptafræði frá University of Iowa 1984. Kennsluréttindanám frá Philipps-Universität, Marburg, 1987. MA-próf í þróunarhagfræði frá University of Sussex, Brighton, 1988. Dr. phil. í hagfræði frá University of Manchester Institute of Science and Technology (UMIST) Management School 1999.
Starfsferill
Kennari við VÍ 1985-1986. Hagfræðingur hjá ASÍ 1988-1989. Lektor við HA 1989-1991. Ráðgjafi og námskeiðakennari hjá Iðntæknistofnun Íslands 1992-1993. Verkefnaráðinn ráðgjafi atvinnu- og félagsmálaráðherra grænlensku heimastjórnarinnar 1995-1997. Verkefnaráðinn sérfræðingur í sérfræðingahópi ESB 1997-1999. Kennari og sérfræðingur við Tækniháskólann í Luleå, Svíþjóð, 1999-2000. Dósent við Háskólann í Reykjavík 2000-2002. Prófessor við Háskólann á Bifröst 2003-2007. Verkefnaráðinn sérfræðingur í sérfræðingahópum ESB 2004-2009. Hagfræðingur hjá HÍ frá 2008.
Gagnfræðapróf Reykjum í Hrútafirði 1973 og hefur síðan sótt ýmis námskeið.
Starfsferill
Oddviti Suðureyrarhrepps 1990-1994. Starfsmaður Sundlaugar og íþróttamiðstöðvar Suðureyrar. Starfaði hjá Íslenskri miðlun við tölvuskráningu og símasölu og hefur auk þess starfað við verslun og fiskvinnslu.
Stúdentspróf MK 1984. Kandídatspróf í læknisfræði HÍ 1990. Sérfræðinám í almennum lyflækningum við University of Connecticut, Primary Care Internal Medicine Recidency Program 1992-1995, sérfræðipróf í lyflækningum 1996. Sérfræðinám í öldrunarlækningum við University of Connecticut, School of Medicine, Travelers, Center on Aging 1996-1997, sérfræðipróf í öldrunarlækningum 1998.
Starfsferill
Stundakennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík 1986-1990, við HÍ 1988 og Framhaldsskóla Vestfjarða 1991-1992 og 1998. Heilsugæslulæknir á námstíma á Ísafirði og Flateyri 1988-1990. Heilsugæslulæknir á heilsugæslustöðinni og læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 1991-1992, yfirlæknir heilsugæslunnar 1992. Settur héraðslæknir Vestfjarða 1992. Læknir á The Reservoir, endurhæfingarstofnun fyrir aldraða, meðfram námi 1997. Sérfræðingur og yfirlæknir lyfja-, endurhæfingar- og öldrunarlækningadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði 1998-2000. Sérfræðingur á LSH frá 2000. Bæjarfulltrúi í Kópavogi 2006-2017.
Stúdentspróf MR 1995. DELF-próf í frönsku frá Université de Stendhal 1996. Leiðsögumannapróf frá Leiðsöguskóla Íslands 1998, gönguleiðsagnarpróf 2003. BA-próf í frönsku og fjölmiðlafræði HÍ 2000.
Starfsferill
Leiðsögumaður á hálendi Íslands 1998–2003 og ásamt öðrum störfum 2005-2009. Dagskrárgerðarkona á RÚV, Rás 2, Rás 1, NFS og Stöð 2 og fréttakona á mbl.is 2002-2007. Fréttaritstjóri hjá sjónvarpsstöðinni France 24 2007-2008. Fréttaritstjóri og fréttaritari á Íslandi fyrir Al Jazeera, TF1, BBC, CBC, NRK, France 24 og fleiri erlendar fréttastöðvar 2008-2009. Fréttakona á fréttastofu RÚV 2009-2010. Fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins 2010-2014. Framkvæmdastjóri þingflokks VG 2015-2016. Ritstjóri 19. júní 2005 og 2006.
Stúdentspróf MA 1976. B.Sc.-próf í jarðfræði HÍ 1981. Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ 1982.
Starfsferill
Vörubifreiðarstjóri á sumrum 1978-1982. Við jarðfræðistörf og jafnframt íþróttafréttamaður hjá RÚV 1982-1983. Landbúnaðar- og samgönguráðherra 28. september 1988 til 30. apríl 1991. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí 2009. Fjármálaráðherra 1. febrúar 2009 til 31. desember 2011. Efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 31. desember 2011 til 31. ágúst 2012. Fór með iðnaðarráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Júlíusdóttur 6. júlí til 1. september 2012. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 1. september 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013. Höfundur nokkkurra bóka.
Stúdentspróf MH 1997. BA-próf í mannfræði HÍ 2002. MA-próf í fötlunarfræði HÍ 2013.
Starfsferill
Starfaði hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað 1998-2000 og síðan við ýmis skrifstofu- og verkamannastörf. Verkefnisstjóri hjá námsbraut í fötlunarfræði við félags- og mannvísindadeild HÍ 2014.
Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989-1993.
Starfsferill
Leiðbeinandi við Grunnskólann í Hrísey og kennari við Tónlistarskólann í Hrísey 1982-1984. Stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990-1994. Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994 og við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005. Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998. Framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006. Borgarfulltrúi í Reykjavík 2006-2009. Umhverfisráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Fór með menntamálaráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Jakobsdóttur 31. maí til 31. október 2011. Umhverfis- og auðlindaráðherra 1. september 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013. Heilbrigðisráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Matvælaráðherra 1. febrúar 2022 til 9. apríl 2024. Innviðaráðherra 9. apríl 2024 til 17. október 2024.
Próf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1973. Framhaldsnám í hand- og lyflækningahjúkrun 1983. Diplóma frá Norræna heilbrigðisháskólanum 1992.
Starfsferill
Hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Borgarspítalanum 1973-1980. Hjúkrunarfræðingur við Heilsuverndarstöðina í Reykjavík og Heilsugæslustöðina Asparfelli 1980-1982 og við sjúkrahúsið á Egilsstöðum 1983-1985. Hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum 1985-1988 og hjúkrunarfræðingur þar 1988-1990. Fræðslufulltrúi Krabbameinsfélags Íslands 1990-1996. Hjúkrunarfræðingur við Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum / Heilbrigðisstofnun Austurlands 1994-1999.
sveitarstjórnsérfræðingarþjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk
Menntun
Stúdentspróf MR 1969. MA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði Edinborgarháskóla, Skotlandi, 1974.
Starfsferill
Kennari við grunnskóla Reykjavíkur 1971-1972. Rannsóknir við Edinborgarháskóla og ýmis hlutastörf 1974-1978. Fréttamaður Ríkisútvarpsins, hljóðvarps og síðan sjónvarps, 1978-1988, í Kaupmannahöfn 1986-1988. Stundakennari við Háskóla Íslands síðan 1979. Formaður BSRB 1988-2009. Heilbrigðisráðherra 1. febrúar til 1. október 2009, dómsmála- og mannréttindaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2. september 2010 til 31. desember 2010. Innanríkisráðherra 1. janúar 2011, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Gagnfræðapróf Dalvík 1969. Nám í Eau Claire Wisconsin U.S.A. Memorial High 1971, Garðyrkjuskóla ríkisins 1971-1974 og Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1974-1979.
Starfsferill
Garðyrkjustjóri á Akureyri 1979-1986. Umhverfisstjóri á Akureyri 1986-1999.
Stúdentspróf FVA 2008. BA-próf í mannfræði HÍ 2012. Diplóma í alþjóðasamskiptum frá VID Specialized University 2013. Meistaragráða í breytingastjórnun frá Háskólanum í Stavanger 2015. Doktorsnám í umhverfis- og þróunarfræðum við Norwegian University of Life Sciences (ólokið).
Starfsferill
Sérfræðingur í sjálfbærnimálum og almannatengslum hjá Allianz SE í München 2022-2024. Pólitískur ráðgjafi hjá flokkahópi norrænna vinstri grænna hjá Norðurlandaráði 2021-2023.
Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1993. B.Ed.-próf frá Háskólanum á Akureyri 1998. Hefur lokið 165 einingum til BA-gráðu í íslensku við Háskóla Íslands. Framhaldsskólakennaraleyfi 2010.
Starfsferill
Vann við ýmis störf fyrir 1998, einkum skrifstofu- og þjónustustörf. Kennari í Síðuskóla á Akureyri vorið 1998. Kennari í Nesskóla í Neskaupstað 1998-2003. Íslenskukennari við Verkmenntaskóla Austurlands frá 2003. Starfaði við skipulagningu þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs 2011-2017.
Stúdentspróf MH 1998. Búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2000. BS-próf í vistfræði og umhverfisvernd frá Umhverfis- og lífvísindaháskóla Noregs að Ási 2005.
Starfsferill
Verkefnisstjóri Skóla á grænni grein (Grænfánans) hjá Landvernd 2008–2012. Landvörður og aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 2012–2015. Aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar og þjóðgarðsvörður á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 2015–2017. Aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra 2017–2021.
Stúdentspróf VÍ 1965. Fyrrihlutapróf í lögfræði við HÍ, en hvarf frá námi.
Starfsferill
Stundaði ýmis störf frá 1965. Var framkvæmdastjóri félagasamtaka. Vann nokkur ár hjá Reykjavíkurborg og við skipamiðlun og útgerð. Framkvæmdastjóri Skálatúnsheimilisins 1981—1988. Starfsmaður heildsölunnar Satúrnusar hf. frá 1991.
Hjúkrunarfræðipróf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1968. Framhaldsnám í hjúkrunarstjórn við Nýja hjúkrunarskólann 1987-1988. Nám í skurðhjúkrun á Íslandi og í Danmörku.
Starfsferill
Skurðhjúkrunarfræðingur á Borgarspítalanum 1968-1969. Hjúkrunarfræðingur á geðdeild í Árósum 1971. Skurðhjúkrunarfræðingur í Árósum 1972-1980. Hjúkrunarfræðingur við göngudeild Landspítalans 1980-1981. Skurðhjúkrunarfræðingur við skurðdeild kvennadeildar Landspítalans 1982-1988. Hjúkrunarframkvæmdastjóri Landspítalans frá 1988.
Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962-1971. Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Félagsmálaráðherra 8. júlí 1987 til 24. júní 1994. Félagsmálaráðherra 24. maí 2007 og félags- og tryggingamálaráðherra í ársbyrjun 2008 til 1. febrúar 2009. Forsætisráðherra 1. febrúar 2009, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Heimiliskennari í Keflavík 1890—1891. Fékk Hofteig 1891, Desjarmýri 1904, lausn 1907 vegna brjóstveiki. Hafði forgöngu um stofnun Búnaðarsambands Austurlands. Sýslunefndarmaður í Norður-Múlasýslu 1896—1904. Amtsráðsmaður í austuramtinu fyrir Norður-Múlasýslu 1901—1907.
Gagnfræðapróf Möðruvöllum 1883. Stúdentspróf Lsk. 1889. Nam læknisfræði við Hafnarháskóla, síðar við Læknaskólann í Reykjavík, læknisfræðipróf 1896. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1896—1897.
Starfsferill
Staðgöngumaður héraðslæknis á Suðurnesjum sumarið 1896. Læknir í Berufjarðarhéraði 1897—1928, 1905 og 1911 jafnframt settur um tíma til að þjóna Hornafjarðarhéraði, bjó á Búlandsnesi. Fluttist 1928 til Reykjavíkur og þá ráðinn eftirlitsmaður með berklahælum og berklavörnum. Lyfsölustjóri 1931—1939 og jafnframt eftirlitsmaður lyfjabúða.
Kennari í Barðastrandarsýslu 1877—1878. Fékk Selvogsþing 1880, Holtaþing 1884, sat í Guttormshaga, fékk Arnarbæli í Ölfusi 1893, lausn frá fardögum 1903. Gerðist prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík 1903 og forstöðumaður (prestur) utanþjóðkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði 1913. Lét af prestsstörfum í Reykjavík 1922 og í Hafnarfirði 1930. Prestur við sjúkrahúsið að Kleppi. Kenndi mörgum piltum undir skóla.
Stúdentspróf MR 1970. Próf í rekstrarhagfræði við háskólann í Hamborg, Þýskalandi, 1975. Framhaldsnám við háskólana í Hamborg og Kiel 1975-1977. Doktorspróf við háskólann í Hamborg 1978.
Starfsferill
Framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík hf. 1977-1990. Prófessor við Háskóla Íslands síðan 1990.
Stúdentspróf MA 1939. Viðskiptafræðipróf HÍ 1943. Nam við Stokkhólmsháskóla 1946—1948.
Starfsferill
Skrifstofustörf hjá Landsbanka Íslands 1941 og hjá Olíuverslun Íslands 1942—1946. Hagfræðistörf hjá fjárhagsráði 1948—1954. Kennari í stærðfræði við Kvennaskólann í Reykjavík 1954—1956. Við hagfræðileg einkastörf 1956—1961, m. a. í þágu Stéttarsambands bænda. Starfsmaður hjá Útvegsbankanum 1961—1965. Framkvæmdastjóri Kjararannsóknarnefndar 1965—1968. Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi 1968—1971 og aftur 1975—1982, sat á Egilsstöðum. Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins í Reykjavík 1972—1974.