Efnisyfirlit

50% tengdur, 25% raunverulegur

   23. júlí 2022     2 mín lestur

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt um kaup Síldarvinnslunnar á Vísi hf fyrir 31 milljarð króna. Við það myndu fylgja 9.500 tonn af þorskkvóta, eða rétt rúmlega 5,4% af úthlutuðum þorkskvóta 2021/2022. Síldarvinnslan á fyrir um 1,9% af þorskkvóta upp á samtals 7,3% af öllum þorskkvóta á landinu. Það er nokkurn vegin jafn mikið og hlutdeild Samherja í þorskkvótanum.

Samkvæmt lögum má enginn eiga meira en 12% af þorskkvótanum, eða eins og það er orðað: “samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila, aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild”. Þar teljast tengdir aðilar vera þeir sem eiga beint eða óbeint meirihluta í hinum aðilanum eða fer með meirihluta atkvæðisréttar. Þar teljast hlutir maka og skyldmenna í beinan legg einnig með.

Nú er langt frá því einfalt eða aðgengilegt að rekja eignartengsl, þrátt fyrir lög um skráningu raunverulegra eigenda. Það er til dæmis þannig að Gunnþór Björn Ingvarsson er skráður raunverulegur eigandi Síldarvinnslunnar með tegund eignarhalds sem “bein stjórnun skráðs aðila” en í ársreikningi er Gunnþór hvergi á lista sem eigandi (þó líklega flokkist hann einhversstaðar innan hópsins “aðrir hluthafar” sem eru í árslok 2021 með 16,45% eignarhlut.

Stæsti einstaki eigandi Sildarvinnslunnar er Samherji hf með tæplega þriðjungseign. Afleiðingin af því ætti að þýða að Samherji eigi í raun þriðjung af þorskkvóta Síldarvinnslunnar og Vísis hf. ef af samrunanum verður. Þannig færi óbein eignaraðild Samherja á þorskkvótanum upp í næstum 10%. Það hlutfall gæti verið hærra eftir því hverjir eru í þessum hópi “aðrir hluthafar” því Þorsteinn Már Baldvinsson er til dæmis stjórnarformaður Síldarvinnslunnar og náskyldur eigendum Samherja, sem eru ólíkt Síldarvinnslunni skráðir með tegund eignarhalds á Samherja sem “eignarhald á hlutafé”. Á sama tíma er Þorsteinn Már Baldvinsson einnig skráður sem framkvæmdastjóri Samherja í síðasta ársreikningi. Á vefsíðu fyrirtækisins hefur sonur Þorsteins, Baldvin hins vegar tekið við síðan þá.

Hér þarf að spyrja stórra spurninga, því samkvæmt lögum um raunverulega eigendur þá er einhver raunverulegur eigandi sem á beina eða óbeina eignaraðild umfram 25% hlut. Síldarvinnslan kemst hins vegar hjá því að skrá raunverulega eigendur Samherja sem raunverulega eigendur Síldarvinnslunnar af því að Síldarvinnslan er skráð á markað. Því þó eignaraðild Síldarvinnslunnar sé tiltölulega dreifð þá eru mjög tengdir aðilar sem eiga nokkra stóra hluti

Það má líka spyrja hvers vegna tengdir aðilar þurfa að vera aðilar sem eiga meira en 50% en raunverulegir eigendur meira en 25%. Ég hefði haldið að sömu raunverulegir eigendur væru mjög tengdir aðilar.