Efnisyfirlit

Veistu að það er verið að svíkja loforð?

   15. desember 2021     2 mín lestur

Í rúm 20 ár hafa stjórnvöld svikið loforðið aftur og aftur. Af og til verður það svo vandræðalegt að það þarf að bæta það upp sérstaklega. Það gerðist árið 1998, 2000, 2002, 2009, 2012 og 2017. Loforðið snýst um kaup og kjör þeirra sem fá minna en lágmarkslaun og hafa ekki verkfallsrétt. Loforðið snýst um að þau sem hafa ekki færi á að semja um sín laun, með aðgerðum sem allir aðrir hafa, fái að minnsta kosti sömu launahækkun og allir aðrir. Þetta er loforðið sem hefur ítrekað verið brotið.

Á síðasta kjörtímabili var loforðið brotið svo hressilega að þessi hópur fékk einungis þrjá fjórðu af launahækkunum allra annara, auk þess að fá ekki lífskjarabæturnar sem var sérstaklega beint að öðrum láglaunahópum. Krónutöluhækkanirnar sem voru í lífskjarasamningunum fóru annað og þessi hópur fékk í staðinn að éta minna en meðalprósentuhækkun. Fjórðungi minna eða svo.

Þessi hópur eru öryrkjar og eldra fólk sem þurfa að treysta á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga. Loforðið til þeirra hefur verið ritað í landslög. Lögin sem segja að þau sem þurfa að treysta á lífeyri og hafa ekki rétt til kjarabaráttu eins og næstum allir aðrir fái aldrei minni launahækkun en allir aðrir og að minnsta kosti aldrei lægri hækkun en verðbólgan sem étur upp allt.

Ástæðan fyrir því að það hefur aldrei verið staðið við loforðið hefur verið túlkun stjórnvalda á lögunum. Stjórnvöld hafa nefnilega alltaf spáð fyrir um hver launa- og verðlagsþróun verði fyrir næsta ár og veitt lífeyrisþegum launahækkun samkvæmt þeirri spá. Sú spá hefur hins vegar ítrekað verið röng - þá of lág. Yfir árin er spáin orðin samtals 50% lægri en hún hefði átt að vera miðað við raunþróun á launum. Pældu í því ef þú værir með 50% lægri laun en þú ert með, bara af því að stjórnvöld ákveða að “túlka” kjarasamningana þína öðruvísi en það sem stendur í þeim. Þegar þú átt að fá 6% hækkun á launum færðu bara 4% hækkun. Væri það bara í lagi?

Á næsta ári á að hækka lífeyri um 5,6%. Það er ágætis hækkun umfram spá, sem er 3,6%. Ástæðan fyrir því er sögð vera vanmat stjórnvalda á verðbólgu í fyrra, sem átti að vera 3,6% en varð 4,4%. Það er því verið að bæta lífeyrisþegum upp tapið á þessu ári með 0,8% hækkun að viðbættu sérstakri 1% launahækkun. Vandinn er að launavísitala hækkaði miklu meira á þessu ári, eða um 7,6%. Það vantar því heil 2% í viðbót til þess að lífeyrisþegar haldi í við launaþróun.

Enn og aftur er því verið að svíkja loforðið en nú er þó verið að viðurkenna að það þurfi að leiðrétta fyrir vanmat fyrra árs. Sem er gríðarleg framför. Það fer hvergi nærri því að leiðrétta rúmlega 50% uppsafnað vanmat en það er ágætis fyrsta skref. Vandinn hefur verið viðurkenndur, næsta verkefni er að leiðrétta svikin loforð.