Efnisyfirlit

Tvenns konar stjórnmál

   1. júní 2021     2 mín lestur

Pólitík snýst um að velja lausnir við vandamálum.Vandinn er að við vitum fyrirfram ekki hvaða lausnir eru bestar. Það er því verkefni stjórnmálanna, stjórnsýslu og pólitíkusa saman, að reyna að komast að því. Hvernig það er gert má gróflega skipta í tvenns konar stjórnmál hér á Íslandi.

Annars vegar eru stjórnmál þar sem allir valmöguleikar eru skoðaðir, það er gerður faglegur samanburður og helstu álitamál vegin og metin. Kostnaður og ábati hvers valmöguleika er metinn og að lokum tekur pólitíkin við og velur bestu lausnina. Hér þarf alltaf að hafa í huga að það er ekkert sjálfsagt við að safna saman hugmyndum að lausnum, gera á þeim faglega greiningu eða velja svo úr bestu valmöguleikunum. Það er alltaf ákveðin ónákvæmni og óvissa ásamt því að í pólitíkinni þá eru mismunandi þættir mismikilvægir. Sumir leggja kannski meiri áherslu á lausnir sem koma til móts við fátækt á meðan aðrir velja lausnir sem koma til móts við byggðarsjónarmið.

Hins vegar eru það stjórnmál sem eru byggð á geðþóttaákvörðunum. Slík stjórnmál spara tíma í valkostagreiningar því þær skipta ekki máli vegna þess að sama hvað faglegt árangursmat segir þá trompa pólitískar skoðanir allt.

Það ætti að vera öllum augljóst hvers konar stjórnmál búa til betri lausnir fyrir alla en vandinn er að það er ekki endilega auðvelt að greina þarna á milli. Geðþóttastjórnmálin eru mjög góð í því að þykjast vera fagleg. Það gera þau til dæmis með því að gera yfirborðskenndar greiningar með fyrirfram gefinni niðurstöðu. Það eru pöntuð lögfræðiálit sem útiloka betri lausnir, gert lítið úr öðrum hugmyndum eða einfaldlega fullyrt að geðþóttalausnin sér best og eftiráskýringar búnar til eftir þörfum.

Nýleg dæmi um geðþóttastjórnmál er til dæmis Landsréttarmálið, þar sem það er vel skjalfest að geðþótti dómsmálaráðherra réði niðurstöðunni þrátt fyrir ráðleggingar um annað. Annað dæmi eru niðurlagning Nýsköpunarmiðstöðvar. Sú ákvörðun var tekin áður en búið var að ákveða hvað eða hvort eitthvað annað þyrfti að koma í staðinn. Það eru fjölmörg önnur dæmi um geðþóttastjórnmál á undanförnum árum, eins og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er til dæmis skýr vitnisburður um - þar eru engar kostnaðar- og ábatagreiningar eins og kom skýrt í ljós í síðustu viku þegar forstjóri Sjúkratrygginga Íslands sagði það hreint og beint að þau hefðu ekki hugmynd um hvort 700 þúsund krónur á dag fyrir stofulækni væri réttur kostnaður eða ekki.

Við eigum að krefjast þess að stjórnmálin geri betur. Að þau séu innihaldsrík og fagleg en ekki yfirborðskennd og ráðist af hugmyndafræðilegum geðþótta. Í dag ræður hins vegar geðþóttinn og því vilja Píratar breyta af því að við öll skilið að stjórnvöld geri sitt besta.